Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Page 8
 Lífestm FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992. DV kannar verð í matvöruverslunum: Þrefaldxir verð- munur á kínakáli Hin vikulega verökönnun DV fór fram í gær og var farið í Fjarðarkaup í Hafnarfirði, Miklagarð við Sund, Kaupstað í Mjódd, Hagkaup við Eið- istorg og Bónus í Skútuvogi. Kannað var verð á rauðri papriku, hvítkáli, kínakáli, perum, banönum, appelsín- um, sveppum, 2 kg af Ota hafra- mjöh, nautahakki, 75 g af Lux hand- sápu, 11 af Trópí og 550 g pakka af Cocoa Puffs. Langmestur verðmunur reyndist á kinakáU, eða 207 prósent. KínakáUð var dýrast í Kaupstað þar sem kílóið kostaöi 189 krónur. í Bónusi kostaöi kílóiö 55 krónur og var það lægsta verðið. í Miklagarði kostaði kínakál- ið 74 krónur, 99 krónur í Fjarðar- kaupum og 158 krónur í Hagkaupi. Rauð paprika var aðeins til á þrem- ur stöðum. í Fjarðarkaupum kostaði rauða paprikan 390 krónur en hún átti að lækka í 149 krónur kílóið. í Kaupstaö var paprikan á 623 krónur en í Hagkaupi kostaði kílóið 589 krónur. Verðmunurinn var því 60 prósent. Nokkuð mikill munur var á hvít- káh á milli verslana. Hvítkálið var ódýrast í Bónusi þar sem það kostaði 75 krónur kílóið. í Fjarðarkaupum kostaði það 92 krónur, 80 krónur í Miklagarði, 189 krónur í Kaupstað og 158 krónur í Hagkaupi. Verðmun- urinn er því 152 prósent í þessu til- felh. Hæsta og lægsta verð Sveppir Nautahakk Lux handsápa \ 30 Hæst Lægst Sveppir fást nú á mörgum stöðum bæði í lausu og pakkaðir inn í öskjur. Um 90 prósenta munur er á hæsta og lægsta kílóverði á sveppum. Perumar kostuðu 60 krónur í Bón- usi, 63 krónur í Miklagarði, 79 krón- ur í Fjarðarkaupum, 89 krónur i Bananar haldast á sama verði Meðalverð á banönum hefur hald- ist tiltölulega stöðugt undanfama mánuði. í þessari viku er meðalverö- iö 100 krónur en var 99 krónur síðast þegar bananaverðið var kannað, þ.e. í byrjun þessa mánaðar. í tveimur könnunum í ágústmánuði reyndist verðið vera 102 krónur og 96 krónur. Verö á rauðri papriku fer heldur hækkandi. Nú er meðalverðið 534 krónur og var fyrir hálfum mánuði 474 krónur. Um miðjan ágúst kostaði rauða paprikan 482 krónur og í júh var hún á 272 krónur að meðaltali. Hvítkáhð lækkar örhtið eftir að hafa snarhækkað á tímabili. Meðal- verðið núna er 119 krónur. Þann 19. ágúst kostaði kílóið að meðaltali 126 krónur en í júlí og maí kostaði kílóið aðeins 39 krónur og 35 krónur. Pemrnar haldast enn á lágu verði, kosta nú 78 krónur og voru á 80 krón- ur þar áður. í byrjun ágúst, aftur á móti, var meðalverð á pemm 137 krónur og 121 króna í byrjun júh. Kílóverð á appelsínum er sjö krón- um hærra nú en fyrir hálfum mán- uði. Nú er meðalverðið 84 krónur en var 77 krónur þann 9. september. Um miðjan ágúst kostuðu appelsínumar 81 krónu og 70 krónur í lok júlí. -GHK Hagkaupi og 99 krónur í Kaupstað. Munurinn er 65 prósent á hæsta og lægsta verði. Bananarnir vom dýrastir í Kaup- stað og Hagkaupi þar sem kílóið kost- aði 118 krónur. Bananarnir voru þremur krónum ódýrari í Fjarðar- kaupum en til stóð að lækka verðið í 98 krónur. í Miklagarði kostuðu bananarnir 85 krónur en í Bónusi aðeins 65 krónur. í Bónusi vom þeir seldir í pokiun og var um það bh eitt kíló í pokanum, heldur meira en minna. Annars fengust þeir í lausu á 84 krónur kílóið. Appelsínurnar vom ódýrastar í Bónusi í pokum, á 55 krónur pokinn, og var um það bh eitt kíló í pokanum. í lausu kostuðu þær 75 krónur