Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Page 17
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 17 Fréttir Hagsmunasamtök Bessastaðahrepps: Á móti samein- ingu við Garðabæ - sameining ótímabær í ljósi upplýsinga frá stjómvöldum Hagsmunasamtök Bessastaða- hrepps hafa sent frá sér ályktun frá aðalfundi samtakanna þar sem segir að sameining Bessastaðahrepps og Garðabæjar sé ekki tímabær í ljósi þeirra upplýsinga sem fyrir hggja frá stjórnvöldum. Ekki hafi fengist nein skýr svör frá stjórnvöldum um flutn- ing verkefna eða breytingar á tekju- stofnun sveitarfélaga í framtíðinni og því telja Hagsmunasamtökin sig ekki geta stutt sameininguna á þessu stigi málsins. í ályktuninni segir meðal annars að lög um sameiningu sveitarfélaga kveði ekki á um hvað verið sé að kjósa um varðandi verkefnatilfærsl- ur eða tekjustofna. Sveitarstjórnir Bessastaðahrepps og Garðabæjar hafi ekki komið sér saman um neina stefnu varðandi einstaka málaflokka eða breytingar í stjórnskipun, tekju- öflun og framkvæmdum. Við stækk- un sveitarfélaga þurfi að leggja áherslu á aukin völd ákveðinna stjórnunarafla, svo sem ýmissa nefnda í sveitarfélaginu. Hagsmunasamtök Bessastaða- hrepps benda á að ekki verði aftur snúið verði sameining sveitarfélag- anna samþykkt í atkvæðagreiðsl- unni 20. nóvember. Með því að fella tillöguna verði sameining hins vegar ekki útilokuð síðar. „í ljósi þessa má sjá að undirbún- ingur sameiningar er á margan hátt flumbrulegur og jafnvel vanhugsað- ur og hvorki stjórnvöld né sveitar- stjórnir sveitarfélaganna tveggja bjóða upp á kosningar um annað en annaðhvort óbreytt ástand eða al- gera óvissu. Að kjósa yfir sig óvissu er ábyrgðarleysi," segir í ályktun- inni. Hagsmunasamtök Bessastaða- hrepps eiga einn fulltrúa í sveitar- stjórn. -GHS Greinilegt er að kosningatitringur er að komast í sveitarstjórnarmenn um allt land og augljóst að Markús Örn Antonsson borgarstjóri ætlar að taka borgina með trompi í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Fyrsti fundurinn í fundaherferð borgarstjóra var á Hótel Borg á mánudagskvöld. Fundurinn var vel sóttur, bæði af borgarbúum og væntanlegum frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni. Borgarstjóri flutti erindi og kynnti fram- kvæmdir meirihlutans i borginni á þessu kjörtímabili. Að þeim loknum voru fyrirspurnir og spunnust fjörugar umræður um málefni íbúanna. -GHS/DV-mynd ÞÖK Utankjörfundar- atkvæðagreiðsla vegna kosninga varðandi sameiningu sveitarfélaga, sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 75/1993 um breytingu á sveitar- stjórnarlögum nr. 8/1986, fer fram á skrifstofu embættisins í Skógarhlíð 6, 2. hæð, á opnunartíma, kl. 9.30-15.30, frá og með 25. október 1993. Sýslumaðurinn í Reykjavík MOULINEX örbylgjuofnar með snúningsdiski létta heimilisstörfin í ys og erli dagsins. MOULINEX örbylgjuofnar hraðvirk heimilisaðstoð. "FæsTTnðBStu raftækjaversjun I. GUÐMUNDSSON & Co. hf. UMBOOS OG HEILDVERSLUN SÍMI 91-24020 FAX 91-623145 Stór búsáhaldamarkaður Smiðjuvegi 30, Kópavogi Opið virka daga kl. 10-19 laugardaga kl. 10-17 sunnudaga kl. 13-17 Úrval búsáhalda og gjafavöru. Ódýrar jólagjafir Búsáhaldamarkaðurinn sá ódýri AFSLÁTTUR AF Debetkortin: Engin lausn í sjónmáli samningaviðræðum fulltrúa bamka og sparisjóöa annars vegar og kaup- manna hins vegar um debetkortin. Bankamenn segjast stefna aö því að hefja útgáfu debetkortanna strax um næstu mánaðamót en kaupmenn telja það nánast útilokað að sam- komulag náist fyrir þann tíma. Ágreiningur hefur einkum verið um gjaldtökuna, þ.e. hver eigi að bera kostnað af debetkortunum. Kaupmenn segja kortin verulega hagræðingu fyrir bankana og því eigi þeir að bera af þeim kostnaðinn en bankamenn telja sjálfsagt að kaup- menn borgi af þeim þjónustugjöld eins og af lánskortunum. Komið hefur til tals í samuingaviö- ræðunum að kaupmenn taki þátt í kostnaðinum gegn því að þjónustu- gjöld af lánskortunum lækid en þeir leggja mikla áherslu á að hækka ekki vöruveröið. Kaupmaður tjáði blaða- manni aö áður hafi hann borgað um 1 milljón á ári í afioll af innstæðu- lausum tékkum en hann þurfi hins vegar að borga tíu milljónir á ári í þjónustugjöld af debetkortum sem hannsagðiofdýruverðikeypt. -ingo - útgjöld verslunar geta tífaldast með debetkortunum Engin lausn virðist í sjónmáh í Höfuðborgarsvæðið: Sameiginlegur vinnumarkaður Borgarráð Reykjavíkur, bæjar- ráð Garðabæjar, Bessastaða- hrepps, Hafnarfjarðar og bæjar- stjóm Seltjamamess hafa hvert í sínu lagi fjallað um og samþykkt samkomulag um að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu séu öll sam- eiginlegur vinnumarkaður með til- hti til útboöa og verksamninga á vegum sveitarfélaganna. Fulltrúar sveitarfélaganna kom- ust að þessari niðurstöðu eftir að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði veittu nú í haust verktakafyrirtækinu Hagvirki-Kletti verk án undan- gengins útboðs.. -GHS GOLFEFNUM VIKUTILBOÐ FRÁ 28. OKT. ■ 3. NÓV. ATH. NU HOFUM VIÐ OPIÐ ÁSUNNUDÖGUM FRÁ KL. 13.00 TIL 15.00 i Haliarmúla 4 • 108 Reykjavík • Sími: (91) 3 33 31

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.