Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1992, Page 14
14
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Hvort ræða skuli
Dæmigert fyrir íslenzka stjórnmálauinræðu er, að
undanfarna daga hefur mjög verið deilt um, hvort ræða
skuh um hugsanlega aðild Islands að Evrópubandalag-
inu eða ekki. Umræðan snýst að íslenzkri hefð meira
um formsatriði en innihald þessa mikilvæga máls.
Á Alþingi er rætt um, hvort hugleiðingar um aðild
að Evrópubandalaginu séu innanríkismál eða utanríkis-
mál á þessu stigi og hvort utanríkisráðherra hafi farið
á svig við stjórnarstefnuna með því að ræða þetta við-
kvæmnismál í nýrri skýrslu sinni um utanríkismál.
Inn í umræðuna fléttast hugleiðingar um, hvort rétt
sé að máta flík áður en hún sé keypt eða hvort yfirhöf-
uð sé rétt að máta flík, sem ekki standi til að kaupa. Á
þessum gáfulegu nótum ramba þingmenn og flokksleið-
togar um ræðustól Alþingis fram á rauða nótt.
í leiðurum þessa blaðs hefur nokkrum sinnum verið
lagzt gegn aðild að Evrópubandalaginu og færð að því
margvísleg rök. Það er framlag til nauðsynlegrar um-
ræðu um slíka aðild. Á sama hátt eru hugleiðingar utan-
ríkisráðherra nauðsynlegt framlag til umræðunnar.
Auðvitað á að ræða aðild að Evrópubandalaginu,
hvort sem menn telja umræðuna innan- eða utanríkis-
mál og hvort sem menn vilja kaupa flík eða ekki kaupa
flík. Umræðan um bandalagið á raunar að vera einn
mikil vægasti þáttur þjóðmálaumræðunnar hér á landi.
Aðstæður eru alltaf að breytast og sömuleiðis mat á
aðstæðum. Komið hefur í ljós, að nærri öll ríki Fríverzl-
unarsamtakanna líta á Evrópska efnahagssvæðið sem
biðsal aðildar að Evrópubandalaginu. Við höfum hins
vegar htið á efnahagssvæðið sem okkar endastöð.
Hver verður staða okkar, ef þróunin stefnir í þá átt,
að ísland og Lichtenstein verði ein vesturevrópskra
ríkja utan við Evrópubandalagið um næstu aldamót og
ef þá verði Austur-Evrópa á leið inn í bandalagið? Verð-
ur hafþjóðin frjálsari eða einangraðri en eha?
Spurningin verður áleitnari, ef Evrópubandalaginu
tekst enn einu sinni að klúðra nýgerðum samningi um
Evrópska efnahagssvæðið. Það getur leitt til, að nærtæk-
ari verði tillögur um, að við sækjum um aðild að Evrópu-
bandalaginu 1 samfloti með öðrum fyrir áramót.
Því er haldið fram, að við verðum að sækja um aðild
th að komast að raun um, hvort við getum náð sómasam-
legum samningi um fiskimiðin. Þar á ofan er því haldið
fram 1 vaxandi mæh, að við höfum hingað th ofmetið
hættuna á útlendum aðgangi að fiskimiðum okkar.
Sjávarútvegsráðherra Danmerkur segir, að regla
Evrópubandalagsins um, að ekki megi spiha innbyrðis
stöðugleika, komi í veg fyrir, að portúgölsk eða spænsk
veiðiskip geti farið að blanda sér í heföbundnar veiðar
íslendinga í 200 mhna fiskveiðhögsögunni.
í nýútkominni prófritgerð Ketils Sigurjónssonar lög-
fræðings er bent á möguleika íslendinga á neitunar-
valdi í sjávarútvegsmálum innan Evrópubandalagsins;
leiðir til að hindra kvótatöku útlendinga; og styrki
bandalagsins til eftirhts og fiskveiðistjómar.
Á móti ýmsum slíkum sjónarmiðum er svo bent á,
að ekki sé víst, að um sé að ræða fylhlega fjárheldar
girðingar, svo að notað sé orðaval formanns Framsókn-
arflokksins. Um þessi atriði og önnur slík þarf að fá
fleiri áhtsgerðir og efla umræðu innan Alþingis og utan.
