Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1992, Side 7
I..31
Baráttan í körfuknattleiknum verður mikil i vetur og á sunnudag hefst keppnin í úrvalsdeildinni.
Stórleikir strax í
fyrstu umferðinni
- íslandsmótið í körfuknattleikhefst á sunnudag
Baráttan í úrvalsdeildinni um ís-
landsmeistaratitilinn í körfuknatt-
leik hefst um helgina meö fjórum
leikjum í úrvalsdeild. Margir bíða
spenntir eftir keppnistímabili körfu-
knattleiksmanna og strax í fyrstu
umferð verða stórleikir á dagskrá.
Leikur Keflvíkinga og Njarðvík-
inga í Keflavík verður að teljast leik-
ur helgarinnar. Þessir erkifjendur
hafa marga hildi háð og búast má við
hörkuleik sem hefst klukkan átta á
sunnudagskvöld.
Annar stórleikur fer fram í Vals-
heimilinu á sama tíma. Þá leika
Reykjavíkurrisarnir Valur og KR en
þessi hð börðust hart um Reykjavík-
urmeistaratitilinn á dögunum og þá
höfðu KR-ingar betur þótt sigur
þeirra væri ekki nægilega stór.
Á Sauðárkróki leika Tindastóll og
Haukar, nýbakaðir Reykjanesmeist-
arar, klukkan átta á sunnudags-
kvöld. Fjórði leikininn verður viður-
eign Grindvíkur og Skallagríms úr
Borgarnesi í Grindavík en sá leikur
hefst klukkan fjögur á sunnudag.
Ferðafélag íslands:
Haustlitaferð
í Þórsmörk
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992.
Kvikmyndir
Wallenberg ★★★
Raunsæ lýsing á síðustu dögum Wallen-
bergs í Búdapest. Sjaldan hafa jafn áhrifa-
mikil atriði um úrýmingarherferð nasista
á gyðingum sést á hvlta tjaldinu. Stellan
Skarsgárd er frábær. - H K
Ár byssunnar ★★ 'A
Vitræn saga er full róleg í byrjun en vind-
ur upp á sig hægt og sígandi meðan
spennan eykst. Að ráða McCarthy voru
mistök en Stone og Golino eru góðar.
-GE
Svo á jörðu sem á himni
★★★
Kvikmyndataka, sviðsetning og tónlist er
með þvi besta sem gerist í íslenskum kvik-
myndum. Alfrún H. Örnólfsdóttirersenu-
þjófurinn. -ÍS
Veröld Waynes ★★ 'A
Losaraleg saga en Wayne og Garth eru
óneitanlega mjög fyndnar týpur. Húmor-
inn einum of „local" fyrir okkur.
-GE
Steiktir grænir
tómatar ★★★'A
Stórgóð mynd sem fjallar um mannlegar
tilfinningar, vináttu og áhrifamátt frá-
sagna. Toppleikur í öllum hlutverkum. -ÍS
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Kristófer Kólumbus ★★
Of ódýr og ójöfn til að ná fullum áhrifum.
Svolitið gamaldags. Ævintýrabragurinn
heldur henni á floti. Stórstjörnurnar eru
einstaklega illa nýttar og skemma fyrir.
-GE
Ferðin til Vesturheims ★★‘/2
Rómantisk stórmynd um tvö ungmenni
sem leggja land undir fót til að nema land
i Vesturheimi. Vel leikin mynd, kvikmynd-
un og tónlist frábær, en sagan þunn og
margtuggin. -HK
Beethoven ★★
Ekki merkileg saga en alveg pottþétt fyrir
krakka. Fullorðnum mun heldur ekki leið-
ast. -GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Hvítir sandar ★★
Miðlungsspennumynd sem tekur sig full-
aivarlega. Otlitið er flott og leikhópurinn
i hæsta gæðaflokki en leikstjórinn getur
ekki bætt fyrir flókið og fálmkennt hand-
rit. -GE
Kálum þeim gömlu ★★'/\
Gálgahúmor frá þeim sem gerðu Helgina
með Bernie. Úvægin i garð öldrunar en
með hjartað á réttum stað og húmorinn
er i lagi. Selleck hefur aldrei verið betri.
-GE
Varnarlaus
Gamlar spennumyndaklisjur og nýjar sál-
fræðiklisjur hrærðar saman með hóp
góðra leikara og tæknimanna fastan í
súpunni. -GE
Ógnareðli ★★★★
Siðlaus ..., spennandi..., æsandi....
óbeisluð..., óklippt..., ógeðsleg ...,
óafsökuð ..., glæsileg ..., tælandi...,
spennandi..., frábært... (Nei, ég fæ
ekki prósentur).
-GE
Lostæti ★★ 'A
Skemmtileg framtiðarsýn frá tveimur
teiknimyndahöfundum. Myndin er meiri
stílæfing en nokkuð annað.
