Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
33
Veiðivon
Norðurá í Borgarfirði er efsta veiðiáin á þessu sumri með 2100 laxa
en næst kemur Hofsá i Vopnafirði með 1980 laxa. Á myndinni eru Ein-
ar Sigfússon og Anna K. Sigþórsdóttir með þrjá laxa úr ánni.
DV-mynd GVA
Efstuveiðiámar:
Norðurá örugg
í efsta sætinu
- Hofsá í Vopnafirði næst
Línumar eru farnar að skýrast á
veiðitoppnum en veiði lauk í síð-
ustu veiðiánum á mánudaginn.
Norðurá í Borgarflrði er í efsta
sætinu en svo kemur Hofsá í
Vopnafirði sem hefur sætaskipti
viö Norðurá þetta árið. Norðurá gaf
2100 laxa. Hofsá var í efsta sætinu
í fyrra en gaf 1980 laxa í ár. í þriðja
sætinu eru síðan Laxá í Aðaldal
með 1950 laxa. í íjórða sætinu eru
Þverá í Borgarfirði með 1555 laxa.
í fimmta sætinu eru Laxá á Ásum
með 1460 laxa. Síðan koma Ellið-
árnar með 1391 lax í sjötta sætinu.
Víðidalsá í Húnavatnssýslu er með
1340 laxa í sjöunda sætinu. Laxá í
Kjós gaf 1300 laxa og er í áttunda
sætinu. Grímsá í Borgarfirði gaf
1225 laxa og það skipar henni í
níunda sætið og Selá í Vopnafirði
er í tíunda sætinu með 1096 laxa.
Rétt fyrir neðan era Rangárnar og
Miðfjarðará, svo að einhverjar séu
nefndar.
-G.Bender
Noröurá í Borgarfiröi:
Stangaveidifélagið
leigir ána aftur
„Við skrifuðum undir samning
um leigu á Norðurá í Borgarfirði
fyrir fáum dögum, leigan hækkar
um 3% á milli ára sem er vísitölu-
hækkunin," sagði Friðrik Þ. Stef-
ánsson, formaður Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur, í gærkvöldi.
„Við erum mjög sáttir með þessa
niðurstöðu mála, áin gaf 2100 laxa
í sumar og er efsta veiðiáin þetta
áriö, sú eina sem fór yfir tvö þús-
und laxa. Það lítur nokkuð vel út
með sölu veiðileyfa til íslendinga
sem og útlendinga næsta ár ef
marka má fyrirspumir,“ sagði
Friðrik ennfremur.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hef-
ur látið lögregluna rannsaka
meintar sprengingar í Brynjudalsá
í Hvalfirði með viku milllbili.
-G.Bender
Síðustu holl í Vatnamótunum
„Við fengum 40 sjóbirtinga og sá
stærsti hjá okkur var 7 pund,“
sagði Gunnar Óskarsson en hann
var að koma úr Vatnamótunum í
Vestur-Skaftafellssýslu.
„Flestir fiskarnir hjá okkur voru
2-3 pund. Næsta hol á undan okkur
veiddi 36 fiska og 40 fiska þar á
undan þeim. Veðurfarið hjá okkur
var mjög slæmmt," sagöi Gunnar
lokin.
Veiddu 12 punda bleikju
Veiðimenn, sem voru að koma af
Dynjandiheiði í Suður-ísafjarðar-
sýslu fyrir fáum dögum, veiddu
fjórar bleikjur og var sú stærsta 12
pund en sú minnsta 7 pund.
„Þaö eru mörg skemmtileg vötn
á heiðinni og töluvert af fiski í þeim
flestum," sagði veiðimaður á Bíldu-
dal í gærkveldi.
-G. Bender
Fundir
Leikhús
ITC deildin Melkorka
Opinn fundur ITC Melkorku verður
haldinn miðvikudaginn 22. september kl.
20 í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi
í Breiðholti. Stef fundarins er: Sá sem
kemur aftur er aldrei sá sami og fór. Á
dagskrá er m.a. landkynning. Amal Qase
frá Sómahu og Helga Þórólfsdóttir frá
Rauða krossinum kynna Sómalíu. Gestur
fundarins er Helga Þórólfsdóttir. Upplýs-
ingar veita Fanney í s. 687204 og Edda í
s. 686689. Fundurinn er öllum opinn.
Mætum stundvislega.
Ný dögun, samtök um
sorg og sorgarviðbrögð
Fimmtudaginn 23. september verður
haldinn kynningarfundur í safnaðar-
heimili Grensáskirkju. Kynnt verður
vetrarstarf samtakanna: fræðslustarf,
nærhópavinna og símaþjónusta. Fundur-
inn hefst kl. 20.30 og er öllum opinn.
Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn 7.
október. Samkvæmt hefð samtakanna er
fyrsti fyrirlestur vetrarstarfsins „Sorg og
sorgarviðbrögð". Fyrirlesari er Bragi
Skúlason, sjúkrahúsprestur ríkisspítala.
Fyrirlesturinn verður í safnaðarheimili
Grensáskirkju og hefst kl. 20. Sama kvöld
verða þátttalkendur í fyrsta nærhópinn
skráðir.
Kvenfélag Óháða
safnaðarins
heldur fimd nk. fimmtudagskvöld þann
23. september kl. 20 í Kirkjubæ.
Fundur um réttarstöðu
þolenda ofbeldis
Fundur um réttarstöðu þolenda ofbeldis,
sem vera átti í Sóknarsalnum, Skipholti
50a, í kvöld, 22. september kl. 20, verður
í Risinu, Hverfisgötu 105. ATH: breyttan
fundarstað.
Fyrirlestrar
Fræðslukvöld um Jesúmyndir
I samtímanum
Prófastsdæmin hafa haldið fræðslunám-
skeið fyrir fólk við góðar undirtektir og
greinilegt er að marga fýsir að fræðast
um trúmál og andleg efni. i vetur mun
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra hefja
skipulega fræðslustarfsemi fyrir full-
orðna í söfnuðum prófastsdæmisins.
Fræðslan verður í formi fyrirlestra og
efni þeirra verður: Hver er Jesús frá
Nasaret? Helstu hugmyndir manna í nú-
tímanum um Jesú. Fyrirlestramir verða
á fimmtudagskvöldum og verða tveir
þeir fyrstu í Kópavogskirkju 23. septemb-
er um efnið Hugmyndir Gyðinga um
Jesú. Fyrirlesari verður dr. Sigurjón
Ami Eyjólfsson héraðsprestur og hefjast
fyrirlestramir kl. 20.30.
Námskeið
Námskeið I listþjálfun
Á haustönn 1993 verða haldin eftirtalin
námskeið í listþjálfun: Skapandi Ustþjálf-
un, Listþjálfun - framhaldsnámskeið og
Listþjálfun fyrir fagfólk. Listþjálfun fyrir
fagfólk er ætluð fólki sem er áhugasamt
um að nota Ustsköpun í starfi með böm-
um og unglingum. Listþjálfun - fram-
haldsnámskeið er hópmeðferð fyrir börn,
unglinga og fullorðna. Em hún ætluð
fyrir þá sem áður hafa verið í Ustþjálfun
í meðferö eða á námskeiði í Ustþjálfun.
Unnur Óttarsdóttir er leiðbeinandi á
námskeiðunum. Hún er lærður Ustþjálfi
með mastersgráðu frá Pratt Institute í
New York. Unnur er löggiltur meðlimur
í stéttarfélagi amerískra Ustþjálfa. Hún
hefur unnið að meðferð í Ustþjálfun og
haldið námskeið í skapandi Ustþjálfun
fyrir böm, unglinga og fuUorðna. Unnur
hefur kennt Ustþjálfun í framhaldsdeild
Fósturskóla íslands. Upplýsingar og inn-
ritun í sima 642064.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Smíðaverkstæðið
FERÐALOK
eftir Steinunni Jóhannesdóttur
Þridja sýning sunnud. 26/9 kl. 16.00.
Stóra sviðið
KJAFTAGANGUR
eftir Neil Simon
laugard. 25. sept. kl. 20.00,
sunnud. 26. sept. kl. 20.00.
Sala aðgangskorta stendur yfir.
Verð kr. 6.560 sætiö.
Elli- og örorkulifeyrisþegar,
kr. 5.200 sætið.
Frumsýningarkort,
kr. 13.100 sætið.
ATH. Kynningarbæklingur Þjóð-
leikhússins liggur frammi m.a. á
bensínstöðvum ESSO og OLÍS.
Miðasala Þjóðleikhússins verður opin
alla daga frá kl. 13-20 meðan á korta-
sölu stendur. Tekið á móti pöntunum i
síma 11200 frá kl. 10 virka daga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
Græna línan 996160-
Leikhúslínan 991015
FRJÁLSI
LEIKHOPURINN
Tjarnarbíó
Tjarnargata 12
STANDANDIPÍNA
„Stand-up tragedy“
eftir Bill Cain
Næstu sýníngar:
22. sept. kl. 20.00. Örfá sæti laus.
25. sept. kl. 20.00. Örfá sæti laus.
26. sept. kl. 15.00.
29. sept.kl. 20.00.
