Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
Spumingin
Reynir þú að spara?
Ingimundur Erlendsson: Eru ekki
allir að því?
Hildur Jónsdóttir: Já, eins og ég
mögulega get.
Hulda Pálsdóttir: Já, hvað heldurðu?
Áslaug Ragnarsdóttir: Já, ég geri
það.
Dagmar Atladóttir: Já, eins og ég get.
Eyþór Atli Jónsson: Nei, ég reyni
ekkert að spara.
Lesendur
Óskar naf nleyndar kærir
„Ef menn vilja gagnrýna embættisveitingar krata þá eiga þeir að segja það
en ekki nota Albaníuaðferðir.“
Athugasemd frá Benedikt Jóhannes-
syni tryggingaráðsmanni:
Er fjölmiðlar greindu frá skipan
nýs forstjóra Tryggingastofnunar
var samhliöa greint frá því að Jón
Sveinsson hdl. hefði í nafni einhvers
huldumanns, sem verið hefði í hópi
umsækjenda, sent ráðherra kvörtun
um meðferð tryggingaráðs á Um-
sóknum. Lögmaðurinn hafði í bréfi
þessu og í útvarpsviðtali stór orö
uppi um að tryggingaráð hefði ekki
sinnt lagaskyldu sinni. Jafnframt gat
hann þess að málsmeðferð trygging-
aráðs hefði verið „meiðandi fyrir
hluta umsækjenda, þá sem sam-
kvæmt umsögn ráðsins teljast van-
hæ£ir“.
Saga málsins er þessi:
Ráðherra óskaði í bréfl 2. sept. eftir
umsögn tryggingaráðs Um 13 um-
sóknir um starf forstjóra en honum
ber lögum samkvæmt aö fá tillögur
ráðsins.
Oftast hafa stjórnir stofnana greitt
atkvæði um umsækjendur. Sú aðferð
væri eðhleg ef tryggingaráð réði
skipan forstjóra en væri ekki aðeins
ráðgjafi ráðherra. Tillögur ráðsins
eftir slíka atkvæðagreiðslu gætu ver-
ið um allt að fimm umsækjendur.
Eigi að síður væru hendur ráðherra
óbundnar. Oft hafa menn, sem hafa
fengið lítinn stuðning í tryggingar-
áði, verið ráðnir sem embættismenn
að Tryggingastofnun.
Því geröi ráðið tillögu um að ráð-
herra veldi forstjóra úr hópi ein-
staklinga sem tilgreindir voru í bréfi.
Ekki var í bréfum ráðsmanna til ráð-
herra fjallað um einstakar umsóknir
en þá ákvöröun mátti „ekki skilja á
þann hátt að ekki hefði verið um að
ræða fjölda hæfra einstaklinga," eins
og segir í bréfi meirihluta.
í Morgunblaðinu þann 16. sept.
birtist frétt undir fyrirsögninni:
„Fimm umsækjendur taldir hæfir“.
I stað þess aö birta bréf tryggingar-
áðs mistúlkaöi blaðið það á sinn hátt.
Blaðið hefur nú leiðrétt frétt sína.
Lögmaðurinn vitnar í villandi frétt
og ásakanir hans um meiðandi um-
mæli falla því um sjálfar sig. í öðru
lagi telur hann að tillögu um skipan
í embætti megi aðeins gera með ein-
um hætti. Sá sem tekur það sem
ærumeiðingu aö verða undir í stöðu-
veitingu ætti ekki að sækjast eftir
störfum sem fleiri vilja.
Lögmaöurinn bendir réttilega á að
ráðinu beri lögum samkvæmt að
leggja fram tillögu eða tillögur. Samt
sem áður hrósar hann bankaráðs-
mönnum í Seðlabankanum sem skil-
uðu auðu og vikust undan þessari
'skyldu.
Ef menn vilja gagnrýna embættis-
veitingar krata þá eiga þeir að segja
það en ekki nota Albaníuaðferðir.
Síðast en ekki síst. Skjólstæðingur-
inn sem kært hefur meðferð trygg-
ingaráðs fyrir ráðherra og umboðs-
manni Alþingis óskar nafnleyndar.
