Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992.
Útlönd________________
írani handlekinn
fyrir njósnir
Þrxtugur irani hefur veriö
handtekinn í Svíþjóö þar sem
hann er grunaður um njósnir.
Var hann handtekinn á sunnu-
daginn í Norrköping og verður
lögð fram ákæra á hendur honum
í síðasta lagi þann 22. maí.
Sænska öryggislögreglan og ut-
anríkisráðuneytið neita að ræða
málið við fiölmiðla.
Malkovichvill
leika Hughes
Leíkarinn góðkunni John
Malkovich, sem sumir ættu að
kannast við úr „Dangerous Liai-
sons“ og „Sheltering Sky“ hefur
sýnt áhuga á að leika sérvitring-
inn og milljaröamæringinn How-
ard Hughes. Hughes, sem var
mikið í mun að vernda einkalíf
sitt, dó árið 1976 sjötugur að aldri.
Að sögn Malkovich mun banda-
ríski leikarinn Warren Beatty
eiga einkaréttinn á ævisögu
Hughes, en margar bækur hafa
verið skrifaðar inn hann og sagð-
ist Malkovich mjög gjarnan vilja
fá tækifæri til aö leika Hughes.
Malkovich leikur nú í nýju leik-
riti i London.
Sjónvarpspred-
ikari kaupir UPB
Bandaríski sjónvarpspredikar-
inn Pat Robertson hefúr keypt
United Press Intemational, eina
helstu fréttaþjónustu heims.
Komu kaupin öllum, sem til
þekkja, algjörlega í opna sHjöldu.
UPI fréttaþjónustan var að vísu
orðin gjaldþrota og borgaði Ro-
bertson 360 milljónir í reiðufé fyr-
ir hana. Robertson leit á sjálían
sig sem riddara á hvitum hesti
sem kom UPI til bjargar, en hann
hefur hug á því að halda frétta-
þjónustunni gangandi. Ætlar
hann sér að gera UPI fréttaþjón-
ustuna eins vinsæla og hún var
fyrir 30 árum. Hefur hann einnig
uppi hugmyndir um að gera UPI
að sjónvarpsstöð.
Fleiri lögsóttir
áKorsíku
vegnaslyss
Pramkvæmdastjóri bygginga-
fyrirtækis á Korsíku hefur verið
lögsóttur vegna hörmulegs slyss
er gerðist á fótboltaleik á eyjunni
þann 5. maí sl er áhorfendapallar
hrundu. Þrettán áhorfendur lét-
ust og 700 slösuðust er atburður-
inn átti sér stað. Átti fyrirtæki
framkvæmdastjórans að ganga
úr skugga um að fyllsta öryggis
væri gætt. Annar framkvæmda-
stjóri byggingafyrirtækis i Nice í
Frakklandi hefur þegar verið
lögsóttur.
FBIogCIA
vijjaopna
Kennedy-skjölin
Yfirmenn FBI og CIA, alríkis-
lögreglu og leyniþjónustu Banda-
ríkjanna, eru hlynntir því að
skjöl þau er hafa aö geyma lykil-
imi að moröi John F. Kennedy,
fyrrum forseta Bandarfkjanna,
verði opnuð þannig að almenn-
ingur hafi aögang að þeim. Yfir-
maður CIA, Robert Gates, sagðist
vonast til að þetta yrði til þess
aö hreinsa nafn leyniþjónustunn-
ar, en í mynd Olivers Stone um
morðiö á John F. Kennedy er gef-
ið í skyn aö CIA hafi verið heilinn
á bak við morðiö. Telur Gates
mikilvægt að almenningur, sem
og oagnfheðingar og blaðamenn,
geti lesið skjölin til þess að vita
hvað raunverulega gerðist þenn-
an nóvemberdag í Dallas árið
1963. Reuter
DV
SerbaríBosníu:
Fimm daga vopnahlé
EB reiöubúið að halda friðarviðræðum áfram í næstu viku
Vegfarandi virðir fyrir sér lík konu sem féll fyrir hendi leyniskyttu í miðborg
Sarajevo í gær. Símamynd Reuter
Leiðtogar Serba í Bosníu lýstu yfir
einhhða fimm daga vopnahléi sem
átti að ganga í gildi klukkan sex í
morgun og hvöttu Evrópubandalagið
til að taka aftur upp friðarviðræður
við stríðandi öíl Serba, íslamstrúar-
manna og Króata í lýðveldinu.