Miðasala opin alla daga
frákl. 17-19.
Simi 610280
Tilkyimingar
Námsstefna um erlendar
konur á íslandi
verður haldin laugardaginn 25. septemb-
er nk. kl. 10-13 í Borgartúni 6, Reykjavík
(Rúgbrauðsgerðinni). Em erlendar kon-
ur á Íslandi kúgaður minnihlutahópur?
Þessi spuming hefur verið rædd mikið í
fjölmiðlum upp á síðkastið. Á námsstefn-
unni verður rætt um þátt tungumáls og
menntunar í aðlögun nýbúa. Siöfræðileg-
ar vangaveltur um hjónabandið og ást-
ina, hlutverk útlendingaeftirlitsins og
lagareglur um landvist og fleira. Á borð-
um verður léttur morgunverður.
Tískusýning á
Hótel Borg
Tísku-leiksýning verður haldin á vegum
Félags meistara og sveina í fataiðn. Sýn-
ingin nefnist: Fötin skapa manninn og
verður haldin fyrir boðsgesti á Hótel
Borg fimmtudaginn 23. september kl.
20.30. Húsiö opnað kl. 20. Seinni sýningin
verður opin almenningi sunnudaginn 26.
september kl. 15. Húsiö opnað kl. 14.
Aögangur er ókeypis. Sýningin er haldin
í tUefni af 50 ára afmæli Félags meistara
og sveina í fataiðn. Þessari sýningu er
ætlað að varpa ljósi á helstu tísku-
strauma áranna 1943-93. Á sýningunni
koma fram u.þ.b. 30 módel, m.a. frá Mod-
el 79.
Pizza ’67 á Selfossi
Nýr veitingastaður var opnaður á Sel-
fossi nýlega þegar hjónin Erla Gísladóttir
og Kristinn Grimsson opnuðu pitsustaö
í húsi verslunarinnar Homsins. Fjöl-
menni var á opnunardaginn og m.a.
komu upphafsmenn og stofnendur Pizza
’67 í Reykjavík.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta stendur yfir
til 20. sept.
Stóra svið kl. 20.00.
SPANSKFLUGAN
eftir Arnold og Bach
4. sýn. fim. 23/9. Uppselt.
Blákortgiida.
5. sýn. fös. 24/9. Uppselt.
Gul kortgilda.
6. sýn. laug. 25/9. Uppselt.
Græn kortgilda.
7. sýn. sun 26/9. Örfá sæti laus.
Hvitkortgilda.
8. sýn. miðv. 29/9. Fáein sæti laus.
Brún kortgilda.
Sala hófst laugard. 11. sept.
Litla svið kl. 20.00.
ELÍN HELENA
eftir Árna Ibsen
Frumsýning miðv. 6. okt.
Sýn. fim. 7/10, fös. 8/10,
lau. 9/10, sun. 10/10.
ÁRÍÐANDI!
Kortagestir með aðgöngumiða dag-
setta 2. okt., 3. okt. og 6. okt. á litla
sviðið, vinsamlegast hafið samband
við miöasölu sem tyrst.
Stóra sviðið kl. 14.00.
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
ettir Astrid Lindgren.
Sýn. sun. 10. okt., lau. 16. okt.,
sun. 17. okt.
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13-20. Tekiö á
móti miðapöntunum í sima 680680
kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasimi
680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar, tilvalin tæki-
færisgjöf.
Leikféiag Reykjavikur-
Borgarleikhús.
eftir Áma Ibsen í íslensku Óperunni.
Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson
Fö. 24. sept. kl. 20.30. Sýningum
Lau. 25. sept. kl. 20.30. fækkar.
Mið.-isalan cr opin daglcga írá kl. 17 • l') og
svningardaga 17 ■ 20:30. Miðapantanir í símum
l'l475 og 650140.
rÓ LEIKHÓPURINN
Telknimyndaspólur
frá Skifunni
Skifan hf. hefur gefiö út fjórar nýjar
teiknimyndaspólur: Ævintýramyndina
Prinsessan og durtarnir sem sýnd var í
Regnboganum við miklar vinsældir á sl.
ári. Einnig teiknimyndir frá Hanna-
Barbera, Jóki í fjársjóðsleit/Stjömuvit-
laus, íþróttir frá öllum hliðum og Þotu-
fólkið. Þessar myndir eru með hinum
heimsþekktu teiknimyndapersónum
Jóka bimi, Hökka hundi, Fred Flintstone
og fjölskyídu, Bleika kettinum o. fl. og
allar tala þær nú íslensku. Valinkunnir
leikarar ljá persónum raddir sínar.
Myndimar em til sölu í verslunum um
allt land.