Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1992, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992. Fréttir Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarðvik: Aðalverktakar taki uppsagnirnar aftur - sameiginlegur fundur bæjarráða Njarðvikur og Keflavíkur „Þetta eru mestu íjöldauppsagnir hér til þessa og hefur þó ýmislegt duniö yfir. Þessar uppsagnir koma okkur mikiö á óvart. Fyrir það fyrsta undrar okkur að ríkisvaldið, sem er meirihlutaeigandi í þessu fyrirtæki, skuli láta þessar uppsagnir koma án þess að þaö hafi nokkum tíma verið tilkynnt sveitarfélögunum sem næst standa að þetta hafi staðið til. Það hefði mátt gefa okkur tækifæri á að ræða málið,“ sagði Kristján Pálsson, bæjarstjóri 1 Njarðvík, um uppsagn- imar hjá íslenskum aðalverktökum. „Það kemur okkur einnig á óvart að þetta fyrirtæki, sem er eitt stönd- ugusta fyrirtæki á landinu, fyrr og síðar, þurfi aö grípa til svo harka- legra aðgerða, eftir öll þessi ár og þann mikla uppgang sem fyrirtækiö hefur fengið hér á svæðinu, einmitt nú þegar atvinnuástandið hér er svo slæmt. Þeir hefðu ekki átt að láta þetta högg dynja á og mér finnst að þeir eigi að draga þessar uppsagnir til baka nú þegar. Ég geri ráð fyrir að sameiginlegur fundur bæjarráð- anna í Njarðvík og Keflavík fari fram á það,“ sagði Kristján Pálsson. Kristján vitnaði til sameiginlegs fundar bæjarráðanna í Keflavík og Njarðvik en fundurinn verður í dag. „Uppsagnimar verða meðal þess sem við munum ræða á þessum fundi enda stórt mál þegar yfir eitt hundr- að uppsagnir koma á einu bretti. Þetta áfall er ekki minna en verið var að tala um að hafi komið yfir breska kolanámumenn fyrir nokkr- um dögum. Hlutfallslega er þetta miklu alvarlega fyrir Suðumesin en var í Bretlandi." - Nú er stutt síðan Skipasmiðastöð Njarðvíkur sagði upp 50 manns og því eru íjöldauppsagnir að verða tíð- ar hér. Er ástandið orðið þannig að þið heimamenn ráðið ekki viö það? hér. Málið er til umræðu í nefnd. Við fangelsið mun starfa sjötíu til áttatíu manns. Ákvörðun um bygginguna verður tekin á allra næstu vikum. Nú er talað um að fangelsið verði byggt á Suðurlandi, en ekki hér. Ég hef ekki orðið var við að þingmenn okkar séu að vinna í þessu máli. Bæjarstjórnir Njarðvíkur og Kefla- víkur munu fara sameiginlega í að fá fram einhver viðbrögð í þessu máli. Þingmennimir eiga að vita allt um þetta.“ - Treystir þú á að álver verði byggt á KeiÚsnesi á næstunni? „Þaö er eitt af því sem við viljum, í bæjarráðunum tveimur, spyija iðn- aðarráöherra um, það er iivaða skoð- un hann hefur á því hvar þetta álver á að rísa. Okkur þykir þessi hring- dans um landið, þegar einhver talar um að seija niður álver, alveg óþol- andi. Það er búið að komast að þeirri niðurstöðu að Keilisnes sé besti kost- urinn. Það hlýtur að vera lágmarks- krafa að iðnaðarráðherra gefi út þá yfirlýsingu að hann sé því sammála. Þá þarf ekki að vera í þessum eltinga- leik eins og var hér fyrir tveimur árum. Það þarf að taka af skarið en vera ekki að bjóða mönnum upp í þennan dans. Iðnaðarráðherra verð- ur að svara þessu.