-GE
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Ferðin til Vesturheims irk'A
Rómantisk stórmynd um tvö ungmenni
sem leggja land undir fót til að nema land
í Vesturheimi. Vel leikin mynd, kvikmynd-
un og tónlist frábær en sagan þunn og
margtuggin. -HK
Beethoven ★★
Ekki merkileg saga en alveg pottþétt fyrir
krakka. Fullorðnum mun heldur ekki leið-
ast.
-GE
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Ruby ★★
Vel gerð samsæriskenning með áherslu á
mannlega þáttinn. Er of hæg og átakalitil
til að hrífa nema rétt undir lokin. Sherilyn
Fennerfirnagóð. -GE
Queens Logic
Tilraun til að gera nútímalega mynd .um
samskipti venjulegs vinahóps á krossgöt-
um. Fer forgörðum því að persónurnar
eru gervilegar. Góður leikhópur. -G E
Ofursveitin ★★
Dolph og Van Damme eru báðir daufir
en það kemur ekki i veg fyrir hasar og
læti. Sagan er glórulaus en góður leik-
stjóri og slatti af peningum halda uppi
fjöri. -GE
Börn náttúrunnar *★★
Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum
með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd t>ar sem mikilfeng-
legt landslag og góður leikur þlandast
mannlegum söguþræði. _HK
Sunnudaginn 4. október veröa fjór-
ar dagsferðir. Klukkan 8 er síðasta
hausthtaferðin í Þórsmörk. Stansað
verður 3-4 klukkustundir í Mörk-
inni.
Klukkan 10.30 verður gengið á
Kálfstinda en það er skemmtilegur
móbergshryggur austan við Þing-
velli. í þeirri ferð verður KálfsgU
skoðað. Klukkan 13 verður farin
hausthtaferð tíl Þingvaha. Meðal
annars verður farið í Gjábakka-
hraun og htið inn í heha þar en í
lokin verður haldið á Laugarvatns-
velli og skoðaðir Laugarvatnshellar
þar sem búið var í byrjun þessarar
aldar.
Helgarferðir 2.-4. október verða
tvær og er brottför í þær báðar
klukkan 20. Farin veröur Þórsmerk-
urferð (hausthtir, uppskeruhátíö og
grhlveisla) og ferð að Álftavatni við
Fjahabaksleið syðri. í þeirri ferð
verður ekið upp að Hrafntinnuskeri.
Ferðafélag íslands er með haustlitaferð til Þingvalla um helgina.
23
Handknattleikur:
Spennandi
Evrópuleikir
FH-ingar ieika siðari leik
sinn í Evrópukeppni meist-
araliða í handknattleik gegn
færeyska liðinu Kyndlí I
Kaplakrika í kvöld, FH-íngar
unnu fyrri leikinn í Færeyjum,
20-27.
Valsmenn leika síðari leik
sinn gegn norska liðinu Stav-
anger í Laugardalshöllinni á
sunnudag. Valsmenn komu
sterkir út úr fyrri leiknum,
sigruðu 22-24 I Noregi, og
eru til alls líklegir í síðari leikn-
um.
Loks eru það Víkingar. Þeir
leika tvívegis um helgina
gegn norska liðinu Runar í
IHF-keppninni. Fyrri leikur-
inn fer fram á föstudagskvöid
og sá síðari á sunnudag. Báð-
ir ieikirnir fara fram i Noregi.
Blakið byrjar
isiandsmótið í blaki hefst
um helgina. í 1. deild karla
leika HK og Þróttur Nes. kl.
20 á föstudag og á sama tíma
KA og Þróttur R. Á laugardag
leika Stjarnan og Þróttur Nes.
kl. 16.
Kvennakarfa
Reykjavíkurmótinu í körfu-
knattleik kvenna lýkur á
sunnudaginn en mótið hefur
verið mjög jafnt og spenn-
andi,
Á laugardag leika KR og ÍR
í íþróttahúsi Hagaskóla og
hefst leikurinn klukkan tvö. Á
sunnudag lýkur mótinu með
leik ÍR og ÍS í Seljaskóia en
fyrri leik liðanna í mótinu lauk
með eíns stigs sigri ÍR-
stúlkna eftir framlengdan leik.
80áraafmæli
verkfræðinga-
félagsins
í tilefni af 80 ára afmæli
Verkfræðíngafélags íslands á
þessu ári býður Hitaveita
Reykjavíkur verkfræðinga
velkomna I Perluna föstudag-
inn 2. október að þiggja þar
veitingar milli klukkan 17 og
19.
Við það tækifæri hefst
myndasýníng í Vetrargarðin-
um sem vekur gamlar minn-
ingar um þróun hitaveitu í
Reykjavík frá upphafi og til
samanburðar við stöðu Hita-
veitu Reykjavlkur I dag. Sýn-
ingin mun standa til 7. októb-
er.
Jafnframt býður Hitaveita
Reykjavíkur verkfræðingum
og fjölskyldum þeirra að
heimsækja Nesjavallavirkjun
laugardagínn 3. október frá
kiukkan 10 tii 16, en þó sér-
staklega á tfmabilinu klukkan
14-16. Að lokinni sýningu á
virkjuninni verður boðið kaffi
og með þvi i mötuneytisskáia
starfsmanna á svæðinu.