Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Page 6
46
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL1993
Félagarnir Burke (Paul Gross) og Dexter (Peter Berg) nýkomnir til Aspen.
Bíóhöllin - Aspen Extreme:
Á skíðum í Aspen
Vinimir Burke og Dexter eru ekki
ánægðir með lífið í bílaverksmiðju í
Detroit og ákveða þvi aö flytja til
skíðaparadísarinnar Aspen og fara í
nám sem skíðakennarar. Það kemur
fljótt í ljós að Burke hefur einstæða
hæfileika á skíðum og verður því
fljótt vinsælastur meðal skíðakenn-
ara og lifir hinu ljúfa lífi til fulls.
Hann verður þó fljótt leiður á um-
stanginu og reynir að lækka öldum-
ar í kringum sig en það veldur nokkr-
um miskilningi. Aöalhlutverkin í
Aspen Extreme leika Paul Gross,
Peter Berg, Finola Hughes og Teri
Polo.
Aspen Extreme er fyrsta kvik-
myndin sem Patrick Hasburgh leik-
stýrir og byggir hann að nokkm á
eigin reynslu en hann bjó í Aspen í
nokkur ár og starfaði sem skíða-
kennari en var um leið ritstjóri
kynningarrits í Aspen. Eftir að hann
hætti skíðakennslu sneri hann sér
aifarið að skrifum og hefur í nokkum
tíma skrifað fyrir þekktar sjón-
varpsseríur.
-HK
Stjömubíó:
Helvakinn III
Leikstjórinn Clive Barker er þekkt-
astur fyrir Hellraiser-myndir sínar
tvær sem þykja með þeim skelfilegri
sem gerðar hafa verið á þessum vett-
vangi. Nú hefur Stjömubíó hafið
sýningar á þriðja hlutanum, Helvak-
anum III: Helviti á jörðu (Hellraiser
III: Hell on Earth). Ekki leikstýrir
Barker þriðja hlutanum en er fram-
leiðandi. Leikstjóri er Anthony
Hickox. Aðalhlutverk leika Terry
Farrell, Doug Bradley, Paula Mars-
hall og Kevin Bernhardt.
í þessum þriðja hluta endurnýjast
kynnin við Nálapúða sem nú er fast-
ur í nokkurs konar sálnafangelsi.
Þaðan kemst hann einungis ef hann
öðlast næga krafta sem hann fær
með því að nærast á mannverum.
Stærsta vandamálið er að sálnafang-
elsi hans er í New York og sleppi
hann er fjandinn laus í orðsins
fyllstu merkingu.
Helvakanum III er Nálapúði (Doug
Bradley) fastur i sálnafangelsi.
Bíóborgin:
Handagang-
ur í Japan
Hafnabolti er bandarísk íþrótt og
ekki leikin að neinu ráði annars stað-
ar í heiminum nema í Kanada og
Japan þar sem mikill áhugi er á þess-
ari íþrótt. Gamanmyndin Handa-
gangur í Japan (Mr. BasebaU) gerist
einmitt í Japan og segir frá banda-
rískri hafnaboltastjömu, sem er
keyptur til Japans, og reynslu hans
af íþróttinni þar. Tom SeUeck leikur
Jack EUiot sem hefur farið eigin leið-
ir í íþróttinni og komist upp með
það, enda þjálfurum nákvæmlega
sama, bara ef hann heldur áfram að
hitta boltann. Þegar myndin hefst á
hann aðeins við eitt vandamál að
stríöa. Hann hittir ekki boltann jafn
vel og áður og er því settur út úr Uði
sínu í Bandaríkjunum þrátt fyrir
hávær mótmæU hans. Og eina tílboð-
ið sem hann fær er frá Japan og tek-
ur hann því. En hann á eftir að kom-
ast að því að íþróttin er ekki eins
leikin í Japan og í Bandaríkjunum.
Leikstjóri myndarinnar er Ástral-
inn Fred Schepisi sem hefur jöfnum
höndum starfað í Bandaríkjunum,
ÁstraUu og Englandi. Meðal mynda,
Tom Selleck leikur amerískan
hafnaboltaleikara sem leikur með
japönsku liði í Handagangi í Japan.
sem hann hefur leikstýrt, má nefna
The Chant of Jimmy Blacksmith, Ice-
man, Plenty, Roxanne, A Cry in the
DarkogRussiaHouse. -HK
★★ ~1
Skæri í stað handa
Edward Sciss-
orhands er sér-
stök kvikmynd
og staðfestir að
Tim Burton er
frumlegastur
meðal jafningja í
Hollywood.
