Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR13. APRÍL1993
19
Iþróttir
Enn sigrar
Evrópubúi
áMasters
Bemhard Langer frá Þýskalandi varö á
páskadag fimmti Evrópubúinn á sex árum til
sigra á frægasta golfmóti heims, US Masters,
sem lauk á golfvellinum í Augusta í Georgíu-
fylki í Bandaríkjunum. Hann notaöi ijórum
höggum minna en Bandaríkjamaðurinn Chip
Beck og lék á 11 höggum undir pari.
Þetta er annar sigur Þjóðveijans á US Mast-
ers, en hann sigraði einnig árið 1985, og örugg-
asti sigur á mótinu frá þvi Severino Balleste-
ros frá Spáni vann með sama mun fyrir tíu
árum.
„Það er mikill heiöur að vinna mesta golf-
mót heims. Ég stefndi að því að vinna eitt
stærstu mótanna í ár og það tókst,“ sagði
Langer þegar sigurinn var í höfn. Helstu
keppinautar hans voru Chip Beck og Dan
Forsman en Langer hristi þá báða af sér á
síðasta hringnum, hélt þá fjögurra högga for-
ystu sem hann náði deginum áður og sigraði
af öryggi.
Þessir höfnuðu í 30 efstu sætunum en 90
hófu keppni og 29 heltust úr lestinni að tveim-
ur hringjum loknum:
1. BernhardLanger.Þýskalandi.......277
2. Chip Beck, Bandaríkjunum........281
3-6. Tom Lehman, Bandaríkjunum.....283
3-6. John Daly, Bandaríkjunum......283
3-6. Steve Elkington, Ástralíu......283
3-6. Lanny Wadkins, Bandaríkjunum...283
7-8. Jose Maria Olazabal, Spáni.....284
7-8. Dan Forsman, Bandarikjunum.....284
9-10. Payne Stewart, Bandaríkjunum..285
9-10. Brad Faxon, Bandaríkjunum.....285
11-16. Anders Forsbrand, Svíþjóð.....286
11-16. CoreyPavin.Bandaríkjunum......286
11-16. Seve Ballesteros, Spáni.......286
11-16. Scott Simpson, Bandarikjunum..286
11-16. Raymond Floyd, Bandaríkjunum..286
11-16. Fuzzy Zoeller, Bandaríkjunum..286
17-20. Ian Woosnam, Bretlandi........287
17-20. Mark Calcavecchia, Bandaríkjunum .287
17-20. Howard Twitty, Bandaríkjunum..287
17-20. JeffSluman, Bandaríkjunum.....287
21-26. Mark O’Meara, Bandaríkjunum...288
21-26. Fred Couples, Bandaríkjunum...288
21-26. Larry Mize, Bandaríkjunum.....288
21-26. Sandy Lyle, Bretlandi.........288
21-26. JeffMaggert, Bandaríkjunum....288
21-26. Russ Cochran, Bandaríkjunum...288
Neðar á listanum voru kappar á borð við
Jack Nicklaus, sem lék á 289 höggum, Greg
Norman (290), Craig Stadler (291), Nick Faldo
(293), Tom Watson (294) og Gary Player (302).
-VS
Bernhard Langer slær á annarri holu á lokahringnum á páskadag. A litlu myndinni klæð-
ir Fred Couples, sigurvegarinn frá f fyrra, Langer í „græna jakkann" sem jafnan fylgir
meistaratitlinum. Langer sagði að jakkinn, sem hann fékk 1985, væri orðinn heldur þröngur
á sigl Símamynd Reuter
Italska knattspyman:
íbr mfl. karla, A-riðill krr
AC Milan nánast öniggt
AC Milan steig mikilvægt skref í
átt að ítalska meistaratithnum í
knattspymu þegar hðið gerði 1-1
jafntefli við nágranna sína úr Inter
á laugardaginn. Það leit lengi vel út
fyrir að Inter færi með sigur af hólmi
og næði þar með aö setja smáspennu
í mótiö en Nicola Berti kom Inter
yfir á 43. mínútu. Hohenski snilling-
urinn Ruud Gulht var á öðru máh
og náði að jafna metin fyrir AC Milan
þegar 7 mínútur voru til leiksloka.
Forysta AC Milan er því áfram 7 stig
þegar sjö umferðum er ólokið.
Juventus vann
borgarslaginn
Juventus vann borgarslaginn gegn
Torino, 2-1. Vamaijaxlinn Conte
geröi bæði mörk Juventus en Aquil-
era mark Torino.
Fiorentina og Brescia gerðu 2-2
jafntefh. Brian Laudrup og Battistuta
gerðu mörk Fiorentina og komu hð-
inu yfir, 2-0, en Rúmenamir Hagi og
Raducioiu jöfnuðu fyrir Brescia.
Zola skoraði fyrir Napoh á 13. mín-
útu en Lombardo jafnaði metin fyrir
Sampdoria korteri seinna.
