Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
Stuttar fréttir
Utlönd
Kaþólikki skotinn
Kaþólskur maöur í Beifast var
skotinn og alvarlega særður að
syni sínum ásjáandi.
Öndinnivarpað
íSarajevo
íbúar Sarajevo önduðu léttar
eftir að bosnískur stríðsherra
sem stjómaði glæpastarfsemi í
borginni var skotiim til bana.
ÁgreiningurumGaza
Djúpstæður ágreiningur er
kominn upp milli ísraela og Pal-
estinumanna í viðræðum um út-
færslu heimastjómar á Gaza og í
Jerikó en aðilar em ákafir í að
leysa hann.
Morðingi sinnisveikw
Hosni Mu-
barak Egypta-
landsforseti
sagði að byssu-
maður, sem
varö þremur
erlendum
ferðamönnum,
tveimur
Bandaríkjamönnum og einum
Frakka að bana í Kaíró, væri
sinnisveikur.
Nygaardheim
Norski forleggjarinn Wilham
Nygaard sem reynt var að ráða
af dögunum fór heim af sjúkra-
húsi í gær.
Öryggissveitir í Níger réðust
inn í flugvél sem ræningjar
héldu, leystu 20 gísla úr haldi en
einn úr áhöfninni lét lífið.
Biökkukona á þing
Blökkukona var kjörin á kana-
díska þingið í fyrsta sinn um
helgina.
Reuter
Eru þetta ekki flott
blóm fyrir forseta?
- spurði ung, íslensk stúlka þegar hún afhenti Vigdísi blómvönd í Ási
Gunnar Blöndal, DV, Ósló:
„Era þetta ekki flott blóm fyrir for-
seta?“ spurði Saga Brá Davíðsdóttir
þegar hún afhenti Vigdísi Finnboga-
dóttur forseta blómvönd við komuna
til Áss í gær. íslendingar í Ási fjöl-
menntu á fund Vigdísar þegar hún
kom til að skoða rannsóknarstöð
norsku skógræktarinnar í Ási. Ferð-
in þangað var efst á óskalista forset-
ans og gerðu Norömenn mikið úr
áhuga hennar á skógrækt.
í Ási kepptu fulltrúar Norðmanna
og íslendingar í gróðursetningu trjáa
og máttu gestirnir þola ósigur eftir
jafna keppni. Haraldur konungur og
Sonja drottning voru með Vigdísi í
Ási og hópuðust jafnt böm sem full-
orönir að fyrirfólkinu.
í dag er ferðinni heitið til Þránd-
heims. Þar höfðu menn í gær nokkr-
ar áhyggjur af mótmælum náms-
manna sem eru ósáttir við framlög
til skólans á næstu fjárlögum. Mátti
sjá mótmælaborða á lofti í háskólan-
um í gær.
Námsmenn vildu þó taka skýrt
fram aö ekki væri verið að mótmæla
komu forseta íslands heldur væm
þeir að nota tækifærið til að minna
á málefni skólans. Vigdís hefur verið
gerð að heiðursdoktor við Þránd-
heimsháskóla og tók í dag við viður-
kenningunni og þakkaði fyrir sig
meðræðu. ntb
Vigdís Finnbogadóttir naut sin vel í barnahópnum í Ási, austan Óslóar, í gær. Þar gróðursetti hún trjáplöntur
með aðstoð barnanna. Á eftir kepptu íslendingar og Norðmenn i trjáplöntun og sigruðu íslendingar. í dag hefur
Vigdís verið í Þrándheimi á seinasta degi heimsóknarinnar. DV-símamynd Gunnar Blöndal
TÆKNI
////////////////////////////
AUKABLAÐ UM
TÆKNI
Miðvikudaginn 10. nóvember mun aukablað um tækni fylgja
DV. Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en í því verður fjallað
um flest það sem viðkemur tækni til nota á heimilum og víðar.
