Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Blaðsíða 32
-ni: Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. fíitstjóm - Auglýslngar - Áskrift - Dreifing: Sími 83 27 00 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 17. JÚLl 1992. Þorsteinn Pálsson: Gefekkigetaðlof- aðauknufjár- magnitil löggæslu „Það er engum vafa undirorpið að ; mínu mati að það er rík ástæða til 'að gefa þessum viðfangsefnum meiri gaum. Þetta er nútímavandamál lög- reglunnar og ber að skipa mjög fram- arlega í forgangsröð verkefna. Það er fátt sem veldur meiri skaða í þjóð- félaginp en eiturlyfjanotkunin og ég hef af henni töluverðar áhyggjur," sagði Þorsteinn Pálsson dómsmála- ráðherra aðspurður um viðbrögð viö fréttum um stóraukið fíkniefnamagn í umferð. Þorsteinn sagði það í höndum fjár- veitingavaldsins að auka íjármagn til fíkniefnalögreglunnar og vildi ekki lofa hækkun á næstu fjárlögum. „Það vita allir að við erum að deila niður minni köku en við höfum áður haft. Þannig að það kemur vitaskuld 'niður á löggæslumálum sem öðrum málaflokkum. Það breytir ekki því að við teljum rétt og skylt að for- gangsraða verkefnum eftir mikil- vægi þeirra. Þetta verkefni er eitt af þeim,“ sagði Þorsteinn ennfremur. -þjb Hagræöingarsjóöurinn: Þorsteinn vill notasjóðinn tiljöfnunar - Friðriksegirnei „Eina leiðin til að jafna vegna óumflýjanlegs áfalls er að nota veiði- heimildir Hagræðingarsjóðs til að bæta þeim sem verst verða úti í kvótaniðurskurðinum,“ sagði Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í viðtali við DV. - Eru menn sammála innan ríkis- stjómarinnar um aö nota Hagræð- ingarsjóöinn til slíkra hluta? „Fjármálaráðherra fellst ekki á að víkja frá því hlutverki sjóðsins sem Alþingi hefur ætlað honum. Hann er sjálfsagt að gæta hagsmuna ríkis- jsjóðs í því máli,“ sagði Þorsteinn. „Þetta er rétt hjá Þorsteini, það er ekki ágreiningur um það innan ríkis- stjómarinnar að Hagræðingarsjóð- urinn hefur ákveöið hlutverk og verður ekki notaður til annars,“ sagði Friðrik Sophusson fjármála- ráðherraímorgun. -rt Veltistolnum bflölvaður Ölvaður maður stal bíl á hafnar- garðinum á Sauðárkróki í nótt. Öku- ferðin endaði á Skagavegi er maöur- inn velti bílnum. Hann var færður í fangageymsluáSauðárkróki. -bjb LOKI Þetta eru of kostnaðar- samaráhyggjur. ■ ■ ■ ■■ * ■■ W ■ Utibusstmn uu willlHðwtjVl I VII gjaldken hættir vegna misferlis Utibússtjóri pósthússins viö Rauðarárstig í ; Reykjavík hætti nýlega störfum vegna misferlis sem upp komst í hans starfi. Um svipað leyti hætti einn gjaldkeri hjá pósthúsinu vegna svipaðra ástæöna. Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, staðfesti þetta í samtali við DV. Ólafur sagði að Póstur og sími hefði ekki beðið fjárhagslegt tíón af þessu misferli, mál útibússtjór- ans og gjaldkerans hefðu verið gerð upp innan stofnunarinnar. Aö- spurður vildi Ólafur hvorki játa né neita hvort framhald yrði á málinu, hvort frekari raimsókn færi fram eða kæra lögð fram. Ólafur \dldi heldur ekki segja um hvers konar misferli væri að ræða. Heimiidir DV herma aö fjár- málaóreiða hafi verið á pósthúsínu og þrír gjaldkerar verið látnir hætta undanfariö eitt og hálft ár. Sömu heimildir blaösins herma að einn gjaidkeri hafi meðal annars tekið 70 þúsund krónur út af bankabók aldraðs manns til eigin nota. Ólafur sagðist ekki kannast viö uppsögn nema eins gjaldkera. „Það var ákveðið misferli sem kom fram sem endurskoðun Pósts og síma gerði athugasemdir við. Útibússtíóri lagfærði hlutina og sagði jafnframt upp. Svona lagað kemst alltaf upp af þeírri einföldu ástæðu að hér er fjöldi manna starfandi í endurskoöun á öllum fjármálum stofhunarinnar. Ég held að ekkert af þessu fólki ætli sér viljandi aö vera meö misferli. Fólk veit að þetta kemst alltaf upp fyrr eða seinna. Oftast kemst það upp fyrr. Við tökum mjög hart á svona brotum en fólki er gefinn kostur á aö segja upp,“ sagði Ólafur enn- fremur. Kötturinn atarna er einn besti vinur barnanna og ekki sist þegar snöggur kláði gerir vart við sig. í Seilugranda, Ijúfur og hrekklaus. En hreyfingarnar eru snöggar DV-mynd ask Veðrið á morgun: Víðast gola eða kaldi Á hádegi á morgun verður víð- ast gola eöa kaldi, súld eða rign- ing verður suðaustanlands og með suður- og austurströndinni. Annars staðar verður skýjað með köflum. Hiti verður 10-14 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 Vestfjarðamið: Gyllir ÍS með 70;; tonnálOtímum . „Það er þorskur á stóru svæði. Ég er að vona að þetta sé að koma. Mað- ur kemst að þeirri niðurstöðu eftir að lenda í svona ævintýri að sá guli sé ennþá til. Hann er bara klókari en við mennirnir,“ sagði Grétar Kristjánsson, skipstjóri á togaranum Gylh ÍS, þegar DV hafði samband við hann í gærkvöldi. Grétar sagði að það væri stór fiskur á öllu svæðinu og lítið um smáfisk. Gyllir var þá á landleið eftir að hafa innbyrt 70 tonn af þorski á 10 tímum. Þeir fengu þennan afla á Kögurgrunni. Um 50 togarar voru á þessum slóðum í morgun. Margir voru búnir að fá góðan afla en í morg- un var rólegra yfir veiðunum. Hafís er á þessum slóðum og fylgir fiskurinn með þegar hann rekur upp. Flugvirkjar: Getur komið til verkfalls „Við funduðum í allan gærdag hjá sáttasemjara og förum aftur á fund í dag. Ef ekkert fer aö gerast getur komið til verkfalls. Félagið hefur heimild til verkfallsboðunar," sagði Oddur Ármann Pálsson, formaður samninganefndar Flugvirkjafélags- ins, en félagið hefur ekki samið við sína riðsemjendur. „Við erum ekki með aðrar kaup- kröfur en aðrir hafa fengið fram- gengt. Eftir miðlunartillöguna sett- um viö fram sérkröfur sem féllu í grýttan jarðveg - kröfur gera það alltaf - það er fóst regla,“ sagði Odd- ur Ármann Pálsson. -sme Ólöglegnettekin í þyrlueftirliti Þyrla Landhelgisgæslunnar og lög- reglan á ísafirði fóru í venjubundið veiðieftirlit í gær um Hornstrandir og Ísaíjarðardjúp. Eitt ólöglegt net var tekið við Hælavík. Þar var sil- unganet strengt þvert fyrir á. Þrjú ólögleg net sáust í Álftafirði og voru þau tekin af landi. -bj b Sóttuveikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann í gær í bát frá Ólafs- firði sem var staddur við Ingólfs- höfða. Maðurinn var fluttur alvar- legaveikuráBorgarspítalann. -bjb f f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.