Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Page 6
6
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992.
Fréttir
Kvennalistakonur á landsfundi sættast á aö vera ósammála:
Neita að taka á mig
ábyrgð Ingibjargar
- sagði Guðríöur Adda Ragnarsdóttir í snörpum deilum um afstöðuna til EES
„Ályktunin er merkileg og minnir
helst á það þegar Þorgeir Ljósvetn-
ingagoði lagðist undir feld. Ég er hins
vegar gjörsamlega ósátt við þetta
mál, framvindu þess, tímasetningu
og meðhöndlun. Ég neita að taka á
mig þá ábyrgð sem umbjóðandi minn
á Alþingi á að hafa. Ingibjörg Sólrún
bauð sig fram fyrir ákveðna stefnu
sem ég kaus. Þessi umræða á að fara
fram á mótunarstigi en ekki þegar
búið er að setja stefnuna fram. Kjós-
endur kusu andstöðu við evrópskan
samruna og hvað eiga þeir að gera
íyrir næstu kosningar?," spurði
Guðríður Adda Ragnarsdóttir en
snarpar umræður spunnust um af-
stöðuna gagnvart samningnum um
evrópskt efnahagssvæði á landsfundi
Kvennalistans um helgina.
Eftir mikla umfjöllun sættustfund-
armenn á að vera ósammála og sam-
þykktu ályktun þar sem afstaða
Kvennalistans fyrir síðustu kosning-
ar er áréttuð. Ljóst er að fæstar
kvennanna voru fullkomlega ánægð-
ar með ályktunina.
Fimmtánda uppkastið
„Það er alvarleg klípa ef kvenna-
listakonur mega ekki ræða málin og
þetta er ekkert einkamál einnar
þingkonu. Það eru margar sem eru
sammála Ingibjörgu Sólrúnu en okk-
ar skoðanir hafa ekki fengið mikla
umfjöllun. Ég er fullkomlega ósátt
við ályktunina," sagði Þóra Ásgeirs-
dóttir.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
þingkona sagði það ljóst að ályktunin
kæmi hvorki til móts við þær konur
sem vildu neita aöild að EES á af-
dráttarlausari hátt né þær sem vildu
opna möguleikana í þá átt frekar.
Hún sagði að mikil vinna lægi í þess-
ari ályktun sem væri 14.-15. uppkast-
ið og þar væri farið bil beggja og
reynt að ná málamiðlun.
I ályktuninni segir meðal annars
að umræður haíi leitt í ljós að innan
Kvennalistans ríki ekki einhugur um
það með hvaða hætti staða Islands
verði best tryggð og að landsfundur-
inn viðurkenni aö skoðanir varðandi
afstöðu samtakanna til EES og EB
séu skiptar. Þrátt fyrir þetta telur
landsfundurinn ekki tOefni til að
breyta yfirlýstri stefnu.
Minnt er á að ákvarðanir lands-
fundarins séu stefnumarkandi fyrir
starfsemi hans innan þings sem utan
en lögð er áhersla á að samtökin geri
ekki þá kröfu til kvennalistakvenna
að þær greiði atkvæði gagnstætt eig-
in sannfæringu. Þá er áréttuð sú
skoðun Kvennalistans að bera skuli
EES samninginn undir þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
„Ég treysti Ingibjörgu Sólrúnu
fyllilega til að gegna sínum störfum
í utanríkismálanefnd þannig aö hún
bijóti ekki gegn sinni sannfæringu
og gæti þess jafnframt að stefna
Kvennalistans komist á framfæri,“
segir Guðrún Agnarsdóttir.
-ból
Kvennalistakonur, hvaðanæva af landinu, komu saman á Laugarvatni um helgina og héldu landsfund samtakanna.
Á fundinum kom fram skýr klofningur um afstöðuna til EES-samningsins og kom til snarpra orðaskipta. Guðrún
Agnarsdóttir talaðl, meðal annarra, máli sátta á fundinum og sagði skoðanaskipti nauðsynleg og styrkjandi fyrir
samtökin. DV-mynd ÞÖK
Kvennalistakonur óánægðar með skipulag samtakanna:
Grasrótin ákaflega þreytt
„Hvort sem okkur líkar betur eða
verr þá hefur Kvennalistinn slitið
bamsskónum og er orðinn að eins
konar stofnun. Grasrótin er í raun
ákaflega þreytt og tekur fæstar af
þeim póhtísku ákvörðunum sem
Kvennalistinn stendur fyrir. Við get-
um hins vegar ekki ætlast til þess
að þingkonumar leggi fram fijóar
tillögur og lausnir og taki ákvarðanir
fyrir okkar hönd án framlags af okk-
ar hálfu,“ sagði Anna Kristín Ólafs-
dóttir meðal annars er hún mælti
fyrir tillögu um nýtt skipulag á mál-
efnastarfi Kvennalistans.
í tillögunni segir að ákvarðanataka
1 Kvennalistanum sé í höndum mjög
fárra og pólitísk umræða fari helst
fram á þingflokksfundum. Virkni
hinnar almennu kvennalistakonu sé
í lágmarki.
