Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Page 4
4
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992.
Fréttir
Samstaða um stjómarkjör á þingi Landssambands hestamannafélaga:
Sameining hesta-
sambanda í nef nd
Landsþingi Landssambands hestamannafélaga lauk á laugardaginn á Flúðum.
DV-mynd E.J.
Guðmundur Jónsson frá Reykjum
var kjörinn nýr formaöur á 43. lands-
þingi Landssambands hestamanna-
félaga sem haldið var á Flúðum síð-
asthðinn föstudag og laugardag. 122
kjörnir þingfulltrúar frá 46 hesta-
mannafélögum mættu en auk þess
voru á þinginu stjómarmenn og gest-
ir. Þingið var um margt átakahtið.
Þaö mál sem helst þótti líklegt til að
valda deilum, tillaga um að nefnd
verði skipuð til að kanna kosti og
galla þess að Landssamband hesta-
mannafélaga (LH) og Hestaíþrótta-
samband íslands (HÍS) verði samein-
uð, var samþykkt á þá vegu að ný-
kjörinni stjóm LH var falið að skipa
fimm manna nefnd til að fara í saum-
ana á sameiningarmálunum.
Samstaða ríkti
um stjórnarkjör
Kári Amórsson, sem hefur gegnt
embætti formanns undanfarin íjögur
ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs
og var varaformaður LH, Guðmund-
ur Jónsson frá Reykjum í Mos-
fellsbæ, kosinn í hans stað. Guð-
brandur Kjartansson var kosinn
varaformaður án mótframboðs. Ingi-
mar Ingimarsson meðstjómandi gaf
heldur ekki kost á sér og var Krist-
mundur Halldórsson úr Kópavogi
kosinn í hans stað án mótframboðs
en aðrar breytingar vom ekki gerðar
á stjóminni. Hana skipa að þessu
sinni: Guðmundur Jónsson formað-
ur, Guðbrandur Kjartansson vara-
formaður, Sigfús Guðmundsson, Jón
Bergsson, Sigbjöm Bjömsson, Hall-
dór Gunnarsson og Kristmundur
Halldórsson.
Brýnt að skilja að umferð
Aðalmál þingsins var reiðvegamál.
Framsöguerindi um reiðvegina
höföu Ami Mathiesen frá samgöngu-
nefnd Alþingis, Jón B. Jónsson að-
stoðarvegamálastjóri, Kristján Auð-
unsson fyrir hönd hestamanna og
Bryndís Brynjólfsdóttir fyrir Sam-
band íslenskra sveitarfélaga. Auk
þess vom pallborðsumræður. AUir
ræðumenn voru sammála um nauð-
syn þess að skfija aö umferð akandi
manna og ríðandi til að auka öryggi
fyrir alla aöila. Ekki kom fram tíma-
mótatiUaga um hvemig þessi mál
verða leyst.
„Það er heilmikiU áfangi að fá fram
viðhorf Alþingis og Vegagerðarinn-
ar,“ sagði Guðmundur Jónsson, for-
maður LH, „það auðveldar okkur
framhaldið að vita hvaöa sjónarmið
era ríkjandi hjá þessum stofnunum.
Ég met það svo að þetta verði til að
ýta mönnum í framkvæmdir.“
Árleg þing áfram
Ein þeirra tUlagna, sem lá fýrir
þinginu, var að landsþing yrðu fram-
vegis haldin annað hvert ár en sú
tiUaga var feUd.
Aðrar tillögur, sem voru ræddar
og kosið um, var tUlaga frá sljóm
LH sem óskaði eftir að feUd væra úr
gildi lög um að LH gefi út tímarit.
Þessi tillaga var feUd og verður ný-
kjörin stjóm að taka á útgáfumálun-
um. Þar er átt við Hestinn okkar.
Ræddar hafa verið hugmyndir um
að sameina Hestinn okkar og Eiðfaxa
en ekkert áþreifanlegt hefur komið
út úr þeim hugleiðingum.
Samþykkt var að fylga eftir skrán-
ingu kynbótahrossa á sýningiun
enda skapar það meira öryggi í öUum
framtíðarskráningum og minni
vinnu fyrir skrásetjara framtíðar-
innar. Einnig má nefna að skipuð
verður nefnd til að kanna hvemig
eftirUti með lyfjamálum verði háttað
í framtíðinni.
