Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Blaðsíða 10
9 Útiönd FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1992. Þýskaland: Verkf öll yfirvofandi Faðirmargaritu dáinn Carlos Herrera, sem fann upp kokteilinn margarita, er látinn, niræður aö aldpi. Herrera, sem var mexíkanskur, var kráareig- andi og mun hann fyrst hafa blandað drykkinn fyrir unga og fallega sýningarstúlku, Marga- ritu aö nafni. Þaö var áriö 1947, á bamum hans í Tijuana i Mexíkó, sem honum kom fyrst til hugar aö blanda saman tequila, sítrónu- safa og Cointreau en kokteill þessi varð geysivinsæll um ailan heim. Reuter Miklar líkur eru nú taldar á því aö þýskt atvinnulíf lamist aö nýju þar sem stáliðnaðarmenn og ríkis- starfsmenn höfnuðu samningum at- vinnurekenda og verkalýðsfélag- anna. Forsvarsmenn verkalýðsfélaganna og þýskir fjölmiðlar sögðu í gær að vaxandi ágreiningur um kaup og kjör væri sönnun þess hversu óánægt fólk væri með efnahags- stefnu Helmut Kohl, kanslara lands- ins. Verðbólga hefur aukist í Þýska- landi og vextir hækkað, en nú er að koma í ljós hversu mikið sameining þýsku ríkjanna tveggja kostaði i raun og veru. Nú er einnig mjög líklegt aö málm- iðnaðarmenn fari í verkfall eftir aö flosnaöi upp úr samningaviðræðum milli atvinnurekenda og verkalýðs- félagsins IG Metall. Verkfallið myndi fylgja fast á hæla verkfalls opinberra starfsmanna sem stóð í 11 daga. Opinberir starfsmenn höfnuðu kjarasamningunum í gær, þar sem aðeins 44,1 prósent voru meðmæltir, en a.m.k. helming atkvæða þarf til að samþykkja þá. Reuter Lifðuafsex mánuðiásjó Tveir fiskimenn frá smáþjóð- inni Kiribata í Suður-Kyrrahafi lifðu af sex mánaða veru í smá- báti. Nærðust þeir á regnvatni og fiski allan tímann. Þeir fundust svo er þá rak á land í Vestur- Samóa eftir aö hafa verið að velkjast á sjónum i 175 daga. Enginn annar hefur komist lífs af úr svo löngu volki á sjó án þess að hafa annað sér til lífs- bjargar en þaö sem náttúran bauð upp á. Mennimir tveir voru mjög illa á sig komnir og ekkert nema skinnogbein. Reuter V I N N U M S A M A N pefymfown Apa/Uað MERKJASALA 15.-16. IVIAÍ 1992 Líttu í eigin barm og svaraðu þessum spurningum: Borða ég óholla fæðu? Hreyfi ég mig lítið? Hvílist ég óreglulega? Starfa ég og lifi undir miklu álagi daglega? Svarir þú játandi þessum spurningum, áttu á hættu að fá hjartasjúkdóma og þeir gera sjaldan boð á undan sér. Landssamtök hjartasjúklinga berjast gegn hjartasjúkdómum, gæta hagsmuna hjartasjúkra og efla hjartalækningar á íslandi. Er ekki tími til kominn að við vinnum saman og verndum hjartað. LANDSSAMTÖK HJARTASfÚKUNGA Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Sími 25744. Federal Express, flutningafyrirtækið bandariska, hefur lagt niður starfsemi sína í Evrópu. Flugvél fyrirtækisins lenti á íslandi á dögunum á leiðinni milli Evrópu og Bandaríkjanna. DV-mynd Brynjar Gauti Hraðflutningar í kreppu: Federal Express hopar f rá Evrópu Bandaríska hraðílutningafyrir- tækið Federal Express hefur hætt nær allri starfsemi sinni í Evrópu. Innanlandsflutningar á bréfum og bögglum í Frakklandi, Bretlandi, Þýskaiandi og Ítalíu hafa verið lagðir niður, svo og allir flutningar milli einstakra Evrópulanda. Það eina sem stendur eftir eru skrifstofur fyr- irtækisins í sextán borgum Evrópu, þar á meðal Amsterdam, London, Múnchen og París, vegna flutninga milli Evrópu og annarra heimsálfa. Mjög hörð samkeppni hefur verið á þessum markaði í Evrópu og tap alþjóðadeildar Federal Express, þar sem Evrópa er uppistaðan, var mik- ið. Á síðustu átta mánuðum síðasta árs og til febrúar á þessu ári nam tap fyrirtækisins á alþjóðaleiðum 125 milljónum dollara, eða sem svarar rúmum sjö milljörðum íslenskra króna. Fyrirtækið TNT, sem tekur yfir starfsemi Federal Express, hefur einnig tapað miklu fé á Evrópuflutn- ingum sínum. Flutningar á bögglum milli