Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Börn náttúrunnar
Kvikmynd Friðriks Þórs Friðikssonar fékk ekki ósk-
arsverðlaun. Það eru auðvitað vonbrigði í ljósi þess að
myndin var tilnefnd sem ein af fimm erlendum kvik-
myndum til verðlaunanna. Kunnugir voru sömuleiðis
nokkuð bjartsýnir og það ríkti eftirvænting meðal
áhugamanna um kvikmyndalistina hér á landi.
Enda þótt svona hafi farið er ástæðulaust að gráta
Björn bónda. Sannleikurinn er sá að það er mikill heið-
ur og afar óvænt viðurkenning þegar íslensk kvikmynd
kemst 1 hóp þeirra bestu. í því er sigurinn fólginn, sigur
Friðriks Þórs og sigur þessarar ungu listgreinar.
Kvikmyndaiðnaður hefur átt erfitt uppdráttar hér
heima enda þótt hvorki skorti áhuga né fólk til að hasla
sér völl á þeim vettvangi. Það er dýrt að framleiða kvik-
mynd og fjárhagsþrengingar hafa staðið okkar fólki fyr-
ir þrifum. Kröfurnar hafa verið miklar og stundum
óbiigjarnar á hendur ríkisvaldinu um styrki og fjárveit-
ingar til kvikmyndaframleiðslu og þrátt fyrir Kvik-
myndasjóðinn og virðingarverðar tilraunir til að styðja
við bakið á greininni stendur íslensk kvikmyndafram-
leiðsla á miklum brauðfótum. Margar góðar myndir
hafa verið framleiddar hér á landi en aðrar líka afar
slakar og fæstar hafa þessar myndir fengið þá aðsókn
sem dugar til að standa undir kostnaði. Til þess að kvik-
myndaframleiðsla eigi sér framtíð þurfa myndirnar að
komast á alþjóðlegan markað sem gjaldgeng söluvara.
Þegar til lengri tíma er litið er nánast útilokað að
ætlast til þess að ríkið geti staðið undir kvikmyndafram-
leiðslu eða veitt svo mikið fjármagn til hennar að viðun-
andi sé. Áhugafólk í greininni verður sjálft að sanna sig
og framleiða söluhæfa vöru. Enda getur enginn ætlast
til þess að almannafé sé ausið 1 þessa framleiðslu á ári
hverju þótt sjálfsagt sé að hjálpa framleiðendum til að
hjálpa sér af stað. Að því leyti er kvikmyndaiðnaðurinn
eins og hver önnur atvinnugrein sem þarf að sanna til-
veru sína með eigin ágæti. Því fyrr sem kvikmyndafram-
leiðendur þurfa ekki að sníkja almannafé með betlistaf
í hendi því betra.
Sú athygli, sem Böm náttúrunnar hefur notið að
undanfórnu, er vítamínsprauta fyrir kvikmyndagerðar-
menn. Árangur Friðriks Þórs sannar að það er ekki
allt fengið með því að framleiða langar og rokdýrar
myndir. Umtahð og athyglin, sem Böm náttúmnnar fær
í sviðsljósi óskarsins, á að hjálpa öðrum og auðvitað
Friðrik sjálfum til að feta sig áfram og koma fram-
leiðslu sinni á' framfæri þannig að markaðurinn reiði
fram fjármagnið sem til framleiðslunnar þarf.
Kvikmyndaframleiðsla getur verið ein ábatasamasta
framleiðsla nútímans enda jafnan talað um hana sem
iðnað frekar en listgrein og má einu gilda ef og meðan
menn standa og falla með sínum eigin verkum.
Hingað til hefur íslenskt kvikmyndagerðarfólk verið
eins konar böm náttúrunnar, í þeim skilningi að það
hefur starfað við fmmstæðar aðstæður, takmarkað íjár-
magn og víðs fjarri meginstraumum kvikmyndaheims-
ins. Með tilnefningunni á mynd Friðriks Þórs emm við
komin til byggða og tilnefningin á sömuleiðis að veita
kvikmyndaáhugamönnum okkar sjálfstraust. Það er
ekki ónýtt að eiga mynd á meðal þeirra bestu.
Óskarinn fengum við ekki en orðstír deyr aldrei þeim
sem sér góðan getur. Orðstír Friðriks Þórs mun spyrj-
ast og verða honum og kollegum hans hér heima til
framdráttar. íslenskir kvikmyndaframleiðendur geta
sannarlega verið stoltir af Börnum náttúrunnar.
Ellert B. Schram
„Flest verkefni landbúnaðarráðuneytisins falla mjög vel inn í starfssvið annarra ráðuneyta...,“ segir m.a.
í greininni.
Leggjum land-
búnaðarráðu-
neytið niður
Tillaga um að leggja landbúnað-
arráðuneytið niður kann að hljóma
sem spaug en hún er lögð fram í
fullri alvöru. Tilgangurinn með því
að leggja ráðuneytið niður er ekki
aðeins sá að ná fram sparnaði og
hagræðingu heldur einnig að hraða
fráhvarfi frá þeirri forsjárhyggju
sem enn eimir af í íslensku þjóðfé-
lagi.
