Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 11 Uflönd Nyrup ætlar að biðjaum lokun kjarnorkuvers Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráð- heira Ðan- merkur, hefur nú blandaö sér í deiluna um sænska kjarn- orkuveríð Barseback þar sem leki hefur all- oft komið upp að undanförnu. Tæknimenn fUndu svo orsakir lekans í gær. „Þaö veröur að loka Barsebáck eins fljótt og hægt er. Sú stefna stjómarinnar er skýr og ég hef hugsað mér að segja Carli Bildt það,“ sagðl Nyrup í viðtali við Ekstra Bladet í gær. Þeir Nyrup Rasmussen og Bildt hittast i Maiáuhöíh á Álandseyj- um á fundi Norðurlandaráðs í næsta mánuði. Þar ætlar Nymp að gera Svíum ljóst að hann er aö verða fullsaddur á síendur- teknum vandamálum í kjarn- orkuverinu. ÓvinirEBhjá norskum krötum íhópsaman Andstæðingar Evrópubanda- lagsins innan norska Verka- mannaflokksins stofnuðu í gær hreyflngu sem ætlað er að berjast gegn aðild að bandalaginu. Leið- togi hreyíingarinnar verður Hall- vard Bakke, helsti EB-andstæð- ingurinn innan þingílokks Verkamannaflokksins. Hin nýja hreyfing er eins konar ný útgáfa af samtökum andstæð- inga EB sem höföu sigur í þjóðar- atkvæðagreiðslunni áriö 1972 þegar aðiid var hafnað. Ekkertspursttil 74sýnaeyðni- smitaðs blóðs Danska lögreglan hefur enn ekki komist á spor 74 glerhylkja með eyðnismituðu blóði sem stol- ið var á sjúkrahúsinu í Hvidovre fyrir nokkru. Alls voru 75 gler- hylki tekin en eitt þeirra fannst á þriðjudag og var þaö tómt. Hylkið fannst í Nörrebrohverfi í Kaupmannahöfn, á stað þar sem fíkniefnaneytendur koma saman. Þaö var hundur einn sem var á göngu með eiganda sínum sem fann glerhylkið. Lögreglan hefur varað fikni- efnaneytendur við hylkjunum. stjórnar herferð gegnglæpum Bandaríski skemmtikraft- urinn og fyrir- myndarfaðir- inn Bill Cosby ætlar að fara fyrir krossferð mannréttinda- leiötogans Jes- ses Jacksons á hendur glæpum svartra gegn öðrum svertingjum. Þetta kom fram í blaðinu New York Post í gær. Cosby, sem er einn af vinsæl- ustu og auðugustu skeramtikröft- um Bandarikjanna, mun sitja í forsæti sérstakrar nefndar sem á að vinna gegn andfélagsiegum boðskap i garð blakkra og þjóðfé- lagsins í heild í fjölnúðlum. Jesse Jackson sagði á fundi meö blaðamönnum New York Post að Cosby heföi fallist á að taka verk- ið að sér síðastíiðinn sunnudag. Á fundinum gagnrýndi Jackson isefni í sjónvarpi. Biteau, NTB, Bíuter Noregurbyggðist norðanfrá Finnmörku Norskir fornleifafræðingar segja að allt bendi til að fyrstu íbúar Noregs hafi komið úr norðri og fyrst tekið sér bólfestu á Finnmörku áður en þeir héldu áfram suður á bóginn. Fyrir skömmu fundust á Mag- eröya í Finnmörku vísbendingar um búsetu manna þar fýrir 10.300 árum. Til þessa hefur verið talið að elstu mannvistarleifar í Nor- egi væru 9.600 ára gamlar. Fólkið sem fyrst bjó í Noregi liföi af fisk- veiðum. Allir vilja sjá Kínverski kvikmynda- leikstjórinn Ding Yinnan hefur ákveðiö að ráðast í að gera mynd í t.vöfaidri lengd um fiokksleið- togann Deng Xiaoping. Leikstjór- inn segir að myndir um gamla flokksbrodda njóti meiri vin- sælda en aðrar myndir í Kína og þvi sé hann aðeins að bregðast við kröfum markaöarins. Árið 1991 sló mynd um Zhou Enlai öll aðsóknarmet í Kína og er reiknað með að Deng gamli reynist ekki síður vinsæll. Skutusjálfasig nidurmeð tundurskeyti Rannsóknarnefiid á vegum bandaríska flotans hefúr komist að þeirri niðurstöðu að skipverj- ar ákjamorkukafbátnum Scorpi- on hafi skotið sjálfa sig niður með tundurskeyti. Kafbáturinn týnd- ist árið 1968 og hafa afdrif hans veriö óráðin gáta upp frá því. í nýrri skýrslu er þvi haldið fram að skipverjar hafi af ein- hverri ástæðu skotið tundur- steyti frá bátnum en það snúið til baka og sprengt bátinn í tætlur. Scorpion liggur á hafsbotni í sunnanverðu