Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1992, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992.
9
Neíl lönnock, formaður breska
verkamannaflokksins, hefur sagt
af sér sem formaður flokksins.
Gert er ráð fyrir að verkamanna-
flokkurinn velji nýjan formann
um helgina.
Kinnock, sem er fimmtugur, er
sonur kolanámumanns frá Wal-
es. Var hann formaður verka-
mannaflokksins í níu ár og tókst
að færa stefnu flokksins frá
vinstri og nær miðju. Hefur
flokkurinn þó orðið að lúta í
lægra haldi fyrir breska íhalds-
flokknura í síðustu femum kosn-
ingum.
Forsætisráð-
henra Litháen
rekinn
Forsætisráðherra Litháen,
Gediminas Vagnorius, var rekinn
frá völdum í gær eftir að þing
landsins samþykkti vantrausts-
yfirlýsingu á hann. Vagnorius er
náinn bandamaður forsetans,
Vytautas Landsbergis.
Vagnorius kenndi gömlum
kommúnistum um fall sitt en
hann heldur því fram aö þeir vilji
ná aftur völdum í landinu. Hafa
það aðallega verið frjálslyndir,
Verkamannaflokkurinn og sós-
ialdemókratar sem hafa hvað
mest viJjað hann úr forsætisráð-
herrastólnum.
Sextíuogátta
Herflugvél frá Jemen hrapaði í
morgun yfir eyðimörk nálægt
Aden. Mikill sandstormur var er
atburðurinn átti sér stað.
Að sögn vitna braust eldur út í
vélinni um leið og hún skall á
jörðina, aðeins 10 kílómetra frá
flugvellinum. Um borð voru 68
manns, bæöi almennir borgarar
og hermenn. Vélin, sem var so-
vésk af gerðinni Antonov, hafði
flogið í nokkra hringi yfir flug-
vellinum í nokkurn tíma þar sem
hún gat ekki lent vegna sand-
storms.
Vélin var á leiöinni frá Soc-
otra-eyju á Indlandshafi til Aden,
sem er aöalhafharborg Jemen og
fjármálaborg landsins.
Evrópsk vatns-
salenti
íNewYork
Vatnssalerni á götum úti að
franskri fyrirmynd hafa vakið
mikla ánægju í New York. Voru
þau sett upp til reynslu i fióra
mánuði á þremur stöðum á Man-
hattan. Salernin hafa þó notið svo
mikilla vinsælda að franileiðandi
þeirra hefur sent annan viðgerö-
armaxm til New York svo að hægt
sé að gera við þau.
Fyrir þá sem áhuga hafa á kost-
ar aöeins 25 sent að nota salemin
og að sögn þeirra sem til þekkja
mun hvert þeirra vera notað 150
til 180 sinnum á dag eða tvöfalt
oftar en í París. Vatnssalemi af
þessari tegund hafa hingað til
verið bönnuð í New York.
í sturtu með
leikmönmimim
Aðdáendur bresks rúgbý-liös,
kvenkyns, hafa verið hvattir til
að hjálpa til við fjársöfnun með
þvi að bjóða þeim í sturtu með
leikmönnum liðsins.
Að sögn talsmanns liðsins verð-
ur leyfilegt að taka vinkonu sina
með sér. Er vonast til að stúlk-
urnar flykkist svo þúsundum
saman til aö bjóða í tækifæri til
aö eyöa tíma með bestu og mynd-
arlegustu karlmönnum á norður-
hlutaBnglands. Reuter
Útlönd
Unglingspiltur frá Sarajevo stendur i dyrunum á stofunni heima hjá sér eftir að sprengja lenti þar.
Simamynd Reuter
Alþjóðlegur hópur vísinda-
manna hefur borað niður úr ís-
hettu Grænlandsjökuls og hafa
meöal annars uppgötvaö eftir-
stöðvar súrs regns frá eldgosi
Vesúviusar frá árinu 79 og ryk frá
kjarnorkuslysinu í Tsjernóbil ár-
ið 1986.