“ Kristján Pálsson sagði áhuga á að sveitarfélögin tvö, það er Keflavík og Njarðvík, sameinist um kaup á togara: „Það veitti ekki af því að kaupa hingað nokkra togara. Þetta em sterk sveitarfélög sem geta þetta og ekki veitir af. Þetta em tvö af sterkari sveitarfélögum á landinu og þau geta þetta. Hér vantar atvinnu- tækifæri og hér vantar fisk. Ákvörð- un um þetta getur legið fyrir fljót- lega,“ sagði Kristján Pálsson. -sme Brynjölfur Brynjóifsson, hann segir þessar fréttir hrikalegar. DV-mynd BG Brynjólíur Brynjólfsson: „Þetta er alveg hörmulegt, fyrir þá sem missa vinnuna er þetta alveg hrikalegt," sagði Brynjólfur Brynjólfsson, einn starfsmanna íslenskra aðalverktaka, að lokn- um fundi stjómenda fyrirtækis- ins og trúnaðarmanna í gær. Á fundinum var tilkynnt um íjölda- uppsagnimar fijá fyrirtækinu. Brynjólfur hefur starfað hjá ís- lenskum aöalverktökum frá stofnun fyrirtækisins. -sme Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarð- vik. Hann segir uppsagnirnar hjá Aðalverktökum vera mestu fjölda- uppsagnir sem dunið hafa yfir. Hann undrar að sveitarstjórnirnar hafi ekki fengið að vita um uppsagnirnar og vill reyndar að þær verði dregnar strax til baka. DV-mynd GVA „Þeir hafa leitað verkefna. Við höf- um reynt að beita okkur fyrir breyt- ingum á reglum um Fiskveiðasjóð, þannig aö ekki verði lánaö til við- gerða og breytinga sem em fram- kvæmdar út um allan heim. Sama er reyndar að segja um nýsmíði. Við þurfum aðstoð, það er augljóst. Við höfum kallað eftir henni, bæði frá ríkisstjóminni og eins frá þingmönn- um Reykjaness. Við hér í Njarðvík höfum farið fram á að nýtt ríksifang- elsi, sem á að byggja, verði byggt Stefán Friöfinnsson hjá Aðalverktökum: Sé ekkert framundan - semkemurívegfyrirsamdráttinn Það sem af er þessu ári hafa 150 til 160 starfsmenn íslenskra aðal- verkataka fengið uppsagnarbréf. Flestar uppsagnirnar vom tilkynnt- ar í gær þegar 112 starfsmenn fengu uppsagnarbréf. Þegar allar þessar uppsagnir koma til framkvæmda verða starfsmenn Aðalverktaka um 300 alls. Aðspurður sagöist Stefán Frið- finnsson, forstjóri íslenskra aðal- verktaka, ekki sjá neitt framundan sem kæmi í veg fyrir talsveröan sam- drátt og þá um leið ekkert sem kæmi í veg fyrir aö mikill meirihluti þeirra sem fengu uppsagnarbréf í gær misstu vinnuna - eða allavega um 90 manns að lágmarki. Flestir starfs- mannanna eru með þriggja mánaöa uppsagnarfrest. Hjá Dverghömrum, sem er undir- verktaki hjá Aðalverktökum, var í gær sagt upp þrettán mönnum, og því voru þaö 125 manns sem fengu uppsagnarbréf hjá þessum tveimur fyiirtækjum í gær. Gert var ráð fyrir að á næsta ári yrði unnið fyrir 63 milljónir dollara, á Keflavíkurflugvelli - en í þess stað stefnir í að unnið verði fyrir 34 millj- ónir dollara. „Við vitum minnst allra um fyrir hversu mikið verður unnið hér á næstu árum,“ sagði Stefán Friðfinnsson. -sme í dag mælir Dagfari_____________________ Fullur eða óf ullur Stjómmálaumræðan á íslandi hef- ur oft verið á háu stigi. En aldrei sem nú. í miðri kreppunni og at- vinnuleysinu er það helst á dag- skrá sem brýnast er. Umræðan snýst um það hvort ráðherrar séu fnliir eða ófullir í vinnunni. Stein- grímur Hermannsson hefur verið tekinn í sérstaka yfirheyrslu í sjón- varpi til að spyija hann hvenær hairn hafi verið fullur og sjálfur forsætisráðherra, Davið Oddsson, hefur líka verið yfirheyrður um sína drykkjusiði. Dagfara finnst þessi umraeða ákaflega merkileg enda jjóst aö þjóðarhagur stendur og fellur með því hvort forsætisráð- herrar drekki mikið eða lítiö eða ekki neitt. Það er að vísu til of mikils mælst að þeir drekki ekki neitt enda segir Davíð