Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Page 32
F R É T T A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 63 2700
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992.
Hungurfanginn
j sjúkrahús
Fanginn Baldvin Ragnarsson, sem
nýlega var fluttur úr Hegningarhús-
inu á Borgarsjúkrahúsið vegna lang-
varandi hungurverkfalls, fór aftur á
sjúkrahús fyrir síðustu helgi. Bald-
' vin fékk þá verki fyrir hjarta.
Fanganum var gefin næring í æð á
sjúkrahúsinu. Hann er hins vegar
kominn aftur inn í Hegningarhúsið
og byrjaður að svelta sig aftur en
hann borðaði mat í fangelsinu um
helgina eftir sjúkrahúsdvöldina.
Lögmaður Baldvins fór fram á það
við Fangelsismálastofnun að Baldvin
yrði látinn laus vegna hættu á alvar-
legu heilsutjóni. Var hann þá búinn
—aö svelta sig um 2-3 vikna .skeið.
Beiðni lögmannsins var hins vegar
hafnað. Hungurverkfall Baldvins
hófst í raun áður en hann fór í afplán-
un. Ástæðan fyrir svelti Baldvins,
sem er 38 ára, er að hann hefur aldr-
ei fengið bílpróf. Lögfræðingur hans
vinnur þessa dagana við að reyna að
fálausnámálumfangans. -ÓTT
Búvaralækkarum
> eittprósentáári
Raunverð á búvöru til neytenda
gæti lækkað að jafnaði um eitt pró-
sent á ári á aðlögunartíma nýs
GATT-samnings, segir í skýrslu
nefndar á vegum landbúnaðarráð-
herra. Störfum í landbúnaði mun
fækka um 2 prósent og markaðshlut-
deild erlendra búvara í neyslu mun
aukast úr 700 til 1000 milljónum í
1200 til 1400 milljónir. -kaa
AWACsvélarnar
burtísumar
Bandarísku AWACs ratsjárflugvél-
◄brnar munu hverfa héðan í sumar
þar sem íslensk og bandarísk stjóm-
völd hafa ákveðið að þeirra sé ekki
lengur þörf hér á landi. í frétt frá
utanríkisráðuneytinu er þetta sagt
vera vegna breyttra aðstæðna í ör-
yggismálum á alþjóðavettvangi.
Umræddar flugvélar eru notaðar
til að fylgjast með ferðum herflug-
véla sem koma inn á íslenskt loft-
varnasvæði án flugáætlunar. Munu
nýju ratsjárstöðvarnar í hveijum
landsfjórðungi geta sinnt reglu-
bundnu eftirliti með aðstoð F-15 flug-
véla sem eru á Keflavíkurflugvelli.
Brotthvarf AWACs vélanna mun
ekki hafa í för með sér atvinnumissi
fyrir íslendinga, að sögn ráðuneytis-
-wns. Þá geta þær komið aftur með
skömmum fyrirvara krefjist öryggi
og varnir landsins þess á hættutim-
um. -JSS
LOKI
Nú eru bændurgengnir
af göflunum!
■ ■
Of ug markaðssetnlng
að láta fé piira menn
„Viö erum að reyna að benda á
tengsl lambakjötsneyslu og gróður-
verndar. Máttugasta náttúm-
verndin, sem hefur fariö fram sið-
ustu 25 árin, er minni neysla.
Bændur hafa þar af leiðandi getað
skipulagt beit dálítið betur.“ Þetta
segir Jón H. Hannesson, bóndi í
Ölfusi, sem er í undirbúningsnefhd
til stuðnings banni við lausagöngu
búfjár í iandnámi Ingólfs. Nefndin
hyggst koma á samstarfi óskyldra -
aðila til aö koma sjónarmiöum sín-
um á framfæri. Hefur nefndin unn-
ið áætlun um átak gegn neyslu
lambakjöts, „lambakjötslausa
viku“, til að vekja athygli bænda á
að þeir verði að taka tillit til kröfu
neytenda um gróðurvemd.
„Bændur verða að átta sig á að
ein ástæðan fyrir minnkandi
neysiu á iambaigöti er gróður-
verndarsjónarmið. Við teljum að
þessi rök hafi verið vanmetin af
bændum. Fólk er þreytt á því að
eltast við rollur á sumarbústaða-
löndum sínum, auk þess sem það
þarf að eyða stórfé í girðingar. Það
er öfug markaðssetning á kjötinu
aö láta féð pirra landsmenn," segir
Jón.
