Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1993, Qupperneq 32
p
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Preifing: Sími 632700
■ '■LkTi
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993.
Einvígi Helga
og Þrastar
- um íslandsmeistaratitilinn
Keppnin um íslandsmeistaratitlinn
á Skákþingi íslands er nú orðin ein-
vígi milli Helga Ólafsson, íslands-
meistara 2 síðustu árin, og Þrastar
Þórhallssonar. Báðir unnu í 9. um-
ferð í gær, Helgi vann Andra Áss á
svart og Þröstur Guðmund Gíslason.
Báðir eru með 7 v. og 2 umferðir eft-
ir. Jóhann vann Sævar og er þriðji
með 6 v. Hannes Hlífar er íjórði með
5'4 v. og biðskák.
Tíunda umferðin verður tefld í dag
og mótinu lýkur á fimmtudag.
-hsím
HaUdórBlöndal:
hnökrará
reglugerðinni
„Reglugerðin var sett á sínum tíma.
Það hefur komið í Ijós að á henni eru
tæknilegir hnökrar. Embættismenn
í landbúnaðarráðuneyti og fjármála-
ráðuneyti eru að vinna að því að lag-
færa þá. Þetta gefur ekki tilefni til
ályktana af neinu tagi,“ sagði Halldór
Blöndal lanbúnaðarráðherra þegar
hann var spuröur um breytingu á
reglugerð um takmörkun á innflutn-
ingi landbúnaðarvara.
Haildór vildi ekki tíunda í hverju
breytingarnar felast en sagði að um
„venjulega vinnu" væri að ræða.
Skilningur utanríkisráðherra á
reglugerðinni er á þá leið að sterk
rök séu fyrir því að reglugerðin sé
lögleysa og stangist á við samning
íslands og Evrópubandalagsins.
í reglugerðinni er lagt bann við
innflutningi flestra landbúnaðar-
vara og jafnvel iðnvarnings unnum
úr landbúnaðarvörum, meti Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins það svo
að nægar birgðir séu til í landinu.
Auk kjöts, grænmetis og blóma nær
reglugerðin m.a. til tilbúinna ávaxta-
grauta, rjómaíss, sykurlauss sælgæt-
is og ýmiss konar pastarétta.
-Ótt
Lyftaraslys
íNjarðvík
Vinnuslys varð við Fiskverkun
Voga hf. í Njarðvík í gærmorgun
þegar 17 ára piltur varð fyrir fargi
af lyftara. Pilturinn missti framan
af fingri og hlaut skurð á höfði.
Hann var fluttur á sjúkrahúsið í
Keflavík og þaðan með sjúkrabíl til
Reykjavíkur þar sem hann gekkst
undiraðgerð. -bjb
Heimaslátrun á VestQöröum:
400-500 skrokkar
á svörtum markaði
Nokkrir bændur á sunnanverð- Kjötsala í matvöruverslunum þar engin undantekning. Slátur- um og fylgist ekkert með þannig
um Vestfjörðum stunda heima- dettur mikið niður á haustin og húsið á Patreksfirði hefur átt í erf- lagað. Það er ekki neitt sem ég hef
slátrun í stórum stil og selja lamba- tekur ekki viö sér aftur fyrr en vel iðleikumogerrekstriþessnúhætt. bitastætt í þessum málum. Þetta
kjöt og nautakjöt á svörtum mark- eftir áramót, að sögn kaupmanna. Heimildir DV herma þó að á árun- eru þín orð,“ segir Stefán Skarp-
aði í sveitarfélögunum og jafnvél i Þeir kaupmcnn sem DV ræddi við um 1982-1983 hafi verið slátrað héðinsson, sýslumaður á Patreks-
verslanir og stórmarkaði á höfuö- í gær telja eðlilegt að sala á kjöti rúmlega 200 gripum í sláturhúsinu firði.
