Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Side 3
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
3
dv Fréttir
Sjónvarpið:
Evrópsktefnií
stað stillimyndar?
„Nú er runnin upp gervihnattaöld
og þaö er spurning hvort Ríkisút-
varpiö á ekM að bregðast viö breytt-
um tímum með því að sinna menn-
ingarlegri skyldu sinni í evrópsku
samhengi. Það rignir yfir okkur eng-
ilsaxnesku sjónvarpssefni. Við höf-
um rætt um að endurvarpa evrópsku
efni og mér finnst þetta ákaflega
spennandi hugmynd,“ segir Arthur
Björgvin Bollason, aðstoðarmaður
útvarpsstjóra.
Á skrifstofu útvarpsstjóra er til
umræðu að endurvarpa þýsku og
frönsku menningarefni í stað stilli-
myndar, utan útsendingartíma Sjón-
varpsins. Til boða stendur sjónvarps-
efni frá Deutsche Welle í Þýskalandi,
sem sendir út á þýsku, ensku og
spænsku, og frá TV 5 í Frakklandi
sem hægt yrði að endurvarpa hér á
landi endurgjaldslaust. Einnig er til
umræðu að sjónvarpa beint frá Al-
þingi nokkra daga í viku.
Að sögn Arthurs er þetta enn á
umræðustigi og hann tekur skýrt
fram að enn hafi engar ákvarðanir
verið teknar. Kanna þurfi kostnað-
inn og ýmis önnur atriði, jafnt tækni-
leg sem lagaleg. Enn sé ekki ljóst
hvort endurvarp á vegum Sjónvarps-
ins sé formlega mögulegt. -kaa
Norðurland:
Rjúpnaskyttur
meðmjögmis-
jafnanfeng
Gyffi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
Rjúpnaveiðimönnum á Norður-
landi hefur gengið mjög misjafnlega
við veiðamar það sem af er veiðitím-
anum. Sögur em af ágætri veiði en
einnig af þeim sem sáralítið hafa
fengið eða ekki neitt þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir.
Viömælandi DV á Þórshöfn sagði
að þar um slóðir hefðu þeir sem
mest hefðu skotið verið að fá um 20
fugla yfir daginn og væru það hærri
tölur en á sama tíma í fyrra. í S-
Þingeyjarsýslu eru hæstu tölur sem
heyrst hafa um dagveiði tæplega 30
rjúpur yfir daginn en tölurnar lækka
þegar dregur nær Akureyri.
Öllum viðmælendum DV bar sam-
an um að lítið væri að marka veið-
arnar það sem af væri veiðitímanum.
Veður hefði verið mjög óhagstætt
ijúpnaskyttum; ekki hefði komið
nema smáfol og nú væri auð jörð
uppi um öll fjöll og engin rjúpa á ferli
í hefðbundnum veiðilöndum.
Kópavogur:
Lánveitendur
kanni sjálf ir
veðhæfnina
„Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa
gefið veðleyfi meðan ekki hefur verið
gefinn út lóðarleigusamningur því
að þeir sem ekki hafa þinglýsta eign-
arheimild geta ekki veðsett fram-
kvæmdimar að öðram kosti. Sá sem
lánar út á byggingaframkvæmdirnar
verður sjálfur að kanna veðhæfni
framkvæmdanna. Bæjaryfirvöld
koma ekki nálægt því,“ segir Þórður
Þórðarson, bæjarlögmaður í Kópa-
vogi.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi velta nú
fyrir sér að gefa fyrr út lóðarleigu-
samninga en áður þar sem reynsla
hinna sveitarfélaganna á höfuðborg-
arsvæðinu sýni hagkvæmni þess.
Kópavogsbær gefur út lóðarleigu-
samning eftir að byggingar eru fok-
heldar og lóðir gróflafnaðar en fram
að því verður að gefa veðleyfi vegna
veðsetninga.
DV greindi frá því um helgina að
nokkurrar óánægju gætti í Kópavogi
vegna þess að bæjaryfirvöld hefðu
gefið út veðleyfi til aðila sem notuðu
veðleyfin til að svíkja út fé.
SURROUND
SOUND
NICAM
DICITAL
STEREO
ER TÆKIFÆRHD !
NORDMENDE
Okkur tókst að semja AFTUR sérstaklega um heilan gám af þessum vönduðu
Nordmende 29" sjónvarpstækjum. Nú getur þú gengið inn í þessi magn-
innkaup okkar við Nordmende-framleiðendurna í Þýskalandi og tryggt þér 29"
stereo-litsjónvarpstæki á lægra verði en þekkst hefur áður hérlendis.
Spectra SC 72 NICAM er meö 29" flötum glampalausum
Black Matrix Super Planar-skjá, S-VHS-tengi, 40W Nicam stereo-
magnara, 4 hátölurum, Stereo Wide, Surround hljómi (tengi fyrir
Surround-hátalara), tengi fyrir heyrnartól, 60 stöðva minni,
sjálfvirkri stöðvaleit, Pal-Secam-NISC-video, fullkominni fjarstýr-
ingy, aðgerðastýringu á skjá, innsetningu á stöðvanafni á skjá,
tímarofa, 16:9 breiðtjaldsmóttöku, barnalæsingu, íslensku
textavarpi, 2 scart-tengi, tengi fyrir 2 auka hátalara o.m.fl,
Nordmende-sjónvarpstækin eru vönduð þýsk gæðaframleiðsla og
hafa um áraraðir verið í notkun á Islandi við góðan orðstýr.
VISA-raðgreiðslur: Engin útborgun og u.þ.b.
7.200 kr. á mán. í 18 mánuöi
EURO-raðgreiðslur: Engin útborgun og
11.437 kr. á mán. í 11 mánuði
Munalán: 27.450,- kr. útborgun og
3.845,- kr. á mán. í 30 mánuði
Ath! Samskonar sjónvarpstæki kosta u.þ.b.
130.000,- til 150.000,- kr. hér á landi, en
þessi bjóðast ódýrari vegna magninnkaupa.
Verð aðeins 109.900,- kr. eöa
uictuooáelnumdegi!
Mh.Heillgá*uneld‘s PP
Frábær greibslukjör viö allra hæfi
E
Samkort
VISA
MUNÁLÁN tualttaö30mán.
Fullur gámur af 29" sjónvarpstækjum seldist upp á
einum degi, áður en tækin komu í Radíóbúöina nf.
Við erum með sýningartæki í versluninni,
en von er á næsta gámi til landsins eftir
u.þ.b. tvær vikur. Það er um takmarkað magn
að ræða og við erum þegar byrjuð að taka á
móti pöntunum. Því er best að hafa hraðann
á til að komast inn í þessi magninnkaup.
Komdu strax, það margborgar sig !
: . /
II
-GHS