Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992.
9
Utiönd
Kona í bænum Vaison-la-Romaine í Frakklandi hreinsar aur frá húsi sínu eftir flóð sem urðu tugum manna að bana
Simamynd Reuter
Tugir fórust í flóðunum í suðurhluta Frakklands:
Eins og kominn
væri heimsendir
Að minnsta kosti þijátíu og tveir
létu lífið og fjörutíu og fjögurra er
saknað eftir að aftakaveður olli flóð-
um í nokkrum héruðum í suðaustur-
hluta Frakklands.
Meðal hinna látnu voru fimm Belg-
ar og Hollendingur en tveir Þjóðveij-
ar og hollenskur borgari eru meðal
þeirra sem saknað er. Fjörutíu
manns til viðbótar slösuðust í flóðun-
um í Ardeche, Vaucluse og Drome
héruðunum.
Þijátíu hús eyðiiögðust í bænum
Vaison-la-Romaine, en hann varð
verst úti allra bæja, þegar aur flæddi
með ofsahraða um götumar á þriðju-
dag og tók með sér fólk, bíla, tré og
brýr.
Þegar íbúarnir sneru aftur heim
eftir óveðrið komu þeir að húsum
sínum þaklausum og húsgögn og
persónulegir munir voru grafin und-
ir aumum.
„Öll húsgögnin okkar eru ónýt. Við
eigum ekkert eftir. Þetta er hræði-
legt,“ sagði grátandi íbúi Vaison í
viðtali viö franska útvarpið.
Óveðrið rauf símasamband og raf-
magn til þijátíu þúsund heimila og
vegir umhverfis Vaison lokuðust. Að
minnsta kosti tuttugu og einn lét lífið
í bænum og næsta nágrenni hans,
þar á meðal sjö ára gömul stúlka.
Meira en 1600 lögregluþjónar,
slökkviliðsmenn og björgunarsveita-
menn fóm hús úr húsi í leit að líkum
og könnuðu nærliggjandi akra sem
allir vom undir vatni. Þyrlur björg-
uðu fólki af húsþökum og úr tijá-
toppum. Herinn sendi froskmenn á
vettvang og stórvirkar jarðvinnuvél-
ar.
í sjónvarpsfréttum sáust myndir
af húsum og bílum í hálfu kafi í Vai-
son og nærliggjandi bæ, Beddarides.
íbúar Beddarides leituðu upp á þak
húsa sinna eftir að áin Ouveze radd-
ist yfir bakka sína og tveggja metra
hár vatnsveggur raddist um götum-
ar.
„Vatnið steig svo hratt að okkur
gafst ekki tími til að bjarga neinu.
Garðar, trukkar, tjaldvagnar og gas-
kútar vora hrifsaðir á brott. Það var
eins og sjálfur heimsendir væri kom-
inn,“ sagði kona ein 1 viðtah við
franska sjónvarpið fyrir utan eyði-
lagt heimili sitt.
Reuter
Spákaupmönnum verður mætt af fullri hörku:
Lokaorrustan um franska
f rankann fer fram í dag
Allt bendir til að ríkisstjómir Evr-
ópubandalagsins heyi úrslitabaráttu
í dag við alþjóðlega gjaldeyrisbrask-
ara um franska frankann, að sögn
hagfræðinga. Þeir sögðu að framtíð
myntbandalags EB gæti verið í húfi.
„Eitthvað verður að gefa sig á
fimmtudag," sagði Philippe Ithur-
bide, hagfræðingur við franska
einkabankann Société Générale.
„Óvissan er mikil og þetta getur
brugðið til beggja vona,“ sagði
Philippe Brossard, hagfræðingur við
franska ríkisbankann Crédit Ly-
onnais.
Þýski seðlabankinn skarst í leikinn
í gær til að reyna að veija franska
frankann gegn tilraunum spákaup-
manna til að þvinga fram gengis-
lækkun hans gagnvart þýska mark-
inu.
Ef hægt verður að hreKja spákaup-
mennina á brott verður auðveldara
fyrir lönd Evrópubandalagsins, með
Þýskaland og Frakkland í broddi
Franskur verðbréfasali að störfum f
gær eftir að Frakkar og Þjóöverjar
tilkynntu að þeir ætluöu aö reyna
að bjarga evrópska myntsamstarf-
inu. Simamynd Reuter
fylkingar, að bjarga áætlunum um
myntbandalag EB-ríkjanna, sögðu
hagfræðingar. Slíkar áætlanir gætu
farið algjörlega út um þúfur ef hlut-
fallið milli þýska marksins og
franska frankans í gengiskerfi evr-
ópska myntsamstarfsins .raskast
vegna þrýstings frá markaðsöflun-
um.
Hagfræðingar sögðu hugsanlegt aö
franski seðlabankinn mundi hækka
grunnvexti úr 9,60 prósentum í dag.
Þar með mundu Frakkar enn frekar
sýna fram á staðfestu sína í að veija
frankann falli. Það gæti þó kostað
Michel Sapin, fjármálaráðherra
Frakklands, nokkur vandræði þar
sem hann hafði nánast lofað vaxta-
lækkun ef franskir kjósendur sam-
þykktu Maastricht-samninginn um
pólitíska og efnahagslega samein-
ingu EB. Samningurinn var sam-
þykktur með 51 prósenti atkvæða á
sunnudag.
Reuter
smmmijT rum n
&TDIC
/cAtgerruM
0 •
STORUTSÖLU-
MARKAÐURINt
MÚSÍK,
MYNDIR
& MEÐLÆTI ernu
i fullum gangi og stendur
út septembermánub í verslun
okkar í Borgarkringlunni. Nú er
hœgt ab fá músík, myndbönd og allskyns
meblœti á alveg hreint sprenghlœgilegu verbi
rM80£>
MYNDBAND + KIPPA
AF HÁLFSLÍTRA KÓK
+ MAARUDSNAKK =
r/rsoÐ
ÖLL NÝUSTU
MYNDBÖNDIN Á AÐEINS
FREISTANDI TILBOÐ
Á TOBLERONE
OG RIDERSSÚKKULAÐI
Vib höfum tæmt allar verslanir okkar af plötum,
HREINT ÓTRÚLECT ÚRVAL samankomib á einn stab!
Hljómplötur á kílóverbl (5 plötur = kíló)
1000 kr. kílóib.
M'ÚUK & M'Y'NMR
hljómplötuverslun, myndbandaleíga og söluturn
s t e , n A r BORGARKRINGLUNNI sími 67 90 15