Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Síða 3
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992.
3
Fréttir
Milljónatjón kaupmanna
- vegna seinagangs viö framkvæmdir í Kvosinni, segir Garðar Siggeirsson 1 Herragaröinum
„Ég hef orðið fyrir verulega miMu
tjóni vegna þess hversu þetta hefur
dregist og aðrir hafa jafnvel orðið
fyrir en meira tjóni. Eflaust skiptir
þetta milljónum króna,“ sagði Garð-
ar Siggeirsson, kaupmaður í Herra-
garðinum við Aðalstræti. Fram-
kvæmdum við Aðalstræti og Kirkju-
stræti er enn ekki lokið en þeim átti
að vera lokið 25. júlí.
Borgarráði hefur borist bréf frá
Þróunarfélagi Reykjavíkur þar sem
vakin er athygh á hversu mikið
framkvæmdirnar hafa dregist. Garö-
Þjóðleikhúsið:
Lilli klifurmús
gengur í erfðir
„Já, þetta hlutverk gengur í erfð-
ir,“ segir Örn Árnason leikari sem
mun leika Lilla klifurmús í hinu vin-
sæla barnaleikriti, Dýrunum í Hálsa-
skógi, sem frumsýnt verður í Þjóð-
leikhúsinu í byrjun október. Faðir
Arnar, Árni Tryggvason, skilaði
hlutverki Lilla á ógleymanlegan hátt
þegar Dýrin í Hálsaskógi voru fyrst
sett upp fyrir 25 árum og svo aftur 8
árum síðar.
„Við erum svo nýbyrjaðir að æfa
að þetta er bara eins og hvert annað
hlutverk fyrir mér enn sem komið
er. Það eru sautján ár síðan ég sá
leikritið og þá var það bara pabbi sem
stóö á sviðinu. Ég mun ekkert keppa
við hann og þetta verður tvennt ólíkt
því við erum eins og svart og hvítt,
bæði í leik og starfi. Eitt er alla vega
víst að ég passa ekki í búning fóður
rníns," segir Örn og hlær.
Sigurður Sigurjónsson mun fara
með hlutverk Mikka refs í leikritinu
en sem kunnugt er var það Bessi
Bjarnason sem á sínum tíma læðu-
pokaðist um sviðið og hló rosalega í
hlutverki Mikka.
„Já, ég er nú aðeins stærri en Siggi
og örhtið þykkari, í augnabhkinu að
minnsta kosti, en reyndar er það nú
þannig í textanum, ef grannt er skoð-
að að Lihi JUifurmús er hinn mesti
sælkeri. Þao besta sem hann fær eru
hunangskökur og hann reynir eins
og hann getur að kría sér út auka-
bita þannig að það er ekkert óeðlilegt
að hann sé pínulítið þykkur," segir
Örn. -ból
ar segir að búast hefði mátt við ein-
hverjum töfum við framkvæmdirnar
en þetta sé svo mikill dráttur að það
sé ekki viðunandi.
„Það þarf að koma miðbænum í
eðhlega notkun. Það er ekki hægt að
rústa heilu fyrirtækin og stofnanim-
ar með þessum framkvæmdum - þó
þær eigi rétt á sér og allir séu sam-
mála um að þetta þurfi að gera - þá
erum við ekki sammála því að þetta
þurfi að taka þennan langa tíma. Ég
á bágt með að trúa að það sé ekki
hægt að vinna á vöktum á sumrin.
Það er bjart í 24 tíma á sólarhring
og það býr enginn í næstu húsum.
Þannig að það myndi ekki raska ró
nokkurs manns,“ sagði Garðar Sig-
geirsson.
Hann sagði að fyrir fram hafi menn
getað sætt sig við einhvem drátt,
kannski tíu til fimmtán daga en ekki
tvo mánuði. „Það er ekki alltaf hægt
að kenna fomleifagreftri um þetta.
