Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Qupperneq 28
40 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 Merming_________________________________________________ Hvað líður byggingu tónlistarhúss? Finnum fyrir auknum meðbyr - segir Valgeir Guðjónsson, formaður Samtaka um byggingu tónlistarhúss Valgeir Guðjónsson. Mikið átak framundan í kynningu á tónlistarhúsi. DV-mynd GVA Allt frá því um miðjan fimmta ára- tuginn hafa verið uppi umræður og áætlanir um byggingu sérstaks tón- listarhúss. Allar hugmyndir hafa samt dagað uppi hjá yfirvöldum sem hingað til hafa ekki sýnt mikinn skilning á málinu. Kraftur komst á málið þegar Samtök um byggingu tónlistarhúss voru stofnað 1983 og á tímabili voru væntingar miklar en stífni yfirvalda varð enn til að fresta málinu. En með hugmynd að nýrri staðsetningu hússins er kominn nýr kraftur í samtökin og er margt fram- undan. Valgeir Guðjónsson er for- maður samtakanna og var hann fenginn til að spjalla um gang mála og hvað framundan væri. „Það var strax mikill hugur í fólki eftir aö samtökin voru stofnuð og þótti flestum þetta svo sjálfsagt mál að það hlyti að ganga eftir á nokkrum árum. Þetta var kraftmikill hópur sem starfaði undir forystu Ármanns Arnar Ármannssonar. Efnt var til samkeppni meðal norrænna arki- tekta og var valin teikning eftir Guð- mund Jónsson arkitekt sem býr í Noregi. Viljayfirlýsingar fengust frá öllum þingflokkum fyrir byggingu hússins og málið leit vel út á tímabili. Síðan gerist það að málið strandar á þáverandi fjármálaráðherra, Ólafi Ragnari Grímssyni. Má segja að þetta hafi verið rothögg fyrir mál- staðinn og það voru margir sem misstu vonina og töldu að þetta hús yrði aldrei byggt. En nú eru sem sagt teikn á lofti um að tónlistarhús þyki eftirsóknarvert framtak út af mörg- um sjónarmiöum, hugmyndir eru uppi um fjölnota hús sem meðal ann- ars yrði ráðstefnuvettvangur. Það eru miklir möguleikar fyrir hendi á þessu sviði en fyrsta flokks aðstöðu hefur vantað." Staðsetning við Reykjavíkurhöfn - í upphafi var tónlistarhúsi ætlaður staður í Laugardalnum. „Það má segja að sá staður hafi dáið drottni sínum við rothöggið. En eftir að fundinn var staður við Reykjavíkurhöfn hafa viðhorfin breyst og meðbyr aukist til muna. Það er nefnilega málið að þegar svona stórt hús er byggt fyrir pen- inga fólksins verður almenningur að hafa áhuga á byggingunni. Við getum tekið sem dæmi Korpúlfsstaði, sem lítil stemning virðist vera í kringum. Ákvörðun um Korpúlfsstaði er kom- in að ofan og það brennur ekki á neinum að sjá þessa byggingu í því horfi sem ætlað er. Þegar áætlun um Korpúlfsstaöi kom upp á yfirborðið var það mikið áfall fyrir okkur vegna þess að til var viljayfirlýsing frá borginni um að tónlistarhús yrði næsta stóra verkefnið á vegum Reykj avíkurborgar. “ - Er hönnun hússins eitthvað á veg komin? „Það hefur verið lögð mest vinna í að hanna tónlistarsalinn sjálfan og mér skilst að hann lofi mjög góðu. En í ljósi nýrra hugmynda um húsið þarf kannski að hugsa upp á nýtt ýmislegt sem viðkemur bygging- unni, enda komin önnur staösetning en í upphafi var áætlað. Ég hef oft hugsað út í það að tónlistarhúsið gæti oröið glæsileg menningarmið- stöð í miðbænum og að Errósafnið, sem hugmyndin er að verði á Korp- úlfsstöðmn, gæti jafnyel orðið hluti af þessari byggingu. Ég tel reyndar að Erró eigi heima í miðbænum en ekki í verðandi úthverfi." Happdrætti og geislaplata - Áhugi tónlistarmanna hefur ávallt verið mikill á byggingu tónlistar- húss. „Ræktarsemi tónlistarmanna við byggingu tónlistarhúss er mikil, enda eru tónlistarmenn alltaf tilbún- ir að ljá góðu málefni lið. Það er ekki haldin sú samkoma í þágu góðs mál- efnis aö tónlist sé ekki leikin. Þegar Tónlistarráð íslands, sem er lands- samtök tónlistarmanna með 25.000 félögum, var stofnað í fyrra var það fyrsta samþykktin að Tónlistarhús væri brýnasta þörf tónlistarmanna. Þá má geta þess að Bandalag ís- lenskra listamanna hefur sett bygg- ingu tónlistarhúss efst á blað.