Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992. Fréttir_________________________ Karl Steinar Guðnason vill að ísland sæki um aðild að EB: Bara áherslumunur hjá okkur Karli Steinari - segirEiðurGuðnasonumhverfisráðherra „Hvaö viðkemur því sem Karl Steinar sagði í dag, um að viö ættum að sækja um aðild að Evrópubanda- laginu fyrir áramót, er það svipað og hann sagði fyrir tveimur árum. Hann er því samkvæmur sjálfum sér í því. Ég held að í þessu máli sé að- eins áherslumunur hjá okkur Karli. Ég tel umsókn ekki tímabæra á þess- ari stundu, ekki í dag. En ég ætla ekki að segja hvaða skoðun ég hef á því eftir einhvem tíma. Enda eru breytingar í heiminum svo örar að það er engin leið að segja til hvað verður eftir einhveija mánuði,“ sagði Eiður Guðnason umhvérfis- ráðherra í samtali við DV í gær- kveldi. Eiður sagðist viss um að það muni ekki ganga jafn hratt fyrir sig og margir halda að nágrannaþjóðir okk- ar gangi í bandalagið og verði þar fullgildir aðilar. Karl Steinar Guðnason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagði í samtali við DV í gærkvöldi að hann hefði sagt fyrir tveimur árum að hann teldi rétt af okkur að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. Hann sagðist ekkert hafa skipt um skoðun á þessum tíma. Það þyrfti því engum að koma á óvart þótt hann leggi til nú að íslendingar sæktu um aðild að Evrópubandalaginu fyrir áramót. „Breytingar í Evrópu hafa orðið svo hraðar á skömmum tíma að ef við eigum ekki að einangrast frá álf- unni er ekkert vit í öðru fyrir okkur en að sækja um aðild að EB og sjá hvað okkur stendur til boða. Annars verðum við bara afskipt sker úti í miðju Atlantshafi, án þess að geta haft áhrif á nokkum skapaðan hlut, á þau mál sem munu hafa áhrif á alla okkar lífsafkomu. Auðvitað er ég með alla þá fyrirvara um aðgang að auðlindum okkar sem allir hafa verið með. En umræðan hér á Al- þingi einkennist aftur á móti af al- gerri móðursýki um að vilja ekki tala við annað fólk. Við eigum auðvit- að að kanna hvaða möguleika við höfum. Ég tel okkur hafa mesta möguleika núna að kanna það þegar aðrar Norðurlandaþjóðir eru einmitt að sækja um aðild,“ sagði Karl Stein- ar Guðnason alþingismaður. -S.dór Það verður örugglega nóg að gera hjá Einari Jónssyni bensínafgreiðslu- manni og félögum hans á Olís-bensínstöðinni við Gullinbrú milli klukkan 16 og 18 i dag. Þá verða gefnir afgangar úr tönkunum í tilefni af frjálsu bensínverði. DV-mynd GVA Olís-bensínstöðin við Gullinbrú: Gef ur afganga úr tönkunum í dag -1 tilefni af frjálsu bensinverði „ Okkur kom saman um að gefa hinum almenna bíleiganda kost á að fagna með okkur fijálsu bensínverði. Þess vegna ætlum viö að gefa þessa slatta sem eftir eru á tönkunum hjá okkur. Við hefðum þurft að losna við þá hvort eð er, áður en við ákveðum nýtt verð. Bileigendur geta þvi fyllt farartæki sín af bensíni eða gasolíu í dag án þess að borga eyri fyrir,“ sagði Páll Magnússon er rekur Olís- bensínstöðina við Gullinbrú, við DV í gær. Sem kunnugt er verður verð á bensíni gefið frjálst frá og með degin- um í dag. Þetta þýðir að olíufélögin ákveða nú sjálf verðið á blýlausu 92 oktana bensíni, svartolíu og gasoliu. Verðlagningin hefur verið í höndum Verðlagsstofnunar þar til nú. Það er einmitt í tilefni þessara breytinga sem Páll ákvað að gefa fólki kost á að fylla bíla sína ókeypis í dag milli klukkan 16 og 18. „Þessi miðstýrða verðlagning hef- ur alltaf verið þymir í augum okkar sem stöndum í þessum rekstri," sagði hann. „Auðvitað hefði átt að vera búið að gefa þetta fijálst fyrir löngu. Nú sýnum við ánægju okkar í verki. Raunar er óvíst að bensínið endist á tönkunum hjá okkur þessar tvær klukkustundir því að það er víst far- iö að minnka á þeim suriium. En þeir fá örugglega fullan tank sem komafyrstir." -JSS Frumvarp viðskiptaráðherra um sölu rlkisbarikanna: Agreiningur í þingf lokk- um stjórnarf lokkanna - talið vist að frumvarpið verði ekki lagt fram óbreytt Frumvarp Jóns Sigurðssonar við- skiptaráðherra um sölu Landsbank- ans og Búnaðarbankans og gera