Það var reiknað með honum í þess-
um framkvæmdum.“
„Þegar þetta verður búið þá skilar
það sér kannski til baka. Þetta er
Sigurður Sigurjónsson og örn Árnason leikarar munu í vetur fara með
hlutverk Mikka refs og Lilla klifurmúsar í uppfærsiu Þjóðleikhússins á Dýrun-
um í Hálsaskógi. DV-mynd BG
bara húið að taka alltof langan tíma. taka á mig einhvern skaða þar sem
Það hefði þurft að skipuleggja þetta gatan verður betri og fahegri á eft-
betur og haga undirbúningnum ir,“ sagði Garðar Siggeirsson.
öðruvísi. Ég var alltaf tílbúinn að -sme
KULDASKOR
Á GÓÐU VERÐI
msiÁiiiiru
Stærðir 36-41
Litur brúnn
Verð kr. 5.990
Stærðir 36-41
Litur svartur
Verð kr. 3.990
RRSkór
EURO SKO
Kringlan 8-12 • SÍmi 68 60 62
RRSkór
EURO SKO
Uugavcg 60 • Simi 62 90 92
Óvissa um niðurstöður atvimumálanefndar:
Margir nef ndarmanna
reiddust heiftarlega
- þegar ríkisstjómin gerði tillögur nefndarinnar að sínum
„Það kom vissulega mikiö bak-
slag í störf nefndarinnar við það
að ríkisstjórnin fleytti ijómann of-
an af tillögum sem nefndin hafði
unnið og gerði að sínum. Ég þori
ekki að segja th um hver eftirmálin
verða en það er staðreynd að ekki
hefur tekist að ljúka störfum
nefndarinnar," sagöi einn af þeim
sem sæti eiga í atvinnumálanefnd-
inni sem skipuð var að loknum
kjarasamningum í vor.
Samkvæmt heimhdum DV er enn
stirðleiki í störfum nefndarinnar
sem og undirnefnda sem fjaha meö-
al annars um sjávarútvegsmál. Til
stóð aö nefndin skhaöi af sér thlög-
um í næstu viku. Eins og mál
standa nú er óvíst að þaö takist.
Undirnefndin, sem fjallar um
sjávarútvegsmáhn, hefur ekki skil-
að af sér th aðalnefndarinnar enda
hefur ekki náðst samkomulag um
hvað gera skuli. Sem dæmi um
hugmyndir, sem ekki er samkomu-
lag um, má nefna að frystitogaram-
ir verði skyldaðir th að veiöa í það
minnsta 4 mánuði á ári á djúpslóð
utan íslenskrar fiskveiðhögsögu.
Eins er ekki samkomulag um aö
hækka kvótaskerðingu þeirra
fiskiskipa, sem selja fisk á erlenda
markaði, úr 20 prósentum í 25 pró-
sent. Það gæti því verið von á
tveimur nefndartihögum frá sjáv-
arútvegsnefndinni.
Fyrir utan tillögurnar um vega-
mál, sem aðalnefndin hafði unnið
og ríkisstjórnin gerði að sínum,
hefur verið rætt um að auka við-
hald opinberra bygginga. Þá hefur
verið rætt um ráðstafanir til að
auka skipasmíði og alveg sérstak-
lega skipaviögeröir innanlands.
Nefndin hefur einnig fjallað um
ýmis málefni iðnaðarins en þar
liggja ekki fastmótaðar thlögur fyr-
ir.
Varðandi sjávarútveginn hefur
veriö rætt um að jafna samkeppnis-
aðstöðu fiskvinnslunnar í landi
gagnvart frystiskipunum. Þar
horfa menn mjög th þess ójafnvæg-
is sem er í skattlagingu milli land-
vinnslu og sjóvinnslu. Th aö breyta
þvi þarf meðal annars að breyta
skattalögunum.
-S.dór
SUZUKI SWIFT
Á SÉRSTÖKU TILBOÐSVERÐI
Vegna hagstæðra innkaupa bjóðum við nú fáeina Suzuki Swift á verði frá kr.
695.000,- stgr. á götuna. Bilamir eru búnir aflmikilli 58 ha. vél
með beinni innspýtingu, framdrifi og 5 gíra gírkassa.
Svo er eyðslan alveg í sérflokki, ffá aðeins 4.0 1 á hundraðið
$ SUZUKI
---------------
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 ■ SlMI 685100
SWIFT - SPARNEYTINN BÍLL Á VÆGU VERÐI