Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992. Fréttir Stjómarskráin og EES-samninguriim á Alþingi: Björn Bjarnason í hörðum deilum - við stjómarandstöðuna um verk fyrri ríkisstjómar í málinu Bjöm Bjamason, nýkjörinn for- maður utanríkismálanefndar, átti í deilum við þrjá ráðherra úr ríkis- stjóm Steingríms Hermannssonar á Alþingi í gær. Skýrsla Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráöherra frá vorinu 1991 var helsta deilumálið þeirra á milli. Bjöm vitnaði í skýrslu Jóns Bald- vins þar sem segir: „Telja verður að þær stofnanir sem varða valdsvið sameiginlegra stofnana á evrópska efnahagssvæðinu falli innan ramma stjómarskrárinnar, eins og hún hef- ur verið túlkuð fram að þessu.“ Ólafur Ragnar Grímsson sagði skýrsluna hafa verið skýrslu Jóns Baldvins Hannibalssonar sjálfs en ekki ríkisstjórnarinnar. Svavar Gestsson og Steingrímur Hermanns- son töluðu í svipaða átt. Bjöm Bjamason óskaði þess að Davíð Oddsson staðfesti hvað stæði í fund- argerð ríkisstjómar Steingríms Her- mannssonar um þetta mál. Davíð kom í ræðustól og staðfesti að í fund- argerðinni stæði að skýrsla utanrík- isráðherra hefði verið rædd í ríkis- stjórn og þaö ítarlega. En eins og áður sagði stóð í skýrslunni að vald- svið sameiginlegra stofnana falli inn- an ramma stjómarskrárinnar. Gunnlaugur Stefánsson stýrði fundi meðan á þessu karpi stóð. Eftir að Svavar Gestsson var búinn að koma með tvö andsvör, Bjöm Bjarnason tvö, Steingrímur Her- mannsson tvö og Ólafur Ragnar tvö lokaði Gunnlaugur fyrir fleiri and- svör. Þá vildi Ólafur Ragnar bera af sér sakir og það sama gerði Bjöm Bjarnason og það gerðu þeir oftar en einu sinni. Davíð Oddsson vildi ræða þingsköp þegar hann staðfesti fund- argerð ríkisstjómar Steingríms Her- mannssonar. Alþingismaður, sem DV ræddi við, sagði að þar með hafi Davíð tekið þátt í „gagnfræðaskóla- leiknum“ þar sem hann vildi ræða þingsköp en gerði það ekki. Ólafur Ragnar Grímsson vill að allar fundargerðir ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar frá því í desember 1990 þar sem rætt er um EES veröi lagðar fram. Björn Bjamason sagði það ekki vegna virðingar við stjórnarskrá sem stjómarandstaðan sýndi þeim hluta málsins svo mikinn áhuga - heldur væri það póhtískt mál, en ekki lög- fræðilegt. Steingrímur Hermannsson sagði að ef hann væri forsætisráðherra myndi stjómarskránni verða breytt. Þær rimmur sem urðu á Alþingi í gær vom að mati nokkurra viðmæl- enda DV upphafið aö öðru og meira þar sem það mikið virðist bera á milli stjómar og stjórnarandstöðu. -sme Verjandi Egils H. Egilssonar í Hótel Höföa: Alvöruhótel og alvörupeningar - sagði reksturinn engan „þykjustunni“ leik „Egill greiddi fyrir þetta með al- vörupeningum og hann rekur al- vömhótel í alvöru. Þetta er enginn „þykjustmini" leikur," sagði Skúli Bjamason, lögmaður Egils H. Egils- sonar í Hótel Höfða, við málflutning í útburðarmáli því sem Búnaðar- bankinn er í gegn Agh og greint var frá í DV í gær. Skúh mótmælti fuUyrðingum Hró- bjarts Jónatanssonar, sem fer með máhð fyrir hönd Búnaðarbankans, þess efnis að leigusamningar, sem gerðir hefðu verið við Egjl og við Ásdísi og Aldísi hf„ þar sem Egill er stjómarformaður, hefðu verið mála- myndagerningar en ekki raunvem- leg viðskipti. Ferðamiðstöðin Veröld átti hús- eignina þar sem Hótel Höfði er til húsa en missti hana á nauðungar- uppboð. Ferðamálasjóður keypti eignina og afsalaði sér henni síðan til Búnaðarbankans. Vegna þess að Búnaðarbankinn hefur ekki fengið greidda leigu er útburðarmáhð höfð- aö. Skúh Bjamason, lögmaður Egils, sagði í máhlutningnum að Egill hefði greitt leigu allt þetta ár og jafnvel fram á næsta ár til Ferðamiðstöðvar- innar Veraldar sem er nú gjaldþrota, eins og kunnugt er. -sme Gjaldþrota skóverksmiðja á Akureyri: Sænskt f yrirtæki vill annast alþjóðlega markaðssetningu Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: Sænska ráðgjafartyrirtækið Rekt- us lýsti áhuga sínum á að aðstoða við alþjóölega markaðssetningu á ís- lenskum skóm sem framleiddir yrðu á Akureyri, en athuganir fara nú fram á því aö endurreisa skófram- leiöslu á gmnni Skóverksmiðjunnar Striksins sem varð gjaldþrota í sum- ar. Jón