Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992. Útlönd Snákur bvtur mannogmadur gleypirsnák Malasískur maður, M. Krislm- an, brást reiður viö þegar snákur beit hann á dögunum og geröi sér lítið fyrir og gleypti skriðkvxkind- ið. Maðurinn llggur nú á sjúkra- húsi með mikla magaverki, aö sögn malasíska dagblaðsins Star í dag. Læknar í bænum Seremban í suövesturhluta Malasíu segja að röntgenmyndir hafi staöfest að 30 sentímetra langur snákurinn inni í Krishnan sé dauöur en snákagleypírínn er ekki jafh viss. „Ég finn enn að eitthvað er á iði í maganum á mér og ég er hrædd- ur um að snákurinn kunni að vera á sagði hann. „Ég veiddi snákinn en hann beit mig. Ég varð því reiður og gleypti hann. Ég fékk í magann og ná- grannamir sendu mig upp á spít- ala.“ KanaræHaafl hundeltaCIA- svikarann Bandarísk stjórnvöld sögðu í gær að þau ætluðu að hundelta iyrrum erindreka leyniþjón- ustunnar CIA og rétta yfir honum fyrir að njósna fyrir sovésku leyniþjónustuna KGB. Lögreglan í Stokkhólmi sagði aö Edward Lee Howard hefði far- ið frá Svíþjóð í gær eftir að hon- um hafði verið synjað um dvalar- leyfi i landinu. Ekki er vitað hvert hann fór. Howard flúði frá Bandaríkjun- um til Sovétríkjanna árið 1986 og veitti Sovétmönnum upplýsingar um starfsemi CIA. Eftir hrun Sovétríkjanna fór hann til Svi- þjóöar og hafði búið þar frá því í nóvember í fyrra. Brunaveröir ná lokstökumá skögareldum Örmagna slökkviliÖ6menn í Kalifomíu 'sögðu í gær að þeir væm vongóðir um að hafa loks náð yfirhöndinni í baráttunni við skógarelda sem hafa eyðilagt 28 þúsund hektara og eyðilagt heim- ili hundruða raanna. Eldurinn, sem geisar í Shasta- skógj í noröurhluta fylkisins, er hinn versti í Kalifomiu frá 1987. Hann hefur gjöreytt tveimur htl- um bæjum og farið langt með tvo aðra og neytt 7500 manns til aö flýja að heiman. Skógareldar loga víðar í Kah- fomiu og í skóglendi nærri Boise í Idahofylki loga verstu eldar í manna minnum. Áfram rættum skiptingu Tékkóslóvakíu Leiðtogar tveggja stærstu stjómmálaflokka Tékkóslóvakiu, þeir Vaclav Klaus og Vladímir Meciar, hittast enn á ný í dag til að ræða framtíö hins 74 ára gamla lýöveldis. Ákvörðunin um fundinn var tekin í gær. Hún kom öllum í opna skjöldu vegna þess að Mec- iar haíði þegar aflýst fundi sem haföi verið boðaöur á fimmtudag. Flokkar Klaus og Meciars unnu kosningarnar í Tékkíu og Slóvak- íu en þeir hafa ekki enn komið sér saman um framtíðarskipan sambandsrikisins. Flokkur Mec- iars í Slóvakíu vill koma á laus- legu sambandi tveggja sjálf- stæðra lýövelda. Hinir viþa ann- aðhvort eitt ríkL með sameigin- iega stefnu i utanríkis-, efiiahags- og vamarmálum, eða tvö alveg aðskhin. Reutvr fbúar New Orleans bíða flóðbylgju af völdum fellibylsins Andrésar: Borgin eins og súpu- skál sem gæti fyllst - bareigendur taka lífinu samt létt og bjóða kokkteilinn Fellibyl Norðvestlægir vindar frá Mexíkó beina fellibylnum nú inn yfir Alabama, Mississippi og Louisianafylki MEXIKOFLOI Mikh hætta er tahn á að stór hluti New Orleansborgar í Louisiana fari í kaf þegar felhbylurinn Andrés fer þar hjá í dag. Borgin er að stórum hluta undir sjávarmáh og aðeins var- in af sjóvamargöröum sem ekki standast ofviðri í líkingu við það sem nú geisar. Landi borgarinnar er líkt við súpu- skál sem fyhist þegar varnargarð- amir bresta. Regnvatn kemst þá heldur ekki frá borginni þannig að hún gæti verið á kafi dögum saman. Margir hafa flúið frá New Orleans og nálægum bæjum eftír að ljóst varð að Andrés færi þar um. Fólk virðist þó rólegra en á Flórída þar sem fjöldaflótti varö til þess að færri fór- ust en eha hefði orðið. Veðurfræðingum hefur gengið erf- iðlega að segja fyrir um hvar Andrés fari nákvæmlega inn yfir ströndina. Skemmdir á mannvirkjum veröa jafnan mestar þar sem auga bylsins lendir en áhrifin geta orðið víðtæk, einkum þar sem hætta er á flóðum. Ibúar New Orleans em kunnir fyr- ir að taka lífinu létt og í gærkvöldi fundu bareigendur í helsta skemmt- anahverfinu upp á