Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 11 Menning Sam-bíóin - Tina: ★★ Tvöfalt lífTinu Tina Turner er einhver langlífasta popp- stjama sem um getur og þaö er miður að glæný kvikmynd um ævi hennar og störf getur ekki gefið nema mjög takmarkaða inn- sýn í manneskjuna á bak við frægðina. Myndin byrjar á því hvar hin unga og söng- glaða Anne Mae Bullock er yfirgefin af móð- ur sinni og skilin eftir hjá ömmu í sveitinni. Tíu árum seinna kemur Anne (Bassett) til stórborgarinnar St. Louis, riijar upp kynnin við mömmu og byrjar að fara út á lífið. þetta er áriö 1958 og heitasta bandið í bænum er Ike Turner and the Kings of Rythm. Kvenna- bósinn Ike (Fishbume) hefur fyrir venju að leyfa stúlkunum í áhorfendahópnum að sþreyta sig við hlið sér á sviðinu og eftir að hljóðneminn er látinn ganga til Anne Mae þá er framtíð hennar ráðin. Anne verður leir í höndum Ike og hann mótar úr henni stjörnu að nafni Tinu Turner. A sviðinu heillar hún alla með kröftugri og karlmannlegri rödd sinni og djarfri fram- komu. Utansviðs er hún ekkert annað en fórn- arlamb þar sem hinn metnaðarfulh Ike drífur alla samstarfsmenn sína áfram með djöful- gangi. Verstur verður hann við Tinu því hann kemur til með að treysta mest á hana. Eftir ágæta byrjun tekur við langur mið- kafli þar sem rísandi sól frægðar Tinu og Ike er víxlklippt saman við kulnandi hjónaband þeirra þar sem Ike misþyrmir Tinu reglu- lega. Styrkur Tinu á sviði og ímynd hennar á þessum árum er hrópandi mótsögn við hið raunverulega ástand en myndin getur aldrei meira en dregið upp mynd af aðstæðunum, aldrei gert þær ljóslifandi. Handritið er laust í reipunum, ótal útúrsnúningar draga úr meginsögunni og persónurnar eru ægilega yfirborðskenndar. Tina Turner (Angela Bassett) er hér i einu af mörgum tónlistaratriðum í myndinni Vendipunkturinn í lifi og starfi Tinu er þegar hún loks yfirgefur Ike, slypp og snauð með ekkert nema nafnið sitt. Hún er þá kom- in á fertugsaldurinn og tekst það ómögulega, Kvikmyndir Gísli Einarsson að endurvekja feril sinn, og verða frægari en hún var nokkurntímann. Á þessum enda- spretti tekst myndinni ágætlega upp og loka- atriðið, þegar skipt er óvænt yfir í hina raun- verulegu Tinu hjálpar til að minna á að þetta sé raunveruleg saga um gleði og sorg lifandi fólks. Angela Bassett og Laurence Fishbume standa sig vel sem Ike og Tina þrátt fyrir vankanta í persónusköpuninni. Angela hefur sviðsframkomu og takta Tínu á hreinu en ekki útlitiö. Breytir þar um mestu geysilega vöðvastæltur líkami Bassett sem dregur mik- ið að sér athyglina í annars góðum tónleika- atriðum. Bassett stendur sig líka vel í rólegri atriðum en í þeim stelur Fishburne senunni frá henni. Hann leikur í raun algjört skrímsli með fáa eða enga mannbætandi eiginleika en honum tekst að gera Ike líka fórnarlamb eigin aðstæðna og krafna um frægð og frama. Ike er augljóslega séöur með augum Tinu og það gerir hann bara skelfilegri fyrir vikið. What’s Love Got to Do With It? verður að teljast enn ein kvikmyndin sem verður fórn- arlamb stefnu Disney-kvikmyndaversins að gera myndir eins ódýrar og hægt er. Handrit- ið hefði þurft meiri yflrlegu og ekki hefði sakað að hafa betri leikstjóra sem gæti gefið myndinni stíl til að halda henni saman. What’s Love Got to Do With It? (Band. 1993) Handrit: Kate Lanier eftir sjálfsævisögu Tinu Turn- er, skrifaöri meö Kurt Loder. Leikstjórn: Brian Gibson (Poltergeist II, Breaking Glass). Leikarar: Angela Bassett (Boyz N the Hood, City of Hope), Laurence Fishburne (Under Cover),Va- nessa Bell Calloway, Jenifer Lewis, Phyllis Yvonne Stickney, Khandi Alexander. Kjúklingar og strandhögg - tvær sýningar 1 Nýlistasafninu Þegar botnfallið frá eftirleguk- indunum rekur inn í sah Nýlista- safnsins verður maður dapur og vondaufur um lífdaga þess. Ganga þá ekki fyrirvaralaust í garð dagar nýrrar frjósemi, hugarflugs og aga og