Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992.
Utlönd
Varúrskurðuð
látin en lifnaði
afturvið
Heilsulaus 68 ára gömul kona
frá Seattle í Bandaríkjunum, sem
læknar höfðu úrskurðað látna,
liftiaði við á einstakan hátt í gær.
Þá var búið að flytja kaldan lík-
ama hennar á útíararstoíU.
Nokkrum klukkustundum eftir
aö hún kom þangað fann starfs-
maður stofunnar veikt lífsmark
með henni og lét flytja hana í
skyndingu á sjúkrahús. Eigandi
útfararstofunnar sagöi að þetta
væri ekkert annað en kraftaverk.
Konan var þungt haldin í gær-
kvöldi. Reuter
Boeing 747 frá Cargolux 1 erfiðleikum í lendingu:
Hreyfill féll af
- þotan er af sömu gerð og sú sem fórst við Amsterdam
Boeing 747 flutningaþota frá Car-
golux var hætt komin á flugvellinum
í Luxemborg í gærkveldi. Einn hreyf-
ill þotunnar féll af þegar vængur
rakst í flugbrautina í lendingu. Fjórir
voru í áhöfn þotunnar og sakaði þá
ekki.
Talsmaður Boeing-verksmiðjanna
sagði í gær að svo virtist sem útbún-
CTiATFAbX
#
-
IJOTTU
NALÆGÐAR
MEISTARANNA
Á HOLTINU
SÝNISHORN AF MATSEÐLl
FORRÉTTIR
Graflax með hunangs-sinnepssósu 876,-
Tindaskata með plómum í sítrónusósu 830,-
Ristaður smokkfiskur í engifer
með rauðaldinmauki og vermút 795,-
Humarsúpa 695,-
AÐALRÉTTIR
Gufusoðinn búri með rauðlauk
ogrósmarínsósu 1595,-
Steikt rauðsprettuflök með
sveppum og hvítu smjöri 1395,-
Grísamedalíur með chili-sósu
og rauðlauk í vínediki 1759,-
Gljáð önd í engifer og rauðvíni 2775,-
Nautalund með furusveppum
og kartöfluköku Julienne 2386,-
Villigæsabringur með púrtvínssósu 2775,-
EFTIRRÉTTIR
Eldsteiktar pönnukökur með
ferskum ávöxtum og rjómaís 745,-
Kökuvagn 495,-
Ath.: Hérfyrir ofan eru aðeins sýnishorn af glæsilegum
matseðli okkar. Verið ævinlega velkomin.
HAUSTTILBOÐ
Glæsileg þríréttuð máltíð
frá 2250 kr. tii 2950 kr.
%
BERGSTAÐASTRÆTI 37 SÍMI: 91-25700
aður til að losa hreyfla frá í erfiðleik-
um hefði virkað eins og til var ætl-
ast. Hreyflunum er ætlað að losna frá
vængnum til að koma í veg fyrir
meiri skaða.
Cargolux þotan er af sömu gerð og
EL A1 þotan sem fóst við Amsterdam
í síðasta mánuði. Þá féllu tveir
hreyflar af á flugi og þotan brotlenti
á fjölbýlishúsum í misheppnaðri til-
raun til nauðlendingar.
Festingar hreyfla á Boeing-þotum
eru þannig að við mikla áreynslu
eiga þær að gefa eftir. Þetta er örygg-
isbúnaður sem einkum á að nýtast
ef óhöpp verða í flugtaki eða lend-
ingu. I óhappinu í Luxemburg fór
allt að óskum en við Amsterdam féllu
tveir hreyflar af eftir að þotan var
komin á loft og ekki tókst að hafa
stjóm á henni eftir það.
Cargolux þotan var að koma frá
Istambúl. Flugmönnunum er þakkað
að ekki fór verr því þeim tókst að
hafa stjórn á þotunni eftir óhappið.