kíló- ið. í Fjarðarkaupum kostuðu appel- sínumar 89 krónur en áttu að lækka í 65 krónur kílóið. í Miklagarði kost- uðu appelsínumar 79 krónur og 98 krónur í Kaupstað og Hagkaupi. Munur á hæsta og lægsta verði var 78 prósent. Sveppirnir vom ýmist seldir í lausu eða í öskjum. Ódýrastir voru þeir í Bónusi á 299 krónur í lausu. í Fjarðarkaupum kostuðu þeir 569 krónur og munar þama 90 prósent- um. Sveppirnir voru krónu ódýrari í Hagkaupi, kostuðu 568 krónur, en í Miklagarði kostuðu þeir 460 krónur og 399 krónur í Kaupstað. Ota haframjölið var dýrast í Fiarð- arkaupum en þar kostaði 2 kg pakki 347 krónur. í Bónusi var haframjölið á 272 krónur og í Miklagarði, Kaup- stað og Hagkaupi á 288 krónur. Mun- ur á hæsta og lægsta verði er 28 pró- sept. í Bónusi var hægt að fá nautahakk á 530 krónur kílóið og með 30 prósent afslætti við kassann kostaði hakkið 371 krónu. í Miklagarði fékkst hakk- ið á 400 krónur, í Fjarðarkaupum kostaði það 595 krónur, í Hagkaupi kostaði það 639 krónur og í Kaupstað var kílóið af nautahakkinu á 699 krónur. Lux handsápa var hvorki til í Bón- usi né Hagkaupi. Hún var ódýmst í Fjarðarkaupum þar sem hún kostaði 21 krónu. I Miklagarði kostaði hún 25 krónur en í Kaupstað var hægt að fá hana bleika á 22 krónur og hvíta á 28 krónur. Trópí var langdýrastur í Kaupstað, kostaði þar 175 krónur. í Bónusi kostaöi 1 1 af Trópí 123 krónur, í Fjarðarkaupum var htrinn á 134 krónur og 137 krónur í Hagkaupi. Cocoa Puffs var ódýrast í Kaup- stað, kostaði þar 234 krónur. í Bón- usi kostaði pakkinn 235 krónur, í Miklagarði 244 krónur, í Hagkaupi 248 krónur og í Fjarðarkaupum 250 krónur. Munurinn á hæsta og lægsta verði var 7 prósent. -GHK Sértilboð og afsláttur: í dag og næstu daga munu Bón- usverslanimar slá upp mikihi kjöt- veislu og vera með lambakjöt á sérstaklega hagstæðu verði. Bæði hryggir og læri verða seld á 499 krónur khólð. Að auki er trippakjöt á mjög góðu verði í Bónusl þessa dagana. Er nú hægt að fá fjóra trippahakkshamborgara meö brauði á 89 krónur (99 krónur með 10 prósent afslætö). Khóið af trippahakki er á 179 krónur <199 krónur með 10 prósent afslætti viö kassann) og fin og gróf smábrauö em á 159 krónur. Kaupstaður er nú með hálfdós af grænmetisblöndu frá K.J. á 69 krónur og khóið af Goðalambi á 798 krónur. Einnig em gul epli á 89 krónur kílóiö og 750 g af frönskum kartöflum em á 115 krónur. Mikligarður viö Sund selur Hy Top vörar á lágu verði, t.d. er 454 g dós af Hy Topferskjum á 99 krón- ur og Hy Top kartöfiustangir (46 g) eru á 42 krónur. Þessa dagana selur Mikligarður líka fjögur vínglös saman í pakka á 199 krónur og 215 krónur eftir stærö. í Mikla- garði eru einnig fáanleg Growers Kiwi i 425 g dós á 127 krónur. Fjaröarkaup era enn með Sweet Life vörur á sértilboði. Nú er t.d. hægt að fá Sweet Life appelslnu- marmelaöi á 98 krónur og em 509 g í krukkunni og 396 g af Sweet Life hrísgijónum em á 73 krónur. Maarud Delight, fituminna snakk, er á 266 krónur og eru 200 g í pokan- um. 21 af Sunkist appelsínugosi eru á 98 krónur. Hagkaupsverslanirnar bjóða upp á ýmsar vörur á lækkuðu verði í þessari viku og byijun næstu. Má til að mynda nefna hálft khó af Javakafii á 159 krónur, heht khó af Hellas-lakkrískonfekti á 299 krónur og Pfanner eplasafa (þijá saman í pakka) á 78 krónur. Nova hárþvottalögur (250 ml) er á 69 krónur og 200 g af ferskum, hol- lenskum jarðarberjum kosta 169 krónur. •GHK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.