Evr- ópulandanna jukust ekki eins mikið og búist var við þegar Federal Ex- press hóf starfsemi sína í álfunni á miðjum níunda áratugnum. Fyrir- tækið flutti mest 100 þúsund pakka á nóttu milli landanna. Það er aðeins lítið brot af þeim þremur milljónum böggla sem það flytur milli fylkja Bandaríkjanna á hverri nóttu. Kostnaðurinn við endurskipuiagn- ingu fyrirtækisins vegna þessa kem- ur til með aö verða um átján milljarð- ar íslenskra króna og 6600 af 9200 starfsmönnum þess í Evrópu missa atvinnuna. Hækkandi sjávarhiti á suðurhveli jarðar Ástralskir haffræðingar hafa mælt aukinn djúpsjávarhita á suðurhveli jarðar í fyrsta skipti og hefur hann leitt til hækkandi yfirborðs sjávar. „Þetta er skref í þá átt að sanna breytingar á loftslagi og styður þá almennu kenningu um að gróöur- húsaáhrifin hiti sjóinn og hækki yfir- borð hans,“ sagði dr. John Church sem stjórnaði rannsókninni. „Það er full ástæða fyrir lönd í þessum heimshluta að hafa áhyggjur af hækkandi yfirborði sjávar." Maumoon Abdul Gayoom, forseti Maldíveyja, sagöi í viðtali á þriðju- dag að hækkandi yfirborð sjávar gæti kaffært um 80 prósent kóraleyj- anna sem mynda eyjaklasann. Forsetinn sagði að lítil lönd sem væru lágt yfir sjávarmáli vonuðust til þess að á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Rio í næsta mánuði næðist samkomulag um að- gerðir til verndar umhverfinu. Maidíveyjar er hópur 1190 lítilla kóraleyja skammt frá Indlandi og Sri Lanka og þar kemst land hæst í tvo metra yfir sjávarmál. Church sagði að á undanförnum 22 árum hefði hitastigið hækkað um 0,03 til 0,04 gráður á Celsíus á allt að fimm kílómetra dýpi. „Viö höföum spáð einhverjum breytingum á yfirborðshitanum en ekki á svona miklu dýpi,“ sagði hann í samtali viö Reuters-fréttastofuna í gær. Church sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem staðfesting hefði fengist á hækkandi yfirborði sjávar á suður- hvelinu en rannsóknir hefðu þegar sýnt að yfirborð sjávar á norður- hveli heföi hækkað. Rannsóknimar fóru fram á áran- um 1989 til 1992 á Tasmaníuhafi milli ÁstralíuogNýja-Sjálands. Reuter LOKAÚTSALA ALLTÁ KR. 500 ALLT Á AÐ SELJAST PRÚTTIÐ MARKAÐSHÚSIÐ SNORRABRAUT 56 OPIÐ12-18, LAUG.10-14 é 0 LAUGARDAGUR 16. MAI 1992. Sviðsljós Michael Douglas lætur bleiu á, hundinn sinn. Michael Douglas: Setur bleiu á hundinn Michael Douglas, sem mikið er í sviðsljósinu þessa dagana, ku vera mjög örlátur á þjórfé og allt- af velkominn á ákveöiö hótel, jafnvel þó aö hann sé með hund- inn sinn með sér. Hundar eru með öllu bannaðir á hótelinu en undantekning er gerð fyrir Mi- chael þar sem hundur hans getur haft stjórn á framhvötum sínum. En svona til vara þá er sett bleia á greyið og er það sagt að Mi- chael borgi mönnum 30.000 krón- ur fyrir að skipta á því. Nick Nolté safnar upplífgandi setningum úr Blbfiurml. Nick Nolte: Les Biblíuna reglulega Leikarinn Nick Nolte, sem nú má beija augum í Stjörnubíói i myndinni Öður til hafsins, er trú- aður maður. Þessa dagana er hann að lesa Biblíuna í annað 'skiptið á þremur árum. í hvert sinn, sem hann kemur auga á eitthvaö sem honum finnst vera merkilegt, siær hann það inn í tölvu. Þegar honum svo fmnst aö einhver góður vinur þurfi á upp- lifgandi orðum að halda prentar hann þetta út og sendir vininum. ll ténlista JAPISS Enn eykur Japis þjónustu sína. Með því að ganga ITónlistarklúbb Japis nýtur þú úrvals heimsendlngarþjónustu, auk þess sem verðið er mun lægra en í verslunum almennt. flflEINS HR. 1500 ✓ Klúbbmeðlimir greiða aðeins kr. 1500,- í árgjald til klúbbsins. Þú þarft ekki að kaupa þér nema 4 - 6 geisladiska/kass. á ári til að koma út með sparnaði. ✓ Ef þú tekur geislaspilaratilboðinu hér neðar á síðunni hefur þú þegar sparað þér sem nemur árgjaldinu og vel það. Reiknaðu daemið til enda og út kemur plús. Stór plús. W Heimsent fréttabréf mánaðarlega með fróðleik og