borgarsvæðinu. Talið er að gróf- detti niöur í sláturtíðinni þar sem en 1984-1985 hafi slátrunin dottið - Verður þetta mál eitthvað kann-
lega áætlað hafi um 400-500 kmda- innmatur seljist best á haustin en niður í um 95 gripi. Þetta þykir að?
kjötsskrokkar gengið kaupum og hins vegar sé ekki eðiilegt að sölu- benda til sölu á kindakjöti og „Við gerum það alltaf þegar til-
sölum á Bildudal einum í fyrra og tregða haldist langt fram yfir ára- nautakjöti á svörtum markaði en efni er til en við fórum ekkert af
hafi kílóverðið verið 350-400 krón- mót. Flestöllum sé Ijóst að kjöt- einnig er þetta vegna tilkomu stað þó að svona frétt komi,“ segir
ur eða 30-50 krónur undir verði út skrokkar gangi kaupum og sölum kvótakerfisins. Slátrunin hefur þó hann.
úr búð. Viðmælendur DV fyrir í plássunum. Það sé bara mannlegt fariö vaxandi aftur og var um það Einar Mathiesen, sveítarsfjóri á
vestan segja kjötsölu á svörtum því aö bændur reyni aðbjarga sér. híl 125 gripir þegar síðast var slátr- Bíldudal, sagðist ekki vilja tjá sig
markaði opinbert leyndarmál sem Rekstur sláturhúsa víða um land að í sláturhúsinu. um málið í morgmt. Hann þyrfti
allir viti að viðgangist en enginn gengurerfiðlegaumþessarmundir „Ég hef ekkertálit á þessu. Þetta að afla sér frekari gagna.
þori að hreyfa við. og eru sláturhúsin á Vestflörðum er hlutur sem ég hef ekki hugmynd -GHS
Nýja brúin i Víðidal verður formlega tekin í notkun í næsta mánuði. Einstaka vegfarendur eru byrjaðir að prófa
brúna en reiknað er með að allt að 5 þúsund bílar fari dagiega yfir hana í framtíðinni. Ekki er ætlast til að gang-
andi vegfarendur fari yfir brúna enda reiknað með að Reykjavíkurborg reisi sérstaka göngubrú á staðnum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni kostaði sjálf brúin um 100 milljónir en að teknu tilliti til vegaframkvæmda
fer kostnaðurinn upp í 300 milljónir. Framkvæmdir hófust við brúna síðastliðið haust. DV-mynd BG
ísafjörður:
Handteknir
vegna við-
skipta
Lögreglan á ísafirði handtók tvo
menn í gærkvöldi sem voru að selja
Rússum bíl við höfnina. Tollvörður
varð vitni að því að mennirnir tóku
við 5 flöskum af áfengi og 700 dollur-
um fyrir viðskiptin við Rússana.
Mennirnir neituðu staðfastlega að
hafa átt þessi viðskipti og fengu að
sofa í fangageymslum lögreglunnar
í nótt. Yfirheyrslur áttu síðan að hefj-
ast yfir þeim í morgun. Rússarnir
sluppu með dómsáttarsekt héraðs-
dómara og skip þeirra hélt úr ísa-
fjarðarhöfnígærkvöldi. -bjb
Skemmdir unnar
Brotist var inn í húsgagnaverslun
viö Bæjarhraun í Hafnarfirði óg tölu-
verðar skemmdir voru unnar á hús-
næði og húsgögnum og peningum
stohð.
Málið er til rannsóknar hjá RLR.
-PP
LOKI
Hvað ætli yfirvöld séu að
skipta sér af svona smáræði!
Veðriöámorgun:
Veðurfer
kólnandi
Á morgun verður nokkuð hvöss
suðaustanátt með rigningu aust-
anlands fram eftir degi en síðan
lægir þar og styttir upp. Um land-
ið vestanvert má búast við suð-
vestanátt með skúrum. Veður fer
htið eitt kólnandi.
Veðrið í dag er á bls. 36