Flugvellinum var lokað um tíma í
gærkveldi meðan rannsókn var enn
á frumstigi. Hreyfillinn fannst á flug-
brautinni. Flugmályfirvöld í Luxem-
borg ásamt mönnum frá Boeing-
verksmiðjunum rannsaka málið í
von um að finna vísbendingar sem
gætu skýrt slysið mikla við Amster-
dam. Reuter
Cargolux-þotan, sem lenti í óhappinu á fiugvellinum í Luxemborg í gær-
kveldi, er af sömu gerð og þess vél frá flugfélaginu.
Útiendingar í Luanda frjálsir feröa sinna:
Vopnahlé gengið
í gildi í Angóla
Jose Eduardo dos Santos, forseti
Angóla, og Jonas Savimbi, leiðtogi
stjómarandstöðunnar, hafa fallist á
vopnahlé til að binda enda á bardaga
sem voru á góðri leið með að verða
að nýrri borgarastyijöld, að því er
portúgalska fréttastofan Lusa skýrði
frá í morgun.
Vopnahléið, sem Sameinuðu þjóð-
imar höfðu milligöngu um, gekk í
gildi skömmu fyrir miðnætti að ís-
lenskum tíma í gærkvöldi og nær það
til alls landsins.
Hersveitir stjórnarflokksins MPLA
og skæruliöahreyfingar Savimbis,
UNITA, hafa einnig fallist á að ölium
útlendingum sem eru í haldi verði
sleppt og ekki verði settar hömlur á
ferðir þeirra, samkvæmt yfirlýsingu
sem talsmaður Boutros Boutros-
Ghali, framkvaemdastjóra SÞ, sendi
frá sér.
Vopnahléið fylgir í kjölfar harðra
bardaga undanfama þrjá daga. Svo
virðist sem hundruð manna hafi fall-
ið í höfuðborginni Luanda og tugir
annars staðar í landinu. Ekki hafa
birst neinar opinberar tölur um
mannfall.
Drunur úr stórskotaliðsbyssum,
sprengjuvörpum, handsprengjum og
sjálfvirkum byssum bergmáluðu um
Luanda í gær. Ríkisútvarp Angóla
hvatti lækna og hjúkmnarlið til að
mæta á sjúkrahús Luanda en sagði
öllum öðrum að halda sig innandyra.
Skömmu áður en tilkynnt var um
vopnahléið gafst Elias Salupetdo
Pena, æðsti yfirmaður hersveita
Jonas Savimbi, leiðtogi UNITA-
hreyfingarinnar í Angóla, hefur fall-
ist á að stöðva bardaga við stjórnar-
herinn. Teikning Lurie
UNITA í höfuðborginni, upp við
vamarmálaráðuneytið, ásamt öðr-
um háttsettum mönnum UNITA.
Skæruliðahreyflngin UNITA og
stjórnarflokurinn MPLA undirrit-
uðu friðarsamkomulag í maí á síð-
asta ári eftir margra ára borgara-
styrjöld. Spenna í landinu hefur aft-
ur á móti farið vaxandi að undan-
fómu eftir að UNITA-menn vefengdu
úrslit forseta- og þingkosninga fyrir
skömmu og lögðu undir sig nokkra
bæi á landsbyggðinni.
Flugvöllurinn í Luanda var lokað-
ur í gær og nokkur lönd höfðu þegar
gert ráðstafanir til að flytja þegna
sínaábrottfráAngóla. Reuter
Óvíst um Maastricht á breska þinginu:
Major í lausu lofti
Pólitísk framtíð Johns Majors, for-
sætisráðherra Bretlands, er mjög í
lausu lofti þessa stundina þar sem
uppreisnarmenn innan íhaldsflokks-
ins viröast staðráðnir í að sjá til þess
aö hann bíði ósigur í mikilvægum
umræðum í þinginu um samruna-
ferlið innan Evrópubandalagsins.
Skoðanakannanir, sem gerðar hafa
verið meðal Evrópuandstæðinga í
þingliði íhaldsflokksins, sýna að 38
em reiðubúnir að greiöa atkvæði
gegn ríkisstjóminni þegar Ma-
astricht-samningurinn um pólitísk-
an og efnahagslegan samruna EB
verður borinn upp á miðvikudag.