Myndina byggir
hann á hugmynd
sem hann fékk
sem bam um til-
búinn dreng sem hefur skæri í stað
handa. Johnny Deep leikur titUhlut-
verkið og gerir það vel. Edward er hið
bésta skinn, galhnn er bara að þegar
hann vUl sýna bhðu sína mega aðrir
vara sig. Það er ekkert grín aö lenda
í faðmlögum við hann. Edward Scissor-
hands er aUs ekki fyrir aUa. Frumlegar
og afar athygUsverðar sviðsetningar
dreifa oft athygU frá persónunum en
myndin kemur á óvart vegna ferskleika
og meðferðar söguþráðar sem flestir
hefðu notað í hryUingsmynd.
Edward Scissorhands - SAM-myndbönd.
Leikstjóri: Tim Burton. Aðalhiutverk: Johnny
Depp og Winona Ryder.
Bandarisk, 1990 - sýningartími 103 min.
Bönnuö bömum innan 12ára -HK
i @d
Blóð og sandur
Blood and Sand
fjallar um ungan
nautabana sem
verður meðal
þeirra bestu en
missir áhugann
og getuna þegar
hann hittir ver-
aldarvana stúlku
sem skiptir um
elskhuga eins og
aðrir um föt. Blo-
od and Sand er gerð af Spánverjum en
með bandarískum aðalleikurum og ber
fyrst að telja Sharon Stone sem sýnir
smávegis af þeim losta sem hún sýndi
enn betur í Basic Instict. Ástæðan tU
að Blood and Sand er komin á mynd-
band er örugglega sú að Stone leikur
í myndinni því myndin er frekar
ómerkileg. Þess má geta að þetta er
þriðja útgáfan af Blood and Sand. Fyrst
lék sjálfur Rudolph Valentino nauta-
banann 1922 og Tyrone Power 1941.
BLOOD AND SAND - Útgef. Myndform.
Leikstjóri: Javier Elorrieta. Aóalhlutverk:
Christopher Rydell og Sharon Stone.
Spönsk, 1989 - sýningartími 118 mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára. -HK
★★*/2
Götulíf í Harlem
Emest Dickerson er þekktur í
kvikmyndaheiminum sem kvik-
myndatökumaður Spike Lee.
Hefur hann stjómað kvikmynda-
töku á öUum hans myndum, nú
síðast Malcolm X, sem er viða-
mesta kvikmynd Spike Lee tU
þessa. Vinátta Lee og Dickerson
nær tíl þess tíma sem þeir báðir
voru viö nám í kvikmyndagerð.
Dickerson hefur einnig verið bak
við myndavéUna hjá öðram leik-
stjórum, má þar nefna Sex, Drugs
and Rock ’n’ RoU sem Eric Bogos-
ian og Deaf by Temptation sem
John Sayles leikstýrði. í miUitíð-
inni, frá þvi hann lauk við að
kvikmynda Jungle Fever og þar
til tökur á Malcolm X hófust, leik-
stýrði hann sinni fyrstu kvik-
mynd, Juice.
Juice er að mörgu leyti eftir-
tektarverð kvikmynd og greini-
legt er að Dickerson hefur sótt
lærdóm í Spike Lee. Myndin lýsir
þeirri hörðu baráttu sem ungl-
ingar strætisins í Harlem hverf-
inu í New York þurfa að heyja
dag hvern. Þar er freistandi að
stunda glæpi enda ekki mikla
vinnu að fá. Hin hörðu ungUnga-
gengi, sem hafa verið í umræð-
unni að undanfórnu, verða ein-
mitt tíl við aðstæður sem lýst er
í myndinni.
Sagan um fjóra unglingspUta
er eftirtektarverð. Þeir hafa enn
ekki tengst neinum glæp, en
ákveða kvöld eitt að ræna búð.
