Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992. 25 Sláum ekki slöku við fyrr en við fáum gjaldeyrinn ókeypis i Seðlabankanum, segir greinarhöf. m.a. Á „hreinum er- lendum lánum“ Árið 1992 fá íslendingar tilefni til að fagna ýmsum stóráföngum í sögu þjóðarinnar. Þess ber fyrst að geta að íbúatala höfuðborgarinnar fór yfir 100.000 og éru þá ekki tald- ir með íbúar nágrannasveitarfélag- anna eins og Kópavogs, Hafnar- íjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæj- ar og Seltjarnarness. Er því ekki ólíklegt að þjóðin fái tilefni innan skamms til að halda upp á það að íbúar höfuðborgarsvæöisins verði 200 þúsund. Árið 1992 fóru erlendar skuldir íslendinga yfir 200 milljarða og verður það að teljast góður árangur í baráttunni gegn óhagkvæmri framleiðslu og byggð í þessu landi. í nokkra áratugi hefur íslending- um tekist að halda í skeíjum verði nokkurra helstu gjaldmiðla heims og veröur það að teljast kraftaverk hjá ekki stærri þjóð. íslenska krónan hefur sem sagt, með stuðningi erlendra lána, kom- ið í veg fyrir áð gífurleg umframeft- irspum eftir erlendum gjaldeyri hleypti verði hans upp. Arið 1991 tókst okkur, talsmönnum mark- aðshyggiunnar á íslandi, að koma í veg fyrir að umframeftirspum upp á 18 milljarða króna ákvarðaði verð erlends gjaldeyris með því að taka þá upphæð að láni erlendis. Húrra fyrir okkur! Árið 1992 ætlum við að leika sama leikinn. Truflar eðlilega samkeppni Eitt af því sem okkur er ekki aö skapi er að Byggðastofnun, og nokkrir gjörgæslusjóðir sem lands- byggðarlýðurinn hafði til umráða, hafa, að því er best verður séð, verið að henda peningunum okkar út í vindinn. Að vísu ekki nema nokkrum milljörðum, en það er sama, svona afskiptasemi truflar eðlilega samkeppni og þróun mark- aðarins og því ber að stöðva hana nú þegar. íslenska hagkerfið verður okkur markaðshyggjumönnum varla að skapi fyrr en búið verður að koma í veg fyrir truflanir af völdum óhreinna atvinnuvega, eins og sjávarútvegs og landbúnaðar, og við getum byggt hagkerfið okkar á „hreinum erlendum lánum“. Hundrað þúsundasti höfuðborg- arbúinn og tvö hundruð milljarða króna erlendu skuldimar eru ekki einu fagnaðarefnin um þessar mundir. Okkur hefur líka tekist að koma íbúatölu Vestfjarða niður fyrir tíu þúsund og hefur þannig gengiö nokkuð vel í hreinsun þess svæðis. Varla er hægt að tala um að markaður sé þar lengur, og hlýtur forgangsmál okkar markaðs- hyggjumanna að vera það að hreinsun þess svæðis verði lokið KjaUarinn Sveinbjörn Jónsson sjómaður sem fyrst. Þá getum við einbeitt okkur að kjama málsins sem hlýt- ur að vera sá að búa til samþjappað hagkerfi sem gengur fyrir „hrein- um erlendum lánum“ - og engu öðra. Ef einhverjum skyldi detta í hug að hægt sé að snúa við á þessari heillabraut vil ég benda honum á að það tæki óhreinu atvinnugrein- amar okkar 2-3 ár að framleiða fyrir öllum skuldunum og yrðum við þá að gera okkur að góðu að vinna kauplaust, lifa á íslenskum fiski, íslensku kjöti, Þykkvabæjar- kartöflum og íslensku ylræktar- grænmeti allan tímann. - Oj bar- asta! En við þurfum víst ekki að hafa áhyggjur af því að það verði gert því þeim sem reyna að troða upp í okkur slíku msli fækkar ört, sem betur fer. Við getum því ótrufluð lagt leið okkar í KRON og keypt okkur ekta útlenska matvöm sem flutt er inn fyrir „hrein erlend lán“. Nóg er matarholan í útlöndum En það er ekki bara á efnahags- sviðinu sem