Þátttökuréttur
í gæðingakeppnum
Bætt var inn setningu í reglugerð
um gæðingakeppni á þá vegu að nú
er hrossum í eigu hrossabús heimUt
að taka þátt í gæðingakeppni ef eig-
andi hrossabúsins eða umsjónar-
maður er félagsmaður i LH. Þetta
veldur því að stóðhestar og hryssur
Hólabúsins og stóðhestar hrossa-
ræktarsambanda em gjaldgeng í
gæðingakeppni hér eftir.
Kynbótahrossasýningar
hefjast í mars
Kristinn Hugason hrossaræktar-
ráðunautur flutti erindi um hrossa-
ræktina 1992. Fram kom í máU hans
að framvegis munu dómar kynbóta-
hrossa hefjast fyrr en áður eða í
mars. Haldin verði mánaðarlega
dómar og sýningar í Reykjavík og
víöar sé þess óskað. Þessi breyting
er gerö tU að spara hestaeigendum
kostnað svo og dómurum tíma.
-E.J.
Þórhallur Asmundsson, DVj Sauðáxkr
„Það var mikUl hugur í mönn-
um á fundinum og okkur Ust
ágæöega á framhaldið, enda hef-
ur verið buUandi framlegð í fyrir-
tækinu á þessu ári. Ef við ættum
ekki við fortíðarvanda að stríða
þá væri bullandi hagnaður af
rekstrinum í dag,“ segir Reynir
Pálsson, framkvæmdastjóri
MUUaiax, en aðalfundur félagsins
var haldinn nýlega.
í fyrra varð 32,2 mUlj. króna tap
á Miklalaxi. Staða fyrirtækisins
hefur gjörbreyst tíl hins betra viö
að Byggðastofhun afskrifaði ný-
lega 320 miUjóna króna skuld og
breytti 60 af þeirn 180 mUljónum
sem eftir standa í vUýandi lán.
AUur söluhagnaður Miklalax
fer í greiðslu skammtímaskulda.
FramleiösliUcostnaður hefur
lækkaö mjög, er nú 230 krónur
kUóiö en meðalsöluverð afurða
er um 300 kr. á árinu. MiklUax
framleiðir því talsvert upp í vexti
og afborganir í dag.
Framleiðsla Miklalax á þessu
ári verður 300 tonn tU sölu og 100
tonn tU áframeldis. Á næsta ári
er reiknað meö að stöðin nái í
fyrsta skipti fuUri framleiðslu,
600 tonnum, og þar af verði slátr-
aö 450-500 tonnum af fiski. Fastir
starfsmenn Miklalax í dag era 18
og að auki starfa 10 manns við
slátrun tvo daga vikunnar. Slátr-
að er um 12 tonnum á viku og
verður svo fram til áramóta. Um
90% framleiöslunnar fer á Frakk-
landsmarkaö.
Slökliviliöiö í Reykjavík var
kallað út aðfaranótt sunnudags
vegna elds sem logaði í Lödu sem
stóð við Bjamarstíg. MikiU eldur
var í bUnum og þrátt fyrir að vel
hafi gengið að slökkva hann er
bíliinn talinn ónýtur. Ekki er tal-
ið útUokað að um íkveikju hafi
veriðaöræða. -sme
í dag mælír Dagfari
Það var fjör á aðalfundi Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna. Há-
punktur fundarins var þegar Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra sté í pontu og tók að þylja
upp þau pláss í landinu sem væra
kominn á aftökulista. Samtals
þuldi hann upp nöfn þijátíu og sjö
byggðarlaga sem mundu leggjast í
auðn ef sú stefna næði fram að
ganga sem gengið hefur undir
nafninu „gjalþrotaleiðin".
Á LÍÚ-fundinum vora að sjálfsg-
öðu mættir útgerðarmenn frá þess-
um plássum og raunar öllum sjáv-
arplássum á íslandi og það var
dauðaþögn í salnum og skelfingar-
svipur á fundarmönnum meðan
ráðherrann las upp Ustann. Er ég
á Ustanum? spurðu menn í hljóði
og það var enginn miskunn hjá
ráðherranum. Hann las og las og
tiltók hvert þorpið aö fætur öðra
og þegar upplestrinum var lokið
var sjávarútvegurinn eins ijúkandi
rúst.