maður hengist aftan í vonina, jafnvel vissu. Dulítiö hef ég snuddað í kringum kjúklingabú. Mest þó áður en þjóð- in fór að éta unga en ól þá upp til þess aö verða varphænur eða han- ar á haug. Hænsnabú nútímans svo sem líka. Og kjúklingagarða þess eða dauðabúðir. Og það er auðvelt að tala svona og létt að koma sér í ham vegna þess ólífis sem maður- inn hefur komið hænunni í og af- kvæmum hennar. Maðurinn heimtar kviðfylh. Með hraði. Þetta er ein leiöin til þess að verða við þeirri kröfu að reka kjúklingabú með þeim hætti sem gert er. Því miður. En maður hefur ekki eins gott af nokkru og góðum snoppungi eða fagmannlega gefnu kjaftshöggi þegar drýldnin vex. Óhjákvæmi- lega stoppar maður við og hugsar sitt ráð og annarra og reynir jafn- vel að koma auga á ný. Sýning Tinu Aufiero á tveimur efri hæðum Nýlistasafnsins er af þeirri tegund sem heitið gæti fag- lega gefið kjaftshögg án blóðsút- Myndlist Úlfar Þormóðsson hellinga: sterk áminning á hrein- legri sýningu, fullri af sögum í sundurlausri samfeUu, rétt eins og þær gerast á kjúklingabúgarðin- um. Þó að ég sjái ekki ástæðu til þess að tína eitt eða annað út úr sam- fellu þeirrar fjölbreytni sem á sýn- ingunni gefur að Uta hvet ég fólk til að horfa dálitla stund á mynd- bandið og síðan á magabeltið bleika og innihald þess og leyfa sér að hugsa frjálst og óháð öUu nema samfellu sýningarinnar og tilurð. Strandhögg Á jarðhæð og í gryfju hefur Bryn- hildur Þorgeirsdóttir gert strand- högg. Þar hafa hlutir úr undirdjúp- unum og skeljafólkið gengið á land. í gryfjunni hreykir sér kristal- drottningin græna og vinur hennar í ljósum fjörusandi. Brynhildur Þorgeirsdóttir ætti að sjálfsögðu að vera hætt því fyrir löngu að koma manni á óvart. En hún gerir það engu að síður ennþá, því einhvernveginn er það svo að það þyngist yfir verkum hennar í endurminningunni, en jafnan þeg- ar staðið er frammi fyrir þeim skellur á manni birta einfaldleik- ans og sá magnaði frumkraftur sem þar á lögheimili. Það eru svo sem ekki margir hlutir sem hún sýnir, hún Brynhildur, en ná- kvæmlega nógu margir til þess að færa manni aftur lífið í fjörunni og minninguna um ævintýri hennar. Það er gert af smekkvísri áleitni og af gleðilegri reisn. Það er ekki mjög oft sem vel tekst að halda tvær sýningar innan sömu veggja. Það hefur tekist að þessu sinni því sýningamar standa sjálf- ar og einar og saman án þess að stela nokkru hvor frá annarri. Sýningarnar í Nýhstasafninu standa til 3. október. 5 \ára afmœlistilboð ‘TóCviLsfcýCi ísCands er utn þessar muncCir 5 ára og 6ýður af því tiCefni einstaíf afmcetistiCboð: Skrifstofutækninám með 20% afslætti ....aðeins kr. 3.990 á niánuði Tölvuskóli íslands Sími 67 14 66 - opíó til kl. 22 Verðið miðast við jafnar afborganir í 24 mánuði Sviðsljós Auöunn Gestsson, blaðasali DV, tekur hér við verðlaunabikar ur hendi Més Haildórssonar, dreifingarstjóra DV, fyrir það afrek að leggja alla starfsmenn afgreiðslu DV að velli í skák. Með þeim á myndinni eru helstu andslæðingamir, þeir Amór Már Másson, Gestur Kristjánssón, Elsa Haraldsdóttir, Öm Jóhannsson og Svavar Carlsen. Bikarinn, sem keppt var um, var gefinn af Sveini Þormóðssyni, Ijósmyndara DV, en Auðunn vann hann til eignar. DV-mynd Sveinn s «5 o> S Efamol gegn síþreytu Fœst í heilsubúðum, lyfjabúðum og heilsubillum matvöruverslanna. Gilsuhúsið Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966 í sjónvarpsþættinum „Milli svefns og vöku“ úr þáttaröðinni „The Nature of Things" var fjallað um síþreytu (sýndur 25.08.93). Eina efnið sem nefnt var að kæmi að gagni gegn síþreytu er EFAMOL og höfðu þeir sjúkhngar sem við var rætt fengið verulegán bata með EFAMOL. Einnig kom fram að rannsóknir skoskra vísindamanna hafa staðfest virkni EFAMOLS gégn síþreytu. EFAMOL er hrein náttúruafurð, unnin úr náttljósarohu. Guli miðinn trvppir eæðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.