Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Page 24
24
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992.
Fréttir
Trausti Þorláksson, stjómarmaður Silfur stj ömunnar í Öxarfirði:
Uppbygging stöðvarinnar
gengið með eindæmum vel
stöðin framleiðir sjálf sitt súrefni og fullkomin fóðurverksmiðja er risin við stöðina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er óhætt að segja að upp-
bygging stöðvarinnar hefi gengið
með eindæmum vel og við höfum
ekki orðið fyrir neinum skakkafóll-
um. Við erum enn í uppbyggingar-
starfi og það er þungt að greiða
niður stofnlán en við horfum bjart-
sýnir til framtíðarinnar. Það er al-
veg ljóst að Silfurstjarnan er komin
til að vera,“ segir Trausti Þorláks-
son sem á sæti í stjóm fiskeldis-
stöðvarinnar Silfurstjömunnar hf.
í Öxarfirði við DV.
Geysileg uppbygging hefur átt sér
stað á athafnasvæði fyrirtækisins
en þar hófust framkvæmdir í maí
árið 1989. Hver áfanginn í uppbygg-
ingunni hefur rekiö annan og það
nýjasta er bygging fullkominnar
fóðurverksmiðju. Þar verður fram-
leitt bæði þurrfóður og blautfóður
og tölvukerfi í verksmiðjunni sér
um að senda viðkomandi fóður í
hin ýmsu ker úti á lóðinni, allt eft-
ir því hvernig fóður á að fara í
hvert ker hverju sinni.
Stöðin er geysilega vel útbúin frá
öryggissjónarmiði. Stöðin, sem
notar um 1,5 megawött af raf-
magni, hefur yfir að ráða 5 megaw-
öttum og verið er að setja upp
þriðju varaaflsvélina upp á 1,5
megawött. Þá er 24 tíma öryggis-
vakt í stöðinni alla daga ársins og
segir Trausti að það fyrirkomulag
hafi margborgað sig. Tölvukerfið
gerir strax viðvart sé einhver hætta
á ferðum og gefur frá sér hljóð-
merki og fljótlegt er að lesa af töfl-
um í stjómstöð hvar bilun er og
koma viðgerð við.
Trausti segir að sölumál fyrir-
tækisins séu í mjög góðu lagi. „Við
höfum unnið allt okkar markaðs-
starf sjálfir, seljum alla okkar
framleiðslu úr landi mOliliðalaust
og fáum hæsta verð sem fáanlegt
er. Við höfum beinlínis leitað
þeirra markaða þar sem hæsta
verð er greitt. Þessir markaðir eru
í Frakklandi, Englandi og í Banda-
ríkjunum. Þessu hefur fylgt að við
höfum orðið að byggja allt upp
samkvæmt ýtrustu kröfum og þaö
hefur verið gert.“
Nær helmingur bleikja
Segja má að hjá Silfurlaxi séu um
60% framleiðslunnar lax en um
40% bleikja. Varðandi hagræðingu
í fyrirtækinu segir Trausti að með
tilkomu fóðurverksmiðjunnar á
staðnum náist fram verulegur
spamaður, enda hafi stöðin keypt
fóður fyrir um 5 milljónir króna á
mánuði. „Öll hreyfing á þessum
kostnaðarhð gefur okkur verulega
mikið til baka,“ segir Trausti.
Reiknað er með að stöðin selji
fyrir um 200 milljónir króna í ár
og mun sú upphæð tvöfaldast á
næstu árum. „Þetta er allt saman
útlendir peningar sem koma inn í
landið fyrir íslenska framleiðslu og
það hlýtur að muna um það. Þetta
er því mjög hagstætt dæmi þjóð-
hagslega séð. Svo má ekki gleyma
því hversu gífurlega mikla þýðingu
þetta hefur fyrir sveitarfélagið hér.
Hjá fyrirtækinu eru um 30 ársverk
og það er geysilega mikið í okkar
sveitarfélagi," sagði Trausti.
Trausti Þorláksson fylgist með tveimur starfsmönnum stöðvarinnar vinna við flokkun á bleikju.
^ DV-mynd gk
Enn á hálfum afköstum
Silfurstjaman er í eigu Byggða-
stofnunar og fjölmargra heimaað-
ila sem eru undir nafni Seljalax.
Fyrirtækið rekur einnig seiðaeldis-
stöð að Sigtúnum og er með rekstur
Árlax á Kópaskeri á leigu. Á síð-
asta ári nam framleiðsla Silfurlax
hf. 420 tonnum, áætlað er að fram-
leiða 550 tonn á þessu ári og er stöð-
in þó enn á hálfum afköstum. „Við
sjáum fram á að eftir 2-3 ár verði
stöðin komin í full afköst og fram-
leiði þá 1000 tonn á ári. Hér verður
allt til þess, vatn, rafmagn, súrefn-
isframleiðsla og fóðurverksmiðja,"
segir Trausti.
