Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1992. Sviðsljós Fyrir skömmu var haldin dorgveiðikeppni í Hafnarfjarðarhöfn. Ahugasamir krakkar, bæði piltar og stúlkur, öttu þar kappi. Hér er einn fiskur kominn á öngulinn og ánægjan leynir sér ekki. DV-myndir GVA Birgir Ármannsson með fínan fisk úr sjó. Um helgina var sýning á fornbílum í Árbæjarsafni og vakti hún athygli margra. Hér eru menn að virða fyrir sér einn gamlan og góðan pallbíl sem örugglega hefur reynt sitt af hverju. DV-myndir JAK Fombílar í Árbæjarsafni Þessum hressu krökkum fannst það alveg kjörið að setjast upp á pallinn. Hafa sjálfsagt velt því fyrir sér hvernig hafi verið að ferðast með bílnum héma á árum áður. í fjarlægð sést i eina af drossíunum sem til sýnis voru I Árbæjarsafni. Strákarnir á Ströndinni. Prakkarastrikin sem þessir ágætu piltar frömdu eru óteljandi. F.v.: Haraldur Ringsted, Sigurður Ringsted, Ólafur Baldvinsson, Vigfús Ólafsson og Baldvin Olafsson. Ættarmótin á fullri ferð: Vel mætt á Kljáströnd Fyrir skömmu hittust afkomendur Önnu Petreu Pétursdóttur Hjaltested og Ólafs Gunnars Gunnarssonar frá Höföa í Höfðahverfi. Börn þeirra, sem eignuðust afkomendur, voru þau Ólafur og Guðríður. Ólafur kvæntist Önnu Maríu Vigfúsdóttur frá Hellu á Árskógsströnd og Guðríð- ur giftist Sigurði Ringsted sem var alinn upp í Hringsdal á Látraströnd. Ólafur, Anna María, Sigurður og Guðríður bjuggu á Kljáströnd í Höfðahverfi við Eyjafjörð um árabil. Á Kljáströnd var útgerð, verslun og læknissetur, svo að eitthvað sé nefnt. Byggð lagðist af fyrir áratugum á Kljáströnd en Grenivík tók við hlut- verkinu. Annar af a.m.k. tveimur saumaklúbbum Kljástrandar- fólksins. F.v.: Emelía, Jóhanna, Halldóra, Anna Gunnur, Elsa, Sigurlaug, Inga Lára, íris, Sigrún, Þóra og Vil- borg. Þessar stelpur hafa safnað i ferðasjóð í tvö ár og ætla utan í verslunar- og hvíldarferð í haust. Hvern- ig þær fara að blanda saman verslun og hvíld er svo aftur annað mál. :,w Mikil áhersla var lögð á að ungviðið skemmti sér - og ekki síst á kostnað fullorðna fólksins. F.v.: Guðrún Sif, Lilja Hrönn og Katrín. íslensku útskriftarnemarnir úr Kaliforníuháskólanum, íslendingar erlendis íslendingar áttu vænan hlut við meö doktorsgráðu og tveir með María Kjartansdóttir, M.A. í hag- útskrift úr framhaldsdeildum Kali- meistaragráðu. fræöi, dr. Inga Dóra Bjömsdóttir í fomíuháskóla (University of Cali- Á myndinni eru þau (tahð frá mannfræði og Gísli Hjálmtýsson, fomia) Santa Barbara hinn 14. júni vinstri) dr. Þorkell Guömundsson í M.S. í tölvunarfræði. Þess má geta sl. Þá útskrifuðust tveir íslendingar rafmagnsverkfræði (control theory), að Þorkell og María era hjón.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.