upplýsingum um allrahanda tónlist nýja sem gamla. W Allar vörur eru sendar heim til viðtakanda eða á næstu póst- eða flutningastöð án aukakostnaðar. W Viðerum alltaf við símann tilbúin að sinna þér og þínum óskum. ✓ 10% - 40% lægra verð en í verslunum. ✓ Mánaðarleg tilboð á sérvaldri góðri tónlist, tilboð sem þú getur ekki hafnað. ✓ ðll verð eru með inniföldum sendingarkostnaði* sama hvar á landinu þú býrð, þú borgar alltaf það sama fyrir tónlistina. TILBOD TIL KLUDBÍIEDLIÍIfl C-J UJ 1 ■ ■ UJ NIHVflNfl - NEVERHIND CURE-HISH JON HENDRICHS - FREDDIE PflVHRoni - Tuno ROGER HHITl ÍRHER -ÍG BESTU Beint í fyrsta sæti USA listans. Frábær rokkplata sem gefur fyrri plötum ekkert eftir. Vinsælasta plata ársins í heiminum enda er hún meiriháttar góð. Splunkuný plata frá Cure eftir 3ja ára bið. Hún er með því besta sem þeir hafa gert. Væntanlegur til íslands, einn besti söngvari ja22sveiflunnar. Háskólabíó 16.05 Frægasti tenor samtímans með allar perlumar á tveimur diskum. þessa ástsæla lagasmiðs á einni [jáðu verðið. 1 CD kr. 1.190,-KASS. 990,- CD kr. 1.290,- KASS. 1.090,- CD kr. 1.190,- KASS. 990,- CD kr. 1.190,- 2xCD kr. 1.990,- CD kr. 760 i - KASS. 640,- 1 Paul Young - Gr. hits CD. kr. 1.390,- Simply Red - Stars CD. kr. 1.436,- Red hot c.p. - B.S.S.M. CD. kr. 1.436,- Elton John - Gr. hits 2 x CD. kr. 1.990,- Police - Gr. hits CD. kr. 1.266,- Pearl Jam - Ten Nirvana - Bleach Pantera - Vulgar... Soundgarden - Badmotor... Right said Fred\- Up CD. kr. 1.436,- CD. kr. 1.352,- CD. kr. 1.436,- CD. kr. 1.190,- CD. kr. 1.436,- Queen - Gr. hits. Queen - Gr. hits. Vol.ll Mozart - World of La Boheme - Puccini Muddy Waters - 26 lög CD. kr. 1.431,- Getz & Gilberto CD. kr. 1.190,- CD. kr. 1.431,- Platters - Best of CD. kr. 952,- CD. kr. 990,- Natalie Cole - Unforgettable CD. kr. 1.436,- 2 x CD. kr. 2.490,- Bach - World of CD. kr. 990,- CD. kr. "841,- o.s.frv. o.s.frv Þetta er aðeins brot að úrvalinu. Um leið og þú skráir þig í klúbbinn færð þú 1. tbl. fréttabréfs Tónlistarklúbbs Japis með hundruðum titla til að velja úr. UPPNRFI Ell GEISLflSPILRRf Nú er tækifærið að eignast fullkominn gæða geisiaspilara frá Sony á frábæru verði! 1 Sony CDP-295 1 bita aflestur • 20 laga minni Síspilun • Random spilun Fjarstýring o.fl. VENJULECT VERÐ 19.990,- STCR. Já 1 € H B F áHÍfiá á J4 © W I S! Jl ffli® Nafn .Kt. 1 Heimllisfang Síml h/v Póstnr. staður ( Samkorf! .. J Ctroseðii* flu fcorts... • Gildíst ■• T . iTftdjrskrL'ko'rtnafa '. • Ég n e f mestan á n u g a á : Popp / Rokk Pungarokk Jass / Biues J Klassík ténlist^ JAPIS3 BRAUTARHOLTI 2 • BOX 396 • SlMI 625290 Dans/Hip/Rap - ‘Kántrý VELKOMINN I KLÚBBINN! Vinsamlegast sendið þennan seðil til okkar ásamt pöntun (ef vill) og við sendum þér fréttabréfið og pantanir um hæl. Einnig tekið við skráningu og pöntun í síma 625290. * ATH: Kaupandi greiðir kostnað kr. 85 pr. gfróseðil. # "Renault Clio er betri en japanskir bílar" -=-n------------7----—......... , , . , ,,------„. ...segir bílablaðið Bíllinn Fallegur og rumgoður fjoiskyldubill a finu verði Bílablaðið Bíllinn ermeð Renault Clio í 100. OOO km langtímaprófun. Blaðið birtir niðurstöðu eftir 13mánaða 30000 km prófun ímaí tölublaði 1992. Þar ermeðal annars að finna eftirfarandi umsagnir um Renault Clio: "Renault Clio er, að okkar dómi, fyrsti evrópski smábíllinn sem er betri en japanskir bílar á svipuðu verði'1, "Hann er efnismeiri og sterkbyggðari, skemmtilegri í akstri, hefur mun betri aksturseiginleika, er hljóðlátari en japanskir og evrópskir bílar í sama verðflokki og rúmbetri en þeir flestir". Verð frá kr. 767.600,- * ' Verö meö ryövörn og skráningu samkvæmt verðlista í maí 1992 (8 ára ryðvarnarábyrgö og 3 ára verksmiðjuábyrgð) Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1 - Sími 686633 Renault Fer á kostum 4L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.