Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1992. 11 Sædýrasafhiö í Barcelona á Spáni í vandræðum meö hval: Gefa íslenskum háhymingi frelsi - var fangaöur viö Austfirði fyrir tólf árum Stjórnendur sædýrasafnsins í Barcelona á Spáni hafa ákveðið að sleppa íslenskum háhymingi sem fangaður var við Austfirði fyrir 12 árum þegar skip var gert út héðan á háhymingsveiðar og dýrin seld í söfn tun allan heim. Á Sgáni fékk háhymingurinn nafnið Ódysseifur og hefur notið vin- sælda almennings. Síöustu vikur hafa þó sprottið upp deilur vegna Ódysseifs því ákveðið var að gefa hann í Sea World safnið í Bandaríkj- unum. Háhyrningurinn er orðinn svo stór að hann rúmast ekki lengur í búri sínu í Barcelona. Ódysseifur hefur verið mjög óró- legur síðustu vikur. Safninu hafa borist kvartanir frá dýravemdunar- félögum vegna illrar meðferðar. Steininn tók þó úr þegar hugmyndin um flutning vestur um haf kom fram. Málalok urðu svo þau í gær að Ódysseifur fær frelsi í febrúar. Nátt- úrufræðingar eiga þó eftir að ákveða hvort hann getur bjargað sér í sjón- um eftir að hafa verið í haldi öll sín uppvaxtarár. Þá er enn óuppgert hvort farið verður með hann á heimaslóðir við ísland. Talið er að Ódysseifur hafi verið tveggja ára þegar hann var fangaður. Dýralæknar segja að hann sé orðinii afar þunglyndur og og illskeyttur. Rekja þeir þaö til þess aö hann hefur aldrei haft samneyti við hitt kynið og gæti svo farið að hann andaðist bráðlegaúrergioggremju. Reuter Ódysseifur, háhyrningur sædýrasafnsins í Barcelona á Spáni, fær frelsið í febrúar eftir 12 ára vist í búri. Hann var einn háhyrninganna sem veiddir voru við ísland. Útlönd Efri deild hollenska þingsins móti. Neðri deildin staðfesti samn- staðfesti Maastricht-samninginn inginn í nóvember. Ólikt því sem um pólitíska og efhahagslega ein- gerist í Danmörku og Bretlandi er ingu Evrópubandalagsins í gær. lítil andstaða við Maastricht i Hol- Aðeins örfáir þingmenn vom á landi. Reuter FJARSTÝRÐIR TORFÆRUBlLAR Kr. 6.295.- Kr. 5.370.- Kr. 4.295.- Kr. 3.995.- Póstsendingarþjónusta LEIKBÆR HAFNARFIRÐI MJÓDD KJÖRGARÐI s; 5 44 30 s; 7 91 11 s; 2 60 45,2 63 44 GRUnDIG Vesturþýsk gæði Frábært verð Góð þjónusta ^ST-70-670 Nicam stereo Litsjónvarp með textavarpi * 2x20 vatta hljómmagnari * Allar skipanir á skjá * Falleg hönnun * Glampalaus Black Super * Planar myndlampi * Góöir greiðsluskilmálar Lánaverð kr. 127.222. Staðgreiðsla kr. 114.500 Tækin send heim og stillt á höfuðborgarsvæðinu endurgjaldslaust Sámími Síðumúla 2 - sími 689090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.