Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Síða 32
44 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 Unglingar að skemmta sér. Mígandi og drakkin ung- menni „Ætli það hafi ekki að minnsta kosti fimm rútur stoppað héma fyrir utan hjá mér og þegar ég ætlaði inn á klósett rétt fyrir tólf voru að minnsta kosti fjögur eða fimm ungmenni mígandi upp á vegginn hjá mér,“ segir íbúi, sem býr við hliðina á skemmtistaðn- um Stapa í Njarðvík, í DV í gær um skóladansleik sem haldinn var í Stapanum á þriðjudags- kvöld. Hræðilegir kjarasamning- ar „Þetta era ægilegir kjarasamn- ingar, alveg hræðilegir. Ég vil bara fá nýja kjarasamninga," seg- ir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, um kjara- samningana í DV í gær, Enn um geimverur „Einhvern tíma var sagt að ef Ummæli dagsins sama lygin væri endurtekin nógu oft færu menn að trúa. Ef til vill á það við í þessu samhengi,“ seg- ir Gunnar Þorsteinsson í grein sinni um fljúgandi furðuhluti í Mogganum í gær. Spýjuhátíð bjórmanna „Þessi innflutta spýjuhátíð bjórmanna til eflingar menning- unni hefur tekist eins og til stóð. Spýjan hefur verið hennar aðals- merki, þótt sjaldan sé frá því skýrt, það hefur í engu breyst frá dögum Egils SkaUagrímssonar," segir Páll V. Daníelsson í lesenda- bréfi sínu í Mogganum í gær. Keith Humphreys, lektor við University of Northumbia í Eng- landi, flytur fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar Kennara- háskóla íslands í dag kl. 16.30 í stofu M-201 í Kennaraháskólán- um. í'yrirlesturinn fjallar um mat á starfi kennara sem mikil- vægan þátt i að efla starfshæfni Fundiríkvöld þeirra. Reiki-heiiun Opiö hús öU ftmmtudagskvöld kl. 20 í Bolholti 4, 4. hæð. Allir velkomnir. Hafnasamband sveitarfé- Arsfimdur Hafnasambands sveitarfélaga verður haldinn á Hótel Höfn, Hornafirði, í kvöld og annað kvöld. Kaldi og dálítil súld Vestanlands verður suðlæg átt, víð- ast kaldi og dálítil súld eða rigning með köflum í dag en stinningskaldi Veöriö 1 dag eða aUhvasst og súld eða rigning í nótt. Suðaustan til verður sunnan gola eða kaldi í dag en kaldi eða stinningskaldi í nótt og skýjað með köflum. Áfram verður hlýtt í veðri. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðlæg átt, kaldi í dag og dálítil súld eða rigning með köflum en stinnings- kaldi og rigning í nótt. Hiti 8-11 stig. í morgun kl. 6 var suðaustan kaldi vestan tU á landinu en annars fremur hæg suðlæg átt. Um landið sunnan- og vestanvert var víða súld eða rign- ing en norðaustanlands var skýjaö með köflum. Hiti var á biUnu 3-12 stig, kaldast norðaustanlands en hlýjast um landið vestanvert. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri hálfskýjað 9 Egilsstaöir skýjað 4 Galtarviti skýjað 12 KeílavikurOugvöllur skýjaö 9 Kirkjubæjarklaustur rigning 6 Raufarhöfn skýjað 3 Reykjavík þokumóða 9 Vestmarmaeyjar þokumóöa 8 Bergen léttskýjað 5 Helsinki skýjað 5 Ósló skýjað -1 Stokkhólmur heiöskírt 6 Þórshöfh hálfskýjað 8 Amsterdam alskýjað 9 Barcelona þokumóða 16 Berlín þokumóða 7 Chicago skýjað 3 Feneyjar heiðskírt 5 Frankfuri þokumóða 1 Glasgow mistur 3 Hamborg alskýjað 8 London súld 9 Madríd alskýjað 6 Malaga heiðskírt 9 Mallorca skýjað 15 Montreal hálfskýjað 6 New York alskýjað 13 Nuuk snjókoma -2 Oriando skýjað 17 París þokumóða 2 Valencia léttskýjað 11 Vín þoka 1 Winnipeg skúr 3 „Það kom smáskrekkur í mig og þá hætti ég að synda og reyndi að róa mig niður. Ég var oröinn kald- ur og stífur í fótunum en ég hugs- aði sem svo að þetta myndi redd- ast. Aðalatriðið er að halda ró sinni á svona stundum," segir Karl Grét- arsson seglbrettamaður sem ný- lega var í fréttum fyrir að bjargast af eigin rammleik eftir að hafa svamlað á segUausu bretti við Gróttu í um tvær klukkustundir. Þetta er ekki í fyrsta skipti sein Karl, sem er 32 ára gamall, lendir í svona lífsreynslu því hann stökk í sjóinn þegar hann var 13 ára tíl að bjarga 3ja ára gömlu barai sera hafði híólaö fram af bryggjunni á Raufarhöfn. Karl hefur verið í seglbretta- þessu. Ég reyni aö fara sem oftast og er þá aðallega við Seltjarnames- ið, Fitjar í Njarðvík og á Hafra- vatni.