Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Side 1
Lína langsokkur (Bryndís Petra Bragadóttir) er ekki neinn venjulegur nemandi. Frumsýning hjá Leikfélagi Akureyrar: Iina langsokkur Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Bamaleikritið sívinsæla, Lína langsokkur, verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar í dag. Leikrit- ið er söngleiksgerð eftir bókunum um hana Línu sem er ailtaf í góðu skapi, sterkust, best, skemmtilegust og ríkust af öllum krökkunum. Lína býr ein á Sjónarhóh með hestinum sínum og apanum en í næsta húsi búa vinimir Tommi og Anna sem em vel upp alin. En Lína elur sig upp sjálf því mamma hennar er engill á himnum og pabbi hennar sjóræningi á skútu í Suðurhöfum. í leikritinu lendir Lína í mörgum ævintýmm. Hún leikur á bama- vemdamefnd, löggur og bófa. Hún sigrar aflraunamann og leggur pabba sinn í krók. Þá fer hún í kökuboð og hneykslar fínu frúmar og hún gerir allt vitlaust þegar hún fer í skólann. Það verða fagnaöar- fundir þegar Langsokkur skip- stjóri, pabbi hennar, birtist ásamt hásetum sínum á sjóræningjaskút- unni. En Anna, Tommi og aðrir bæjarbúar vilja alls ekki missa Línu af Sjónarhóli og allt fer vel að lokum eins og vera ber í góðu ævintýri. Bryndís Petra Bragadóttir leikur Línu langsokk. Hún útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins fyrir 6 ámm og hefur síðan tekið þátt í fjölda leiksýninga hjá Þjóð- leikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og ýmsum leikhópum. Önnu og Tomma leika Guðrún Jóhanna Ól- afsdóttir og Ingvar Már Gíslason sem bæði era sviðsvanir unglingar. Aðrir leikarar í helstu hlutverkum era Aðalsteinn Bergdal, Sigurþór Albert Heimisson, Eggert Kaaber, Jón Bjami Guðmundsson, Gestur Einar Jónasson, Sunna Borg, Þór- ey Aðalsteinsdóttir, Sigurveig Jónsdóttir og Kristjana N. Jóns- dóttir. Þráinn Karlsson er leikstjóri en þýðandi Þórarinn Eldjárn. Leik- mynd gerir Hallmundur Kristins- son, búningana og dýrin gerir Anna G. Torfadóttir, tónlistarstjóri er Michael Jón Clarke, dansahöf- undur Lína Þorkelsdóttir, lýsingu annast Ingvar Björnsson og sýn- ingarstjóri er Hreinn Skagfjörð. Frumsýning er á laugardaginn kl. 14 og næsta sýning á sunnudag á sama tíma. Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins: Strætið Kúadellu- lotterí Það verður spennandi að sjá hvaða fyrirtæki verður svo heppið að <á dell- una úr kúnni á sinn reit. Leikritið Strætið eftir breska leik- skáldið Jim Cartwright var frumsýnt í gær á smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins en önnur sýning á verkinu verður á laugardag klukkan 20. Sögusvið leikritsins er stræti fá- tækrahverfis og gerist þráðurinn all- ur á einni nóttu. Drykkjusvolinn og gleðimaðurinn Scullery leiðir áhorf- endur um strætið og kynnir þá fyrir íbúum þess. Verkið lýsir á hreinskil- inn hátt hinum harða heimi fátækra borgarbúa og málfarið er götumál dagsins í dag. Strætið er í þýðingu Áma Ibsens og í leikstjórn Hafliða Amgrímsson- ar. Leikendur eru Ingvar E. Sigurðs- son, Kristbjörg Kjeld, Róbert Am- finnsson, Edda Heiðrún Backman, Baltasar Kormákur, Þór H. Tuhnius og Halldóra Björnsdóttir. JC-deildin í Reykjavík stendur fyr- ir byggðarlagsverkefni á hverju ári með styrktarstarfsemi að leiðarljósi. í ár hefur verið tekin ákvörðun um að styðja íþróttasamband fatlaðra og verður, af því tilefni, haldið lottó með óvenjulegu sniði. í dag, föstudaginn 9. október, verður haldið kúadellu- lotterí sem fram fer í húsdýragarðin- um í Laugardal og byrjar það klukk- an 14. Afmarkað verður svæði í húsdýra- garðinum sem síðan verður skipt upp í 40 reiti. Einni kú verður síðan hieypt inn á afmarkaða svæðið. Það fyrirtæki (eöa þau fyrirtæki) sem á þann reit þar sem dellan frá kúnni feliur, verður kúadellufyrirtæki árs- ins 1992. Hver reitur verður seldur fyrirtækjum og geta fyrirtæki keypt heilan reit eða hluta í reit. Nú þegar hafa verið seldir nokkrir hlutar í reitum en um söiu á þeim sem eftir eru, er bent á símanúmer Gulu línunnar. Útvarpsstöðin Bylgj- an mun lýsa því þegar kúnni verður sleppt út á grasfiötina. Þór H. Tulinius og Halldóra Björnsdóttir í hlutverkum sínum í Strætinu. DV-mynd GVA sjábls. sjá bls. sjábls. sjábls. 24

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.