Nú er það svo að enginn kannast
við þennan aftökuUsta annar en
ráðherrann sem las hann upp. Þor-
steinn Pálsson er að vísu dóms-
málaráðherra ásamt með því að
vera sjávarútvegsráðherra, svo
hann hefur betri aðgang að aftöku-
innar og að minnsta kosti Dagfara
að honum hafi aldrei tekist jafnvel
upp og einmitt á þessum fundi aftö-
kunnar. Útvegsmenn hafa aUar
götur síðan Kristján tók við forystu
þeirra veriö verst leikna stétt
landsins og elstu menn muna ekki
eftir ööra en tapi á tap ofan í út-
gerðinni. Það er alveg rosalegt
hvað iUa er búið að fara með þessa
menn. Þeir eiga rétt fyrir farinu
norður þar sem LÍÚ-þingið er hald-
iö og svo fá þeir þessar aftökur
framan í sig! Er nema von að Kristj-
án gráti af heUagri sorg og reiði.
Þetta gengur auðvitað ekki leng-
ur og eins gott að ganga hreint tíl
verks og taka útgerðina og þessi
þijátíu og sjö sjávarpláss af lífi áð-
ur en allt verður um seinan. Kristj-
án þoUr ekki þetta böl lengur, út-
gerðarmenn þola ekki að vera á
hausnum lengur og sjávarplássin
þijátíu og sjö verða þeirri stund
fegnust þegar þjáningum þeirra
lýkur. Þjóðin varpar öndinni léttar
þegar hún er loks laus viö þessar
afætur.
Það var mikið gustukaverk hjá
Þorsteini ráðherra að láta menn
vita að aftakan bíði þeirra á hverri
stundu. LÍÚ þing era þarfaþing.
Dagiari
Aftökulistinn
Ustum en aðrir ráðherrar. En það
kannast enginn við listann nema
Þorsteinn og það kannast heldur
enginn við þá „gjaldþrotastefnu",
sem leggur þessi þorp í rúst en
Davíð Oddsson segist alveg sam-
mála Þorsteini í ræðu hans sem
þýðir væntanlega að hann hefur
reiknað þetta eins út og Þorsteinn
og veit að 37 sjávarpláss leggjast
af ef áform hans ná fram að ganga
í ríkisstjóminni.
Útreikningar Þorsteins sjávarút-
vegsráðherra era sem sagt ekki
véfengdir. Annaðhvort hafa hinir
ráðherramir ekki séð Ustann eða
þá að þeir hafa séð hann og sam-
þykkt hann eins og Davíð gerir.
Þetta boðar gott eitt því þá kemur
að minnsta kosti ekki upp ágrein-
ingur í ríkisstjóminni um að slátra
þessum 37 plássum þegar stefnan
nær fram að ganga. Það er þá ein-
hugur um að þessi 37 pláss verði
skorin niður við trog en hinum
þyrmt. Þau verða aö vísu ekki
mörg, byggðarlögin, sem lifa þessar
hremmingar af en það er þó alténd
vitað að ríkisstjómin hefur ákveðið
að setja þau á og menn bíða þá
ekki aftöku sinnar á meðan.
Þorsteinn sjávarútvegsráðherra
segist vera á móti þessum aftökum
sem hann einn veit um ásamt for-
sætisráðherra. Það er skrítið ef
hann er maðurinn sem hefur búið
aftökuUstann lil. Hvemig geta þeir
verið á móti aftökum sem sjálfir
og einir hafa lagt aftökumar til og
búið jafnvel tíl Usta yfir þær? Nema
þá að Þorsteinn sé að gera þetta að
gamni sínu! Er ráðherrann
kannski að hrekkja aUa þá staði á
landinu sem hann segir að séu
komnir á aftökiUista? Eru svona
LÍÚ-þing bara tU að skemmta við-
stöddum eða æsa menn upp að
óvörum tíl að stríða hver öðrum?
Því er ekki að neita að formaður
LÍÚ tók þessa upptalningu Þor-
steins alvarlega. Hann grét nánast
1 sjónvarpinu og enda þótt Kristján
Ragnarsson sé viðurkenndasti og
snjaUasti harmagrátur lands-
manna er það samdóma áfit þjóðar-