því að bjóða sér- stakan kokkteil undir nafninu Felli- bylur. Gekk drykkurinn vel út og seldist á uppsprengdu verði. Þrátt fyrir léttlyndi sumra er þó talið að allt að tvær milljónir manna hafi flúiö aðalhættusvaeöið í gær. Svo virðist sem ekkert lát sé á Andrési þótt hann hafi nú farið hamförum í nokkra sólarhringa. Hann fer nú inn yfir land og ætti þá að draga nokkuð úr kraftinum. Suðurhluti Flórída er í rústum eftir að Andrés gekk þar yfir. Engin leið er enn að meta tjónið en almennt er þó tahð að það skipti tugum mhljarða Bandaríkjadala. Síðast var talað um 20 milljarða sem svarar til um þús- und milljarða íslenskra króna. Andrés hefur þegar valdið mestu náttúruhamförum í sögu Bandaríkj- anna og er þó enn eftir að sjá hveiju hann fær áorkað við strönd Mexíkó- flóans. Miðja fellibylsins stefnir vest- an við New Orleans þannig að fok- skemmdir ættu ekki að verða miklar þar. Hvarvetna við ströndina er þó þéttbýlt og margar byggðir í hættu. Reuter Hanan Ashrawi, talskona Palestínumanna, segir ísraelsmenn móttækilega fyrir hugmyndum Palestínumanna á friöarráðstefnunni. Símamynd Reuter ísraelsmenn í Washington: Nýjar tillögur um sjálf stjórn fyrir Palestínumenn Samningamenn á friðarráðstefnu araba og ísraelsmanna í Washington sneru sér beint að helsta ágreinings- efni dehunnar í Miðausturlöndum, örlögum tæpra tveggja mihjóna Pa- lestínumanna sem búa á herteknu svæðunum. ísraelsmenn lögðu fram nýjar hugmyndir um sjálfstjóm Pa- lestíniunanna. „Við höfum lagt fram ýmsar nýjar tihögur um stofnun sjálfstjórnar til bráðabirgða," sagði Elyakim Rubin- stein, aðalsamningamaður ísraels- manna, við fréttamenn. ísraelsmenn lögðu fram hugmynd- imar um sjálfstjóm Palestínumanna í gær á fyrsta fúndi samningafúndi ísraelsmanna og Palestínumanna frá því að verkamannaflokkur Yitzhaks Rabins tók við völdum í ísrael og lofaði að hraða friðarumleitununum í Miðausturlöndum. Rubinstein skýrði ekki frá inni- haldi tihagnanna en Hanan As- hrawi, talskona Palestínumanna, sagöi að ísraelsmenn hefðu lagt fram þrjú grundvallarskjöl, þar sem m.a. er fjallaö um bráðabirgöastjórn á hemumdu svæðunum á vestur- bakka Jórdanár og á Gaza og vald- svið heimastjórnarinnar. Ashrawi sagði að ísraelsmenn heföu sýnt þess merki að þeir væm móttækilegir fyrir hugmyndum Pa- lestínumanna og að þeir heföu forð- ast að nota ögrandi orð, eins og á fyrri samningafundum. Reuter Friðarráðstefna um Júgóslaviu hefst 1 dag: Bardagar hörðnuðu á nýjaleik í morgun Bardagar blossuðu upp að nýju í Sarajevo, höfuðborg Bosníu, snemma í morgun eftir stutta hvíld, aðeins nokkrum klukkustundum áður en alþjóðleg friðarráðstefna hefst í London. Sprengjukúlur tóku að falla á mið- borgina um klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma. Bardagarnir í gær- kvöldi höföu veriö þeir grimmustu í rúman mánuð. Deiluaðilar vildu tryggja stöðu sína fyrir ráðstefnuna í London. Vélbyssugelt og hvellir úr smá- byssum hljómuðu öðru hvom á göt- um borgarinnar. Þær vom mann- lausar þar sem yfirvöld höíðu fyrir- skipað tveggja sólarhringa útgöngu- bann síðdegis í gær til að draga úr mannfalli. Ekki er vitað hversu margir bætt- ust við tölu látinna eftir bardagana í gærkvöldi. Friðarráðstefna Sameinuðu þjóð- anna og Evrópubandalagsins um málefni fyrrum Júgóslavíu hefst í dag en stjórnarerindrekar reyna að draga úr væntingum manna um skjót endalok bardaganna. Skipuleggjendur ráðstefnunnar lögðu áherslu á að hún mundi ekki megna að stööva borgarastríðið en markmiöið er að komast að vendi- punkti í friðarumleitununum. Boutros Boutros-Ghali, fram- kvæmdastjóri SÞ, sagðist vona að viðræðurnar, sem eiga að standa í tvo eða þijá daga, verði til þess að nýr skriður komist á tilraunir til að leysa þjóðarbrotaerjumar sem upp- lausn Júgóslavíu leiddi af sér. Reuter Serbneskur hermaður hleypur í skjól í bardögunum i Bosniu. Enn ein til- raun til að stilla til friöar verður gerð í dag í London. ■ Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.