Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992. Spumingin Hvað er það skemmtileg- asta sem þú gerir? Jón Guðmundsson nemi: Hreyta í fólk. Rebekka Frímannsdóttir nemi: Skemmta mér. Clement August nemi: Ganga um í gróðursælu landslagi. Guðmundur Sæmundsson: Það fer eftir því í hvemig skapi ég er. Inga Birna Hákonardóttir nemi: Spila fótbolta. Lesendur Hvar verður skoríð í menntakerf inu? Ymsir hafa áhyggjur af enn frekari niðurskurði i menntakerfinu. Ingibjörg Jónsdóttir skrifar: Ríkisstjómin sveiflar nú niður- skurðarhnífnum meira en nokkru sinni fyrr. Ráðherramir hóta ýmiss konar aðgerðum sem em misilla þokkaðar af þjóðinni. Þeim góðu mönnum hlýtur að vera vandi á höndum þegar fjárlagadæmið er svo erfitt að það getur ómögulega gengið upp. Einhvers staðar verða þeir að skera, þaö er deginum ljósara. En það veldur áhyggjum að niður- skurðurinn virðist helst þurfa að bitna á sviðum sem em viðkvæmust fyrir. Þá á ég við heilbrigðismálin og menntamáhn. Stöðugur samdráttur á sjúkrahúsunum í landinu vekur ugg með þjóðinni. Dregið hefur verið úr þjónustu eftir fóngum og enn frek- ari aðgerðir í þeim efnum virðast fyrirhugaðar. Ef fram heldur sem nú horfir getur almenningur alls ekki reitt sig á aðstoð þegar hennar er þörf. Lengra niður á við verður varla komist í velferðarríki þar sem þegn- amir státa sig af sívaxandi velmeg- un. Niðurskurðir í menntakerfmu er enn alvarlegri hlutur. Takmarkið virðist vera að fækka kennslustund- um, leggja niður skóla og ýmsar stofnanir tengdar menntakerfinu. Á ýmsan annan hátt er vegið að þeim homsteini þjóðfélagsins sem mennt- unin er. Niðurskurður af þessu tagi virkar þannig að hann skilar fljófiega aur- um í galtóman ríkiskassann. Það er því hægt að mæla þann árangur sem hann skilar í spamaði strax. En hann hefur fleiri afleiðingar sem ekki koma strax í ljós. Með því að draga saman í menntakerfinu er verið að draga úr möguleikum til að koma einstaklingum til mennta og þroska. Aðgerðir af þessu tagi em þvi til þess eins fallnar að setja þjóð- félagið niður í þessum efnum. Þetta kemur smátt og smátt í ljós eöa þeg- ar þau böm og unglingar, sem fyrir þessu verða núna, komast í fullorð- inna manna tölu. Þá fer þessara áhrifa að gæta. Enn frekari niðurskurður mun fyr- irhugaður í menntakerfinu. Óvíst er hvar verður höggvið næst en hvert lag þokar þjóðinni aftur á bak í þeirri þróun sem barist hefur verið fyrir á undanfömum áratugum. Lítum okkur nær Finnbogi Jónsson skrifar: Sjónvarpsstöðvamar em iðnar viö að sýna okkur hörmungar frá stríðs- hijáðum landsvæöum. Sveltandi böm í flóttamannabúðum em tíðir gestir í stofum landsmanna. Þetta em staðreyndir sem ekki þýðir að loka augunum fyrir. Vonska mannkyns virðist alltaf vera aö fær- ast í aukana. Það er ótrúlegt aö ein- hverjir skuli fara með svo mikið vald að þeir skuli geta lagt slíkar píshr á saklaust fólk. Hitt er svo annað að við þurfum ekki að fara út fyrir landsteinana til þess að finna svangt óg heimihslaust fólk. Það er til hér á landi, þótt ekki sé neyð þess eins hrikalega stór og hinna sem beijast fyrir lífi sínu und- ir geltandi vélbyssum og dynjandi skriðdrekum. Við söfnum fjármunum til hjálpar þessu fólki. þeir em sendif úr landi og okkur sagt að þessi hjálp komist alla leið. En er það rétt? Em þessir fjármunir ekki gripnir ránshendi einhvers staðar á leiðinni og jafnvel notaðir tíl enn frekari vopnavæðing- ar sem leiðir aftur til enn frekari stríðshörmunga? Engin fuUvissa hef- ur fengist fyrir því að matvæU og sjúkragögn séu keypt fyrir hjálpar- féð. Ég tel að gefa ætti okkur kost á að hjálpa löndum okkar með því að leggja fé í hjálparsjóði sem notaðir væm hér heima. Þá er hægt að vera ömggur um aö fénu sé varið eins og til er ætlast af gefendum. Með þessu móti er hægt að koma bágstöddum samborgurum til hjálpar og bæta hag þeirra. Hver króna, sem látin er af hendi rakna á þennan hátt, þýðir bætt samfélag. Mótmælum virðisaukaskattinum 190838-4129 hringdi: Við erum hér einar 15 konur sem viljum mótmæla þeim hugmyndum sem ríkisstjómin hefur sett fram um virðisaukann. Við emm allar sam- mála um að þetta