Rán þetta verður ekki á þann veg
sem þrír þeirra höfðu hugsað sér,
smáofbeldi til að verða sér úti um
fljóttekinn gróða. Það kemur
nefnUega í Ijós að það er skemmt
epli í hópnum. Einn þeirra er
haldinn slíkri oíbeldiskennd að
hann lætur sér ekki nægja að
skjóta afgreiðslumanninn í búð-
inni sem rænd er heldur drepur
hann einn úr hópnum þegar sá
mótmæhr þessum verknaði.
Sagan í Juice ristir ekki djúpt
og má þar kannski um kenna
reynslulausum leikurum sem ná
aldrei að lífga persónurnar al-
mennUega við og einnig það að
tónUstin, sem byggist á rappi, þar
sem sami takturinn er notaður
út alla myndina, dreifir athygl-
inni. Á móti kemur sérlega góð
kvikmyndum og sterk leikstjórn
hjá Dickerson. Er ég viss um að
hann getur gert betri mynd og
mun gera það.
JUICE
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Ernest R. Dickerson.
Aðalhlutverk: Omer Epps, Jermaine
Hopkins og Khalil Kain.
Bandarísk, 1992 - sýningartimi 95
mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára -HK
DV-myndbandalistinn
Tvær nýjar myndir koma inn á listann, Point Break og 1492,
Conquest of Paradise. Sú mynd sem leikstýrð er af Ridley Scott
fjallar um sögufræga ferð Kólumbusar til Ameríku. Á myndinni
er Gérard Depardieu i hlutverki Kólumbusar
1 (1) PatriotGames
2 (2) Whíte Men Can’t Jump
3 (3) Traces of Red
4 (6) Housesitter
5 (9) Bitter Moon
6 (6) Deep Cover
7 (7) Hot Shots
8 (11) Rush
9 (12) SleepingwiththeEnemy
10 (-) City of Joy
11 (13) Cutting Edge
12 (-) 1442
13 (8) Point Break
14 (14) California Man
15 (10) The Sands of Time
★ ★72
Fom fræg
Þaðerlangtsíð-
an Alan Arkin
hefur sést í stóru
hlutverki. Þessi
frábæri leikari,
sem á áram áður
var í hverju stór-
hlutverkin á fæt-
ur öðru, hefur j
helst sést í litlum
karakterhlut- a % «
verkum, en í Co- wk iÉi
operstown fær hans loks verðugt hlut-
verk þótt ekki sé myndin á við hans
bestu kvikmyndir. Leikur Arkin
gamla hafnaboltahetju, Harry Wilette,
sem hefur ekki getað fyrirgefið besta
vini sínum að hafa svikið hann á ögur-
stundu. Þegar svo vinurinn deyr þrjá-
tíu árum síöar sér hann eftir öllu sam-
an og fer í krossferö á fomar slóðir.
Því miður er dálítill „Ghost“-fílingur í
myndinni í stað þess aö vera bein frá-
sögn og spillir þaö fyrir en að ööru
leyti er um góöa skemmtun aö ræöa.
COOPERSTOWN - Útgef. Háskólabió.
Leikstjóri: Charles Haid. Aðalhlutverk: Alan
Arkin og Ed Begley jr.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 95 mín.
Leyfó ölium aldurshópum. -HK
★ 72
Óboðinn farþegi
Baby on Board
er gamanmynd
sem kemur í
kjölfar vinsælla
kvikmynda á
borð við Three
Men and a Baby.
Carol Kane leik-
ur Maríu, móður
lítiUar stelpu sem
hún skilur eftir í
leigubíl Emies á §££
miðri Manhattan. Sjálf er hún á flótta
undan mafíunni sem telur aö hún hafi
drepið eiginmann sinn sem var trygg-
ur samtökunum. Ernie, sem er ná-
kvæmnin og samviskusemin uppmál-
uð, lendir í ýmsum vandræðum út af
krakkanum, því þótt honum sé margt
til hsta lagt er barnapössun ekki hans
sterka hlið. Mynd þessi er sæmileg
afþreying, en ekkert meira. Flest atrið-
in era khsjukennd og grínið fer stund-
um fyrir ofan garö og neðan.
BABY ON BOARD - SAM-myndbönd.
Leikstjóri: Francis A. Schaeffer. Aóaihlut-
verk: Judge Reynhold og Carol Kane.
Bandarísk,, 1992 - sýningartimi 88 min.
Leyfð öllum aldurshópum -HK