Major og aðrir háttsettir ráðherrar
hafa samt rekið mikinn áróður fyrir
samningnum um helgina.
Reuter
Ráðherrarhafna
nýjum Mont
Blanc-göngum
Ráðherrar frá ítalíu, Frakk-
landi og Sviss höfnuðu í gær
áformum um að gera ný Mont
Blanc-jarðgöng undir Alpana
Komið höfðu fram hugmyndir
um að stækka þyrfti núverandi
göng, sem tengja Frakkland og
Italíu, til þess að þau gætu annað
aukinni bílaumferð. Ráðherrarn-
ir vísuðu þeím hugmyndum hins
vegar á bug á árlegum fundi sín-
um.
Ráðherrarnir voru einnig sam-
mála um að setja á fót nefnd til
að kanna hvernig væri hægt að
vernda umhverfið í Ölpunum.
Búddagrætur
flutninginn
Nokkrir munkar frá Suður-
Kóreu fullyrða að skýringin á
rajög svæðisbundnu, langvarandi
regni við Tonghae-musterið í
Kóreu sé sú að Búdda sé ósáttur
við að stytta af honum hafi verið
flutt úr stað.
Þann 12. október var styttan
flutt þangað sem reisa á nýtt
musteri Búdda til heiöurs en frá
og með þeim degi hefur rignt á
tiu fermetra svæði þar sem stytt-
an var áður eða í tuttugu daga
samfleytt.
Veðurfræðingar telja svona
svæðisbundnar skúrir möguleg-
ar við vissar aðstæður en segja
þó erfitt að útskýra það vísinda-
lega hvernig það geti rignt svona
mikið, svona lengi og á svona af-
mörkuðum bletti.
Smitastafeyðni
íTælandi
Komið hefur í Ijós að sex gagn-
kynhneigðir japanskir karlmenn
eru nú snútaðir af tælenskum
stofhi eyöniveirunnar. Þessi
ákveðni stofn hefur hingað til
einungis fundist í tælenskum
vændiskonum og hommum.
Þetta kom í ljós á ráðstefnu sem
sérfræðingar í veirusýkingum
sitja í Japan og þar kom ennfrem-
ur fram að fjórir þessara karl-
manna höfðu ferðast til Suöaust-
ur-Asíu.
Talið er að um tvö hundruð
þúsund japanskir menn hafi
heimsótt Tæland á síðasta ári og
fóru margir þeirra í sérstakar
kynlífsferðir sem eingöngu voru
ætlaðar karlmönnum.
WoodyAllen
setturíbann
Kvikmyndaleikstjóranum og
ieikaranum Woody Allen hefur
verið bannað að hafa samband
við skólann sem Dylan, hin sjö
ára gamla fósturdóttir hans, sæk-
Þetta er úrskurður hæstaréttar
á Manhattan í kjölfar ákæru Miu
Farrow á hendur Allens þar sem
hún fullyröir að hann hafi mis-
notað Dylan kyrtferðislega.
Allen neitar öllum sakargiftum
og hefur gefið í skyn að þessi sam-
býliskona hans til margra ára sé;
eldd með sjálfri sér. Fyrir utan
að eiga eitt bam með Farrow hef-
ur hann einnig ættleitt tvö af níu
börnum hennar, Dylan og Moses.
í dómi hæstaréttar var Allen
einnig bannaö að eyðileggja plagg
sem endurskoðandi hans hefur
undir höndum þar sem Allen seg-
ist ekki ætla að fá forræði yfir
Dylan og Moses ef Farrow skyldi
falla frá.
Farrow hefur ítrekað reynt að
fá hann til að afsala sér börnun-
um eftir aö upp komst að AUen
og lún 21 árs gamla fósturdóttir
Farrow, Soon-Yi Previn, hafa átt
í ástarsambandi í langan tima án
þess aö hún svo mikiö sem vissi
afþví. Ueuter