Utgjöld sem falla undir landbún-
aðarráðuneytið nema 5,3 milljörð-
um króna samkvæmt fjárlögum
fyrir árið 1992. Af þeim eru u.þ.b.
3,5 milljarðar greiðslur vegna bú-
vöruframleiðslu en stjórnvöld ættu
með öllu að hverfa frá þvi að greiða
fyrir framleiðslu á einstaka neyslu-
vörum og brengla á þann hátt verð-
mætamat og ákvaröanir. Önnur
verkefni landbúnaðarráðuneytis-
ins eiga jafn vel eða betur heima í
öðrum ráðuneytum.
Hugarfarsbreyting
Þar til nú hefur verið þörf á sér-
stöku landbúnaðarráðuneyti, en á
síðustu árum hefur þjóðfélagið tek-
ið stakkaskiptum og er hið nýja
umhverfisráðuneyti tímanna tákn.
Áður var mikilvægt að sauðféð
fengi næga fæöu á afréttum en nú
er lögð áhersla á að sauðfé og aðrir
grasbítar gangi ekki of nærri gróðri
landsins. Áöur var talin þörf á að
vemda sauðfé fyrir ökutækjum en
nú er einnig talað um að vemda
ökutæki fyrir sauðfé. Nú er rétti
tíminn til að staðfesta þessa hug-
arfarsbreytingu meö því að fækka
verkefnum landbúnaöarráðuneyt-
isins til aö byrja með og leggja það
síðan niður.
Til tals hefúr komið að stofna
atvinnumálaráðuneyti með sam-
einingu ráðuneyta landbúnaðar,
iðnaðar og sjávarútvegs. Fækkun
verkefna hjá landbúnaöarráöu-
neytinu er eðlilegt skref í þá átt.
Verkefni sem leggjast af
Stærstu útgjaldaliðir landbúnað-
arráðuneytisins em „Uppbætur á
útfluttar landbúnaðarafuröir"
rúmur milljarður og „Beinar
greiðslur til bænda“ 1,5 milljarðar.
KjáUarinn
Snjólfur Ólafsson
dósent við Háskóla íslands
Það er stefna ríkisstjómarinnar að
greiða ekki framar útflutningsbæt-
ur og fellur því fyrri hðurinn sjálf-
krafa niður um næstu áramót.
Beinu greiðslumar em erfiöari
viðfangs.
Staðan virðist vera þannig nú að
alþingismenn verði aö samþykkja
lög um þessar greiðslur til ársins
1997 þar sem fyrrverandi landbún-
aðarráöherra gerði samning þess
eðlis við hagsmunaaöila í landbún-
aði. Sennilega er hægt að komast
hjá því að inna þessar greiðslur af
hendi, en ef ekki þá verður að taka
því. Meginatriöið er að framlengja
ekki samninginn, þ.e. að stjómvöld
haldi ekki áfram að greiða fyrir
framleiðslu á búvörum.
Önnur verkefni, sem eðlilegt er
að leggja niður, em greiðslur til
rekstrar Búnaöarfélags íslands,
uppkaup á fullvirðisrétti og ýmsar
aðrar greiðslur vegna búvöru. Að
sjálfsögðu getur Búnaðarfélag ís-
lands starfað áfram sem hags-
munasamtök bænda, en það verður
þá rekið á kostnað hagsmunaaðil-
anna eins og t.d. LÍÚ og Landssam-
band iönaðarmanna. Sum verkefni
Búnaöarfélagsins færðust til Hag-
stofunnar.
Verkefni til
annarra ráðuneyta
Flest verkefni landbúnaðarráðu-
neytisins falla mjög vel inn í starfs-
svið annarra ráðuneyta en hér
verður aðeins tvennt tínt til. ÖU
verkefni sem snúa að landgræðslu
og skógrækt ættu að færast til
umhverfisráðuneytis en rann-
sóknastofnanir og skólar til
menntamálaráðuneytis.
Tveggja ára áætlun
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra þurfti örfáa mánuði til að
leggja Skipaútgerö ríkisins niður.
Hann hefur tekist á við íleiri þörf
verkefni, t.d. er sú áhersla sem
hann leggur á að sveitarfélög sam-
einist inn rekstur hafna mjög til
fyrirmyndar.
Ég skora hér meö á Halldór
Blöndal landbúnaðarráöherra að
vinna að áætlun um að leggja land-
búnaðarráðuneytið niður á tveim-
ur til þremur árum. Ljóst er að
þetta verkefni verður að vinnast á
nokkuð löngum tíma og hags-
munaaðilar munu vinna gegn þvi,
en ég hef þá trú að Halldór sé rétt-
ur maöur til að ráðast í verkið af
festu og þolinmæði.
Snjólfur Ólafsson
„Til tals hefur komiö að stofna atvinnu-
málaráðuneyti með sameiningu ráðu-
neyta landbúnaðar, iðnaðar og sjávar-
útvegs. Fækkun verkefna hjá landbún-
aðarráðuneytinu er eðlilegt fyrsta
skref í þá átt.“