Dómsúrskuröur:
Bæjarsjóður Ólafsfjarðar
greiði rúmar 7 milljónir
Helgi Jónasscm, DV, Ólafefiröi:
Dómur er fallinn í máli Búnaðar-
bankaris gegn Ólafsfjarðarbæ. Aðal-
krafa stefnanda var að Ólafsfjarðar-
bær verði dæmdur til þess að greiða
Búnaðarbankanum 16 milljónir
króna ásamt 33,6% vöxtum frá 1.
des. 1988 tíl 21. febrúar 1989. Greiðsl-
ur þessar tengjast ábyrgð Ólafsfjarð-
arbæjar á bakveði á afurðum Sævars
hf. sem varð gjaldþrota í desember
1988.
í máli Ólafsfjarðarbæjar kom fram
aö stefnandi lýsti ekki kröfum í búið
og hélt því fram að ábyrgðaryfirlýs-
ingin hefði ekki gildi lengur og hefði
fallið niður vegna vanlýsingar Bún-
aðarbankans
Niðurstaða dómþingsins á Akur-
eyri varð sú að Ólafsfjarðarbæ var
gert að greiða rúmar 7 milljónir
króna, aúk vaxta, en hvor aðili um
sig beri sinn hluta málskostnaðar.
Bæjarráð Ólafsfjarðar fjallaði um
málið á fimmtudag og gera menn
fastlega ráð fyrir að áfrýja en endan-
leg ákvörðun hefur þó ekki verið tek-
in.
Akureyrarliðin í 1. deild í knattspymu:
Ovissa um sjónvarp
frá útileikjunum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
„Því miður hafa undirtektir þeirra
fyrirtækja sem við höfum leitað til
um fjárstuðning varðandi þessar út-
sendingar ekki verið nægjanlega
góðar svo framhaldið er í óvissu,“
segir Eiður Stefánsson en hann er
einn þeirra sem stóðu að beinni sjón-
varpsútsendingu frá leik Víkings og
Þórs í 1. deild í knattspyrnu í Reykja-
vík á dögunum. Leikurinn var sýnd-
ur á dreifikerfi Stöðvar 2 nyrðra.
Til stóð að halda þessum útsend-
ingum áfram og sýna þá útileiki KA
og Þórs sem eftir eru en sem fyrr
sagði er allt í óvissu með framhaldið.
Heildarkostnaður viö .útsendingu á
einum leik er um 300 þúsund krónur
og þar af er gjald fyrir afnot af ljós-
leiðara um 120 þúsund.
„Okkur vantar peninga til þess að
af þessu geti orðið og erum nú að
kanna það hvort einhver fyrirtæki
eru tilbúin að leggja þessu lið en út-
litið með það er ekki bjart,“ sagði
Eiður Stefánsson.
Raufarhöfn:
„Pinklar" Alþing-
is gera okkur
erfittfyrir
- segir Guðmundur Guðmundsson sveitarstjóri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er gott hljóð í okkur hér á
Raufarhöfn þrátt fyrir að ýmsir
„pinklar" sem Alþingi lagði á sveit-
arfélögin í upphafi ársins hafi gert
okkur erfitt fyrir varðandi fram-
kvæmdir. Boðskapurinn hljóðaði
upp á að eyða sem minnstu, gera
sem minnst en sjá ríkissjóði fyrir
auknum tekjum vegna þess að ekki
ætti að leggja á aukna skatta. Þetta
þýðir auðvitað að við höfum orðið
að fara okkur hægt í framkvæmd-
um,“ segir Guðmundur Guð-
mundsson, sveitarstjóri á Raufar-
höfn.
Framkvæmdir á vegum Raufar-
hafnarhrepps í sumar hafa aðal-
lega snúist um frágang kantsteina
við götur í bænum, ýmis viðhalds-
verkefni og snyrtingu. Þrátt fyrir
að framkvæmdir hafi verið skom-
ar niður segir Guðmundur að ekki
hafi verið um atvinnuleysi að ræða.
Guðmundur Guðmundsson, sveit-
arstjóri á Raufarhöfn. „Horfum til
þess að auka fjölbreytni í atvinnu-
lífinu.“ DV-mynd gk
„En atvinnulífið er einhæft hjá
okkur, Raufarhöfn er eindregið
sjávarpláss en við emm auðvitað
að horfa til þess að auka fjölbreytni
í atvinnulífinu, t.d. í ferðaþjónustu.
Þar er um samstarfsverkefni að
ræða sem nær yfir báðar Þingeyj-
arsýslumar. Við höfum upp á
ýmislegt að bjóða ferðamönnum,
s.s. fuglalíf sem er það mesta hér á
landi utan Mývatnssvæðisins."
Guðmundur segir að loðnan hafi
bjargað miklu fyrir Raufarhafnar-
hrepp. Þangað kom mikil loðna á
síðustu vetrarvertíð og nú á haust-
vertíðinni hefur þegar borist meira
af loðnu en á allri vertíðinni í fyrra.
„Það er hins vegar þannig að það
er erfitt að treysta á loðnuna og það
gerir okkur erfitt fyrir um gerð
fjárhagsáætlana. En það þýðir ekk-
ert að vera með neinn barlóm og
það er létt yfir mönnum hér um
þessar mundir og atvinnulífið
gengur vel,“ segir Guðmundur.