“ - Hvað er svo framundan? „Stefnan hjá okkur er að fá fleira fólk til að starfa með okkur og leita liðsinnis þess með því að bjóða eitt- hvað í staðinn. Við ætlum að hleypa af stað happdrætti meðal allra styrktarfélaga sem við köllum Fort- issimo. Verður dreginn út vinningur mánaðarlega í Dagsljósi og um leið verður boðið upp á tónlistaruppá- komu þar sem tónlistarmenn leggja málinu lið eina ferðina enn. Einnig ætlum við að senda styrktaraðilum geislaplötu eftir jólin. Er það sérstök upptaka af Lifun sem gerð var með Sinfóníuhljómsveit íslands og valin- kunnum söngvurum og hljóðfæra- leikurum í vor. Við ætlum líka að efla kynningarmálin og erum að gefa út bækling þar sem við kynnum hug- myndir okkar um tónlistarhúsið á þessum tiltekna stað við Reykjavík- urhöfn. Og við munum ekki síst leita til þeirra sem eiga að byggja tónlist- arhús, ríkis og borgar, þar sem vilji fólksins á að ráða ferðinni.“ -HK Guðmundur Helgason dansar 1 Coppelíu: Kann orðið vel við Coppelíus Guðmundur Helgason í hlutverki Coppelíusar. DV-mynd BG Undanfarið hefur íslenski dans- flokkurinn verið að sýna Coppelíu á sviði íslensku óperunnar. Um er ræða ballett sem frumsýndur var í Borgarleikhúsinu í vor. Breytingar eru á hlutverkaskipan í ballettinum og einn nýju dansaranna í hópnum er ungur Keflvíkingur, Guðmundur Helgason. Guðmundur kom heim síðastliðið vor eftir að hafa verið í framhalds- námi í Svíþjóð. Guðmundur, sem alla sína tíð hefur búið í Keflavík, er laus- ráðinn við íslenska dansflokkinn og kennir í forskóla Listdansskóla ís- lands í Reykjavík auk þess sem hann kennir á vegum skólans í Keflavík. Aðspurður um áhuga á ballett seg- ist hann alltaf hafa haft áhuga á dansi og hann hafi verið í dansflokki í Keflavík. „Þegar ég hóf nám í Fjöl- brautaskóla Suðumesja hafði ég samband viö Listdanskóla íslands og fékk að koma í einn tíma og þá var ekki aftur snúið. Ég var að vísu orð- inn sextán ára sem er nokkuð hár aldur fyrir þann sem ætlar að leggja fyrir sig ballett. Síðan var ég í Lást- dansskólanum í fjögur ár og fór það- an í framhaldsnám til Stokkhólms þar sem ég var næstu tvö árin. Þar þurfti ég í raun að taka stúdentspróf aftur en ég var á dansbraut og fylgdu náminu ýmis fög sem ég hafði tekið stúdentspróf í hér heima.“ Kennir í Reykjavík og Keflavík Guömundur var ekki með í Coppel- íu í vor, enda þá að koma heim frá Svíþjóð. „Það voru tveir sem skiptu með sér hlutverkinu en þeir voru ekki til staðar nú þannig að þaö var mín heppni að fá hlutverkið. Eg hafði leikið líkt hlutverk í nemendasýn- ingu í Svíþjóð. Hafði reynslu í að leika hlutverkið sem er krefjandi. Það er meira látbragð en dans, engin spor fylgja hlutverkinu heldur verð ég að búa til hreyfingar þannig að ég get skapað persónuna að nokkru leyti sjálfur. Og ég verð að segja eins og er að ég kann orðið vel við karlinn og þykir vænt um hann. Ég hef mjög gaman af að fá að taka þátt í Coppelíu. íslenski dansflokkur- inn er greinilega á réttri leið undir stjóm Maríu Gísladóttur en skortur á hæfu húsnæði til sýninga stendur flokknum fyrir þrifum. Sviðið í ís- lensku óperunni er aUtof lítið fyrir ballett." Guðmundur sagði að hans aðal- starf nú væri kennslan. „Ég kenni forskólabömum, bæði í Reykjavik og Keflavík og er auk þess með einn sextán ára pilt í einkatímum, strák