Þannig kemur hann því orði á aðra
umsækjendur að þeir þoli ekki að
umsóknir þeirra fái efnislega með-
ferð.
McDonald’s:
Verðið er of hátt
örn skrifar:
Mikið æði hefur verið í kringum
opnun alþjóða skyndibitastaðarins
McDonald’s og hann hefur fengið gíf-
urlega umfjöllun í fjölmiðlum. Ekki
veit ég af hverju fjölmiðlar hafa haft
svo mikinn áhuga á staðnum en
hann hefur notið góðs af umfjöUun-
inni.
Ég hef gætt mér á réttunum hjá
McDonald’s erlendis, vegna þess hve
ódýrir þeir eru. Gæðin eru í sam-
ræmi við það, kjötið í hamborgurun-
um er naumt skammtað en þetta
smakkast samt allt í sæmUegu með-
allagi. TU þess er leikurinn gerður,
að bjóða upp á þokkalegan skyndi-
bita fyrir lítið fé.
Önnur lögmál virðast þó gilda hér
á landi. Bragöið er sagt nákvæmlega
eins og í útlöndum en verðið er tvö-
falt á við það sem það er dýrast ann-
ars staðar. Aðsókn að McDonald’s
hefur víst verið góð hingað tU. Það
hlýtur þó að vera nýjabrumið enda
eru íslendingar flestum þjóðum nýj-
ungagjarnari. Ég hef hingað til hald-
ið mig frá staðnum og ætla ekki að
stíga þangað fæti inn á meðan þetta
okurverð er við lýði. Ég kemst vel
af án þess að troöa upp í mig McDon-
ald’s hamborgurum og veit um
marga aðra sem eru sama sinnis.
Ég hef enga trú á að góð aðsókn
endist með núverandi verðlagi. Fólk
hlýtur að leggja leið sína á aðra
skyndabitastaði þar sem ódýrari,
bragðbetri og betur útilátinn matur
fæst. Þá mun McDonald’s deyja
drottni sínum hér á íslandi, nema
eigandinn sjái að sér og snarlækki
verðið til samræmis við það sem
tíðkast erlendis.
Athugasemd frá Límtré hf. á Flúðum
Guðmundur Ósvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Límtrés hf. skrifar:
Vegna viðtals við Sigfús Kristins-
son, byggingameistara á Selfossi, í
DV, mánudaginn 13. sept. síðastlið-
inn, viU undirritaður taka eftirfar-
andi fram:
Sigfús kveðst hafa keypt límtré og
gler í fyrri áfanga byggingar Fjöl-
brautaskóla Suðurlands af innlend-
um framleiðendum. Þarna er ekki
rétt með farið. Það var bygginga-
nefnd skólans sem aö undangengnu
útboði keypti límtré frá Límtré hf.
og gler frá Samverki hf. á Hellu.
Límtré hf. fékk hins vegar ekki
tækifæri til að bjóöa í límtré í seinni
áfanga hússins á sömu forsendum
og innflutt límtré né var tekið tillit
til staðgreiðsluafsláttar og er fullyrð-
íng Sigfúsar um mun hærra verð því
röng.
Um miðjan júlí hafði hann sam-
Hringiöísíma
63 27 OO
millikl. 14 og 16
-eða skriflö
Nafn Ofs. símanr. vcrður aö fyl«Ja brífum
band við undirritaðan og óskaði eftir
aðstoð við sérhæfðar límingar á inn-
flutta límtrénu og var orðið við þvf.
Við það tækifæri sagði Sigfús í
óspurðum fréttum að innflutningur
hans á umræddu límtré hefðu verið
hans stærstu og dýrustu mistök á
löngum og farsælum ferli sem bygg-
ingameistari. Sjálfur hefði hann ekki
ráðið hér um heldur hefðu smiðirnir
hvatt sig til að kaupa ósamsett og
minna unnið límtré tíl að skapa þeim
meiri atvinnu í mjög slæmu árferði.
flutta límtréð reyndist ærin, reyndar
svo mikil að þaö var ekki sett upp
fyrr en u.þ.b. 3 mánuðum á eftir
áætlun og hluta þess þurfti aö taka
niður aftur vegna skekkju með til-
heyrandi kostnaði. Þetta geta þeir
staðfest sem til þekkja.