„Hópurinn hefur borað út ís-
sýni, allt að 200 þúsund ára göm-
ul, sem lætur vísindamönnum í
té nýjar uppiýsingar um veöur
og umhverfisskilyrði í gegnum
tíðina,“ sagði Joergen Taageholt
sem er í forsvari fyrir hópinn.
Þetta er í fyrsta skiptið sem vís-
indamenn hafa borað alla leið í
gegnum þriggja kílómetra íshettu
Græniandsjökuls. íssýnin gefa til
kynna að veðurfar hafi verið mun
mildara fyrir þúsund árum og þvi
hafi Grænland þótt fýsilegur
kostur fyrir norræna menn sem
flUttUþangað. Reuter
Átökin 1 Sarajevo:
Sprengingar
í miðbænum
- Carrington ekki bjartsýnn á frið
Allt hristist og skalf snemma í
morgun í úthverfúm Sarajevo, sem
eru á valdi íslama, og miðbæ borgar-
innar er miklar sprengingar uröu
þar. Gerist þetta á sama tíma og leið-
togar íslama, Króata og Serba búa
sig undir friðarviðræður í London.
Fréttamenn hjá útvarpinu í
Sarajevo greindu frá því að Dobrinja
og Mojmilo hefðu orðið fyrir árásum
en ekki var enn vitað hvaða skaði
hlaust af. Hófst skothriðin um kl. 2
í nótt og er talið að Serbar hafi stað-
ið fyrir henni.
í gær voru harðir bardagar á
nokkrum vigstöðvum í Bosníu-Her-
segóvínu milli Serba annars vegar
og íslama og Króata hins vegar. Hafa
leiðtogar Serba spáð því að borgin
Gorazde í austurhluta Bosníu muni
senn falla í hendur Serba. Um 70.000
íbúar borgarinnar hafa verið inni-
króaðir af serbneskum hersveitum í
nokkum tíma. Króötum hefur orðið
nokkuð ágengt í orrustunni um
Sarajevo.
Það er Carrington lávarður sem er
í forsvari fyrir friðarviðræðumar í
London. Sagði hann að hann væri
ekki bjartsýnn á árangur. „Það væri
bamaleg bjartsýni að halda að það
væra ekki hindranir í veginum,"
sagði Carrington. Síðasta tilraun
hans til að binda enda á bardagana
mistókst í síðasta mánuði og fylgdu
harðir bardagar í kjölfariö.
Forseta Júgóslavíu, Slobodan Mi-
losevic, hefur verið kennt um hvern-
ig komið er, en júgóslavneska þingið
staðfesti í gær bandaríska Serbann,
Milan Panic, í embætti forsætisráð-
herra. Milan sem er milljónamær-
ingur frá Kalifomíu er bæði með
bandarískan og júgóslavneskan rík-
isborgararétt. í jómfrúræðu sinni
sagði Panic að sijómin myndi gera
allt sem í hennar valdi staeði til að
fá alla aðila til að hætta að beijast.
Fjórtán þúsund manns hafa látið
lífið í átökunum og um tvær milljón-
ir manna hafa misst heimili sín.
Reuter
Mandela ávarpar f und
Öryggisráðsins
Nelson Mandela, leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins, sagði í gær að ef Suð-
ur-afríska ríkisstjómin yrði við skil-
yrðum þjóðarráðsins væri ekki
nauðsynlegt að biðja Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna um aðstoð.
Ef ríkisstjórnin verður við skilyrð-
um er engin þörf „á íhlutun alþjóða-
samfélagsins" sagði Mandela þegar
hann kom af fundi með Boutros Bo-
utros-Ghali, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, í gær.
Leiðtogi Inkatha-hreyfingarinnar,
Mangosuthu Buthelezi, hitti Bout-
ros-Ghali einnig í gær. Mandela, But-
helezi og utanríkisráðherra Suður-
Afriku, Pik Botha, munu taka þátt í
fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna í dag ásamt níu öðrum utanrík-
isráðherrum frá Afríkuríkjum.