“ Karl lauk prófi frá Stýrimanna- skólanum árið 1988 og hefur verið í sjómennskunni sl. 10 ár. Ilann hefur aðallega verið á bátnum Sæ Ijóma sem >-r i eigu fiiður hans sem er útgerðarmaður í Sandgeröi. Karl lætur óhappiö um daginn ekki hafa áhrif á sig og ætlar að halda áfrain að stunda þessa íþrótt af kappi. „Ég tor reyndar strax aíi- ur á brettið daginn cftir óhappið til aö ná skrckknum úr mér.“ Unnusta Karls er Björg Hauks- dóttir viðskiptafræðingur en hún íþróttinni í fiögur ár en áhuginn starfar í Verðbréfadeíld Búnaðar- kviknaði fyrst þegar hann prófaði bankans. Karl á einn son, Elvar þetta úti á Spáni Seinna leigði Þór, sem er 6 ára. hann sér svo bretti í Nauthólsvík- Karl vUdi aö lokum koma fram inni. „Þetta er mjög skemmtileg þakklæti til björgunarsveitarinnar og ég er alveg heiilaður af Albcrts fyrir skjót viðbrögð. -KMH Karl Grétarsson. Myndgátan Leggur sér til munns Myndgátan hér að ofan iýsir nafnorði. Tveir leikir fara fram í 2. deild karla í handbolta í dag. Fiölnir og Breiðablik leika í Fjölnishús- inu og Ármann og Grótta leika í LaugardalshöllinnL Báðir leik- irnir hefiast kl. 20. Þá fer fram einn leikur í bikar- keppninni í körfubolta en það er forkeppni fyrir 16 Jiða úrslit. Það er í S og Grótta sem leika í íþrótta- húsi Kennaraháskólans kl. 20. Skák Bandaríski stórmeistarinn Alex Yer- molinsky haföi hvítt og átti leik gegn pólska stórmeistaranum Alexander Wojtkiewicz í meðfylgjandi stöðu sem er frá skákmótinu í Rakvere í Eistlandi á dögunum. Lokin voru skemmtileg: 38. d6+ Kc8 39. Bxf7 Dxe7 40. dxe7 Kd7 Ný myndi svartur lifa af eflir 41. Bxg8 Hxg8 en hvitur fann mun sterkari leik: 41. c4! og svartur gaf - hann kemst ekki hjá liðstapi og vonlausu endatafh. Jón L. Árnason Bridge Spil eins og þessi geta reynst illvinnanleg fýrir áhugaspilarann en eru handavinna fyrir atvinnuspilarann. Sagnir ganga þannig fyrir sig, norður gjafari og allir á hættu: * KG2 f Á862 * K105 * 973 * 1095 V G943 ♦ D872 + Á10 ♦ D8743 V 75 ♦ G93 + 542 * Á6 V KD10 * Á64 * KDG86 Norður Austur Suður Vestur Pass Pass 1+ Pass IV Pass 2 G Pass 4 G Pass 6 G p/h Tveggja granda sögn suðurs lýsti 19-20 punkta jafnskiptri hendi og fjögur grönd var áskorun í slemmu. Suður lét vaða í slemmuna þvi honum leist vel á spilin sín. Vestur spilar út spaðatíu (sem neitar hærra háspili) og sagnhafi drepur heima á ás. Ljóst er að ef hjartað liggur 3-3 er slemman auöunnin en er ekki fátt til bjargar ef hjartað hggur ekki? Sagnhafi spilar laufkóng í öðrum slag, vestur drep- ur á ásinn og spilar afitur spaða sem sagn- hafi tekur á kóng í blindum. Næst eru þrír hæstu í hjarta teknir og hturinn brotnar ekki. Atvinnuspilarinn sér strax að það er hrein úrvinnsla að vinna spil- ið. Vestur verður að halda í hjartagos- ann, austur verður að valda spaðadrottn- inguna - þar af leiðir að hvorugur þeirra getur haldið valdi á tiglinum. Sagnhafi tekur fjóra slagi á lauf og vestur verður að henda sig niður á tvo tígla þegar fimmta laufinu er spilað. Þá hefur hjarta- áttan gegnt hlutverki sínu, henni er hent í blindum og þá verður austur að henda frá valdi sínu í tighnum (eða spaðadrottn- ingu ef hann kýs það heldur). Tólfti slag- urinn kemur á tígul. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.