Lagt er til að framkvæmdaráðið
verði stækkað, stofnaðir verði svo-
kallaðir þankabankar og aðgerðaráð
sem taki frumkvæði og opni umræð-
ur um málefni sem skyndilega koma
upp. Á fundinum var samþykkt að
hefja undibúning til að hrinda skipu-
lagsbreytingunum í framkvæmd og
hefja vinnu í þankabönkunum sem
yrðu vettvangur málefnavinnu og
stefnumótunar samtakanna.
í umræðum um tillöguna kom fram
að almenn óánægja ríkir um skipu-
lag hreyfingarinnar sem konunum
fmnst ekki virka sem skyldi. Rætt
var um aö Kvennalistinn væri of
óskipulagður og aldrei væri tekist á
um nein pólitísk deilumál. Þá komu
fram þær raddir aö umræöa um kon-
ur og málefni kvenna heföi farið
minnkandi iiman samtakanna.
„Þaö kemur viss þreyta í starf gras-
rótarhreyfingar þegar hún er búin
aö vera lengi starfandi. Við viljum
gera málefnavinnuna meira sam-
hangandi, skipuleggja starfið betur
og gera það virkara, frjórra og lýð-
ræðislegra. Við viljum ekki breyta
skipulaginu alveg í átt til þess sem
fjórflokkarnir búa við enda teljum
við það mjög mikilvægan hluta af
okkar hugmyndafræði að vinna sem
grasrótarhreyfmg. Hins vegar þarf
að skipuleggja grasrótina betur,“
sagði Ánna Kristín Ólafsdóttir.
-ból
IngibjörgSólrún:
Var ekki að
um
„Ég fæ þau skilaboð í ályktuninni
að stefna Kvennalistans, það er að
vera mótfallinn aðild að EES, hefur
verið áréttuð. Hins vegar er viður-
kennt, eins og kemur fram í stefnu-
skránni, að við leggjum okkur fram
við að hlusta eftir öllum röddum
kvenna. Ég er sátt við þessa niður-
stöðu. Það er mikilvægt að það eigi
sér stað frjó umræða innan Kvenna-
listans en jafnframt að við skiljum
sáttar í málum eins og þessum. Ég
var fyrst og fremst að kalla á um-
ræðu um málið en ekki aö biðja um
einhverja kúvendingu," segir Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, þingkona
Kvennalistans.
Hún segir að ályktun landsfundar-
ins breyti í raun engu fyrir starf
þingflokkskvennanna inni á Alþingi.
„Þær fjórar í þingflokknum, sem
eru andvígar aðildinni að EES, munu
túlka stefnu Kvennalistans í þessu
máh en ekki ég. Þaö er hins vegar
viðurkennt að sjónarmið mitt er ekki
bundið við mína persónu. Það hefur
komið í Ijós héma að það era fleiri
konur að hugsa á svipuðum nótum
og ég í þessu máh. Það er í raun við-
urkennt í þessari ályktun að þessar
raddir eru héma, þær eiga rétt á sér
og það er rúm fyrir þær þó að stefn-
an sé sú að Kvennalistinn sé andvíg-
ur samningnum," segir Ingibjörg
Sólrún. -ból
Skorinn á hendi
Maður skarst Ula á hendi eftír
að honum var hrint á rúöu á Elat-
eyri aðlaranótt sunnudags. Til
ósátta kom milh mannsins og fé-
laga hans með þeim afleiöingum
að annar hrinti hinum fró sér.
Sá lenti á rúðu og skarst illa á
hendi.
Tveir ökumenn voru teknir,
grunaðir um ölvun við akstur, á
Elateyri um helgina. -sme
Tvöhmbrat
Lögreglan á Egilsstöðum rann-
sakar tvö innbrot sem framin
voru um helgina, í öðru tilfelhnu
var brotist inn í söluskála og stol-
ið tóbaki og sælgæti, í liinu tiifell-
inu var brotist inn i sumarhús.
Þar var htlu stohö. -sme
Peningamarkaður
INNLÁNSVDCTIR (%) haest
INNLÁN ÚVERÐTR.
Sparisj. óbundnar Sparireikn. 0,75-1 Landsb., Sparisj.
3ja mán. upps. 1-1,25 Sparisj.
6 mán. upps. 2-2,25 Sparisj.
Tékkareikn., alm. 0,25-0,5 Landsb., Sparisj.
Sértékkareikn. 0,75-1 Landsb., Sparisj.
VlSITÖLUB. REIKN.
6 mán. upps. 1,5-2 Allir nema Isl.b.
15-24 mán. 6,0-6,5 Landsb., Sparsj.
Húsnæðisspam. 5-7,1 Sparisj.
Orlofsreikn. Gengisb. reikn. 4,25-5,5 Sparisj.
ÍSDR 5,25-8 Landsb.
ÍECU 8,5-10,2 Sparisj.