Tanjug-fréttastofan í Belgrad sagði
að óopinbert þing Serba, sem sat á
fundi í allan gærdag í bænum Banja
Luka fyrir norðvestan Sarajevo,
hefði tilkynnt um vopnahléið.
Þingið sendi Evrópubandalaginu
viðvörun um að ef friðarviðræðurn-
ar hæfust ekki fyrir 19. maí mundu
Serbar í Bosníu hvetja alla Serba í
heiminum til að slást í hð með þeim
„í baráttunni fyrir lífi sínu“.
Ekki var ljóst hvort serbneskar
sveitir í Bosníu mundu hlýða fyrir-
skipuninni um vopnahlé. Þingið
hafði áður tilkynnt að það ætlaði að
stofna eigin her í Bosníu undir stjórn
harðlínumannsins Ratko Mladic,
fyrrum herforingja í sambandshem-
um.
Colm Doyle, sérlegur sendimaður
Evrópubandalagsins, sagði í gær að
bandalagið væri reiðubúið að boða
til nýs friðarfundar um Bosníu í
næstu viku ef vopnahléið héldi.
Vopnahlésyfirlýsingin var gefin út
eftir harða bardaga nærri Sarajevo
og öðrum bæjum í Bosníu í allan
gærdag. Umsetin þorp íslamstrúar-
manna rétt utan við Sarajevo urðu
fyrir hörðum sprengjuárásum
skömmu eftir að tólf eftirlitsmenn
EB höfðu sig á brott frá Sarajevo
vegna árása á þá.
Utvarpið í Sarajevo sagði að þrír
hefðu fallið í höfuðborginni og aðrir
þrír í Mostar á undanfórnum sólar-
hring. Reuter
Þýskir járnbrautar-
starf smenn sam-
þykkja samningana
Verkfalli þýskra jámbrautar-
starfsmanna er nú endanlega lokið
þar sem þeir samþykktu kjarasamn-
ingana, að sögn verkalýðsfélags
þeirra nú í morgun. Verkfallið haiöi
truílað járnbrautarsamgöngur síð-
ustu tvær vikur.
Með því að samþykkja samningana
fá járnbrautarstarfsmennimir 5,5
prósent launahækkun. Var það tæp-
lega helmingur starfsmannanna sem
greiddi atkvæði sitt með þeim en
aðeins þarf fjórðung atkvæða til að
samþykkja þá. Niðurstöður úr kosn-
ingum annarra þýskra verkalýðsfé-
laga eru væntanlegar síðar í dag.
Verkalýðsfélag þýskra málmiðnað-
armanna hefur hótað að félagar þess
fari í verkfall þann 25. maí bjóðist
þeim ekki betri samningar í enda
vikunnar. í verkalýðsfélagi málm-
iðnaðarmanna eru um fjórar milljón-
ir félagsmanna og yrði þetta í fyrsta
skipti frá árinu 1984 sem iðnaðurinn
myndi stöðvast algjörlega. Fara
málmiðnarmenn fram á 9,9 prósent
launahækkun en atvinnurekendur
hafa hingað til aðeins boðið 3,3 pró-
sent launahækkun og vilja ekki
bjóða betur. Formaður félagsins tel-
ur að það sé ekki hægt að samþykkja
þar sem sú launhækkun sé minni en
verðbólgan í landinu sem er rétt um
4,0 prósent.
Reuter
Bush ætlar á umhverfisráðstefnuna 1 Rio:
Lestarræningi kennir
gestum að varast þjófa
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann ætlaöi að sitja
umhverfisráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Brasilíu í næsta mánuði
þar sem leiðtogar ríkja heimsins
munu hittast til að ræða umhverfis-
mál.
Bush tilkynnti þetta eftir að samn-
ingamönnum Bandaríkjanna hafði
tekist að fá strangar takmarkanir á
losun gastegunda út í andrúmsloftið
fjarlægðar úr samningnum sem
verður undirritaður á leiðtogafund-
inum.
„Ég ætla til Rio til að sitja þennan
mikilvæga fund. Ég get þó ekki
staldrað lengi'*við,“ sagði Bush við
fréttamenn. Hann sagði ennfremur
að ekki hefði enn verið ákveðið
hvaða dag hann færi til Rio. Ráð-
stefnan þar stendur yfir dagana 3. til
14. júní.
