Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Síða 6
46 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL1993 Félagarnir Burke (Paul Gross) og Dexter (Peter Berg) nýkomnir til Aspen. Bíóhöllin - Aspen Extreme: Á skíðum í Aspen Vinimir Burke og Dexter eru ekki ánægðir með lífið í bílaverksmiðju í Detroit og ákveða þvi aö flytja til skíðaparadísarinnar Aspen og fara í nám sem skíðakennarar. Það kemur fljótt í ljós að Burke hefur einstæða hæfileika á skíðum og verður því fljótt vinsælastur meðal skíðakenn- ara og lifir hinu ljúfa lífi til fulls. Hann verður þó fljótt leiður á um- stanginu og reynir að lækka öldum- ar í kringum sig en það veldur nokkr- um miskilningi. Aöalhlutverkin í Aspen Extreme leika Paul Gross, Peter Berg, Finola Hughes og Teri Polo. Aspen Extreme er fyrsta kvik- myndin sem Patrick Hasburgh leik- stýrir og byggir hann að nokkm á eigin reynslu en hann bjó í Aspen í nokkur ár og starfaði sem skíða- kennari en var um leið ritstjóri kynningarrits í Aspen. Eftir að hann hætti skíðakennslu sneri hann sér aifarið að skrifum og hefur í nokkum tíma skrifað fyrir þekktar sjón- varpsseríur. -HK Stjömubíó: Helvakinn III Leikstjórinn Clive Barker er þekkt- astur fyrir Hellraiser-myndir sínar tvær sem þykja með þeim skelfilegri sem gerðar hafa verið á þessum vett- vangi. Nú hefur Stjömubíó hafið sýningar á þriðja hlutanum, Helvak- anum III: Helviti á jörðu (Hellraiser III: Hell on Earth). Ekki leikstýrir Barker þriðja hlutanum en er fram- leiðandi. Leikstjóri er Anthony Hickox. Aðalhlutverk leika Terry Farrell, Doug Bradley, Paula Mars- hall og Kevin Bernhardt. í þessum þriðja hluta endurnýjast kynnin við Nálapúða sem nú er fast- ur í nokkurs konar sálnafangelsi. Þaðan kemst hann einungis ef hann öðlast næga krafta sem hann fær með því að nærast á mannverum. Stærsta vandamálið er að sálnafang- elsi hans er í New York og sleppi hann er fjandinn laus í orðsins fyllstu merkingu. Helvakanum III er Nálapúði (Doug Bradley) fastur i sálnafangelsi. Bíóborgin: Handagang- ur í Japan Hafnabolti er bandarísk íþrótt og ekki leikin að neinu ráði annars stað- ar í heiminum nema í Kanada og Japan þar sem mikill áhugi er á þess- ari íþrótt. Gamanmyndin Handa- gangur í Japan (Mr. BasebaU) gerist einmitt í Japan og segir frá banda- rískri hafnaboltastjömu, sem er keyptur til Japans, og reynslu hans af íþróttinni þar. Tom SeUeck leikur Jack EUiot sem hefur farið eigin leið- ir í íþróttinni og komist upp með það, enda þjálfurum nákvæmlega sama, bara ef hann heldur áfram að hitta boltann. Þegar myndin hefst á hann aðeins við eitt vandamál að stríöa. Hann hittir ekki boltann jafn vel og áður og er því settur út úr Uði sínu í Bandaríkjunum þrátt fyrir hávær mótmæU hans. Og eina tílboð- ið sem hann fær er frá Japan og tek- ur hann því. En hann á eftir að kom- ast að því að íþróttin er ekki eins leikin í Japan og í Bandaríkjunum. Leikstjóri myndarinnar er Ástral- inn Fred Schepisi sem hefur jöfnum höndum starfað í Bandaríkjunum, ÁstraUu og Englandi. Meðal mynda, Tom Selleck leikur amerískan hafnaboltaleikara sem leikur með japönsku liði í Handagangi í Japan. sem hann hefur leikstýrt, má