Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
Fréttir____________________________________________________________________________pv
Viötal DV við stúlkuna sem var hátt 110 tíma í einangrun eftir að hafa kært nauðgun:
Sagði þeim á miðbæjar-
stöð allt sem hafði gerst
„Ég var þarna fyrir utan ásamt
tveimur vinkonum mínum og önnur
þeirra fór inn á veitingastaðinn með
eigandanum. Ég var orðin áhyggju-
full vegna hennar og bað annan
mannanna sem Var með okkur aö
fara og athuga málið því ég vissi ekk-
ert hvert þau fóru. Hann kom til
baka og sagði að allt væri í lagi og
stuttu seinna kom vinkona mín út
og ég sá að hún var búin að taka efni.
Á meðan maðurinn haíði verið að
athuga málið hafði hin vinkona mín
farið eitthvað. Síðan fór ég inn með
manninum sem hafði beðið með mér
úti. Hann fékk lyklana hjá eigandan-
um og við fórum upp til aö ná í efn-
iö. Ég vil taka það fram að ég hafði
lítið drukkið þetta kvöld. Hann læsti
hurðinni innan frá með lykli og ég
komst ekki út. Hann bauð mér í glas
á meðan hann geröi efnið klárt qg
áður en ég vissi af gerðist þetta. Ég
Stígamót:
Meðferð-
■ " »■■
mtil
hábor-
Theódóra Þórarinsdóttir,
starfskona Stígamóta, segir aö
meö því að ftytja stúlkuna ekki
strax á neyðarmóttöku til rann-
sóknar hafl mikilvæg sönnunar-
gögn í máli stúlkunnar eyðilagst.
Námskeið haii verið haldið með
lögreglunni um hvernig með-
höndla beri fórnarlömb nauðg-
unarmála og skýrt mikilvægi
þess að þau séu rannsökuð strax,
í raun hafi sú regla veriö í gildi
að fara með fórnarlömbin strax á
neyöarmóttöku. Sú regla hafi
verið brotin.
„Þó svo að stúlkan hafi ekki
ætlað að kæra þá er leiðin að fara
upp á neyðarraóttöku til læknis-
skoðunar. Þar á hún að ákveða
hvort hún vilji kæra og kalla til
RLR eða ekki, Það er hennar að
ákveða það,“ segir Theódóra.
„Okkur finnst þetta reyndar til
háborinnar skammar. Það má
alveg koma fram. Okkur finnst
þaö mjög slæmt að sumir virðast
enn ekki gera sér grein fyrir því
hvað það er að lenda í slíku, þrátt
fyrir að viö séum búnar aö halda
námskeið með lögreglunni,“ seg-
ir Thcódóra.
-pp
Tveir sigrar
hjá Jáni Lofti
Eftir 5 umferðir á opna alþjóð-
lega skákmótinu á Krít er enski
stórmeistarinn Tony Miles einn
efstur meö 5 v. Annar er Stura,
stórmeistari frá Georgíu, með 4 'A
v. 15 skákmenn deila 3. sæti með
4 v. og er Jón L. Ámason meðal
þeirra. Jón vann Novoselskí í 4.
umferð og Nikcervic í þeirri
fimmtu. Keppendur 146. -hsím
streittist á móti og reyndi að ýta hon-
um burtu og bað hann um aö hætta,“
segir 16 ára stúlka sem kært hefur
nauögun 23. september síðasthðinn.
Stúlkan kærði nauðgunina til lög-
reglu en var sett í einangrun og
þurfti að dúsa þar hátt í 10 tíma áður
en hún var flutt á Borgarspítala til
rannsóknar.
„Á eftir komst ég út en var búin
að taka inn efni. Vinkona min sagð-
ist ætla aftur upp en ég reyndi aö
stoppa hana en hún hlustaði ekki.
