Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1992, Síða 13
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992.
Menning
13
DV
^ Bíóborgin og Bíóhöllin - Alien3: ★★ y2
Ógnvekjandi geimvera
Þrettán ár eru síöan kvikmynd Ridleys Scott, Alien, "
var frumsýnd. Kom hún í kjölfarið á Star Wars æðinu
sem hleypti nýju blóði í gerð ævintýramynda sem ge-
rast úti í geimnum. En það var enginn ævintýraljómi
yfir Ahen og vist er að hún slökkti ævintýraþrá hjá
mörgum unglingum sem sáu geimferðir í hillingum
sem ævintýraferðir á vit hins óþekkta. Ahen var nefni-
lega mögnuð geimhrollvekja sem hratt af stað öldu
slíkra mynda. Sex árum seinna leikstýrði James Ca-
meron, Ahens, og þótt ótrúlegt megi virðast var sú
mynd betri, meiri veisla fyrir augað og krafturinn í
mynd Camerons var ógnvekjandi.
Þriðji kaflinn í þessari geimhrollvekju Alien3 er að
mörgu leyti jafn spennandi og fyrri myndirnar en er
ahs ekki eins góð kvikmynd og kemur þar fyrst og
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
fremst th reynsluleysi leikstjórans, Davids Fincher,
og ruglingslegt handrit. Fincher nær sem sagt ekki
að feta í fótspor snillinganna Ridley Scott og James
Cameron. Hann kann þó ýmislegt fyrir sér og hlutirn-
ir ganga hratt hjá honum enda uppahnn í poppmynd-
böndum. Fincher kvikmyndar mikið í nærmyndum,
andhtin fyha út í breiðtjaldið á mismunandi áhrifa-
mikinn hátt og þótt deha megi um aðferð hans þegar
mennskir eiga í hlut þá hefði hann átt að nota þessa
aðferð eingöngu þegar hin ógnvekjandi og sídrepandi
geimvera á í hlut og sýna aðeins svakalegan kjaftinn
eða hausinn því geimveran, þegar hún sést öll, er langt
í frá að vera jafn ógnvekjandi og í fyrri myndum.
Eina manneskjan sem lifði af geimferðina í Ahen
var Ripley hðsforingi sem Sigourney Weaver lék. Hún
endurtók hlutverkið í Aliens og hér er hún komin aft-
ur, þaulreynd í viðskiptum við ófreskjuna og Weaver
stendur fyrir sínu. Þegar myndin hefst hefur geim-
ferja hennar brotlent á afskekktri fanganýlendu á ysta
hjara heimsins. Þegar Ripley kemst tU meðvitundar
og fréttir örlög áhafnar sinnar grunar hana að óboðinn
Sigourney Weaver leikur Ripley liðsforingja í þriðja
sinn.
gestur hafi verið í geimfarinu og sé nú laus. Áhorfend-
ur fá fljótt að vita að grunur hennar er á rökum reist-
ur. Og þegar Ripley getur loks sannfært aðra um hvað
er á seyði eru fá góð ráð tU, en tekið hafði veriö til
bragðs að hafa fanganýlenduna vopnlausa. Ófreskjan
er sem fyrr nær ódrepandi og þegar yfir lýkur eru
ekki margir til frásagnar um hvað skeð hefur.
Alien3 er þrátt fyrir mjög góð tækniatriði drunga-
legri og þyngri en fyrri myndirnar og verður fyrir
bragðið langdregin. Fanganýlendan er óspennandi
veröld og sú trúarvakning meðal fanganna, sem hefur
gert það að verkum að þeir vUja vera þarna áfram er
ósannfærandi og greinUega eitthvert neyðarúrræði til
að fá söguna tU að ganga upp, en lausir endar í hand-
riti gleymast þegar fer að líða á myndina og spennan
er í algleymingi.
Ahen3 er ahs ekki slæm kvikmynd, sagan hefði að
vísu mátt vera sterkari, en kvikmyndataka og klipping
er góð, en það er ekki hægt að komast hjá því að miða
hana við fyrri myndirnar tvær og þá verður glansinn
minni.
ALIEN’
Leikstjóri: David Fincher.
Handrit: David Giler, Walter Hill og Larry Ferguson.
Aðalhlutverk: Sigourney Weaver, Charles S. Dutton, Charles
Dance og Paul McCann.
The Who's Who of Who-Dunnits.
JOHN CANDY
JAMES BELUSHI
CYBILLSHEPHERD
s » SEAN TOUNG
: RICHARD LEWIS
‘*J ORNEIJLA MUTI
GIANCARLO giannini
GEORGE HAMILION
Once Upon A Crime hefur á að
skipa landsliði bandarískra
gamanleikara. Endalaust grín
og vitleysa þar sem allir
flækjast inn í morðmál. Við
sögu koma uppgjafarleikari,
fjárhættuspilari, hjón og
kvennaflagari. En
lögregluforinginn sem
rannsakar morðið er ekki lengi
að komast til botns í því, eða
hvað...
John Candy, James Belushi,
Cybill Shepherd og Sean
Young fara á kostum í þessari
frábæru gamanmynd!
NoBmin.NoPain.
KWOUJMAN
piannkh
0,2 L
APP
0,2 L
SAMAN
ÁÐ13R
111,-
HAGKAUP
- altt í einniferd