nefna The Chant of Jimmy Blacksmith, Ice- man, Plenty, Roxanne, A Cry in the DarkogRussiaHouse. -HK ★★ ~1 Skæri í stað handa Edward Sciss- orhands er sér- stök kvikmynd og staðfestir að Tim Burton er frumlegastur meðal jafningja í Hollywood. Myndina byggir hann á hugmynd sem hann fékk sem bam um til- búinn dreng sem hefur skæri í stað handa. Johnny Deep leikur titUhlut- verkið og gerir það vel. Edward er hið bésta skinn, galhnn er bara að þegar hann vUl sýna bhðu sína mega aðrir vara sig. Það er ekkert grín aö lenda í faðmlögum við hann. Edward Scissor- hands er aUs ekki fyrir aUa. Frumlegar og afar athygUsverðar sviðsetningar dreifa oft athygU frá persónunum en myndin kemur á óvart vegna ferskleika og meðferðar söguþráðar sem flestir hefðu notað í hryUingsmynd. Edward Scissorhands - SAM-myndbönd. Leikstjóri: Tim Burton. Aðalhiutverk: Johnny Depp og Winona Ryder. Bandarisk, 1990 - sýningartími 103 min. Bönnuö bömum innan 12ára -HK i @d Blóð og sandur Blood and Sand fjallar um ungan nautabana sem verður meðal þeirra bestu en missir áhugann og getuna þegar hann hittir ver- aldarvana stúlku sem skiptir um elskhuga eins og aðrir um föt. Blo- od and Sand er gerð af Spánverjum en með bandarískum aðalleikurum og ber fyrst að telja Sharon Stone sem sýnir smávegis af þeim losta sem hún sýndi enn betur í Basic Instict. Ástæðan tU að Blood and Sand er komin á mynd- band er örugglega sú að Stone leikur í myndinni því myndin er frekar ómerkileg. Þess má geta að þetta er þriðja útgáfan af Blood and Sand. Fyrst lék sjálfur Rudolph Valentino nauta- banann 1922 og Tyrone Power 1941. BLOOD AND SAND - Útgef. Myndform. Leikstjóri: Javier Elorrieta. Aóalhlutverk: Christopher Rydell og Sharon Stone. Spönsk, 1989 - sýningartími 118 mín. Bönnuð börnum innan 12 ára. -HK ★★*/2 Götulíf í Harlem Emest Dickerson er þekktur í kvikmyndaheiminum sem kvik- myndatökumaður Spike Lee. Hefur hann stjómað kvikmynda- töku á öUum hans myndum, nú síðast Malcolm X, sem er viða- mesta kvikmynd Spike Lee tU þessa. Vinátta Lee og Dickerson nær tíl þess tíma sem þeir báðir voru viö nám í kvikmyndagerð. Dickerson hefur einnig verið bak við myndavéUna hjá öðram leik- stjórum, má þar nefna Sex, Drugs and Rock ’n’ RoU sem Eric Bogos- ian og Deaf by Temptation sem John Sayles leikstýrði. í miUitíð- inni, frá þvi hann lauk við að kvikmynda Jungle Fever og þar til tökur á Malcolm X hófust, leik- stýrði hann sinni fyrstu kvik- mynd, Juice. Juice er að mörgu leyti eftir- tektarverð kvikmynd og greini- legt er að Dickerson hefur sótt lærdóm í Spike Lee. Myndin lýsir þeirri hörðu baráttu sem ungl- ingar strætisins í Harlem hverf- inu í New York þurfa að heyja dag hvern. Þar er freistandi að stunda glæpi enda ekki mikla vinnu að fá. Hin hörðu ungUnga- gengi, sem hafa verið í umræð- unni að undanfórnu, verða ein- mitt tíl við aðstæður sem lýst er í myndinni. Sagan um fjóra unglingspUta er eftirtektarverð. Þeir hafa enn ekki tengst neinum glæp, en ákveða kvöld eitt að ræna búð. Rán þetta verður ekki á þann veg sem þrír þeirra höfðu hugsað sér, smáofbeldi til að verða sér úti um fljóttekinn gróða. Það kemur nefnUega í Ijós að það er