Þegar ég kom niður vildi vinkona
mín fara upp og geröi það. Ég veit
að þetta lítur illa út en þaö breytir
engu því þetta gerðist.“
Voru í leit að vímuefnum
Hún segist hafa verið ásamt tveim-
ur vinkonum sínum, á svipuðum
aldri, á vínveitingahúsi umrætt
kvöld og þar hafi hún hitt tvo araba
sem hafi ætlað að útvega þeim fíkni-
efni. Stúlkurnar fóru út með þeim
þar sem þeir sögðust hafa efnið í
skottinu á bílnum sínum. Síðan hafi
þeir eitthvað rætt saman við bílinn
og sagt svo við þær að þeir þyrftu
að fara annað og ná í efnið. Þær hafi
falhst á það og forin endaö við kaffi-
hús í miðbænum sem annar þeirra
rekur. Þar hafi atburðurinn gerst.
Miðbæjarstöðin vissi allt
Stúlkan segist hafa hitt vin sinn
fyrir utan kaffihúsið fyrir tilviljun
og hann hafi bent henni á að fara
niður á lögreglustöð og kæra atburð-
inn og segja frá því að vinkona henn-
ar væri ennþá inni í húsinu. Því hafi
hún farið í ofboði niður á miðbæjar-
stöð lögreglunnar og lýst fyrir lög-
reglumönnunum nokkuð nákvæm-
lega, aö eigin sögn, hvað hafi gerst
og beðið þá að hjálpa sér að ná í vin-
konu sína. Þeir hafi verið mjög vilj-
ugir og farið og náð í vinkonu henn-
ar.
„Ég sagði þeim á miðbæjarstöðinni
allt sem hafði gerst og þeir voru mjög
almennilegir," segir stúlkan.
Hún segir að um þetta leyti hafi
áhrif fikniefnanna sem hún tók inn
á kaffihúsinu komið í ljós og hún
muni aöeins óljóst eftir því sem hafi
gerst eftir það. Hún muni þó að hún
hafi veriö flutt á aöalstöð lögreglunn-
ar. Þar hafi hún beðiö um að fá að
hringja í föður sinn en sér hafi verið
neitað um það. Eins og fyrr segir
voru áhrif fíkniefnanna farin að
koma í ljós skömmu áður og um þetta
leyti hafi þeirra verið farið að gæta
mjög mikiö og segist hún því htið
muna eftir framhaldinu.
Vinkona hennar, sem var flutt með
henni á aðalstööina, man hins vegar
eftir þvi sem gerðist og segir hún
Um þessar mundir er unnið aö gangstígsgerð i Fossvogsdal og er áætlað að verkinu Ijúki í byrjun desember. Verið
er að skipta um jarðveg og undirbúa nýjan gangstíg sem á að liggja meðfram byggðinni í dalnum. Gangstígurinn
verður hluti af gangstigakerfinu frá Ægisíðunni upp að Elliðaám. Foreldrar barna í Fossvogsdal hafa haft sam-
band við blaðið og kvartað undan slysahættu á þessum stað. Farið er aö rökkva snemma á kvöldin og börn að leiká
á óupplýstu og ógirtu svæði geta auðveldlega farið sér að voða. -GHS/DV-mynd BG
Slysahætta í
Fossvogsdal
Böðvar Bragason lögreglustjóri:
Voru erf iðar viðureignar
„Það er mjög erfitt að eiga viðræð-
ur við þær. Þær slá úr og í hvort að
um nauðgun sé að ræða eða ekki.
Þær vilja ekki að það sé haft sam-
band við aðstandendur og málið er
mjög á reiki og óljóst. Þær eru það
sem við getum kallað erfiðar viður-
eignar,“ segir Böðvar Bragason lög-
reglustjóri viö DV um framburð
stúlknanna á aðalstöðinni í Reykja-
vík.
Hann segir að haft hafi verið sam-
band viö RLR og maður þaðan komið
á staðinn innan viö klukkustundu
seinna. í millitíðinni hafi stúlkurnar
viljað hverfa af stöðinni en aðalvarð-
stjóri ekki talið það heppilegt, hvorki
fyrir þær né aöra. Því hafi þær veriö
settar í geymslu þangað til RLR kom.
„Niðurstaðan varð sú að RLR gerði
ekki annað en að óska eftir því að
þær væru hér áfram aö ég held vegna
ástands þeirra,“ segir Böðvar.
