Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Side 9
9
MIÐVIKUDAGUR
flijnAúu>nvai¥
22. SEPTEMBER 1993
Útlönd
Borís Jeltsín
sýpurteíbeinni
útsendingu
Borís Jeltsín
Rússlandsfor-
seti geröi hlé á
ræöu sinni sem
srád var beint
í rússneska
sjónvarpinu til
að fá sér tesopa
úr dýrindis
postulínsbolla áður en hann til-
kynnti um þá örlagaríku ákvörð-
un sína aö leysa upp þing lands-
ins,
Það fór ekkert á milli mála hvaö
vakti fyrir Jeltsin. Höndin, sem
hélt á bollanum, var styrk, öfugt
við titrandi hendur Gennadíjs
Janajevs, leiðtoga valdaránstil-
raunar harðlínumanna í ágúst
1991. Titrandi hendur hans þóttu
fyrsta visbending þess áð taugar
neyðamefndar kommúnista
væru að gefa sig.
Rússardeilaum
yfirráðkjarn-
orkutakkans
í annað sinn á tveimur árum
deila leiðtogar Rússlands um yf-
irráðin yfir herafla landsins og
takkanum sem stjómar stóm
kjamorkuvopnabúri hans.
Aðeins nokkram klukkustund-
um eflir að Jeltsín leysti upp
þingið setti það Alexander
Rutskoj varaforseta í forsetaemb-
ættið.
En eftir fyrstu nóttina með „tví-
skiptu forsetavaldi“ benti ekkert
til annars en að Jeltsín hefði fulla
stjórn á kjarnorkuhnappnum.
Hersveitir voru í búðum sínum
og Pavel Gratsjev vamarmála-
ráðherra virtist halda tryggð við
Jeltsín þótt sumar fregnir
hermdu að hann væri lítt hrifmn.
Engarfréttir
hafaboristum
óróaíRússlandi
Viktor Jerin, innanríkisráð-
herra Rússlands, sagðí í morgun
aö ekki heföu borist neinar fregn-
ir af óróa í landinu eftir aö Jelts-
ín forseti tilkynnti að hann heíöi
sent þingmenn heim, aö sögn
fréttastofunnar Interfax.
„Upplýsingar úr öllum héruð-
um Rússlands benda til þess að
öryggi íbúanna sé tryggt. Til
þessa hefur ekki frést af neinum
stórtíöindum. Ástandið er ró-
iegt,“ sagði hann.
Rússneski patrí-
arkinnvararvið
borgarastríði
Aleksíj II, patríarki rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunnar, varaði
landa sína við hættunum af
borgarastyrjöld í gær og hvatti til
þess að stjómraálakreppan í
iandinu yrði leyst án blóðsúthell-
inga.
„Viö höfum þegar séð miklu
blóði úthellt, bæði í lýðveldum
fyrrum Sovétríkjanna og síöan í
Júgóslavíu og við vildum gjarnan
vara Rússa við þessu,“ sagði
Aleksíi II þegar hann kom til San
Francisco í gær.
Deilt umyfirráð
yfirseðlabanka
Rússneska þingið fyrirskipaði
seðlabanka landsins i nótt aö
hætta aö fjármagna stíórn lands-
ins eftir að Jeltsín forseti leysti
upp þingið.
Jeltsín hafði áður fyrirskipað
að bankinn skyldi fara að tilskip-
unum forsetans þar til nýjar
kosningar hefðu farið fram.
Bankinn heyrir þó formlega und-
irþingið. Reuter
Vestrænir leiðtogar
styðja Borís Jeltsín
Bill Clinton Bandaríkjaforseti var
í fararbroddi vestrænna leiðtoga þeg-
ar hann lýsti yflr stuðningi sínum
við Borís Jeltsín Rússlandsforseta
eftir að Jeltsín leysti upp þingið í
gær. Stuðningur Clintons kom þó
ekki fyrr en Jeltsín hafði fullvissað
hann um að kosningamar, sem hann
hefur boðað til í desember, verði
frjálsar.
Clinton var óviðbúinn tíðindunum
frá Moskvu en hann átti sautján mín-
útna símtal við Jeltsín og lýsti að því
loknu yflr ótvíræðum stuðningi sín-
um við Rússlandsforseta.
Fijótir til stuðnings
Þótt flestar vestrænar ríkisstjórnir
fengju aðeins klukkutíma viðvörun
vora þær fljótari að lýsa yfir stuðn-
ingi sínum en þegar harðlínumenn
gerðu tilraun til valdaráns í ágúst
1991 sem Jeltsín stóð af sér. Þá virt-
ust nokkrir leiðtogar Vesturlanda,
svo sem Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti, viðurkenna lögmæti
valdaránsins, að minnsta kosti í byrj-
un.