skemmt epli í hópnum. Einn þeirra er haldinn slíkri oíbeldiskennd að hann lætur sér ekki nægja að skjóta afgreiðslumanninn í búð- inni sem rænd er heldur drepur hann einn úr hópnum þegar sá mótmæhr þessum verknaði. Sagan í Juice ristir ekki djúpt og má þar kannski um kenna reynslulausum leikurum sem ná aldrei að lífga persónurnar al- mennUega við og einnig það að tónUstin, sem byggist á rappi, þar sem sami takturinn er notaður út alla myndina, dreifir athygl- inni. Á móti kemur sérlega góð kvikmyndum og sterk leikstjórn hjá Dickerson. Er ég viss um að hann getur gert betri mynd og mun gera það. JUICE Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Ernest R. Dickerson. Aðalhlutverk: Omer Epps, Jermaine Hopkins og Khalil Kain. Bandarísk, 1992 - sýningartimi 95 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára -HK DV-myndbandalistinn Tvær nýjar myndir koma inn á listann, Point Break og 1492, Conquest of Paradise. Sú mynd sem leikstýrð er af Ridley Scott fjallar um sögufræga ferð Kólumbusar til Ameríku. Á myndinni er Gérard Depardieu i hlutverki Kólumbusar 1 (1) PatriotGames 2 (2) Whíte Men Can’t Jump 3 (3) Traces of Red 4 (6) Housesitter 5 (9) Bitter Moon 6 (6) Deep Cover 7 (7) Hot Shots 8 (11) Rush 9 (12) SleepingwiththeEnemy 10 (-) City of Joy 11 (13) Cutting Edge 12 (-) 1442 13 (8) Point Break 14 (14) California Man 15 (10) The Sands of Time ★ ★72 Fom fræg Þaðerlangtsíð- an Alan Arkin hefur sést í stóru hlutverki. Þessi frábæri leikari, sem á áram áður var í hverju stór- hlutverkin á fæt- ur öðru, hefur j helst sést í litlum karakterhlut- a % « verkum, en í Co- wk iÉi operstown fær hans loks verðugt hlut- verk þótt ekki sé myndin á við hans bestu kvikmyndir. Leikur Arkin gamla hafnaboltahetju, Harry Wilette, sem hefur ekki getað fyrirgefið besta vini sínum að hafa svikið hann á ögur- stundu. Þegar svo vinurinn deyr þrjá- tíu árum síöar sér hann eftir öllu sam- an og fer í krossferö á fomar slóðir. Því miður er dálítill „Ghost“-fílingur í myndinni í stað þess aö vera bein frá- sögn og spillir þaö fyrir en að ööru leyti er um góöa skemmtun aö ræöa. COOPERSTOWN - Útgef. Háskólabió. Leikstjóri: Charles Haid. Aðalhlutverk: Alan Arkin og Ed Begley jr. Bandarisk, 1992 - sýningartimi 95 mín. Leyfó ölium aldurshópum. -HK ★ 72 Óboðinn farþegi Baby on Board er gamanmynd sem kemur í kjölfar vinsælla kvikmynda á borð við Three Men and a Baby. Carol Kane leik- ur Maríu, móður lítiUar stelpu sem hún skilur eftir í leigubíl Emies á §££ miðri Manhattan. Sjálf er hún á flótta undan mafíunni sem telur aö hún hafi drepið eiginmann sinn sem var trygg- ur samtökunum. Ernie, sem er ná- kvæmnin og samviskusemin uppmál- uð, lendir í ýmsum vandræðum út af krakkanum, því þótt honum sé margt til hsta lagt er barnapössun ekki hans sterka hlið. Mynd þessi er sæmileg afþreying, en ekkert meira. Flest atrið- in era khsjukennd og grínið fer stund- um fyrir ofan garö og neðan. BABY ON BOARD - SAM-myndbönd. Leikstjóri: Francis A. Schaeffer. Aóaihlut- verk: Judge Reynhold og Carol Kane. Bandarísk,, 1992 - sýningartimi 88 min. Leyfð öllum aldurshópum -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.