Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Page 4
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
Særðir ráðherrar á
logandi púðurtunnu
- kalkúnagarg og skinkuhrín sameinar framsóknarmenn allra flokka
Opinbert ósætti er nú milli formanna stjórnarflokkanna, Daviðs Oddssonar
og Jóns Baldvins Hannibalssonar, vegna ummæla sem fallið hafa um land-
búnaðarmál að undanförnu. Báðir eru þó í sáttahug enda stjórnarsamstarf-
ið að veði.
„Kalkúnagargið og skinkuhrínið
undanfarnar vikur kann að verða til
þess að framsóknarmenn allra
flokka sameinist í bölbænum um
hrakfarir Alþýðuflokksins. Það kann
að reynast ríkisstjórninni skeinu-
hætt því í Sjálfstæðisflokknum eru
til þingmenn sem vilja veija núver-
andi landbúnaðarkerfi meö oddi og
egg. Hvað þeir gera þegar þing kemur
saman er ógerlegt að vita.“
Eitthvað á þessa leið hljómaði orð-
ræða manns sem í vikunni ræddi
stjórnmálaástandið við kunningja
sína í sundlaugunum. Þeir jánkuöu
þessu félagamir enda sannleikskorn
í oröum mannsins.
Löggæslan kölluð til
Harkalega hefur verið tekist á um
landbúnaðarmál í ríkisstjórninni
undanfama daga, svo harkalega að
einstakir ráðherrar hafa kallað á lög-
gæslumenn sér til aðstoðar vegna
pólitískra samskiptaörðugleika á
stjómarheimilinu.
Þannig leitaði Jón Ðaldvin Hanni-
balsson eftir aðstoð lögreglu við aö
ná sambandi viö Davíð Oddsson eftir
að sá úrskurður féll að Halldór
Blöndal skyldi hafa forræði yfir inn-
flutningi landbúnaðarvara. Og með
svipuðu hugarfari leituðu Friðrik
Sophusson og Halldór Blöndal eftir
aðstoð ríkistollstjóra þegar Jón Bald-
vin heimilaði innflutning á nokkram
kalkúnalæram um helgina.
„í þeim deilum, sem orðið hafa
vegna tilrauna til innflutnings á
svína- og kalkúnakjöti, hefur verið
haldið á viðkvæmu málum á þann
veg að það nálgast hreinan farsa.
Þetta er bagalegt fyrir bæði neytend-
ur og bændur og alls ekki að vilja
okkar sjálfstæðismanna," segir
Björn Bjamason, varaformaður
þingflokks sjálfstæðismanna.
Uppsafnaður pirringur
Deilur þessar eiga sér langan að-
draganda. Þótt deilt hafi verið um
kalkúnalæri og skinkubita þá býr
undir niðri uppsafnaður pirringur
stjómarliða með stjórnarsamstarfið
og árangursleysi ríkisstjórnarinnar
á mörgum sviðum. Hvað varðar
landbúnaðarmálin sem slík virðist
um grandvallarágreining að ræða.
Lítill árangur hefur náðst í lækkun
ríkisútgjalda og skattar hafa hækkað
á kjörtímabilinu. Enn hefur ekki tek-
ist að ljúka EES-málinu og á sviði
sjávarútvegsmála hefur ekki orðið
sú hagræðing sem stefnt var að. Lítil
sem engin atvinnuuppbygging hefur
átt sér stað og þrátt fyrir góðæri til
sjávar og sveita hefur kreppan hel-
tekið heimilin í landinu.
Meöal krata hafa frá upphafi
stjómarsamstarfsins verið skiptar
skoðanir um samstarfið '/iö Sjálf-
stæðisflokkinn. Að undanfomu hafa
gagnrýniraddirnar orðið háværari.
Vinstri armurinn, með Jóhönnu Sig-
urðardóttur í broddi fylkingar, gagn-
Fréttaljós .
Kristján Ari Arason
rýnir stjómina fyrir félagslega
hörku. Nú nýverið hótaði Jóhanna
afsögn, samþykkti ríkisstjómin ekki
hugmyndir hennar um húsaleigu-
bætur.
í frjálslyndari armi Alþýöuflokks-
ins hefur gagnrýnin einkum beinst
að slökum árangri ríkisstjórnarinn-
ar í efnahagsmálum. Bent er á að
skuldir þjóðarinnar séu nú að nálg-
ast hættumörk og því sé brýnt aö
grípa til kerfisbreytinga í útgjalda-
frekustu ráðuneytunum. í því sam-
bandi hafa augu krata einkum beinst
að landbúnaðarkerfinu sem kostar
skattgreiðendur og neytendur vel á
annan tug milljarða á ári í formi rík-
isstyrkja og innnflutningsverndar.
Davíð í vanda
Innan Sjálfstæðisflokksins hafa
menn lítt kippt sér upp við það þótt
kratar maldi í móinn. Forystumenn
flokksins, með þá Davíð Oddsson og
Þorstein Pálsson í broddi fylkingar,
hafa átt í hörðum átökum og deilum
um völd og pólitískar áherslur. Inn-
an þingflokksins hefur Davíð átt í
erfiðleikum meö að stýra sínum
mönnum til liðs viö stjómina.