sem eiginlega stendur í sömu spomm og ég þegar ég hóf nám. Kennslan í Keflavík er sú eina utan Reykjavíkur á vegum Listdansskólans. Þar eru hjá mér tíu nemendur, þar af einn strákur, en það er erfitt að fá unga drengi í ballett og er til að mynda enginn drengur núna í forskólanum í Reykjavík." Hefur gaman af öllumdansi - Klassískur ballett og nútímaballett, hvort er skemmtilegra? „Ég get eiginlega ekki gert upp á milli, finnst bæði jafnskemmtilegt. Það eru mjög ólíkar tilfinningar sem em túlkaðar í nútímaverkum og klassískum verkum en ég get ekki gert upp á milli hvort er skemmti- legra, eiginlega fmnst mér gaman að dansa allt. Þegar ég var í skólanum úti í Stokkhólmi fengum við nemend- umir að taka þátt í sýningum hjá Konunglega sænska ballettinum, meðal annars Svanavatninu, Draumi á Jónsmessunótt og Pétri Gaut. Það var dýrmæt reynsla að fá að taka þátt í þessum sýningum og ég lærði einnig mikið á því að fylgjast með.“ Guðmundur sagöi að lokum að næsta sýning, sem hann tæki þátt í, væri fjáröflunarsýning fyrir List- dansskóla íslands sem yrði í Þjóð- leikhúsinu 1. desember. -HK klassiskri tónlist á geislaplötum í vetur. Er þegar komin út geisla- piata meö verkum eftir Þorkel Sigurbjörnsson og tvær plötur með leik Páls ísólfssonar. Nú hef- ur Bryndís Halla Gylfadóttir leik- iö islensk tónverk inn á geisla- plötu sem komin er út. A jplöt- unni leikur hún verk eftir Askel Másson,; Hauk Tómasson. Átla Heimi Sveinsson, Þorstein Hauksson, Hróðmar Inga Sigur- björnsson og Jón Nordal. Bryndís Halla hefur vakið mikla athygli undanfarin ár fyrir sellóleik. Hún var ráðinn fyrsti sellóleikari Sin- fóníunnar 1990 en fékk leyfi fra þeirri stöðu þegar henni voru veitt þriggja ára starfslaun. Geislaplatan er gefin út í tilefni af því að Bryndís bar sigur úr býtum í Tónvakanum, tónlistar- keppni Ríkisútvarpsins 1993. Kvikmyndagerðar- menn skaffa í Kvikmyndagerð á íslandi er fiárfrek á okkar raælikvarða og fmnst ýmsum að stundum sé ver- iö að kasta á glæ mörgum millj- ónum í gerð misgóðra kvik- mynda. Það eru fáir sem halda þvf fram aö með íslenskri kvik- myndagerð sé stunduð arðvæn- leg framleiösla eða verðmæta- sköpun. Það er samt staðreynd að á þessu ári hafa náðst til lands- ins um það bil 200-250 mifijónir króna í þjóðarbúið, ýmist úr er- lendum sjóðum eða með þvi að selja kvikmyndir til útlanda. Þessir peningar eru í umferð í þjóðfélaginu og koma þvi til góöa. Dræmaðsókná Yfirleitt hefur verið góð aðsókn á kvikmyndahátíð Listahátíðar og hún yörleitt skilað hagnaði en ljóst er að kvikmyndahátíðin, sem var haldin í Háskólabíói, stendur örugglega ekki undir kostnaöi. Á hátiðinni var sýndur á fióröa tug kvikmynda og er tal- ið að aðsóknin hafi verið um það bilfijnmþúsund manns. Sjálfsagt má rekia þessa drætnu aðsókn til þess að of lítið var um þekktar nýjar kvikmyndir á hátíðinni, allt of margar myndir sem fáir hafa áhuga á. Þessa staðreynd má sjá þegar bornar eru samatt kvikmyndir á íslensku hátíðinni og þær sem Norömemi og Svíar bjóða upp á á sinum kvikmynda- hátíðum sem lialdnar eru um sama leyti. Viðtalsbókvið Eirík skipherra Sjálfsagt er það einsdæmi að út komi viðtalsbók viö 101 árs gamlan mann. Eldhress í heila öld er viötalsbók við Eirík Kristó- fersson ■ skipherra, sem væntan- leg er á markaðinn á næstunni, en Eiríkur er 101 árs. Það er Gylfi Griindal sem ræðir við Eirík sem þrátt fyrir háan aldur er eldhress í bragði. Eirikur varð þjóðhefia í fyrsta þorskastríðinu vegna vasklegrar framgöngu i viður eign við breska sjóherinn og er lifssigling hans ævintýri líkust. Þaö er Forlagið sem gefur bókina

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.