Ef aðhdarumsókn verður nytsamur þáttur í þessari
leit, verður samt að tryggja, að hún leiði ekki th, að við
rennúm sjálfkrafa og óvart inn í Evrópubandalagið.
Jónas Kristjánsson
■ - ■
„Hvar kemur íslenskur sjávarútvegur inn i dæmið ef þvi ætti að ráöa í Briissel hverjir mættu stunda sjó hér
við land og verka fisk?“
Athyglinni beint
frá viðfangsef ninu
Utanríkisráðherra segir þaö ekki
á dagskrá að sækja um aöild ís-
lands að evrópsku samfélögunum
(ES) en vill láta rannsaka áhrif
aðildar. Er nokkuð á móti því að
rannsaka áhrif aðildar fyrirfram?
Rannsóknir um nútíð og fortíð
eru ekki alltaf merkilegar, eins og
dæmin sanna. Rannsóknastofnun
ein komst að því fyrir annan ráð-
herra að sjúkhngar landsins væru
þjóðinni býsna dýrir og því ylli
m.a. að fólk lægi úr hófi lengi á
sjúkrahúsum hér og miklu lengur
en annars staðar á Norðurlöndum.
Tveir vel metnir læknar hafa nú
sýnt fram á að þetta er rangt. Hér
sé sjúkrahúslega ekki lengri.
Hvers er aö vænta af rannsókn
um framtíðina þegar svona tekst
til um nútíðina þar sem gögn eru
tiltæk? Víst er að fyrir 5-10 árum
sáu sérfræðingar ekki fyrir þær
sviptingar sem verið hafa í Evrópu
austanverðri undanfarið, hversu
mikið sem þeir rannsökuðu.
Grundvallaratriði
Tvö rit hafa komið út þar sem
gerð er grein fyrir sjávarútvegs-
stefnu ES, annað gefið út af örygg-
ismálanefnd Alþingis og hitt af al-
þjóðamálastofnun Háskólans. Þar
er margt fróölegt að lesa um það
sem er og hefur verið. Höfundar,
sem eru orðnir fróðir um nútíöina,
vilja sem von er gera sér einhverja
grein fyrir framtíðinni. Mér sýnist
að lengst verði komist með því að
líta á grundvallaratriði og láta ekki
nákvæmnisatriði um framkvæmd
á líöandi stund skyggja á þau.
Það er grundvallarregla í ES að
þegnar og fyrirtæki, hvar sem þau
væru skráð, hafi rétt til atvinnu-
rekstrar hvar sem er. Önnur regla
er hvergi skráð en er afleiðing af
stjómnjálastarfi í lýðræðisríkjum.
Hún er viöleitni til aö jafna kjör
þegnanna. Meö því að láta fyrri
regluna gilda ætla menn að fá sem
mest til skiptanna í ES sem heild
þegar kemur að því aö jafna kjörin.
Hvar kemur íslenskur sjávarút-
vegur inn í dæmið ef því ætti að
ráða í Brussel hverjir mættu
stunda sjó hér við land og verka
fisk? Mundu 0,1% ES-íbúanna fá til
langframa að halda 99,9% íbúanna
frá slíkum rekstri ef mikill hluti
íbúa í sjávarbyggöum ES byggi við
sömu kjör eða lakari en þetta
prómill íbúanna? Því yrði ekki
haldið fram að þaö væri til að jafna
kjörin aö halda erlendum fyrir-
tækjum frá veiöum hér viö land
heldur væru þvert á móti rök til
þess að knýja fram með einhveij-
um ráðum almennan rétt fyrir-
tækja í ES-ríkjum til að stunda hér
sjó.
Með þessar tvær meginreglur í
huga - önnur er skráð í Rómarsátt-
mála en hin staðfest af almennri
reynslu - er ekki líklegt að íslend-
ingar fengju að ráða því til lengdar
hverjir hér stunduðu sjó og enn
KjáUaxinn
Björn S. Stefánsson
dr. scient
síöur fyrir það að vitað er um
áhrifamikla menn í íslenskum
sjávarútvegi og stjórnmálum sem
ekki eru andvígir þvi að erlend út-
gerðarfyrirtæki fái að athafna sig
hér.