í þetta skipti tjáði Mitterrand sig
ekki en Alain Juppé, utanríkisráð-
herra Frakklands, lýsti yflr stuðn-
ingi sínum við Jeltsín.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sem er á férðalagi í Malas-
íu, sendi Jeltsín stuðningsyfirlýs-
ingu.
Niels Helveg Petersen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur; var varkár í
stuðningsyfirlýsingu sinni við að-
gerðir Jeltsíns en hann hvatti til þess
að leyst yrði úr valdabaráttu Rúss-
landsforseta og þingsins á lýðræðis-
legan hátt.
Bill Clinton Bandarikjaforseti ræddi
við Jeltsín Rússlandsforseta í sima
í gær. Simamynd Reuter
Nauðsynleg ákvörðun
Carl Bildt, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, harmaði að Jeltsín skyldi
leysa upp þingið en sagði það hafa
verið nauðsyulegt. Bildt sagði í við-
tali við sænska sjónvarpið að hann
teldi ekki að til borgarastyrjaldar
kæmi í Rússlandi.
Þýsk stjórnvöld fóru varlega í sak-
irnar í fyrstu en eftir að Helmut
Kohl kanslari ræddi við Clinton
Bandaríkjafoseta í síma lýsti hann
yfir stuðningi sínum við Jeltsín.
„Sem lýðræðislega kjörinn leiðtogi
Rússlands hefur Jeltsín forseti enn
einu sinni snúið sér beint til þjóðar-
innar til að sigrast á kreppuástand-
inu á lýðræðislegan máta,“ sagði
Kohl. „Fyrir það á Jeltsín skilinn
fullan stuðning okkar.“
Perrin Beatty, uanríkisráðherra
Kanada, sagði að Kanadastjóm fagn-
aði því að Jeltsín skyldi ætla að gefa
rússnesku þjóðinni færi á að kjósa
þing sitt í frjálsum og lýðræðislegum
kosningum. Reuter
Rúslan Khasbúlatov, forseti Æðsta ráðsins, hlustar á orð eins fulltrúanna
á meðan Alexander Rútskoj varaforseti fylgist með. Eftir að Jeltsín forseti
leysti upp þingið í gær setti Æðsta ráöið Rútskoj i embætti forseta. Þingið
ákvað síðan í morgun að lögsækja alla stuðningsmenn Jeltsins og taka
við yfirstjórn allra ríkisfjölmiðla. Simamynd Reuter
Ákvörðun Jelts-
ínskomClinton
íopnaskjöldu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti vissi
ekkert um hvað Borís Jeltsín hafði í
hyggju fyrr en tæpri klukkustund
áður en Rússlandsforseti kom fram
í sjónvarpi og tilkynnti um þingslit
og kosningar.
Eftir að ræðan var flutt ræddu for-
setamir saman í síma um stöðu
mála. Þar varð niðurstaðan að Chnt-
on ætlar að styðja Jeltsín af heilum
hug í valdabaráttunni sem nú er
framundan.
TT
Shortl */i
%
Kasparovvar
„Þetta var fjöldamorð," sögöu
skákskýrendur í Lundúnum eftir
aö Garri Kasparov hafði sigraö
Nigel Short auðveldlega í sjöundu
skák þeirra i hinu óopínbera ein-
vígi. Kasparov virtist ætla að
byrja rólega en eftir nokkra leiki
blés hann til sóknar og rúllaði
yfirandstæðingsinn. Reuter
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39
108 Reykjavík ■ Sími 678500 • Fax 686270
Lögfræðingur
Laus er 50% staða lögfræðings við fjölskyldudeild.
Starfið felur einkum í sér vinnu við barnaverndarmál,
ráðgjöf við starfsmenn og barnaverndarnefnd, þróun
reglna um málsmeðferð o.fT., en einnig störf að öðrum
málum sem unnin eru í fjölskyldudeild. Launakjör skv.
samningi BHMR og Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar gefur Anni G. Haugen, yfirmaður
fjölskyldudeildar. Umsóknarfrestur er til 6. okt. nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykja-
víkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðublöðum sem
þar fást. ^
ERT ÞU
ÁSKRIFANDI ?
Tímaritih EIÐFAXI kemur út
mánaðarlega uppfullt af fréttum og
fróðleik um hesta og hestamennsku.
Með því að gerast áskrifandi að
EIÐFAXA
Jylgist pú best með pví hvað er að gerast
í hinum lifandi og fjölbreytilega heimi
hestamennskunnar hverju sinni.
Eldri árgangarfáanlegir.
áfe
TÍMARIT HESTAMANNA
Ármúla 38-108 Reykjavík
Sími: 91 - 685316