Oddsson að hann viti ekki annað en íslendingar fái sér flestir hveijir í staupinu án þess að gera veður út af því og aðspurður segist Davíð muna eftir því einu sinni aö hafa fundið á sér við opinbert tæki- færi. Það var þegar heimsmeistar- amir í bridge komu heim með Bermúdaskálina og þá tók Davíð á móti þeim og hélt ræðu þar sem hlustendur héldu að hann hefði veriö undir áhrifum. Davíð segir hins vegar að þá hafi veriö boðið í kokkteil eftir að hann var búinn að halda ræðuna og auð- vitað finna menn á sér eftir að þeir fá sér kokkteil en ekki áður en þeir fá sér kokkteil. Þannig að það var misskilningur að Davíð hefði verið kenndur þegar hann flutti skála- ræðuna en hann var hins vegar kenndur eftir aö hann flutti ræð- una en það komi engum við nema honum sjálfum. Ráðherrar verða að fá að ráða því sjálfir hvenær þeir em fullir og hvenær þeir em ekki fullir og Steingrímur staðfest- ir þetta og segir að hann hafi aldrei verið fullur í vinnunni. Steingrím- ur man ekki til þess að hann hafi fengið sér meira en þrjú glös í einu, það er það mesta sem hann hefur drukkið og hann hefur aldrei verið ölvaður við að taka ákvörðun í rík- isstjóm. Ekki einú sinni timbraður og maður verður fyrir hálfgerðum vonbrigðum þegar Steingrímur segir þetta því að Dagfari var ein- mitt að vona að Steingrímur hefði haft það sér til afsökunar þegar hann var að framkvæma dellumar í ríkistjómum sínum aö hann hefði aö minnsta kosti verið timbraður ef ekki ölvaður því að íslendingum er flest leyfilegt þegar þeir em full- ir. Sérstaklega þegar þeir em fullir í vinnunni. Nú, ef forsætisráðherrar núver- andi og fyrrverandi segjast aldrei muna eftir því að hafa verið drukknir veröa kjósendur að taka því hundsbiti að þeir séu svona galnir bláedrú og ekki bætir það úr skák. Inn í þessa umræðu blandast svo drykkjusiðir annarra manna og Davíð Oddsson lét þess getið í sjón- varpsviðtali þar sem þetta brenni- vínsmál var aðallega á dagskrá aö hann vissi ekki betur en drykkju- venjur hans væra miklum mun betri heldur en drykkjusiðir leið- arahöfunda sem væm að skrifa um drykkjusiði hans sjálfs! Þaö fer vonandi ekki fram hjá neinum að forsætisráðherra veit ýmislegt um það hvernig leiöara- höfundar drekka eða hafa drukkið og enn einu sinni sannast það að forsætisráðherra fylgist vel með þjóö sinni og sér í lagi þeim sem era aö hnýta í hann fyrir að drekka meira en þeir sem drekka án þess að hann hafi verið að tala um að þeir drykkju. Svona er forsætisráð- herra góður við leiðarahöfunda og aðra sem drekka eða hafa drukkið að hann er ekki fyrirfram að hafa orð á því og ætlast þá ekki til að þeir séu að niða hann niður fyrir drykkjuskap sem er miklu minni en drykkjuskapur annarra. Það er guðsþakkarvert hve for- ystumenn þjóðarinnar drekka lítið. Og hvaö þeir drekka miklu minna en aðrir. Þjóðinni þykir sömuleiðis afar vænt um þaö að fjölmiðlar fylgist grannt með því hvort ráð- herrar séu fullir í vinnunni og láti ráðherrana segja frá því hvenær þeir em fullir því almenningur átt- ar sig alls ekki alltaf á því hvort menn era fullir eða ófullir. Dagfara finnst að þaö eigi að vera fastur liö- ur í sjónvarpsdagskránni að segja frá því hvað ráðherramir hafi drukkið mikiö þá vikuna og leyfa ráðherrunum aö segja frá því hvað aðrir hafi drukkið miklu meira en þeir. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.