Fyrir þingi er nú tillaga um bann
viö lausagöngu búfjár f landnámi
Ingólfs. Fjallað var um þessa tillögu
á búnaðarþingi á dögunum. „Þar
sögðu bændur að tiilagan væri
óþörf og að verið væri að vinna í
málinu. Þeir sögðu að tillagan væri
tímaskekkja en höfnuðu henni þó
ekki alfarið." Jón bendir á að mjög
auðvelt sé að ná öliu því kjöti sem
þörf sé fyrir án þess að sleppa fénu
á viðkvæm eða þéttbýl svæði.
„Bændur geta auðveldlega skipu-
legt beitarmál sín betur,“ fullyrðir
hann.
Jón getur þess að í sveitum Öif-
uss búi um 120 fjölskyldur og séu
kindur á tiu til tuttugu bæjum.
„Allir hinir þurfa að girða sig af frá
þessum rollum. Þeim er sleppt út á
afrétt og þaðan komast þær hvert
sem er. Allir þurfa að vetja sig. í
staðinn væri hægt að setja kind-
urnar í ákveðin hólf. Það eru
reyndar nú þegar nokkrir hér með
örfáar kindur inni á sínum löndum
og stafa engin vandræöi af þeim.“
Jón, sem sjálfur er í ferðaþjón-
ustu bænda, leggur á þaö áherslu
að fleira fólk sé í sveitunum en
sauöfjárbændur. „Það eru hags-
munir sveitamanna að sveitirnar
verði failegri. Þá vill fólk flytja
þangað starfsemi sína. Sauðfjár-
bændim ættu að taka vei í viðleitni
þeirra flölmörgu aðila og samtaka
sem vilja aukið skipulag og aukna
landvernd. Viö viljum að menn
fagni þessarí viöleitni i stað þess
að lita svo á að verið sé að vinna
gegnþeim." -IBS
Börn náttúrunnar hlaut ekki óskarsverðlaunin í Hollywood eins og kunnugt er en hefur samt vakið verðskuldaða
athygli sem kemur til góða við dreifingu á myndinni vestanhafs. Myndin er tekin i samkvæmi eftir óskarsverðlauna-
hátlðina. Á henni eru Friðrik Þór Friðriksson ásamt eiginkonu sinni, Heru Sigurðardóttur, Sigurjón Sighvatsson
kvikmyndagerðarmaður og Ari Kristinsson, kvikmyndatökumaður Friðriks við gerð Barna náttúrunnar.
DV-mynd Hlédis Sveinsdóttir
Veöriðámorgun:
Skýjað að
mestu
þurrt
Á morgun verður norðaust-
anátt og spjókoma eöa él á Vest-
fjörðum og vestantil á Norður-
landi en annars staðar á land-
inu veröur suðvestanátt eða
hægviðri. Dálítil rigning með
ströndinni norðaustantil en um
landiö sunnanvert verður skýj-
að að mestu en þurrt.
Frjálst bensínverð:
Félögin þrjú
með sama verð
Lítil verðsamkeppni var hjá olíufé-
lögunum þremur í morgun þrátt fyr-
ir að verð á bensíni, gasolíu og svart-
olíu hafi verið gefið frjálst frá og með
deginum í dag. Ekkert olíufélaganna
breytti verði í morgun.
Olíufélögin ákveða núna sjálf verð
á bensíni en ekki Verðlagsstofnun.
Hvert félag verður að hafa sama verð
í höfuðborginni og úti á landsbyggð-
inni.
í morgun voru öll félögin með sama
verð á blýlausu 92 oktana bensíni,
55.10 krónur lítrann. Óbreytt verö frá
því sem var áður.
Verð á blýlausu 95 oktana bensíni
var 58,70 krónur lítrinn hjá ESSO,
58,70 krónur hjá Olís og 58,80 krónur
lítrinn hjá Skeljungi. Óbreytt verð
miðað við áður.
Verð á súperbensíni, 98 oktana, var
62.10 krónur lítrinn hjá ESSO, 62
krónur hjá OLÍS og 62 krónur hjá
Skeljungi. Óbreytt verð.
Félögin þrjú voru öll með sama
verð á dísilolíu, 20,70 krónur lítrann.
Það er einnig sama verð og áður.
Til þessa hefur verð á blýlausu 95
oktana bensíni og 98 oktana súper-
bensíni verið fijálst en verð á blý-
lausu 92 oktana bensíni ákveðið af
Verðlagsstofnun.
-JGH
CEC33HII
,-Brook
(rompton
J
RAFMOTORAR
VtotEÍsen
SuAurlandsbraut 10. 8. 686490.