Hygginn veiði-
maður bíður færis
Ef settir yrðu sérfræðingar til að
rannsaka áhrif ES-aðildar yrðu
menn á kafi við að rannsaka margt
sem í sjálfu sér kann að vera at-
hyglisvert. Slíkt starf skyggir auð-
veldlega á kjama málsins sem er
forræðið yfir og arðurinn af gjöful-
um auðhndumsem eru þó ekki svo
ríkulegar, ef íslendingar eiga að
halda hlut sínum til jafns við ná-
lægar þjóðir, að þær beri líka út-
lendinga sem búa viö rýrari fiski-
slóðir.
Fiskislóðir við ísland hafa til
skamms tíma verið veiðilendur
ýmissa þessara ríkja. Hygginn
veiðimaöur, sem hefur misst bráð,
en sættir sig ekki við það, fer hægt
að henni og styggir hana ekki, held-
ur híður færis þegar hún á enga
undankomu. Meðan hugsanlegt er
að Noregur, Færeyjar og ísland
skipist í bandalag með ES-ríkjum
er þar svo mikil veiðivon að hyggi-
legt er fyrir ES að fara sér hægt í
samræmingu á sjávarútvegsmál-
um og styggja ekki bráðina.
Þegar dauðinn nálgast fara menn
að hugleiða hann. Kalla má til sér-
fræðinga (sálusorgara) þótt þeir
viti ekki meira um aðalatriðið en
aðrir. Þannig má samt sætta sig viö
hlutskiptið. Það gæti veriö gott ráö
til að venjast tilhugsuninni um að-
ild íslands að ES að láta menn sýsla
við ýmsar ES-rannsóknir og kynna
almenningi niðurstöður. Aðalatr-
iðið skýrist samt ekki við það.
Athygli beinist
frá EES-samningum
Aðalverkefni utanríkisráðherra
næstu mánuði er að fá Alþingi til
að staðfesta samninginn um Evr-
ópskt efnahagssvæði (EES) og
breyta lögum í samræmi við hann.
Þeir sem eru andvígir aðild að EES
munu flestir telja aðild að ES enn
verri kost. Með umræðu um rann-
sókn á áhrifum ES-aðildar beinist
athyglin frá EES-samningnum sem
eru á dagskrá. Það er viðbúið að
andstæðingar aðildar að ES snúist
gegn utanríkisráðherra og geri til-
lögu hans um rannsókn tilefni til
umræðu um aðild að ES.
Á meðan á slíkum deilum stend-
ur er ekki víst að tekið verði eins
vel eftir því að sumir sem andmæla
hugmynd ráðherra um að rann-
saka ES-aöild sem hugsanlegan
kost eru á meöan að greiða fyrir
því máli sem ráðherra varðar
mestu á líðandi stund, staöfestingu
Alþingis á EES-samningnum. Sú
athygh, sem tillaga hans um rann-
sóknina kann að valda, kann því
að auðvelda honum það sem er
aðalviðfangsefni hans um þessar
mundir.
Á næsta þingi?
Þeir sem hafa haft hug á ES-aöild
gera vitaskuld ekki tillögu um að
sækja um aðild meðan verið er að
fjalla um stærsta áfangann á þeirri
leið, EES-samninginn. Alþingis-
maður, sem metur einstakt ákvæöi
þeirra laga sem verður að breyta í
Scimræmi við hann, veit að um
ófyrirsjáanlega framtíð getur Al-
þingi ekki hróflað þar við stafkrók.
Hins vegar getur ES í Brussel
breytt slíkum lögum að eigin vild.
Hvað verður ætiaður mikill tími
til að athuga samninginn? Hann er
umfangsmesta mál sem lagt hefur
veriö fyrir Alþingi. Nú gætu lýð-
ræðisflokkarnir tekið höndum
saman og sannað hollustu sina við
hugsjón lýðræðisins með því að
afgreiða samninginn ekki fyrr en
eftir nýjar þingkosningar. Það er
iðulega gert aö mál eru lögð fyrir
Alþingi tiL kynningar þótt ekki
standi til að afgreiða þau fyrr en á
næsta þingi. Með því móti fengi
almenningur tækifæri til að ganga
úr skugga um hversu vel hver
frambjóðandi hefði athugað hann.
Björn S. Stefánsson
. .sumirsemandmælahugmyndráð-
herra um að rannsaka ES-aðild sem
hugsanlegan kost eru á meðan að
greiða fyrir því máli sem ráðherra
varðar mestu á líðandi stund, staðfest-
ingu Alþingis á EES-samningnum.“