Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1992, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992. Útlönd Konurstjórnaí Finnlandi Rlkisstjórn Finnlands er nú eingöngu skipuö konum þar sem allir karlmennirair í stjóminni eru í fríi. 17 ráðherrar skipa ríkis- stjómina, þar af sex konur. Varnarmálaráðherra Finn- lands, Elisabeth Rehn, stýrir stjórnarskipinu núna en aúk hinna funm kvenráðherranna eru fiórar aðrar konur sem gegna stöðum karlanna á meðan þeir era í fríi Um þriðji hluti, þing- maima Finnlands eru konur. Hungursneyðí Sómalíu Rauði krossinn í Bretlandi hef- ur hafiö söfnun fyrir sveltandi fólki í Sómaliu. „Það virðast allir hafa gleymt hörmungarástand- inu í Sómalíu. Þúsundir deyja daglega í höfuöborginni Moga- dishu einni,“ sagði framkvæmda- stjóri Rauða krossins. Þegar hefur tekist að koma mat til um 600 þúsund manns en um 2 milljónir manna bíöa dauðans verði ekkert að gert. 13 ára ritstjóri æsifréttablaðs- insSun Yngsti útskrifaöi háskólastúd- ent Bretiands, þrettán ára strák- ur, tók við ritstjórastööu á æsi- fréttablaöinu Sun í gær en blaðiö er mest selda blað Bretlandseyja. Strákurinn sem heitir Ganesh Sittampalam, útskrifaðist meö fyrstu einkunn í stærðfræði. Blaðið ákvað að reyna á gáfúr og skipulagshæfileika stráksa með því að skipa hann sem rit- stjóra í einn dag. „Þaö er tilbreyting að hafa hugsandi menn á ritstjórninni,“ sagði framkvæmdastjóri News International sem á blaðið. Fyrirtíðaspenna veldurkaupæði Konur sem þjást af fyrirtíöa- spennu breytast oft í kaupfikla. Peningaeyösla kvennanna endar svo oftar en ekki með rifrildi viö eiginmanmnn, eftirsjá og gráti og gnístran tanna. Þetta kemur fram í könnun og skýrslu sem kveunanæringarráð Bretíands birti í gær. Samdrátt- urinn í bresku efhahagslífi hefur ekkert dregið úr kaupæði fyrir- ti'ðaspennukvenna en 72 prósent aðspurðra sögðust eyða of mikiu daganafyrirtíðir. Reuter Flokksþing bandarískra demókrata: Clinton kátur - vinsælli en Bush í skoðanakönnunum Flokksþing demókrata stendur nú yfir í New York og fannst presti þessum heillaráð að setja upp færanlegan skriftaklefa til að demókratar gætu létt á hjarta sínu. Síðar kom svo í Ijós að presturinn var ekki prestur eftir allt saman. Var hann þá búinn að blekkja fjölda blaðamanna og kaþólikka. Símamynd Reuter Bill Clinton, væntanlegur forseta- frambjóðandi demókrataflokksins, var í gleðivímu á þingi flokksins yfir þeirri samstöðu sem ríkir meöal demókrata þessa dagana og vegna aukinnar velgengni í skoðanakönn- unum. Flokksþing demókrata stend- ur nú yfir í New York. í ræöu sinni á þinginu spáði Clin- ton því að baráttan við George Bush, forseta Bandaríkjanna, um forseta- stólinn yrði hörð og varaði demó- krata við að vera of örugga um sig. „Eins og sakir standa líta kosning- arnar vel út, en þetta verður ekki auðvelt," sagði Chnton. í gær voru nokkrar vangaveltur yfir hvort Jerry Brown, sem varð annar í forkosningunum, myndi styöja Clinton og varaforsetaefni hans, Albert Gore. Flokksforystan hélt því fram að Brown hefði sagt að hann myndi styðja flokkinn heils- hugar í kosningunum í nóvember, en talsmaður þessa fyrrum ríkis- stjóra Kalifomíu sagði að Brown hefði ekki lofað neinu. Hann hefði lofað að styðja flokkinn, en aldrei hefði verið minnst á að hann hefði lofað að styðja Clinton og Gore. Á flokksþinginu samþykktu demó- kratar stefnuskrá flokksins. Eru at- vinnusköpun og efnahagsbati efst á listanum. Einnig var ákveðið að flokkurinn væri hlynntur því að kon- ur hefðu rétt til fóstureyðingar, en fóstureyðingar eru mikið hitamál í Bandaríkjunum og er talið að það mál geti skipt sköpum hvað varðar úrslit kosninganna í nóvember. í nýjustu skoðanakönnuninni, sem New York Daily News lét gera, kem- ur fram að Clinton er nú með 35 pró- sent fylgi, Bush er með 31 prósent og miÚjarðamæringurinn frá Texas, Ross Perot, fengi 24 prósent atkvæða. Ef aðeins Clinton og Bush væru í framboði myndi Clinton fá 44 prósent atkvæöa og Bush fengi 40 prósent. Reuter Baker til Israels Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, James Baker, ætlar að reyna að kom- ast að samkomulagi við ísrael og Palestínumenn um dagsetningu á næstu samningalotu um frið í Mið- austurlöndum þegar hann heimsæk- ir ísrael í næstu viku. UOSHUFAR - GRJOTGRINDUR Flugufælur frá EGR Fallegur aukahlutur á bílinn sem getur sparað þér stórfé Baker er væntanlegur til ísraels á sunnudag og verður þar í tvo daga. Þá ferðast hann til Sýrlands, Saudi Arabíu, Egyptalands og Jórdaniu. Einnig er