Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
Stuttar fréttir
Uúönd
Utilvonumfrið
Izetbegovic,
forseti Bosníu,
sagöi í gær aö
lítil von væri
um frið í land-
inu á næst-
unni.
Farþegavél skotin niður
Uppreisnarmenn í Abkhaziu-
héraði 1 Georgíu skutu í gær nið-
ur farþegaflugvél. Með henni fór-
ust 25 menn. Meðal farþega var
friðarsendinefhd frá Georgíu-
stjórn.
PLO'leiðtogi skotinn
Ókunnir Palestínumenn skutu
í gær einn helsta leiðtoga PLO á
Gazaströndinni.
Rabin í kröppum dansi
Stjómarand-
stæðingar voru
uppivööslu-
samir á ísra-
elska þinginu í
gærogheyrðist
ekki mannsins
mál þegar Rabin forsætisráö-
herra mælti fyrir friðarsamning-
um við Palestínumenn.
31 blökkumaður drepinn
Ofbeldismenn drápu 31 blökku-
mann í Suður-Afríku í gær í árás
á langferðabíl og síðar á hótel.
Demjanjukheim
John Demj-
anjuk er farinn
frá ísrael til
Bandaríkjanna
eftir að hafa
verið sýknaður
af ákæru um
stríðsglæpi. ísraelsmenn héldu
að hann væri nasistaböðullinn
Ivan grimmi.
Stríðið kynnt NATO
Sáttasemjarar Sameinuðu þjóð-
anna í Bosniudeilunni kynntu
foringjum NATO ástand mála í
stríöinu í gær.
Vinstri stjórn í Póllandi
Fyrrum kommúnistar i Pól-
landi hafa leitað eftir myndun
vinstri stjómar í kjölfar kosn-
ingasigurs um helgina.
Jó-jó með Gatt
Stjórnir ríkja Evrópubanda-
lagsins eru að finna leið út úr
deilunni við Bandaríkjamenn um
viðskipti með landbúnaðarvörur.
Ýmist syrtir í álinn eða birtir til
í deilunni.
Craxisetturirannsókn
Rannsaka á afskipti Bettino
Craxi, fyrrum forsætisráðherra á
Ítalíu, af meðferð þróunarhjálpar
ítala.
Tveir Frakkar drepnir
Tveimur
frönskum
landmælinga-
mönnum var.
rænt í vestur-
hluta Alsfrs og
þeir síðan
drepnir. íslamskir heittrúar-
menn voru þar að verki.
Mannskæður f ellibylur
Að minnsta kosti íjórtán manns
voru taldir af eftir að fellibylur-
inn Gert fór með úrhellisrigningu
yfir austurhluta Mexíkó.
Laura litta vöknuð
Laura litla Davies, sem í voru
grædd sex ný hffæri á dögunum,
er komin til meðvitundar og er á
góðum batavegi. Hún er þó enn á
gjörgæsludeild bamasjúkrahúss-
ins í Pittsburgh í Bandaríkjun-
urn. Reuter
Kommúnistar söfnuðust saman fyrir framan stjórnaraðsetur Borís Jeltsín Rússlandsforseta í gærkvöldi eftir að hann hafði rofið þing og boðað til kosninga
í sjónvarpsávarpi. Á þriðja þúsund menn voru við Hvíta húsið og hétu þeir á almenning að rísa upp gegn Jeltsin í nafni þjóðarinnnar og fósturjarðarinnar.
Fáir tóku kallinu og í morgun var allt með kyrrum kjörum. Simamyndir Reuter
Kyrrð og ró 1 Moskvu í morgun þrátt fyrir spennu vegna þingrofsins:
Jeltsín kannaði hug
sveita hersins fyrst
- saéði Ólafur Egilsson, sendiherra íslands í Moskvu, í samtali 1 morgun
„Þaö er greinilegt að Borís Jeltsín
undirbjó þingrofið nákvæmlega. Fáir
dagar eru liðnir frá því hann heim-
sótti hersveitir á vegum innanríkis-
ráðuneytisins og hefur þá væntan-
lega tryggt sér stuðning þeirra. Það
hefur og komiö á daginn að þessar
sveitir eru hliðhollar forsetanum,"
sagði Ólafur Egilssön, sendiherra ís-
lands í Moskvu, í samtali við DV í
morgun.
Ólafur sagði að allt værí með friði
í Moskvu þrátt fyrir spennu. Fólk
sinnti erindum sínum eins og venju-
lega og enginn mannsöfnuður væri
lengur við stjórnaraðsetrið í Hvíta
húsinu. Þar eru þó tvö til þrjú hundr-
uö hermenn en að öðru leyti fer lítið
fyrir hernum.
