Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Page 24
32 aor nWM'iWriis rfi qnr)* frnvTwin/ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 Meiming_______________ Utan alfaraleiða - Páll Reynisson í Listasafni ASÍ Galdur ljósmyndar og galdur kvikmyndar eiga fleiri þætti sameiginlega en í fljótu bragöi virðist. Þau voru a.m.k. hughrifin sem undirritaöur fékk viö skoðun ljósmynda Páls Reynissonar í Listasafni ASÍ en Páll er e.t.v. þekktari sem kvikmyndatökumaöur hjá Sjón- varpinu. Páll beitir talsvert samsetningartækni og steypir saman tveimur og jafnvel fleiri ljósmyndum en áþekkri tækni er jafnframt beitt í kvikmyndatöku eigi að fanga ljóðræn andartök eða höndla hið ómögu- lega með tilstyrk tveggja véla. Þannig flytur Páll þing- eyskan himin austur á firði og plantar tré við rætur Snæfellsjökuls, svo að nokkuð sé nefnt. Samsetningar Páll hélt síðast einkasýningu á Kjarvalsstöðum fyrir tíu árum og sýndi þá myndir unnar með svipaðri tækni. Páll gerir jafnan stækkanir fyrst á filmur til að prófa sig áfram með samsteypur. í myndröð frá New York skeytir hann trjám og fuglum við skýjakljúf- Myndlist Ólafur J. Engilbertsson ana þannig að augljóst er að trén og fuglamir gegna eingöngu því hlutverki að gæða myndina lífi; greinar trjánna kvíslast um slétt og skipulagt yfirborð hús- anna og gerbreyta myndinni. Að mínu viti gegnir öðru máli um Snæfellsjökul. Þar finnst mér mótívið ekki kalla á lífræna andstæðu heldur miklu fremur skipu- lagða og tæknivædda eins og t.a.m. geimskip. Mynd númer ellefu vekur athygli við nána skoðun. Þar er teflt saman himni og glugga með sjó fyrir utan. Viö fyrstu sýn virðist sem hér sé um ósamsetta mynd að ræða, við nánari skoðun virðast myndimar þrjár en staðreyndin mun sú að hér hefur Páli tekist hvað best upp í aö setja saman tvær myndir. Mjúk grafík Onnur tækni vekur þó e.t.v. enn meiri athygli á þess- ari sýningu en það er notkun Páls á svonefndum þokufílter í nokkrum svarthvítum myndum af hey- Ljósmynd eftir Pál Reynisson á sýningu hans í Lista- safni ASÍ. DV-mynd BG vinnutækjum á Melrakkasléttu og á Baröaströnd, af Glaumbæ í Skagafirði o.fl. í þessum myndum kemur fram sterk grafísk eigind en um leið dýpt og mýkt í myndfletinum sem er óvenjulegt með ljósmyndir sem byggjast upp á svo miklum kontrasti. Hinar hefð- bundnari litijósmyndir Páls eru ekki síður athyghs- verðar. Þar má nefna Jökulsárlón II (nr. 65) sem er mynd tekin um fimmleytið að morgni og býr yfir þeim morgunroða sem er sjálfsagt keppikefli flestra ljós- myndara að fanga á filmu. Stuðlaberg í Vesturdal og sprunginn leir í Námaskarði eru jafnframt meðal eftir- tektarverðra myndefna á sýningunni. Hér er um að ræða sérstaklega vel útfærða sýningu og er hún ekki hvað síst athyglisverð fyrir óvenjulegar tæknibreUur sem þó eru á engan hátt tengdar tölvum, þótt ótrúlegt megi virðast. Myndir Páls eru í eðU sínu fremur upp- stUUngar en augnabliksmyndir úr daglegu lífl. Þær eru hljóðlátt verk einfarans sem fer ekki alfaraleiðir. Einkasýningar á ljósmyndum eru því miður alltof fáar hér á landi og ætti fólk því ekki að láta hjá líða að líta inn í Listasafni ASÍ næstu daga. Sýning Páls Reynissonar stendur yfir til 3. október. Smáauglýsiiigar - Sími 632700 Þverholti 11 Léttitœki • Þýskir Faba lyftarar á góöu verði. Mikið úrval. 