búist viö því að hann eigi fundi með leiðtogum Palestínu- manna og Líbanon. Ferð Bakers kemur í kjölfar yfir- lýsinga nýkjörins forsætisráöherra ísrales, Yitzhak Rabin, um vilja hans til að sækja leiðtoga Palestínumanna heim og flýta þannig fyrir friðarum- ræðum. Viðbrögð Palestínumanna við yfir- lýsingu Rabins hafa verið margvís- leg. Frelsissamtök Palestínumanna hafa hvatt Rabin til að sýna í verki að honum sé alvara með friðarum- leitunum sínum. Stjórnvöld í Sýr- landi ásökuðu Rabin hins vegar um „árásargjarna útþenslustefnu" í anda fyrirrennara síns, Shamirs, þó með öðrum hætti væri. Reuter Alsír: Frelsishreyf ingin hói ar að grípa til vopna Ásetning á sekúndum Bílahornid, Reykjavíkurvegi 50 Hafnarfirði - simi 51019 Saksóknari hersins í Alsír krafðist þess í gær að leiðtogar íslamskra heittrúarmanna í landinu fengju lífstíðardóm. Sakaði hann þá um að hafa skipulagt uppreisn gegn stjórn landsins. Leiðtogarnir tveir eru Abassi Mad- ani og Ali Belhadj og voru þeir í for- ystu Islömsku frelsishreyfingarinn- ar sem nú er bönnuð í Alsír. í skrif- legri yfirlýsingu sögðu Madani og Belhadj að þeir væru saklausir af ákærunni en þeir vfija ekki vera við- staddir réttarhöldin þar sem þeir telja að þeir hafi verið dæmdir fyrir- fram. Félagar í frelsishreyfingunni hafa hótað að þeir muni grípa til vopna ef leiðtogar þeirra verði ekki látnir lausir. Flokkurinn hefur sýnt að hann er sterkasti stjómarandstöðu- flokkur í Alsír og er það stefna hans að gera landið að íslömsku ríki. Enn er neyðarástand í landinu eftir mikil ólæti sem brutust út í febrúar síöastiiðnum er kosningum landsins var aflýst þegar Ijóst var að íslamska frelsishreyfingin myndi bera sigur úr býtum. Lögfræðingur hinna ákærðu telur þetta vera ein mikil- vægustu réttarhöld sem haldin hafa verið frá því að landið hlaut sjálf- stæði. Reuter Drottning giftðst látnumkóngi Drottning Svasilands giftist um daginn kóngi sínum. Væri það ekki í ffásögur færandi ef karlinn væri ekki kominn undir græna torfu fyrir löngu. Var haldið upp á brúðkaupið að konunglegum hætti með góðum gjöfum, dansi og slátran nautgripa. Er ekki vitað til að neitt þessu líkt hafii gerst áður. Sobhuza kon- ungur ríkti yfir Svasílandi í 61 ár eða þangað til hann dó fyrir tíu árum, þá 83 ára að aldri. Nú- verandi konungur er 24 ára að aldri og var það móðir hans sem var að „giftast“ Sobhuza konungi en hann eignaðist 100 eiginkonur meðan hann lifði. Erfittaðfinna konuhandajap- önskum prinsi Japanski prinsinn Naruhito, sem er erfingi krúnunnar, sagði fyrr í vikunni að hann væri ekki að fresta ieit sinni að brúði en sú leit hefur engan árangur boriö ennþá. Naruhito er 32 ára gamall, son- ur Akihito keisara, og hafði hann orð á þessu í þriggja ianda ferð sinni. í maí sl. var sett algjört bann á allan fréttafiutning af brúðarleit prinsins. Var þetta gert til að vernda einkalíf þeirra kvenna sem hugsaniega koma til greina. Axl Roseennog aftur í vandrædum Ákæruvaldið í St. Louis hefur hótað því aö söngvari hljómsveit- arinnar Guns N’ Roses, Bill Bai- ley (öðru nafni Axl Rose), verði handtekinn í hverri borg þar sem hljómsveitin mun spila gefi hann sig ekki fram við yfirvöld í St Louis. Axl var handtekinn á JFK- flugvellinum í New York á sunnudaginn og sleppt aftur eftir að hafa borgað rúmar 5,5 milijón- ir í tryggingu. Hann á yfir höfði sér ákæru vegna líkamsárásar og fyrir að hafa valdið eignatjóni þegar hann hleypti öllu í bál á brand á tórdeikum hijómsveitar- innar i borginni í fyrra. Ef hann verður fundinn sekur á hann yfir höfði sér fjögurra og hálfs árs fangelsi og um 250.000 króna sekt. Madonna kaupir hú$fyrir300 Söngkonunni Madonnu hefur lokst tekist aö festa kaup á hús- eign einni á Miami sem hún haföi lengi haft augastað að. Kotiö var þó ekki á útsölu því verðið var 300 milljónir. Er þetta hæsta verð sem nokkura tíma hefur fengist fyrir hús á þessum stað. Fyrrum eigendur hússins keyptu þaö árið 1988 íyrir mun lægra verð þvi að beinn hagnaður þeirra eru hvorki meira né minna en 154 mílljónír. Albönskbörn Albanska stjómin fer nú ofan í saumana á ættleiðingu 250 alb- anskra barna sem talið er aö hafi verið ólöglega ættleidd af útlend- ingum. Sérstök nefnd, sem forseti landsins, Sali Berisha, kom á laggiraai-, hefur komist að því að böm voru fiarlægð af bamaheim- ilum án vitundar foreldra þeirra. Fjöldi albanskra embættismanna er sakaður um aö hafa misnotaö aðstöðu sína og faisað skjöl til aö tryggja ættleiöingu. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.