„Starfsfólk, sem kom hér í sendi-
ráðið í morgun, sá aðeins fáeina
vörubíla með hermönnum á leið
sinni til vinnu,“ sagði Ólafur. „Fólk
hélt ró sinni furðanlega þegar valda-
ránið var framið 1991. Nú virðast
menn enn rólegri. Almenningur er
orðinn langþreyttur á þrátefh þings
og forseta og það er útbreidd skoðun
að þessar deilur hafi tafið efnahags-
umbætur.
Nú er vandséð hvernig stuðningur
við þingið getur bætt kjör almenn-
ings. Því er líklegast að allur fjöldinn
standi að baki Jeltsín forseta. Hann
er þjóðkjörinn og fékk staðfestingu á
umboði sínu í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni í vor. Þingið er arfur frá tíma
Sovétríkjanna og það starfar eftir
sovésku stjórnarskránni."
Ólafur sagði aö í gærkvöldi hefðu
Borís Jeltsín Rússlandsforseti.
á þriðja þúsund manna mótmælt við
Hvíta húsið en nú í morgun væri þar
enginn. „Ég talaði í morgun við ís-
lendinga sem búa á hóteli handan
árinnar og þeir urðu ekki varir við
mótmæli," sagði Ólafur.
„Núna skiptir mestu hvemig
stjómendur einstakra sjálfstjórnar-
héraða innan Rússlands taka tíðind-
unum og hvernig tekst til með kosn-
ingarnar 11. og 12. desember. Fram
að því má búast við að ríki millibils-
ástand þar sem Jelstín stjórnar með
tilskipunum og þingið reynir aö
þvælast fyrir.
Viðbrögð þingmanna nú eru ekki
óeðlileg. Valdatíma þeirra lýkur með
þingrofinu og nú þurfa þeir að leita
umboðs hjá þjóðinni," sagði Ólafur.
Þingrof og kosningar
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
ákvaö í gær aö ljúka þráteflinu við
þingið um völdin með því að rjúfa
þing og boða til kosninga 11. og 12.
desember. Þessi ákvörðun kom á
óvart þótt aht bendi til að Jeltsín
hafi undirbúiö hana vel og látið til
skarar skríða á réttum tíma.
í raun era nú tveir forsetar í Rúss-
landi og þing sem bæði situr og situr
ekki. Aíexander Rútskoj varaforseti
sór í gær embættiseið sem forseti og
Jeltsín var leystur frá störfum.
Staða þessara tveggja „forseta" er
þó að því leyti ólík að Jeltsín situr
sem fastast enda þjóðkjörinn.
Rútskoj hefur aftur á móti aö baki
sér 200 menn sem nú em valdalaus-
ir. Brottrekstur Jeltsíns er því mark-
laus.
Reuter
Alexander Rútskoj hefur varið emb-
ættiseið sem forseti en enginn tekur
mark á honum. Simamynd Reuter
Samanburður á atburðum 1991 og nú:
Forsetinn öruggur
Boris Jeltsín Rússlandsforseti
hefur það fram yfir forvera sinn,
Michaíl Gorhatsjov, aö hann hefur
undirtökin í baráttunni við and-
stæðinga sína. Hann varð fyrri til
og kom harðlínuöflunum í opna
skjöldu.
Þetta er meginmunurinn á at-
burðum nú og fyrir tveimur árum.
Gorbatsjov var þá þolandinn. Hann
reiknaði ekki meö aö gömlu aftur-
haldsöfhn létu til skarar skríða og
var í fríi þegar honum var steypt í
hallarbyltingu. Eftir það náði hann
aldrei Sömu stöðu og fyrr þótt hann
hjarði við völd þar til Jeltsín bolaðí
honum frá.
Annar munur er sá Jeltsín í óhag
að hann á ekki stuðning hersins
vísan þótt allt hti út fyrir aö herinn
ætli að sitja hjá. Þegar valdaráns-
menn lögðu Kreml undir sig brást
þeim að tryggja sér stuðning hers-
ins og stríðshetjan Alexander
Rutskoj sá til þess að herinn sæti
hjá.
Rútskoj hlaut embætti varafor-
seta að iaunum en nú litur ekki út
fyrir að hann hafi sömu tök á hern-
um og áöur. Jeltsin getur því fyrst
um sinn andað rólega. Hættan á
beitinguhersinseróveruleg. TT