geti ekki gengið. Stjórnin verður að vernda atvinnu- lífið og þá heimilin. Það er engin glóra í því að ætla að hækka hita- veitukostnaðinn eins og nú er fyrir- hugað. Enn verra er að ætla að leggj- ast á atvinnulífið eins og stjómin hyggst nú gera. Þá er það margumræddur EES- samningur. Hann á tvímælalaust að bera undir þjóðaratkvæði. Við hvað em blessaðir ráðherramir annars hræddir? Halda þeir að íslenska þjóð- in sé svo heimsk að hún viti ekki hvað sér sé fyrir bestu. Utanríkisráð- herra hefur ekkert vald til að taka svo mikilvæga ákvörðun fyrir þjóð- ;ina þótt hann hafi verið kosinn á Hringið í síma 632700 milli kl. 14 og 16 -eóa skrifið Mí T%t: Nafn og símanr. veröur að fylgja bréfum þing. Það þýðir ekkert fýrir hann að vera með einhvem digurbarkahátt frammi fyrir alþjóð, þepja bijóst og sperra stél og segja að svona skuU þetta vera en öðmvisi ekki. Hann er ekki einvaldur - og verður aldrei. Jón Sigurðsson iðnaöarráöherra klúðraði álmáUnu með glæsibrag. Og nú er Davíð kominn á kreik til þess að selja okkur í annað sinn. Fyrra skiptið var þegar við vorum seld undir bandaríska herinn. Þannig vinna þeir nú, ráðherramir sem vahst hafa til að fara með mál þjóðarinnar. Ég vil þó segja að lokum að EES- kosturinn er betri en sá aö ganga í EB. Göngum við í EB þá er búið að múlbinda okkur í bákn sem við ráð- um ekkert við. Það væri að fara úr öskunni í eldinn. Ég vil skora á fólk að segja áht sitt á þessum hlutum. EUa vita ráðamenn ekkert hvað þjóð- inni finnst. Heiða hringdi: Mig iangar til að hæla þrem þáttum sem em á rás 1. Fyrst vil ég nefna þátt sem heitir Pálína meö prikið. Þetta er sérstaklega góður þáttur sem hefði átt að komast miklu fyrr á dagskrá. Sljómanöinn, Aima PáUna, er frábær og vil ég þakka henni sér- staklega. Þá ílnnst mér hádegisleikritið mjög skemmtileg og góð afþrey- ing. Það er góð tilbreyting að fá sh'kan dagskrárUð inn í útvarpið á þessum tíma. Loks vil ég geta um ÞjóöarþeUð. Þetta er mjög frambærilegur þáttur. Sigrún Ólafsdóttir hringdi: Eg vil biðja forráðamenn Kringlunnar um að sjá til þess að hún verði opin á sunnudögum ems og gert var um síöustu helgi. Ég skrapp þangaö, eiginlega meira til þess að sýna mig og sjá aðra heldur en til þess aö versla. Samt var þaö nú svo aö ég keypti mér buxur og tvær peysur. Það er þvi ómögulegt, eins og sumir kaupmenn vilja vera láta, að þetta verði bara ódýr samkomu- staður fyrir þá sem nenna ekki að vera heima hjá sér um helgar. Ég er handviss um að ýmsir munu koma þama til þess að gera sín ínnkaup. Aðrir hyggjast kaupa minna en standast þó ekki freistinguna þegar á hólminn er komið. Mér finnst það beinUnis dónaskapur kaupmanna þegar þeir lýsa þvi nánast yfir að þeir nenni ekki að veita þjónustu um helgar með því að hafa opið. Fengumgóða fagmenntun Fyrrverandi nemendur skrifa: Vegna ummæla og blaðaskrifa að undaníömu viljum við fyrrum nemendur Nuddskóia Rafris sem útskrifuðumst vorið 9Þ1 að eftir- farandi komi fram: Við fengum góða fagmenntun í þessu námi og vorum ánægð með þá kennara sem kenndu okkur. Þar á meðal vorum við með íjóra festa íslenska nuddkennara ásamt þrem gestakennuram frá Þýskalandi og Bandaríkjunum. Einnig fengum við fagmenntaða lækna sem héldu fyrirlestra. Að lokum viijum viö taka það fram aö Félag isienskra nuddara viðurkenndi okkur sem sveina inn í féiagið. Magnús Jónasson hringdi: Ég er ellilífeyrisþegi og man því timana tvenna. Það hefði þótt tíð- indum sæta hér áður fyrr ef fólk heföi þurft sjö daga vikunnar til þess að gera innkaup fyrir heim- iUn. ÞvíUk óráösía og skipulags- leysi þekktist bara ekki þá. Nú rífast menn með kjafti og klóm um hvort stærsta verslana- miöstöö á landinu eigi að vera opin á sunnudögum eða ekki. Ég segi baræ öllum er nauðsyn- legt að hvíla sig. Afgreiðslufólki í verslunum Uka. Hættið því þessu þrasi og hafið Kringluna lokaöa á sunnudögum - og laug- ardögum Uka. Frábær sýning Guðbjörn S. hringdi: Ég vil hvetja aUa til þess að sjá sýningu Borgarleikhússins á Dunganon. Við fijónin fórum á frumsýninguna og skemmtum okkur hreint konunglega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.