Atlantshafi. Að sögn hefur ekki orðið vart við geislavirkni frá honum. Julia Roberts ekkiþunguð Blaöafulltrúi bandarisku leikkonunnar Juiiu Roberts hefur séð ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu þess efnis að stjarnan sé ekki þunguð. Að baki býr að breska blaðið The Sun birti nú i vikunni frétt þess efnis að Julia heföi látið fallerast við upptökur á síðustu mynd sinni og myndi verða léttari í apríl. Jafnaðium síma- vélarnar Bandaríkjamaður, sem er ósátt- ur við að fá bara svör frá sjálf- virkum símavélum í stofnunum og fyrirtækjum, hefur þróað sér- stakan tölvubúnaö við símann sinn til að hringja látlaust í síma- vélar úti íbæ. Slysist mennskur maöur til að svara er honum bent á aö styðja á 1 og þá svarar símavél lirekkja- lómsins að eigandi hennar sé því miður upptekinn og geti ekki komið í símann. Uppátæki þetta nýtur litilla vinsælda í fyrirtækj- um vestra. ' | Móana Pozzi verður i framboði til borgarstjóra í Róm síðar í haust á vegum ítalska Astarflokksins. Framboðið var kynnt með mikilli viðhöfn í gær og höfðu konurnar m.a. búið til rjómatertu með mynd af hringleikahúsinu Colosseum. Simamynd Reuter ítalskar konur ætla sér stóran hlut í komandi kosningum: Ætla sér völd í Napólí og Róm - Ástarflokkurinn enn í sárum eftir hrakfarir í þingkosningum Itölsk kvennaframboð ætla sér stóran hlut í komandi bæjar- og sveitarstjórnarkosningum þann 21. nóvember. í gær var framboð vænd- iskonunnar Móönu Pozzi kynnt með pompi og prakt í Róm. Hún ætlar sér ekkert minna en stól borgarstjóra ef kjósendur vilja sjá hana. Ástarflokkurinn ítalski hefur verið í sárum frá því hann beið afhroð í þingkosningum á síðasta ári. Þá varð flokksleiðtoginn Cicciolina að hætta við framboð vegna óléttú en kyn- systrum hennar tókst ekki að halda uppi merkinu. Nú á að blása nýju lífi í flokksstarfið og nýta sér megna og vaxandi óánægju al- mennings með stjómmála- menn úr hópi karla. Þar fefi- Alessandra ur hver dreng- urinn eftir ann- an vegna hneykslismála og því telja konurnar rétt að bjóða enn fram ást- Mussolini. I Napolí ætlar Alessandra Musso- lini, barnabarn fasistaleiðtogans, sér embætti borgarstjóra. Hún hefur verið áberandi í stjórnmálum á Ítalíu síðustu ár og á sér dyggan stuðnings- hóp þótt ástin sé ekki eins ofarlega á stefnuskránni hjá henni og sjálfum Ástarflokknum. Baráttumál Pozzi og Ástarflokks- ins verða sem fyrr réttindamál vændiskvenna og að stjórnmála- menn lofi ástinni að komast að í störfum sínum. Flokkskonur segja að vandamál ítaliu megi rekja til ást- leysis. Danski Framfaraflokkurinn: Á móti lánaábyrgðum til Færeyja Þingmenn Framfaraflokksins í Danmörku gerðu harða hríð að stjóminni í gær við fyrstu umræöu frumvarps um að staðfesta nýgerðan samning við færeysku heimastjóm- ina. Sá samningur gerir ráð fyrir að Danir ábyrgist lán upp á 13 milljarða íslenskra króna sem á að bjarga tveimur stærstu bönkum Færeyja. Kirsten Jacobsen, talsmaður Framfaraflokksins, var ipjög harð- orð í ræðu sinni á þinginu. „Peningamir sem við gefum fær- eysku bönkunum snúa við á diski í Þórshöfn og fara aftur heim til Dan- merkur eða rjúka tíl erlendra banka,“ sagði hún. Flokkurinn harmaði að fjármála- ráðherrann skyldi ekki hafa tryggt í samkomulaginu að allar bygginga- framkvæmdir í Færeyjum yrðu stöðvaðar. „Með einu pennastriki er hægt að taka tvo milljarða af framlögum til mannvirkjagerðar án þess að einn einasti Færeyingur taki eftir því," sagði Kirsten Jacobsen. Ræðumenn annarra flokka sögðu hins vegar að samkomiúagið væri nauðsynlegt og það heföi verið skylda danskra stjómvalda að gera það. Samkomulagiö gerir einnig ráð fyrir þvi að færeyska landsstjómin skeri um tvo og hálfan milljarð ís- lenskra króna af fiárlögum næsta árs. Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.