Parma er á miklu skriöi og vann
ömggan sigur á Caghari, 3-1. Mi-
notti, Aspriha og sjálfsmark frá Cagl-
iari gerðu mörk Parma en Herrera
mark Cagliari. Úrsht leikja urðu
þannig:
Ancona-Roma..................1-1
Atalanta-Pescara.............2-1
Fiorentina-Brescia...........2-2
Genoa-Udinese................1-0
Inter-AC Milan...............1-1
Juventus-Torino..............2-1
Lazio-Foggia.................1-1
Napoh-Sampdoria..............1-1
Parma-Cagliari...............3-1
Staða efstu liða er þessi:
ACMilan.......27 17 9 1 57-24 43
Inter.........27 13 10 4 46-31 36
Parma.........27 13 6 8 36-27 32
Lazio.........27 10 11 6 53-39 31
Juventus......27 11 8 8 42-35 30
Torino........27 8 13 6 30-23 29
Sampdoria.....27 10 9 8 41-38 29
Atalanta......27 11' 7 9 32-34 29
-GH
Þýska knattspyman:
Bæjarar aftur á toppinn
- Stuttgart gerði markalaust jafntefli
Bayern Múnchen komst á ný í
toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni
þegar hðið vann 2-0 sigur á Bomssia
Dortmund. Það voru þeir Jan Wout-
ers og Olaf Thon sem skoruðu mörk
Bæjara en á sama tíma töpuðu aðal-
keppinautar þeirra úr Werder Brem-
en fyrir Frankfurt, 3-0.
Eyjólfur Sverisson og félagar hans
í Stuttgart gerðu markalaust jafntefh
við Kaiserslautem.
„Við misstum mann út af eftir 20
mínútna leik og eftir það var á bratt-
ann að sækja en við áttum þó okkar
færi. Okkar takmark er að ná Evr-
ópusætinu en baráttan þar verður
hörö. Það eru enn 10 leikir eftir og
vonandi fer okkur að ganga betur,"
sagði Eyjólfur í samtali við DV en
hann lék ahan tímann í hði Stuttgart
í stöðu vamartengihðs. Eyjólfur
sagði að ekki væri enn komið á
hreint hvort hann færi með íslenska
landshðinu th Bandaríkjanna.
Stuttgart ætti að leika á laugaraag-
inn og forráðamenn væra ekkert
ýkja hrifnir að gefa menn sína eftir.
Úrsht leikja um helgina urðu þessi:
Frankfurt-Bremen.............3-0
HSV-Wattenscheid..............1-1
Köln-Gladbach............ „.1-2
Dresden-Saarbrúcken...........0-0
Bayem Múnchen-Dortmund......2-0
Bochum-Karlsruhe..............2-2
Kaiserslautern-Stuttgart....0-0
Schalke-Leverkusen..............
Uerdingen-Númberg...............
Staða efstu liða:
B Múnchen....25 14 8 3 48-27 36
WerderBremen25 13 8 4 40-24 34
Dortmund.....25 13 5 7 44-31 31
Leverkusen25 9 11 5 49-32 29
Karlsruhe.....25 10 8 7 45-43 28
Gladbach.....25 9 8 8 43-42 26
Schalke......25 8 9 8 27-31 25
Kaiserslautem .25 9 6 10 36-28 24
stuttgart....25 7 10 8 34-36 24
-GH
áSpáni
Mikh spenna er á toppi
spænsku 1. deildarinnar í knatt-
spymu eftir leiki helgarinnar.
Barcelona tapaöi fyrir Athletico
Bhbao en Real Madrid og Depor-
tivo Corana sigraðu bæöi.
Madrid vann sigur á Espanol og
skoraðu Fernardo Hierro, Pros-
inecki og Ivan Zamorano mörkin.
Úrsht leikja urðu þessi:
Bilabao-Barcelona..........1-0
Atl. Madrid-Celta..........1-1
Vahecano-Seviha............0-1
Oviedo-Osasuna.............1-2
Cadiz-Sociedad.............3-1
Espanol-Real Madrid........1-3
Corana-Albacete............3-2
Logrones-Real Burgos.......0-1
Valencia-Sporting..........2-0
Zaragoza-Tenerife..........2-2
Barcelona.,,39 18 8 3 71-28 44
RealMadrid29 19 6 4 58-23 44
Dep. Coruna29 18 7 4 55-24 43
Valenda....29 12 10 7 42-27 34
Tenerife...29 11 12 6 45-35 34
Atl.Madrid.29 13 8 8 4333 34
REYKJAVIKURMOT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
^WKR-VIKINGUR
í kvöld kl. 20.00
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
íbr mfl. karla, B-riðill krr
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
FYLKIR-VALUR
á morgun kl. 20.00
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
rriiiiimiini ixi
Golf á Madeir a
EIN VIKA MEÐ ÖLLU!
Deemi iwi verð á mann i tvibjli: 64.700
lnnifalid: Flug og gisting mcð morgunverði á hótel Roca Mar
í sjö nætur. Vallargjald er innifalið. Sex umferðir á 27 holu
golfvelli og afsláttur ef maki spilar líka. Akstur til og frá flug-
vclli og á golfvöllinn. Lúxusskoðunarfcrð með hádegisverði í
lok ferðar.
Ekki innifaliö: Flugvallarskattur, 1.250 kr.
Tvær vikur með öllu! Sapna og að ofan með gistingu í
14 nætur og 10 umferðir á golfvellinum.
Dœmi um verð i tvibjli: 81.500.
Flogið er um London til Funchal með Flugleið-
um og TAP - möguleiki á að stoppa í London
ef óskað er.
jUidsiiffiiina «
S íiiin/iiiiiiiler Dii-l mitisýu
Ftojklmlk: Austurstræli 12 • S. 91 • 69 tO 10 • Innanlandsterðir S. 91 ■ 69 10 70 • Simbrél 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241
Hótel Sögu við Hagatoro • S. 91 • 62 22 77 • Simbréf 91 • 62 24 60
Uirayil: RáðhústorQi 1 • S. 96 - 27 200 • Slmtuéf96 • 1 10 35 Keflntk: Hafnaioötu 35 • S. 92 ■ 13 400 • SlmWf 92 -1 34 90