Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1992, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1992, Síða 5
MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1992. 29 Iþróttir guröur Ingimundarson, fyrirliöi Keflvíkinga, og Jón Kr. Gíslason, þjálfari þeirra, voru að vonum með hýrri há þegar þeir tóku við Islandsbikarnum I körfuknattleik á laugardaginn. Sigurður missti af emur fyrstu leikjunum við Val vegna meiðsla en var með í báðum sigurleikjunum i lokin. Jón skoraði tvær óhemju mikilvægar 3ja stiga körfur i röð I leiknum á laugardaginn og þær réðu miklu um úrslitin. DV-myndir GS Fimm leikja einvígi um íslandsbikarinn í körfuknattleik lokið: Kef lavík meistari - sigraði Val, 77-68, í Keflavík og er Islandsmeistari í annað sinn á fjórum árum gir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Keflvíkingar tryggðu sér íslands- eistaratitilinn í körfuknattleik karla laugardaginn þegar þeir sigruðu dsmenn, 77-68, í fimmta og síðasta ik liðanna sem fram fór fyrir troð- llu húsi í Keflavík. Keflvíkingar urðu ir með meistarar í annað sinn, unnu 89, en urðu í öðru sæti eftir úrslita- ivígi, bæði 1990 og 1991. Árangur irra síðustu ijögur árin er frábær, isvar gullverðlaun og tvisvar silfur- rðlaun á íslandsmótinu. Eftir fjóra úrslitaleiki var staða lið- ina jöfn, 2-2, en Keflvíkingar jöfnuðu etin með góðum sigri að Hbðarenda á fimmtudagskvöldið. Spenna var fyrir leikinn á laugardaginn, uppselt var í sæti klukkan 14.30, hálfum öðrum tíma fyrir leik, og stemningin í íþróttahús- inu í Keflavík var gríðarleg. Á upphafsmínútum leiksins sást að taugar beggja liða voru þandar til hins ýtrasta. Skorið var lágt, 13-17 um miðj- an fyrri hálfleik, en Valsmenn voru með yfirhöndina nánast allan hálfleik- inn. Keflavík minnkaði muninn í tvö stig, 27-29, fyrir hlé. í upphafi síðari hálfleiks fór Magnús Matthíasson hjá Val af velli efdr að hafa fengið sína 4. villu. Þá stóð 39-43, en Keflavík gerði 11 stig í röð á meðan Magnús var á bekknum, 50-43. Hann kom aftur inn á og þá jafnaði Valur á ný, 53-53. Þá gerði Jón Kr. Gíslason tvær þriggja stiga körfur í röð á mikil- vægum tíma, og eftir það hélt Keflavík forystunni. Þegar 2 mínútur voru eftir skildu 11 stig liðin að og heimamenn voru ekki í vandræöum með að halda fengnum hlut eftir það. Valsmenn misstu Símon Ólafsson meiddan af velli skömmu áöur og síðan fóru flestir lykilmenn þeirra út af með 5 villur í lokin. Leikurinn sem slíkur var ekki góður enda ekki hægt að ætlast til þess þegar taugaspennan er svona mikil. En þaö sem þessi leikur hafði fram yfir hina fjóra var að hann var jafn og spenn- andi og ekki ljóst fyrr en undir lokin hvemig færi. Þó stutt væri eftir og Keflavík með ágæta forystu var alltaf möguleiki á að Franc Booker færi að skora þriggja stiga körfur. Liðsheildin hjá Keflavík var mjög sterk og Jonathan Bow átti stórleik. Þarna sýndi hann sitt rétta andlit. Jón Kr. Gíslason átti einnig stórgóðan leik og gerði allar þriggja stiga körfur liðs- ins, aUar í síðari hálfleik. Nökkvi Már Jónsson var einnig griðarlega sterkur. Keflvíkingar hafa á frábæru liði að skipa, það hefur sýnt sig í vetur, og þeir eru vel að íslandsmeistaratitlinum komnir þegar upp er staðið. Það má ekki gleyma hlutverki Jóns Guð- mundssonar liðsstjóra sem hefur skil- að ómetanlegu starfi og mikið hefur reynt á hann í þessari úrslitakeppni. Það sem Valsliðið vantaði í þessum leik var breidd til að hvíla lykilmennina. Þeir voru orðnir þreyttir og það kom fram undir lokin. Valsmenn eiga hrós skilið, þeir hafa komið virkilega á óvart í leikjum sínum við Njarðvík og Kefla- vík. Magnús Matthíasson og Símon Ól- afsson spiluðu míög vel, einnig áttu Tómas Holton og Svali Björgvinsson ágætan leik. Booker komst aldrei virki- lega í gang, var tekinn rækilega úr um- ferð af Albert Óskarssyni og Brynjari Harðarsyni en náði sér þó aðeins upp í síðari hálfleik og gerði þá 12 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.