2 ára ábyrgð á drmótor. Léttitæki hf„ Bíldsh. 18, s. 676955, Efstubraut 2, Blönduósi, s. 95-24442. ■ Verslun Útsala - útsalal Mikil verðlækkun. Leikfimibolir frá kr. 980, sokkabuxur frá kr. 100, íþróttaskór, gallar o.m.fl. Ástund, Austurveri, sportvöruversl- un, Háaleitisbraut 68, sími 684240. Gott tilboð. Útvíðar bamabuxur 950. Mikið úrval af göllum frá 1.250, jogg- ingbuxur á böm og fullorðna, vesti á fullorðna 1.680, úrval af bolum. Send- um í póstk., fríar sendingar miðað við 5.000. Ceres, Nýbýlavegi 12, s. 44433. Instant White. Tannhreinsiefhin sem virka. Þegar þú kaupir pakka af In- stant White verður þú þátttakandi í leik þar sem heppnum viðskiptav. er boðið út að borða. Veitingahúsið velur þú sjálf/ur og getur borðað fyrir allt að 10.000 kr. Instant White fæst í flest- um apótekum. Hansaco hf„ s. 657933. Komdu þægilega á óvart. Fullt af glænýjum vömm: stökum titrurum, settum, kremum, olíum, nuddolíum, bragðolíum o.m.fl. f. dömur og herra. Sjón er sögu ríkari. Allar þóstkröfur dulnefndar. R&J, Grundarstíg 2, s. 14448. Opið 10-18 v.d„ laugard. 10-14. ■ Vagnar - kerrur Dráttarbeisll - Kerrur Dráttabeisli, kerrur. Framleiðum allar gerðir af kermrn og vögnum, dráttar- beisli á allar teg. bíla. Áratuga reynsla. Allir hlutir í kerrur og vagna. Hásingar 500 kg - 20 tonn, með eða ákn bremsa. Ódýrar hestakerrur og sturtuvagnar á lager. Vinnuskúrar á hjólum. Veljum íslenskt. Víkurvagnar, s. 684911, Síðumúla 19. ■ Vörubílar Til sölu Mercedes Benz 1622, árg. '84, með lyftibúnaði fyrir safhgáma. Uppl. í síma 98-34492 og hs. 98-34450. ■ Bílar tíl sölu Suzuki Samurai, árg. ’88, ekinn 67 þús„ upphækkaður, jeppaskoðaður, púst- flækjur, 32" dekk. Uppl. í síma 98-34492 og hs. 98-34450. ■ Ymislegt BARNAFÓLK! Eru börnin að kvarta ?? Leiktækja vlðgerðir. Við gerum við, smíðum og setjum upp leiktæki. Komum á staðinn og gerum tilboð ykkur að kostnaðarlausu. Þröstur vélvirki, Sigtúni 7, s. 610510. Kraðak - glersýning í Hafnarborg Það er heilmikið kraðak í Firðinum. Allt of mikið af munum til sýnis og sölu og verða ekki listrænir margir, kannski fyrir vikið, á þeim góða staö Hafnarborg. Þar stendur nú yfir sýning á glerverkum Lhame Tobias Shaw, Svöfu Bjargar Einarsdóttur og Ingu Elínar Kristinsdóttur. Á sýningunni eru 68 verk á gólfi og veggjum. Sum verri en önnur. Af- leitust þótti mér litaverkin ofblönduöu. Mér varð einnig ljóst að þjóðsagna- minni og sögumar sjálfar eiga varla heima í gleri. Ekki með þessu vinnu- lagi, úthleyptar og þrívíðar. Þær verða að vísu dálítið fyndnar en ekki lengi og hætta gjörsamlega að vera það eftir skamma hríð, líkt og einn og einn Hafnarfjarðarbrandari getur veriö ágætur en endursagður æ ofan í æ og jafnvel í heilh bók tekur gamanið af og hstræna gildið rýkur út í veður og vind hafi það einhvem tíma verið merkjanlegt. Það sem hins vegar stóð upp úr vom skúlptúrar Ingu Elínar, Ljóri I og Ljóri fl. Ekki bara í orðsins fyhstu merkingu heldur og í óeiginlegri merkingu orðsins. Nokkuð sem þolir meira en eitt tillit. Hin níu andht Myndlist Úlfar Þormóðsson hennar (nr. 57-65) fannst mér líka standa undir orðinu hstaverk. Og Heitur jökull nr. 66, 67 og 68 mætti vissulega vera til gagns og Jlýsandi verk á húsveggjum í löngu skammdegi. Og þetta er ekki sagt í niðrandi merkingu því að seint verður ofgnótt hstar mannsins utan