Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992. 25 Sviðsljós Baröi Friðriksson og eiginkona hans, Þuríður Þorsteinsdóttir. Þuríður held- ur hér á forláta horni sem Sigurður H. Guðmundsson, sóknarprestur í Víði- staðasókn í Hafnarfirði, færði Barða að gjöf. Barði Friðriks- son sjötugur Barði Friðriksson, hæstarréttar- lögmaður og lögmaður Vinnuveit- endasambands íslands, varð sjötug- ur á laugardaginn. Af því tilefni bauð hann til sín gestum í Ársal Hótel Sögu á afmæhsdaginn og er óhætt að segja að margt hafi verið um manninn en tæplega fimm hundruð manns mættu í veisluna. Fjölmargar ræður voru fluttar af- mæhsbaminu til heiðurs og á meðal þeirra sem tóku til máls voru Þórar- inn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Hahdór Jónsson verk- fræðingur og Þorsteinn Jóhannes- son, fyrrverandi prófastur í Vatns- firði, en hann er tengdafaðir Barða. AfmæUsbarninu bárust fjölmargar gjafír og þá söng Grundartangakór- inn nokkur lög. Barði var þó ekki eina afmælisbarn dagsins því Þórdís Lilja Ævarsdóttir, barnabarn hans, átti 18 ára afmæh þennan sama dag. Afmælisbarnið ásamt Halldóri Jónssyni verkfræðingi. T.h.: Halldór flutti Barða kveðju fyrir hönd „pottfélag- anna“ en það eru félagar hans sem hafa hist í Laugar- dalslauginni í gegnum árin. Tæplega fimm hundruð manns koma í veisluna og hér sést hluti þeirra hlýða á eina af fjölmörgum ræðum sem fluttar voru. Lengst til vinstri er afmælisbarnið ásamt eiginkonu sinni. DV-myndirJAK Flosi Ólafsson, leikari og land- eigandi í Reykjadalsá i Ðorgar- firði, lætur gamminn geisa. Árshátíö Strauma: Flosi kitlaði hlátur- taugamar „Flosi er óborganlegur," sagði eirm veislugesta á árshátíð Veiði- félagsins Strauma um helgina en þar sýndi Flosi Ólafsson leikari sínar bestu hUðar. Flosi er einn af landeigendum við Reykjadalsá f Borgarfirði og þá veiðiá leigir veiðifélagið Strauraar. -G.Bender Veislugestum var greiníiega skemmt þegar Flosi hóf upp raust sina á árshátíðinni. DV-mynd G. Bender „Björgun 92": Ráðstefna um bj örgunarmál - einnig sýning á björgunartækjvun Landsbjörg, landssamband flug- björgunarsveita, og Rauði Kross íslands efndu til ráðstefnu um björgunarmál um síðustu helgi. Yfirskriftin var „Björgun 92“ og voru þátttakendur yfir 300 en um 30 sérfræðingar fluttu erindi. Sam- hUða ráðstefnunni var síðan haldin sýning á björgunartækjum sem yf- ir 6000 manns sóttu. Ráðstefnan var haldin á Hótel Loftleiðum en sýningin í björgun- armiðstöð Flugbjörgunarsveitar- innar við FlugvaUarveg. Fjölmarg- ir aðUar sýndu ýmsan björgunar- búnað og tæki og m.a. kom til landsins fullkomnasti sjúkrabUl sem hér hefur verið. BílUnn kostar á sjöttu mUljón króna og eru þá ýmis gjöld ekki innifaUn. Hversu lengi sjúkrabfilinn verður hérlend- is skal ósagt látið en mikiU áhugi er á því að hann verði hér áfram og bætist í hóp þeirra sjúkrabUa sem fyrir eru. Fjölmargir aðilar sýndu búnað og tæki til björgunarmála og hér virð- ir einn sýningargesta fyrir sér eitt af því sem i boði er. Ragnar Th. Sigurðsson Ijósmyndari var einn þeirra sem lagði til bil á sýninguna. Eins og sjá má er bill Ragnars engin smásmiði en fjallabíll- inn mun koma sér afar vel þegar Ijósmyndarinn þarf að sinna myndatök- um upp um fjöll og firnindi. DV-myndir JAK Sýningargripirnir voru bæði utan- og innandyra og fólkið var ófeimið við að prófa eins og maðurinn hér á myndinni sem virðist vera að at- huga hvort bakkgírinn sé í lagi. 19 SKIPHOLTI SÍMI 29800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.