í blaðinu verða upplýsingar um sjónvörp, myndbönd, heimabíó,
myndavélar, símtæki, faxtæki, þjófavarnakerfi og ýmsa hagnýta
tækni sem notuð er bæði heima og heiman.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í blaðið er
bent á að senda upplýsingar til ritstjórnar DV, Hauks Lárusar
Haukssonar, fyrir 2. nóvember.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu auka-
blaði, vinsamlega hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur, aug-
lýsingadeild DV, hið fyrsta, í síma 63 27 23.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 4. nóvember.
Ath.l Bréfasími okkar er 63 27 27
Þverholti 11.-105 Reykjavík-Sími 91 -632700 - Símbréf 91 -632727
Noregsheimsókn forseta íslands:
Konungurinn skaut
sjálfur bráð í matinn
Haraldur Noregskonungur sá
sjálfur um að afla villibráðar í veisl-
una með Vigdísi Finnbogadóttur í
Akurhúskastala við upphaf Noregs-
heimsóknar hennar. Þetta þykir
sjálfsagt mál enda er Haraldur kon-
ungur kunnur útivistar- og veiði-
maður.
Konunglegi meistarakokkurinh
Marasu Inage sá um að gera mat úr
villibráðinni. Hann sagði í samtali
við norska Dagbladet að hann hefði
undirbúið veisluna í heilan mánuð.
Þegar á fyrstu stigum undirbúnings-
ins var ákveðið að leggja áherslu á
haust og vMbráð.
í matinn voru m.a. ijúpur. Þurfti
60 fugla í forréttinn en ekki fylgir
sögunni hvort konungur skaut þá
alla. í aðalrétt vom elgslundir með
ýmsu meðlæti. Á eftir fylgdi gratin-
eraður graflax og blandaðir ostar.
Að lokum var borinn fram ís með
moltuberiasósu.
Alls tóku um 100 manns þátt í að
undirbúa veisluna. Var mikil áhersla
lögð á að hún yrði öli hin virðuleg-
asta og gekk það eftir. Veislugestir
voru 176 og bar ekki á öðm en að
þeir færa bæöi saddir og glaðir frá
borðum.
Meistarakokkurinn Masaru Inage notaöi m.a. sextíu rjúpur í forréttinn. í
aðalrétt voru elgslundir. Kokkurinnn hóf undirbúning fyrir veisluna i síð-
asta mánuði en konungur fór á dögunum í veiði að afia bráðar.
Hollenskamaf-
ían með puttana
í stjórnmálum
Eyþór Eövardsson, DV, Ainsterdarn:
Mikið upplausnarástand ríkir
þessa dagana í hollenskum
stjórnmálum vegna yfirlýsinga
nokkurra áhrifamanna í Amst-
erdam, þar á meðal lögreglustjór-
ans og borgarstjórans, um að hol-
lenska mafian hafi stjómmála-
menn á sínum snærum.
Lögreglustjórinn segist vita um
stjómmálamann sem vinni fyrir
mafíuna en neitar að gefa upp
nafn hans. Forseti þingsins hefur
krafist þess að dómsmálaráð-
herrann gefi þinginu skýr svör í
málinu sem fýrst þar sem það sé
mjög alvarlegt.
Hagsmunir mafiunnar í Hol-
landi eru umtalsverðir og liggja
aöallega í gríðarlegu magni fíkni-
efna sem fer í gegnum Amster-
dam á ári hverju. Fjölmiðlar teija
að mafían vilji m.a. að stjórnvöld
haldi óbreyttri stefnu í raálefnum
eiturlyíja.
Vinsætdir
Balladursdala
Vinsældir
ríkisstjómar
Edouards
Balladurs, for-
sætisráðherra
Frakkiands,
minnkuðu um
tíu prósentu-
stig á einum
mánuði og nýtur stjómin nú fylg-
ist færri en fimmtíu prósenta
landsmanna í fyrsta sinn frá því
hún tók viö völdum, segir í nýrrí
skoöanakönnun. íteuter