Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1992, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1992, Side 1
Dregið 1 riðla fyrir heimsmeistarakeppnina í handknattleik 19931 Svíþjóð í gær: íslendingar gegn heimsmeist- urum Svía í fyrsta leiknum - íslendingar í riðli með Svíum, Ungveijum og Bandaríkjunum. Noregur í erfiðum riðli * Dregið var í gær í riðla fyrir A-heimsmeistara- keppnina í handknatt- -rieik karla sem fram fer í Svíþjóð í upphafi næsta árs. ís- lendingar drógust í C-riðil með gestgjöfunum og heimsmeisturun- um Svíum, Ungveijum og Banda- ríkjamönnum. Þorbergur Aðal- steinsson landsliðsþjálfari sagðist í gær vera nokkuð ánægður með niðurstöðuna og að Svíar væru sig- urstranglegir í C-riðlinum og jafn- framt í keppninni 1993. í A-riðli leika Júgóslavar, Tékk- ar, Austurríkismenn og lið frá Afr- íku. I B-riðli leika Rúmenar, Spán- v^rjar, Norðmenn og Svisslending- ar. í D-riðli leika Rússar, Þjóðveij- ar, Frakkar og Suður-Kóreumenn. Íslendingar leika væntanlega í milliriðli gegn þeim þremur þjóð- um sem komast áfram úr D-riðlin- um. Verður þetta að teljast all- þokkaleg niðurstaða fyrir Islend- inga og nú gefst okkur enn eitt tækifærið til að sigra Svía á stór- móti í handknattleiknum þótt ef til vill sé óraunhæft að heimsmeistar- amir verði lagðir að velli í fyrsta leiknum. Heimsmeistarakeppnin hefst þann 9. mars á næsta ári og þá leika íslendingar gegn Svíum í Gautaborg þar sem leikimir í C- riðlinum fara fram. -SK BengtJohansson varðmjdgánægdiir Bengt Johansson, landsliðs- þjálfari Svía í handknattleik, varð ánægöur með aö lenda með íslendingum í riöli í heimsmeist- arakeppninni. „Við sigmm jafnan í leikjunum gegn íslandi en auðvitað kann að koma að því að þeir vinni okkur. Þaö sem gladdi mig þó mest var að lenda ekki í sama riöli og Spánn,“ sagði Johansson. -SK SilfurtilKára Kári Elíson vann silfurverð- laun í 75 kg þyngdarflokki á Evr- ópumótinu i kraftlyftingum sem fram fór i Horsens i Ðanmörku um helgina. Þetta vom einu verð- laun íslendinga á mótinu. -JKS Árniog BroddiáÓL Samkvæmt afrekaskrá alþjóða badmintonsambandsins, sem kom út um helgina, hafa Ámi Þór Hallgrímsson og Broddi Kristj- ánsson tryggt sér keppnisrétt í tviliðaleik á ólympíuleikunum í Barcelona í sumar. Þeir félagar hafa einnig rétt til þátttöku i ein- liöaleik. -JKS Átakalaust ársþing KKÍ Kolbeinn Pálsson var endur- kjörinn formaður Körfuknatt- leikssambands íslands með „rússneskri“ kosningu á ársþingi sambandsins um helgina. Stjórn- in var einnig endurkjörin. Helgi Hóim, sem tilkynnt hafði fram- boð í formannssætið, hætti við á síðustu stundu. Þingiö var átakalaust og lítiö um breytingar. Þó var samþykkt úrslitakeppni i 1. deild kvenna á næsta keppnistimabili og að breyta keppnisfyrirkomulaginu í 1. deild karla til þess sem tíðkast í úrvalsdeildinni. -SK Kynslóðaskipti - Jóhannes Sveinbjömsson, HSK, gllmukóngur íslands 1992 Þetta var góð glíma og jafnsterkasti hópur glímumanna sem ég hef séð eigast við frá því ég fór að fylgjast með Íslandsglím- unni. Breiddin var mikii og greini- legt að við eigum í dag ungan og upprennandi hóp glímumanna,“ sagði Jón M. ívarsson, ritari Glímusambands íslands, í samtali við DV en Íslandsglíman fór fram á laugardag. Nýr glímukóngur tók við Grettisbeltinu, Jóhannes Svein- bjömsson, HSK. Jóhannes vann alla andstæðinga sína sex á mótinu og fékk 6 vinn- inga. Amgeir Friðriksson, HSÞ, kom næstur með 5 vinninga og þriöji varð Ingibergur Sigurðsson, Víkveija, með 4 vinninga. Þess má geta að Amgeir meiddist í glímunni en harkaði af sér og stóð sig mjög vel. Yngsti keppandinn, Tryggvi Héðinsson, 17 ára, úr HSÞ, varð íjórði í röðinni með 3 vinninga, Orri Bjömsson, KR, flmmti með 2 vinninga, Lárus Bjömsson, HSÞ, sjötti með 1 vinning og Stefán Bárð- arson, Víkveija, hlaut ekki vinn- ing. „Sigur Jóhannesar var nokkuð ömggur en Amgeir Friðriksson veitti honum þó mjög harða keppni. Framtíðin er björt í glím- unni og greinilegt að kynslóða- skiptí hafa átt sér stað í þjóðar- íþróttinni," sagði JónM. ívarsson. -SK Jóhannes Sveinbjörnsson, HSK, varð um helgina glímukóngur íslands og sést hér meö verðlaun sín. DV-mynd S 7 Tomislav Bosnjak, annar Júgó- slavanna í liði íslandsmeistara Víkings, er hættur aö æfa með liðinu. Gunnar örn Kristjánsson, forraaður knattspymudeildar Víkings, staðfesti þetta við DV í gær. Bosnjak æfir þessa dagana upp á eigin spýtur og hefur áhuga á aö leika með ööm íslensku fé- lagi. -JKS/VS AnnarJúgó- slavi í Hauka 3. deildar tíði Hauka bættist liðsauki um helgina þegar annar Júgóslavi, Allen Mulamuhic aö nafhi, gekk í raðir tíðsins. Hann 22 ára miðjuleikmaður, kemur frá 1. deildar liði Velez Mostar og hefur leikið með 21 árs landstíði Júgóslava. Áður höfðu Haukamir fengið Enes Cokic. -JKS/VS Enn íslandsmet hjáGuðbjörgu Guðbjörg Gylfadóttir setti ís- landsmet í kúluvarpi á móti í Bandaríkjunum um helgina. Hún varpaðí kúlunni 15,96 metra og bætti íalandsmet sitt, sem hún setti á dögunum, um 21 sentí- metra. OT * •OlV Knieks áfrant New York Knicks og Portíand komust í nótt í 8 tíöa úrslit banda- rísku NBA-deiidarmnar í körfu- knattíeik. Knicks vann Detroit í 5. leik, 94-87, og sigraði, 3-2, og Portland vann Los Angeles La- kers, 102-76, og sigraði, 3-1. LA Ctíppers vann Utah, 115-107 og liðin erujöfh, 2-2. Þá vann Cleve- land sigur á Boston, 101-76, í fyrsta leik 8 tíða úrslitanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.