Ráðstefnunni er ætlað að vera
stefnumarkandi um vemdun um-
hverfisins, þar á meðal um hvernig
eigi að beijast gegn hinum svoköll-
uðu gróðurhúsaáhrifum. Nærvera
Bush var talin forsenda þess aö ein-
hver árangur næðist á ráðstefnunni
þar sem Bandaríkin eru einn helsti
mengunarvaldur í heiminum.
Embættismenn í Hvíta húsinu
höfðu skipst í tvö hom um hvort
Bush ætti að sækja ráðstefnuna en
„Ég legg til að við semjum í flýti,“
segir einn samningamannanna sem
eru að reyna að berja saman samn-
ingi til aö sporna við gróðurhúsa-
áhrifunum svokölluðu fyrir umhverf-
isráðstefnuna i Rio í næsta mánuði.
Teikning Lurie
það varð úr eftir að aðrar þjóðir
gerðu tilslakanir vegna samningsins
um gróðurhúsaáhrifin.
í undirbúningsviðræðunum tókst
bandarísku samningamönnunum aö
fá aðrar þjóðir til að falla frá kröfum
sínum um bindandi takmarkanir á
losun koltvísýrings sem á einna
mesta sökina á myndun gróðurhúsa-
áhrifanna.
Meginþorri iðnríkja heimsins, með
ríki Evrópubandalagsins í farar-
broddi, voru hlynnt því að takmarka
losun koltvísýrings árið 2000 viö það
magn sem fór út í andrúmsloftið 1990.
Bush var andvígur þeirri viðleitni á
þeim forsendum að það mundi gera
bandarískum iðnfyrirtækjum erfitt
fyrir og auka atvinnuleysið í landinu.
Brasilíumenn eru farnir að und-
irbúa komu allra þeirra þúsunda
ráðstefnugesta sem munu flykkjast
til Rio í næsta mánuði. Meðal þeirra
sem gefa gestunum góð ráð er breski
lestarræninginn Ronald Biggs.
Hann stingur m.a. upp á því að
besta leiðin til að koma í veg fyrir
að vera rændur á gullnum ströndum
borgarinnar sé að fara þangað aöeins
með handklæði og gamla konu. „Það
skiptir ekki máli ef tapar öðru
hvoru.“
Heillaráði þessu og öðrum frá
Biggs verður útvarpað á ensku á út-
varpsstööinni ECO frá 25. maí til 20.
júní. Þar segir hann frá stöðum til
að skoða og gefur ráð um hvernig
eigi að krækja sér í konu, svo eitt-
hvaðsénefnt. Reuter
ísraelargera
árásáSuður-
Líbanon
ísraelskar herflugvélar gerðu
árás á suðurhluta Líbanon rétt
fyrir dögun í morgun. Ráðist var
á bækistöðvar Hizbollah skæru-
liðahreyfmgarinnar en hún er
hliðholl írönum. Var ráöist á
femar búðir hreyfmgarinnar um
40 kílómetra suður af Beirút.
Árás þessi kemur í kjölfar eld-
flaugaárásar skæmliðanna í gær
á her Suður-Líbanon sem nýtur
stuðnings ísraelsmanna og gætir
landamæra þeirra. Á þessu ári
hafa 24 látist og 33 slasast í árás-
um ísraela á Líbanon.
Að sögn Hizbollah hreyfingar-
innar eyöilagðist skóli, sem er í
þorpinu Ain Bouswar, í árásinni
í morgun en enginn slasaðist.
Þrírdeyja
ílestarslysi
Þrír létust og 75 aðrir slösuðust
í lestarslysi sem varð á Ítalíu í
gær. Vom það tvær lestir sem
rákust beint framan á hvor aðra
rétt hjá lestarstöðinni í bænum
Badia A1 Pino, rétt hjá Arezzo í
Tuscany-héraði.
Var önnur lestin full af farþeg-
um á leið til Arezzo en hin var
svo að segja tóm. Lestarstjóri
annarrar lestarimiar dó í slysinu,
en í ringulreiðinni fyrst eftir slys-
ið var tilkynnt að lestarstjórar
beggja lestanna hefðu látist og
fimmaðrir. Reuter