við efnishyggjumenn höfum ástæðu til að fagna góðum sigrum. Öldum og árþúsundum saman hefur mannkynið spreytt sig á að ná sambandi við æðri mátt- arvöld sem búa á himnum. Stofnað hefur verið til hinna ýmsu trúar- bragða í þessum tilgangi en nú hef- ur okkur efnishyggjumönnum tek- ist að vinna umtalsveröan áfanga- sigur í þessari baráttu. Okkur hef- ur tekist að framleiða efni sem rjúfa skilin milli himins og jarðar, þ.e. gera gat á himininn og ætti það að auðvelda mjög samskiptin. Við íslendingar erum engir aum- ingjar í þessum efnum þó fáir sé- um. Okkur hefur tekist að fá vam- arliðið okkar til að dæla löglegum, ófáum tonnum af halonefnum út í loftið og auk þess höfum við með frystitogaravæðingu stóraukið út- streymi freons. Búast má við að innan tíðar takist að koma á góðu sambandi milli himins og jarðar fyrir okkar tilstilli. Ýmislegt hagraeði mun fljótlega fylgja ofangreindum aðgerðum. Búast má við að böm verði heima- kærari á daginn og að fmmstæð störf sem krefjast útivistar eins og sjómennska á opnum bátum og búskapur verði fljótlega af lögð og þurfum við því ekki að hafa áhyggj- ur af styrkjum til þeirra öllu leng- ur. Já, það er fleira sem við, tals-. menn réttlátrar samkeppni á ís- landi, höfum ástæðu til að fagna yfir. Nýlega upplýsti ráðherra að íslensk löggjöf næði ekki yfir fyrir- tæki sem náð hefðu ákveðinni stærð og það er ekki við því að búast að kunningi minn einn, sem á trillu, fái ósk sína uppfyllta en hann bjóst við að kvóta, í eigu Granda og nokkurra annarra stór- fyrirtækja, yrði skipt milli hans og annarra löglegra kvótaeigenda í landinu. Nei, takk, ekkert múður, lögin í þessu landi era til að halda smælkinu undir motturmi en ekki til að hindra eðlilega þróun hins heilaga markaðar. Það er ljóst að við talsmenn fijálsrar verslunar höfum mikla ástæðu til að fagna á þessum merkilegu tímamótum en við meg- um ekki leyfa okkur að slá slöku við fyrr en við fáum gjaldeyrinn ókeypis í Seðlabankanum. Það hlýtur að vera nóg matarholan í útlöndum svo hægt sé að uppfylla þessa réttmætu kröfu okkar sem er forsenda ftjálsrar verslunar í þessu blessaði borgríki okkar. - Til hamingju! Sveinbjörn Jónsson „ ... hagkerfið verður okkur markaðs- hyggjumönnum varla að skapi fyrr en búið verður að koma 1 veg fyrir truflan- ir af völdum óhreinna atvinnuvega eins og sjávarútvegs og landbúnaðar... “ Kennarar Kennara vantar að Grenivíkurskóla til að kenna handavinnu og bóklegar greinar. Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 96-33118 eða 96-33131. RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar- andi: Rarik 92006 6,3 MVA aflspennir Opnunardagur: Þriðjudagur 6. október 1992 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 27. ágúst 1992 og kosta kr. 1.000 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118, 105 Reykjavík RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar- andi: Rarik 92005 22 kV rofabúnaður Opnunardagur: Föstudagur 2. október 1992 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim þjóðendum sem þess óska. Útþoðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 27. ágúst 1992 og kosta kr. 1.000 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118, 105 Reykjavík MMC V-6 3000, ekinn , iangur, árgerð 1989, 5 dyra, blár, <r. 1.850.000 AjÖg gott eintak. MAÐ/fí BÍLAfí Hekluhúsinu, Laugavegi 174 TIL SÖLU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.