ÚBUNDNIR SÉRKJARAREIKN.
Vísitölub., óhreyfðir. 2-2,75 Landsb., Bún.b.
óverðtr., hreyfðir 2,75-3,5 Landsb.
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR
(innantímabils) Vísitölub. reikn. 1,25-3 Landsb. .
Gengisb. reikn. 1,25-3 Landsb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKN.
Vísitölub. 4,5-5,5 Búnaðarb.
Óverðtr. 4,75-5,5 Búnaðarb.
INNLENDIR GJALDEYRISRElKN.
$ 1,75-2,0 Islb.
£ 6,75-7,4 Sparisj.
DM 6,5-7,0 Landsb.
DK 9,0r10,8 Sparisj.
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
otlAn úverðtryggð
Alm.víx. (forv.) 11,5-11,8 Bún.b, Lands.b.
Viðskiptav. (forv.)1 kaupgengi Allir
Alm. skbréf B-fl. 11,75-12,4 Landsb.
Viðskskbréf1 kaupgengi Aliir
ÚTLAN verðtryggð
Alm.skb. B-flokkur 8,75-9,25 Landsb.
AFURÐALAN
i.kr. 12,00-12,25 Búnb., Sparsj.
SDR 8-8,5 Landsb.
$ 5,5-5,15 Landsb.
£ 10,5-11,75 Landsb.
DM 10,5-11,1 Búnb.
Húsnæöislán 4,9
tífoyrissjödslán 5-9
Dráttarvöxtir 185
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf september 12,3%
Verðtryggð lán september 9,1%
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóvember 3237 stig
Lánskjaravísitala október 3236,4 stig
Byggingavisitala október 188,9 stig
Byggingavísitala nóvember 189,1 stig
Framfærsluvísitala í október 161,4 stig
Framfærsluvísitala í septemberl 61,3 stig
Launavísitala í október 130,3 stig
Húsaleiguvísitala 1,9%íoktóber
var1,1%íjanúar
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,475
Einingabréf 2 3,469
Einingabréf 3 4,240
VSkammtímabréf 2,146
Kjarabréf
Markbréf
Tekjubréf
Skyndibréf
Sjóðsbréf 1 3,098 3,113
Sjóðsbréf 2 1,941 1,960
Sjóðsbréf 3 2,139 2,145
Sjóösbréf4 1,708 1,725
Sjóðsbréf 5 1,300 1,313
Vaxtarbréf 2,1831
Valbréf 2,0463
Sjóðsbréf 6 513 518
Sjóðsbréf 7 1003 1033
Sjóðsbréf 10 1053 1085
Glitnisbréf
islandsbréf 1,339 1,365
Fjórðungsbréf 1,137 1,154
Þingbréf 1,349 1,367
Öndvegisbréf 1,334 1,353
Sýslubréf 1,311 1,329
Reiðubréf 1,310 1,310
Launabréf 1,013 1,028
Heimsbréf 1,103 1,136
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi á VerAbréfaþlngi islands:
Hagst tilboö
Lokaverð KAUP SALA
Olís 2,00 1,70 2,00
Hlutabréfasj.ViB 1,04
isl. hlutabréfasj. 1,20 1,01 1,10
Auðlindarbréf 1,03 1,03 1,09
Hlutabréfasjóð. 1.42 1,39
Ármannsfell hf. 1,20 1,00 1,60
Ámeshf. 1,85 1,20 1,85
Bifreiðaskoðun Islands 3,42 3,40
Eignfél. Alþýðub. 1,15 1,50
Eignfél. lönaðarb. 1,50 1,20 1,57
Eignfél. Verslb. 1,15 1,10 1,20
Eimskip 4,25 4,15 4,30
Flugleiðir 1,55 1,55
Grandi hf. 2,10 2,50
Hafömin 1,00 1,00
Hampiðjan 1,30 1,43
Haraldur Böðv. 2.40 2,60
islandsbanki hf. 1,20 1,65
isl. útvarpsfél. 1,40 1,40
Jarðboranir hf. 1,87 1,87
Marelhf. 2,50 2,45 2,60
Oliufélagið hf. 4.40 4,40 4,50
Samskip hf. 1,12
S.H. Verktakarhf. 0,80 0,90
Síldanr., Neskaup. 3,10 1,30
Sjóvá-Almennar hf. 4,30 4.25 7,00
Skagstrendingur hf. 3,80 3,00 3,60
Skeljungurhf. 4,40 4,40 4,55
Softis hf.
Sæplast 3,35 3,15 3,45
Tollvörug. hf. 1,35 1,35 1,50
Tæknival hf. 0,50
Tölvusamskipti hf. 2,50 2,20 3,00
ÚtgerðarfélagAk. 3,60 3,30 3,80
Útgerðarfélagið Eldey hf.
Þróunarfélag Islands hf. 1,60
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta-
skuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er
miöað við sérstakt kaupgengi.
Nánari upplýsingar um peningamark-
aðinn birtast í DV á fimmtudögum.