þá méð því aö hlutafélagi mætir mikilli andstöðu í þingflokkum beggja stjómarflokkanna. í gær var þing- flokksfundur hjá Alþýðuflokknum þar sem harðar deilur urðu um frum- varpið. Samkvæmt Jieimildum DV er talið víst að óbreytt verði fmm- varpið ekki lagt fram. „Það er rétt að skoðanir em skiptar í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. En við eigum eftir að ræða frumvarps- drögin betur og því er ekki hægt að segja neitt meira um málið á þessu stigi,“ sagði Geir H. Haarde, formað- ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins, í gærkvöldi. / Hjá Alþýðuflokknuip er andstaðan við frumvarpið jafnvel enn harðari en í Sjálfstæðisflokknum. Þingmenn Krata, sem DV ræddi við í gær- kvöldi, sögðu engar sættir nást um frumvarpið óbreytt. Höfuðástæðan fyrir andstöðunni við fmmvarpið er ótti þingmanna við að ríkisbankarnir tveir komist í hendur tiltölulega fárra peninga- manna eins og Útvegsbankinn gerði þegar hann var seldur. Svo era aðrir sem ekki vilja selja báða ríkisbank- ana. Sérstaklega líta menn til Lands- bankans í þeim efnum. Þá er og mikil andstaða við sölu ríkisbankanna innan bankaráða og bankastjórnar þeirra beggja. Beita menn öllum hugsanlegum þrýstingi til að fá frumvarpið stöðvað. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra gerði ekki mikið úr þessari andstöðu í gær, sagðist búast við að samkomu- lag næðist. Hann bendir á fmmvarp sem stendur til að afgreiða á þessu þingi sem á að koma í veg fyrir einok- un og hringamyndun. Það fmmvarp á að koma í veg fyrir að ríkisbank- amir verði almenningshlutafélög eins og flestir stjómarþingmenn vilja ef selja á bankana. -S.dór Fyrrum forseti bæjarstjómar Seltjamamess: Bæjarstjóri ætti að taka viðvörun alvarlega - Seltimingar em búnir að verja allt að 80 milljónum í friðlýsingu lands „Bæjarstjórinn ætti að taka við- vömn okkar alvarlega í stað þess að reyna að eyða málinu. Samkvæmt lögrnn er nú komiö aö því að þaö á að ganga frá aðalskipulaginu og við ætlum okkur að hindra að það verði gert samkvæmt öllum þeim hug- myndum sem liggja fyrir í dag. Við viljum að svæðið verði í framtíðinni eins og það hefur verið í gegnum ald- imar. Það á að vera opið, með göngu- stígum og trimmbrautum, en alls ekki hringvegi í gegnum varplandið með steinsteypu þar fyrir innan,“ segir Magnús Erlendsson, fyrmrn forseti bæjarstjórnar á Seltjamar- nesi. Magnús gegndi embætti forseta bæjarstjórnar á ámnum 1976 til 1986. Næstu fjögur árin á eftir gegndi Guðmar Magnússon embættinu. Þeir tveir ásamt Jóni Hákoni Magnús- syni, formanni fulltrúaráðs Sjálf- stæðisflokksins á Seltjamamesi, hafa skrifað meirihluta sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn bréf þar sem varað er við klofningi í flokknum verði ekki hætt við allar hugmyndir um að skipuleggja byggð og akvegi um vestanvert Seltjamarnes. Að sögn Magnúsar hefur bæjar- stjórn varið allt að 80 milljón krónum á undanfómum ámm tíl að kaupa upp landsvæði á vestanverðu Sel- tjarnamesi til að geta friðlýst það. Því séu það svik viö íbúa á Seltjam- amesi veröi ákveðið að byggja á svæðinu og leggja um það vegi eins og hugmyndir eru uppi um hjá nú- varandi meirihluta bæjarstjórnar. „Landeigendur sóttu gífurlega fast í það að fá að byggja á svæðinu sam- kvæmt aðalskipulaginu frá 1974. Þaö skipulag var hins vegar meingaUað. Því stóð ég gegn þessu ásamt mínum gamla félaga Júlíusi Sólness og vinstrafólkinu. Siðan hætti ég og Júlíus gekk í björg. í kíölfarið féll Valhúsahæðin og menn byrjuðu að byggja einbýlishús þar. Bæjarstjór- inn virðist ekki skynja að tímamir breytast. Fólk vill opin svæði.“ Magnús segist þess fullviss að yfir 90 prósent íbúa á Seltjamamesi legg- ist gegn því að byggðin verði aukin á vestanverðu Nesinu og aö hring- vegur verði lagður vestan Nesstofu. Veginn segir hann ekki þjóna Sel- timingum. Vilji höfuðborgarbúar skoða svæðið sé þeim það velkomið gangandi. Þá segir hann enga þörf á því að fjölga íbúum Seltjamarness enda hafi bærinn aUt sem hann þurfl. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.