í yfirlýsingu RLR segir meðal ann-
ars að rannsóknarlögreglumaöur
hafi ætlaö aö ræða viö stúlkuna sem
var sofandi í fangaklefa. Hann hafi
vakið stúlkuna en hún ekki viljað
ræða við hann.
„í ljósi þess að ekki var til meðferð-
ar kærumál, sem heyrði undir RLR,
heföi stúlkan í raun og veru mátt
fara. Hins vegar var það samdóma
álit lögreglumannanna sem unnu að
málinu að ekki væri forsvaranlegt
vegna vímuástands stúlkunnar og
ungs aldurs að sleppa henni á göt-
una. Ekki var vitað með vissu á þeirri
stundu um dvalarstað stúlkunnar
eða aðstandendur og var því af hálfu
RLR haft samband við Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar," segir í
yfirlýsingunni.
Fulltrúi Félagsmálastofnunar hafi
komið á lögreglustöð eftir klukkan
13 og þar með hafi afskiptum RLR
lokið í bili. Klukkan 17 sama dag
hringdi hjúkrunarfræðingur af
neyðarmóttöku til RLR, tilkynnti að
stúlkan væri þar og vildi kæra
nauðgun eftir að hafa gengist undir
læknisskoðun. Þá fyrst hafi málið
verið tekið til rannsóknar.
-pp
viðmót lögreglunnar ekki hafa verið
upp á marga fiska á aðalstöðinni.
Þær hafi báðar verið fluttar í ein-
angrun vegna framkomu sinnar en
enginn virðist hafa reynt að hafa
samband við miðbæjarstöð þar sem
vitneskja um atburðinn hafi legið
fyrir. Hún er einnig undrandi á því
að það hafi ekki strax verið haft sam-
band við Stígamótakonur og hún
flutt til skoðunar.
Rannsókn málsins er nú lokið af
hálfu RLR og hggur nú hjá ríkissak-
sóknara, sem tekur ákvörðun um
útgáfu ákæru á hendur manninum
sem kærður er fyrir aö nauðga stúlk-
unni. Hann er búsettur í Hollandi og
er einungis í heimsókn hér á landi
og hefur verið úrskurðaður í far-
bann. -pp
Stuttar fréttir
Grandikaupirtogara
Grandi hefur keypt nýjan
frystitogara af Den norske bank
í Noregi fyrir 570 mihjónir króna.
Togarinn kemur í stað frystitog-
arans Snorra Sturlusonar sem
annað hvort verður seldur eða
sendur á Ijarlæg fiskimið.
Dregurtilbaka
lðnaöarráðherra hefur dregið
til baka uppsagnir starfsmanna
Rafmagnseftirhts rikisins á
Norðurlandi og Austurlandi og
hætt við frekari breytingar á fyr-
irtækinu. Ríkisútvarpið greindi
frá þessu.
Öllum sagtupp
Öllu starfsfólki Kaupfélagsins
Fram í Neskaupstað, 36 aö tölu,
hefur verið sagt upp störfum.
Uppsagnirnar eru liður í endur-
skipulagningu kaupfélagsins
samkvæmt fréttum RÚV.
Konur höfða mál
Tvær konur liafa höföað mál
gegn Landspítalanum vegna
læknamistaka í brjóstaminnkun-
araðgerðum. Önnur konan hefur
einnig stefnt tryggingalækni
samkvæmt frétt Stöðvar 2.
Röskvafyriraðkasti
Tíminn greinir frá því að
Röskvufólk úr Háskólanum hafi
orðið fyrir aðkasti á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins en félagiö sá
þar um veitingasölu.
Fjármálaráöuneytið hefur gefið
út reglugerð um tollfrjálsan far-
angur ferðamanna sem meðal
annars batrnar innílutning á
steralyfium, umfram það magn
sem eðlilegt telst, samkvæmt
frétt Morgunblaðsins.
Kristjánog Jordan
troðaupp
Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari og körfuboltasnillingur-
inn Míchael Jordan koma fram
saman í vinsælum sjónvarps-
þætti í Bandaríkjunum um næstu
helgi. Morgunblaöíð greinir frá
þessu. -bjb