veggja hans. Tilraunir L.T. Shaw með uppávindinga fannst mér áhugaverðar, heldur margar að vísu og bestar þær sem liturinn var hve tærastur. Bestu verk Svöfu Bjargar vom tvímælalaust Lífsfley (nr. 25) og Geysir (nr. 41), hvoru tveggja unnin af hstrænni virðingu fyrir efni og formum og af góðri kunnáttu. Þvi er svo ekki að neita að þama var fjárans mikiö af ofskreyttum hlut- um og flúmðum, sem færðu heildarsvip sýningarinnar niður á einhverja þá stigu að mér fannst að ég væri að skoða muni úr verksmiðju. Fremur slakri meira að segja. Gjarnan hefði ég viljað sjá það sem í Hafnarborg er sem þrjár sýningar því sem þríþætt einsýning er þetta ekki góð sýning en hefði ef til vih getað orðið að þremur góðum. Loks má geta þess að í Sverrissal Hafnarborgar era sýndar vatnshta- myndir eftir Eirík Smith sem er hluti af þeirri gjöf sem hann færði byggð- inni sinni fyrir þremur áram eöa svo. Sú sýning er manninum og staðn- um til sóma. Enda ekki við öðra að búast. Báðar sýningarnar standa til 4. október. Nákvæmlega ekki neitt - í Hafnar Q ar ðarportinu Þaö er dásamlegt að koma í Portið þessa dagana. Þar er sýning á vatns- htamyndum sem ber heitið Utan seihngar og rís svo fuhkomlega undir nafni að þess er ekki nokkur kostur að höndla á henni nokkurn skapað- an hrærandi hlut. Það er ljóst að þetta er sýning á vatnshtamyndum. Það er einnig ljóst að sá sem gerir þær er kona og heitir Jónína Björg. Myndirnar eru 21 talsins. Þetta er aht sem vitað er og er innan seilingarinnar, utan það að gjömingur þessi á sér stað í Portinu í Hafnarfirði. Þetta er makalaus sýning. Eftir því sem lengur er dvahð á staðnum þeim mun minna er eftir af henni. Hún hverfur reyndar á stuttum tíma og leysist upp í ekki neitt. Hún er hvorki vond né góð, hvorki björt né dimm, áleitin né fráhrindandi og hefur nákvæmlega ekkert að segja þeim sem sér hana á annað borð. Þetta er eiginlega ekkisýning. Fyrir vikið meiri háttar framúrstefna og einstætt afrek út af fyrir sig. Það er sama upp á teningnum hvað varðar þann sem sýninguna held- ur. Um hann er ekkert sagt annað en gefið upp það konunafn sem að framan greinir. Hvort konan er þama eða ekki skiptir svo sem ekki miklu Myndlist Úlfar Þormóðsson máh. En hitt skiptir hvorki meira né minna en höfuðmáh hver hún er. Því ef þessi kona er lærður hstamaður er sýningin gjörsamlega ómark- tækt framlag th hsta og viðkomandi ætti að fara í skólann sinn aftur og byrja upp á nýtt eða fá sér vinnu hjá kirkjukórasambandinu eða ein- hverju ámóta fyrirbæri. Sé konan hins vegar hinn nafnlausi múgur og ómenntuð í háhstum og væri með þessu framlagi sínu að gera grín að þjóðarkvikindinu þá er hún líka snhlingur. Því það að búa th ekkert úr efni og aðfóngum og sýna þaö frágengið í römmum á vegg svo þaö hverfi fyrir augum manns út í ómæhð, það er hin sanna hst og upphafning sem hvorki verður kennd né numin og aldrei að ehífu endurtekin. Af upplýsingum á sýningarstað er það og utan seihngar og óhöndlan- legt hversu lengi sýningin stendur og einnig hvenær hún er opin. Og svo máttug verður hún við þessi rituðu orð sýningin af engu að ég veit núna ekki einu sinni hvort hún var haldin eða ekki, þó svo að ég hafi staðið í henni miðri sunnudaginn 19. þessa mánaðar. En í guðana bænum leitið hana uppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.