Það var Mandela sem bað öryggis-
ráðið að funda um málefni Suður-
Afríku til að ná mætti sáttum í því
póiitiska öngþveyti sem ríkt hefur í
landinu. Mandela hefúr líka óskaö
eftir sérstakri sendinefnd á vegum
SÞ til að rannsaka ofbeldiö 1 landinu.
Reuter
Nelson Mandela situr fund hjá ör-
yggisráöi Sameinuöu þjóðanna í
dag þar sem rætt verður um málefni
Suður-Afríku. Telkning Lurle
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Strandgötu 52, Eskifirði,
á neðangreindum ta'ma:
Borgarland 7, Djúpavogi, þingl. eig.
Byggingafélag verkamanna, talinn
eig. Gunnlaugur Kristjánsson, mið-
vikudaginn 22. júlí 1992 kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru Magnús M.
Norðdahl hdl. og Sigmundur Böðvars-
son hdl.
Búðavegur 48, Fáskrúðsfirði, þingl.
eig. Sólveig Sigurðardóttir og Lars
G. Hallsteinsson, miðvikudaginn 22.
júlí 1992 kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi
er Magnús M. Norðdahl hdl.
Haínargata 43, Fáskrúðsfirði, þingl.
eig. Guðlaugur Einarsson, miðviku-
daginn 22. julí 1992 kl. 10.00. Uppboðs-
beiðandi er Gjaldheimta Austurlands.
Heiðmörk 13, Stöðvarfirði, þingl. eig.
Andrés Óskarsson, miðvikudaginn 22.
júlí 1992 kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi
er Tryggingastofiiun ríkisins.
Hlíðargata 2, Fáskrúðsfirði, þingl. eig.
Rúnar Þór Hallsson, miðvikudaginn
22. júlí 1992 kl. 10.00. Uppboðsbeiðend-
ur eru Gjaldheimta Austurlands og
Húsnæðisstofhun ríkisins.
Steinar 4, Djúpavogi, þingl. eig. Jó-
hann Hjaltason, miðvikudaginn 22.
júlí 1992 kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimta Austurlands.
Steinar 11, Djúpavogi, þingl. eig.
Emii Guðjónsson, miðvikudaginn 22.
júlí 1992 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur
eru Sigmundur Böðvarsson hdl.,
Magnús M. Norðdahl hdl., Elín S.
Jónsdóttir hdl., Hróbjartur Jónatans-
son hrl. og Eggert B. Ólafsson hdl.
Túngata 8, Stöðvarfirði, þmgl. eig.
Kristján Grétar Jónsson, miðvikudag-
inn 22. júlí 1992 kl. 10.00. .Uppboðs-
beiðendur eru Húsnæðisstofiiun ríkis-
ins og Tiyggingastofnun ríkisins.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIHRÐI
Aukablað
Ferðablað II
um innanlandsferðir
Miðvikudaginn 22. júlí nk. mun
annað innlent ferðablað fylgja DV.
Ferðablað I fékk mjög góðar viðtökur og hefur því
veriö ákveðið að gefa út annað ferðablað um inn-
anlandsferðir.
í þessu biaði verður fjailað um útihátiðir um versl-
unarmannahelgina (1.-3. ágúst). Sýndirverða
uppdrættir fráýmsum stöðum sem ferðalangar
gista, með upplýsingum um það helsta sem þeir
þurfa að vita. Sagt verður frá ýmsu sem á boðstól-
um er af útilegubúnaði, veiðibúnaði o.fl. o.fl.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við
Jensinu Böðvarsdóttur, auglýsingadeild DV, hið
fyrsta i síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að siðasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 16. júli.
ATH.! Bréfsimi okkarer63 27 27.
Auglýsingar - Þverholti 11 - Reykjavík