Hjaltahn Magnússon, um- boðsmaður Rektus hér á landi, segir aö á Akureyri sé mikil þekking á framleiðslu á vönduðum kuldaskóm auk tækja tíl framleiðslunnar. Á vegum Iðnþróunarfélags Eyja- flarðar hf. er unnið að athugim á endurskipulagningu skóframleiðslu á Akureyri og Rektus sendi Iðnþró- unarfélaginu tilboð um alþjóðlega markaösetningu á framleiðsluvörum þess fyrirtækis ef af framleiðslu yrði. I tilboðinu var meðal annars gert ráð fyrir að fuhtrúi Rektus kannaði hjá sænskum skósölum hvort þeir hefðu áhuga á að hluti af vönduðum kulda- skóm þeirra yrði framleiddur á Ak- ureyri. Það er fyrirtæki Jóns Hjaltalíns Magnússonar, JHM Elas Island, sem sendi þetta thboö í síðasta mánuði til Iönþróunarfélags Eyjafjaröar. Gert var ráð fyrir að kostnaður vegna þeirrar vinnu, sem í thboðinu fólst, næmi 800 þúsund krónum, auk 5% af sölusamningum viö hina erlendu aðha. Thboðið var í gildi th loka júh- mánaðar en að sögn Jóns Hjaltahns náðust samningar ekki. Jón segir að Rektus hafi ekki getað gengið að því thboði Iðnþróunarfélagsins að ahur útlagður kostnaður við markaðs- setninguna og vinnu viö að fá fram- leiðslu á þekktum skóm th Akur- eyrar kæmi inn í fyrirhugaða skó- verksmiðju sem hlutafé og þaö hefði ráðið úrshtum. Hins vegar stæði th- boö Rektus ennþá. NEMA Fyrir neðan umferðarljós viö gatnamót Lækjargötu og Hverfisgötu er mikil skiltamergð. Fyrst kemur biðskyldumerki, siðan merki sem bannar U- beygju og loks taxa-merki. Neðst er skilti sem leyfir U-beygju strætisvagna eingöngu. Athugull vegfarandi benti á að tilvist taxa-merkisins á staurnum væri frekar óijós. Þó má draga þá ályktun að leigubílar megi einnig taka U-beygju. En svona tilhögun gerir ekkert annað en rugla vegfarendur í rím- inu. DV-mynd JAK Mosfellsbær: Happa* þrenna olli slysi Ekið var á kyrrstæðan bíl í Mosfehsbæ siöasthðinn fóstudag. Engin slys urðu á fólki. Þetta er svo sem ekki i frásögur færandi | nema hvemig óhappið bar að. Kona var að koma á bíl sínum eftir Vesturlandsvegi þegar hún ók aftan á kyrrstæðan bh í veg- kantinum. Þar lá maður undir bílnum og var að gera viö púst- röriö. Hann slapp frá óhappinu meö rispur á hendi. Bíll konunnar var ekki á mik- illi ferð. Samkvæmt heimildum DV var hún að teygja sig eftir Happaþrennu, sem dottið hafði niöur á gólf bílsins, þegar hún ók bhnum aftan á kyrrstæða bílinn í vegkantinum. Flytja þurfti ann- an bhinn nokkuð skemmdan af vettvangi með kranabh. -bjb Olíufélögin þrjú lækkuöu öli bensínverðið í morgun. Ástæða þessarar lækkunar er lágt gengi dollars. Skeijungur lækkar verðið á öli- um þremur tegundum bensíns. Lækkunin er mismunandi eftir tegundum en verður frá 70 aur- um og upp í 1,50 krónur. Ohufé- lagið lækkar lítrann af 92 oktana bensíni um eina krónu og kostar hann nú 56,70 krónur, 95 oktana um 1,50 og kostar 59,70 krónur og 98 oktana um 1,10 og kostar þá 63,50 krónur. Olís lækkaði sitt verð einnig og samkvæmt upp- lýsingum þaðan er það á svipuð- um nótum og hjá samkeppnisað- ilunum. -ari „McDonaldsIóðin“: Verslunarskól- inn vill lóðina -útboðifrestað Á borgarráðsfundi í gær var ákveðið að bíða meö aö taka ákvörðun um almennt útboð á lóðinni að Ofanleiti 2. Lóðin er mjög eftirsótt og nýlega sóttu for- svarsmenn fyrirhugaðs McDon- aids veitingastaðar um hana. Thlaga um að bjóða lóðina út var lögð fram í borgarráöi fyrir rúmrí viku. Ástæða frestunar- innar nú er sú að umsókn hefur borist frá Verslunarskólanum um nýtingu lóðarínnar en skól- inn stendur við hhðina. Ákveðið var aö skoða umsókn Verslunar- skólans fram að næsta fundi borgarráðs. -ari Athugasemd frá Eykon Eyjóifur Konráð Jónsson al- þingismaður hefur sent frá sér athugasemd vegna ummæla sem hann viðhafði í viötaii við DV á laugardag. Athugasemdin er svo hljóðandi: „í viötaii við DV sl. laugardag segi ég m.a.: „.. Eg hygg að þessi aðför gegn mér sé runnin undan rifium Jóns Baldvins og að Davíö haíl þó axl- aö þá byröi fullkomlega." Síðan þessi orö birtust hef ég orðið margs vísari og tel mig nú vita aö það sem um Jón Baldvin er sagt í þessari málsgrein sé rangt. Er mér ljúft og skylt að greina frá því. Jafnframt bið ég hann afsökunar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.