í veigamiklum málum hafa þing-
menn risið upp gegn formanninum,
til að mynda í EES-málinu og við
afgreiðslu fjárlaga. Til þessa hefur
Davíð þó tekist að yfirvinna þessa
erfiðleika. í ríkari mæli virðist hann
samt neyðast til að taka afstöðu með
þeim þingmönnum sem telja sér
skylt að verja hagsmuni kerfisins.
Að sama skapi hefur hann neyðst til
að snúa baki við Jóni Baldvini, þvert
á þaö heiðursmannasamkomulag
sem formennimir gerðu með sér í
Viðey.
Steininn tók úr í þessum efnum
þegar Davíð gaf Halldóri Blöndal for-
ræði í innflutningi landbúnaðarvara.
Má vera að með þessu hafi Davíð
tekist að koma í veg fyrir hallarbylt-
ingu á landsfundi Sjálfstæöisflokks'
ins í lok næsta mánaðar. Ekki er
lengur rætt um að Halldór gefi kost
á sér sem næsti varaformaður
flokksins en þess í stað kann stjóm-
arsamstarfið að shtna.
Kjötið saltað í púðurtunnu
Deilan um innflutning landbúnað-
arvara hefur náð hámarki að sinni.
Ólíklegt er talið að Egill Jónsson láti
verða af hótun sinni um aö leggja
fram þingmannafrumvarp sem
tryggi landbúnaðarráðherra varan-
legt forræði yfir innflutningnum.
Enda hefur Jón Baldvin lýst því yfir
að hann lúti úrskurði Davíðs þar til
dómstólar komast að annarri niður-
stöðu. í báðum stjórnarflokkum er
horft til þess að náist niðurstaða í
yfirstandandi GATT-viðræðum
muni leiðin að auknum innflutningi
landbúnaðarvara verða mörkuð,
jafnvel með þjóðarsátt.
Framundan era hins vegar hörð
átök um fjárlagafrumvarp. Kratar
vilja aukinn niðurskurð en af því eru
ráðherrar Sjálfstæðisflokks lítt
hrifnir. í landbúnaðarráðuneytinu
ætla menn meira að segja að færa
bændum tugmilljónir að gjöf í bein-
greiðslum umfram það sem búvöru-
samningur kveður á um. Að sögn
stjómarhða sem náið hafa fylgst með
fjárlagaundirbúningnum situr ríkis-
stjómin í raun á púðurtunnu.
„Það hafa engir fundir verið haldn-
ir í þingflokknum og því erfitt aö
gera sér grein fyrir því hvernig menn
eru stemmdir í þingbyrjun. Til þessa
hefur verið reynt að láta ekki sker-
ast í odda en hvað verður veit ég
ekki,“ sagði einn af eldri þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins í samtali við
DV.
Vantrauststillaga eflir krata
Þótt sfjómin sitji á púðurtunnu
hefur eldur samt ekki verið lagður
að kveikjuþræðinum. Af samtölum
við stjómarhða að dæma er afar ólík-
legt að þeir muni þiggja hjálp stjóm-
arandstæðinga, komi til bálfarar. Því
er afar ólíklegt að vantrauststillaga
á hendur Jóni Baldvini eða stjórn-
inni verði studd af einstökum þing-
mönnum stjórnarflokkanna. Mat
flestra er að komi fram vantrausts-
thaga í haust vegna afstöðu Alþýöu-
flokksins í landbúnaðarmálum verði
hún th þess eins að treysta stöðu
Jóns Baldvins og krata í stjórnar-
samstarfmu.
„Þrátt fyrir þetta moldviðri má
ekki missa sjónar á aðalatriðum
málsins. Að því er stefnt að samið
verði um búvörur á alþjóðavett-
vangi. íslenskur landbúnaður verð-
ur aö fá tóm th að laga sig að þeim
breytingum. Hann verður, einnig að
vera með í ráðum um hvemig það
verður gert. Á þessu úrlausnarefni
er nauðsynlegt að taka og sé vilji til
þess getur ríkisstjórnin, undir for-
ystu Davíðs Oddssonar, leitt það mál
th lykta,“ segir Bjöm Bjarnason.
-kaa
í dag mælir Dagfari
Virkilega óheiðarlegur
Davíð Oddsson segir að Jón Bald-
vin Hannibalsson hafi verið óheið-
arlegur í landbúnaðarmálunum.,
Jón Baldvin segir að Davíð sé
óheiðarlegur að halda því fram að
Jón sé óheiðarlegur. Þessar ásak-
anir era erfiðasta úrlausnarefni
ríkisstjórnarinnar um þessar
mundir. Kalkúnarnir ætla að draga
dilk á eftir sér. Stjómarandstaðan
hefur meira að segja vaknað aftur
th lífsins og vhl aö Alþingi sé kallað
saman th að fá að fylgjast með því
hver sé óheiðarlegur við hvem.