Fullyrðing Sigfúsar er okkur hjá
Límtré hf. sár vonbrigði, sérstaklega
eftir að hafa aðstoðað hann við fram-
kvæmdina því að í harðri samkeppni
þurfum við síst á því að halda að
vera gerðir ótrúverðugir í augum
Það gekk eftir aö vinna við inn- viðskiptavina okkar.
í limtrésverksmiðjunni á Flúðum.
Stöð2:
Fyndnastafjöl-
skyldumynd-
bandið
Jóhann hringdi:
Mér hefur gengið illa aö fá svör
við því á Stöð 2 hvernig menn
ætla að bregðast viö ef vinnings-
hafi í keppninni „Fyndnasta fjöl-
skyldumyndbandið“ er ekki
ásícrifandi. Sú staða gæti komið
upp þvi myndböndin á að senda
undir dulnefni en rétt nafn í
umslagi með. Og mega heimilis-
menn áskrifenda taka þátt í
keppninni?
Svar Stöðvar 2:
Heimilisfólk áskrifenda má
taka þátt. Það sendir þá inn sitt
nafn og einnig nafh áskrifenda.
Þar sem þátturinn verður ekki í
beinni útsendingu verður búið að
kanna hvort vinningshafi er
áskrifandi.
Götóttstunda-
skráogekkert
ðþróttahús
Móðir hringdi:
Ekki vildi ég vinna á stað þar sem
mér væri þrisvar til fjórum sinn-
um í viku gert að fara heim um
hádegi og koma svo aftur eftir
nokkrar klukkustundir. Þetta
þurfa bömin á unglingastiginu í
Hólabrekkuskóla að gera og hafa
þurft að gera í nokkur ár. Ekkert
íþróttahús hefur verið reist fyrir
þennan skóla. Skólabörnin fá
inni í íþróttahúsi Fiölbrautaskól-
ans í Breiðholti þegar það er
laust. Áður en það hús var reist
þurfu börnin að fara í íþróttahús
Fellaskóla. En það er ekki bara
verið að boða bömin í íþróttáffma
eftir hlé heldur einnig í lesgreina-
tíma. Er stundaskrá kennaranna
kannski jafh götótt og hamanna
eða er verið að koma til móts við
kennarana með því að láta töflu
ungu kynslóðarinnar vera göt-
ótta?
HButdrægni í
lagavaliíþætt-
inum Flauel
G.H. skrifar:
Ég hef orðiö fyrir vonbrigðum
með tónlistarþátttnn Flauel á
laugardögum. Þáttur þessi tekur
við af þætti Skúla Helgasonar,
Spfrunni, sem var mjög góður
með fjölbreyttu lagavali og fræð-
andi innskotum á milli laga, í
þessum nýja þætti ber mjög svo
á hlutdrægni í lagavali, þ.e.a.s.
þar ræður ríkjum danstónlist og
samskonar tónlist með hreint
ömurlegum atriðum milli laga.
Þar eö tónlist skipar ekki háan
sess hjá Ríkissjónvarpinu finnst
mér aö tónlistarvalið ætti að vera
fjölbreyttara en raun er á í þess-
um stuttu og fáu þáttum. Enn
betra væri aö hafa fleiri tónlistar-
þætti sem væm meö mismunandi
tónlistartegundum svo allir
fyndu eitthvaö viö sitt hæfi.
Athugasemdvið
bréfummynd-
birtingarafaf-
brotamönnum
Lesandi hringdi:
Þaö er ekki rétt aö afbrotamaö-
urirrn sem stakk vegfaranda sex
sinnum með hnífi hafi verið að
verki aftur næstu helgi á eftir.
Þar var annar afbrotamaður á
ferð. Hinn sat í gæsluvarðhaldi
og bíöur enn dóms og fer því bréf-
ritari, sem vill láta birta myndir
af afbrotamönnum, rangt með.