í viðtah viö Morgunblaðið um
helgina segir Davíð: „Þetta er í
fyrsta sinn sem Alþýðuflokkurinn
er virkhega óheiðarlegur að mínu
viti.“ Það er sem sagt ekki einasta
að kratamir séu óheiðarlegir, held-
ur era þeir „virkhega óheiöarleg-
ir“.
Ef það er skoðun Davíðs að Al-
þýðuflokkurinn hafi ekki rétt á því
að hafa skoðun í landbúnaðarmál-
um, sem sé ööravísi en skoöanir
Davíðs og Sjálfstæðisflokksins, þá
er það rétt hjá Davíð að Alþýðu-
flokkurinn er óheiðarlegur. Jón
Baldvin getur ekki komiö aftan að
Sjálfstæðisflokknum með skoðanir
sem era á skjön við skoöanir Sjálf-
stæðisflokksins. Það er óheiðarlegt
af Jón Baldvin að fylgja skoðunum
sínum eftir með því að hleypa kalk-
únunum inn í landið þegar Jón
veit að kalkúnar koma Sjálfstæðis-
flokknum hla og era jafnvel verri
heldur en kjósendurnir ef th kosn-
inga kemur. Sjálfstæöislfokkurinn
ræður við kjósenduma en ekki
kalkúna sem era fluttir inn í landið
í skjóli Alþýðuflokksins.
Ef það er skoðun Jóns Baldvins
að Alþýðuflokkurinn megi hafa
skoðun án þess að sú skoðun fari
endhega saman við skoðun Sjálf-
stæöisflokksins þá er það rétt hjá
Jóni að Davíð sé óheiðarlegur með
því að segja að Jón sé óheiðarleg-
ur. Alþýðuflokkurinn hefur alltaf
verið þeirrar skoðunar að íslend-
ingar mættu éta kalkúna án þess
að spyrja Sjálfstæðisflokkinn leyf-
is. Alþýðuflokkurinn vissi ekki og
veit ekki til að það standi nokkurs
staðar í stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins né heldur í stjórnarsamn-
ingi að ríkisstjómin eigi að vera á
móti því að íslendingar éti kalkúna.
Þetta mál kann að hafa alvarlegar
afleiðingar. Ef íslendingar fá leyfi
th aö hafa kalkún í matinn stefnir
það stjórnarsamstarfinu í hættu
vegna þess að sjálfstæðismenn una
því ekki að kratarnir og Jón Bald-
vin leyfi hvaða mat sem er. Ef Is-
lendingum verður hins vegar
bannaö að leggja kalkúninn sér th
munns er stjórnarsamstarfið
sömuleiðis í hættu, því kratar una
því ekki að sjálfstæðismenn ákveði
hvað fólk leggur sér til munns.
Reyndar hefur Davíð Oddsson
bent á að Sjálfstæöisflokkurinn
vhji standa vörö um sjálfstæði ein-
stakhnganna. Það á hins vegar ekki
við um mataræði eða matseðla, þar
sem flokkurinn telur það beinlínis
vera í sínum verkahring að vemda
sjálfstæði einstaklinganna með því
að hafa skoðun á þvi hvað sé í
matinn hjá einstaklingunum sem
flokkurinn vhl standa vörö um.
Alþýðuflokkurinn hefur ekki skihð
þetta grundvallarsjónarmið. Al-
þýðuflokkurinn er ekki Sjálfstæð-
isflokkur og veit þess vegna ahs
ekki hvað sjálfstæði einstaklinga
snýst um. Sjálfstæði einstakhnga
snýst um það að Sjálfstæðisflokk-
urinn veiji einstakhngana fyrir því
aö ákveða sjálfir hvað þeir boröa
þegar þeir borða. Það telst að mati
formanns Sjálfstæðisflokksins
„virkilega óheiðarlegt" þegar am-
ast er við þessari lífsskoðun flokks-
ins.
Stjórnarandstaðan vhl fá úr því
skorið hvor sé óheiðarlegur við
hvom. Er Jón Baldvin óheiðarlegri
en Davíð? Er Davíð óheiðarlegur
með því aö segja áð Jón Baldvin
sé óheiðarlegur eða er Jón Baldvin
óheiðarlegur með því að mótmæla
því að Davíð segi að Jón sé óheiðar-
legur? Og hver er munurinn á því
að vera óheiðarlegur og „virkilega
óheiðarlegur"?
Málið snýst ekki lengur um stefn-
ur eða störf. Ekki heldur um kalk-
úna eða svínabóga. Máhð snýst
ekki um sjálfstæði einstaklinga eða
félagslegt réttlæti. Málið snýst um
það hvort Davíö sé óheiðarlegur
eða Jón Baldvin. Og úr því verður
að fást skorið hvort Jón Baldvin
sé óheiðarlegur eða virkilega
óheiðarlegur og í hverju sá munur
er fólginn.
Dagfari