Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 36
I ■ftr- Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstiórn ~ Auglýsinqar - Áskrift - Preifing: Sir_______00 FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993. w Stálsmiðjan lækkar laun um 12,5 prósent Stálsmiðjan tilkynnti starfsmönn- um sínum í fyrradag að til að mæta verkefnaskorti í skipaiðnaðinum yrðu laun lækkuð um 12,5%. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi í Stálsmiðjunni í morgun sem Félag járniðnaðarmanna, Rafiðnaðarsam- bandiö, Trésmiðafélag Reykjavíkur og starfsmenn Stálsmiðjunnar efndu til. Þingmenn, ráðherrar og borgar- fulltrúar voru boðaðir til fundarins og tilefnið var slæm staða íslensks skipaiðnaðar. „Það hefur orðið algjör verkefna- þurrð í landinu. Starfsmenn í skipa- iðnaði voru 1000 þegar mest var en eru núna orðnir 560 talsins. Ástandið er slæmt og á eftir að versna. Víða erlendis er skipaiðnaður greiddur mikið niður og við viljum að jöfnun- argjald verði lagt á innflutning verk- efna alveg eins og á kex, súkkulaði og smjörlíki," sagði Örn Friðriksson, formaður Félags járniðnaðarmanna, við DV í morgun. Um launalækkunina í Stálsmiðj- unni sagði Örn að hún yrði ekki hðin af félaginu. „Þetta er ekki nokkur lausn á vanda skipaiðnaðarins. Við ætlum ekki aö sjá launin fara niður fyrir það sem þau eru í Póllandi," sagði Örn. -bjb Norðmaðurinn jaf n Skotanum Lettar of sterkir LOKI Sorpumenn kunna sýnilega enn betur að eyða peningum en sorpi! 200 milHónir til viðbótar í Sorpu * • •y Borgarráð hefur samþykkt að auka stofnfé; Reykjavíkurborgar í byggöasamlaginu Sorpu ura 133 miiUónir króna eða rúmlega 66,5 prósent næstu þrjú árin. Þá hefur Sorpa sótt um aukningu stofníjár hjá hinum sveitarfélögunum i byggðasamlaginu í hlutfahi viö eignaraðild þeirra og bíður um- sóknin ýmist afgreiðslu eða hefur hlotið samþykki hhma sveitar- stjórnanna á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt er að aukningu stofnfjár um alls 200 milljónir næstu þijú árin en eihn stærsti lánardrottinn Sorpu, Iönlánasjóður, hefur falhst á tvöfóldun lánstíma að því til- skildu að eigendur auki stofnfé. Sorpa hefur átt viö verulega ijár- hagserfiðleika að stríða frá því fyr- irtækið var stofnað fyrir nokkrum árum. HeildarQárfestingar fyrír- tækisins nema í dag rúmlega ein- um milljarði króna en fjárframlög til fyrirtækisins hafa numið 157 nhlljónum króna. Skuldir fyrir- tækisins nema nú um 943 mihjón- um króna og lækka því vonandi um 200 milljónir fyrir árið 1996. Norræni íjárfestingarbankinn er stærsti lánardrottinn Sorpu en byggðasamlagið hefur fengið sam- tals 303 milljónir króna að láni úr sjóðnum. Iðnlánasjóður kemur næst með 291 milljón króna, Spari- sjóður Reykjavikur og nágrennis með 238 mihjónir, Landsbréf með 102 og aðrir með átta milljónir eða samtals 943 milljónir. „Skuldirnar hafa ekkert með reksturinn aö gera. Við höfum fengið 157 mihjónir króna th að standa undir fratnkvæmdum og aimar kostnaður hefur verið tek- inn að láni. Við biðjum um stofn- fláraukningu til aö lækka þessa miklu lántöku. Lán lækka sem 200 mihjónum nemur og fjármagns- kostnaðurinn að sama skapi. Reksturinn hér á að standa undir rekstri og afborgunum af rúmlega 700 mihjóna króna lánum,“ segir Ögmundur Einarsson, fratn- kvæmdastjóri Sorpu. -GHS t i i i Andri Áss Grétarsson og efsti kepp- andinn á Helhsmótinu, Colin McNab, gerðu jafntefli í 5. umferð í gær og við það náði Norðmaðurinn Gausel Skotanum að vinningum. Báðir hafa 4 v. Gausel vann þýska stórmeistar- ann Schlosser í gær á svart. Andri Áss er í 3ja sæti með 3 'A v. en síðan koma 5 skákmenn, Schlosser, Stangl, Bischoff, Kristensen og Þröstur Þór- hallssonmeð3v. -hsím Lettland, sem er í efsta sæti á heimsmeistaramóti landsliða í skák í Sviss, vann ísland í gær í 5. umferð 2 '/2-1'/. Hannes Hlífar vann Gipslis, Margeir og Kengis gerðu jafntefli en Jóhann og Helgi töpuðu fyrir Shirov og Lanka. Lettland hefur 12 v. en sveit USA kemur næst með 11'/ v. og biðskák. ísland er með 7 v. og ó- tefldanleikviðÚkraínu. -hsím KratatiUaga á þingi: Sýslumanns- embættum ekkifækkað ; Vigdís Fjnnbogadóttir, forseti Islands, gerði stormandi lukku í heimsókn sinni í rannsóknarstöð norsku skógræktar- innar í Ási. Börn færðu henni og Sonju drottningu blóm og keppt var í trjáplöntun. í dag verður Vigdís gerð að heiðursdoktor við háskólann í Þrándheimi. DV-símamynd Gunnar Blöndal Þingmenn Alþýðuflokksins, þeir Gunnlaugur Stefánsson og Gísli S. Einarsson, hafa lagt fram þingsálykt unarthlögu um að sýslumannsemb- ættum í landinu veröi ekki fækkað eins og dómsmálaráðherra leggur til í fjárlagafrumvarpinu. Þess í stað vilja þeir að embættin verði efld með flutningi verkefna til þeirra frá stjómsýslunni í Reykjavík „Ég vona bara að Þorsteinn Páls- son dómsmálaráðherra taki þessu vel og standi með okkur í að efla sýslumannsembættin," sagði Gunn- laugur Stefánsson í morgun. Hann sagði að fjölmörg verkefni væri hægt að flytja frá Reykjavík til sýslumannsembætta í landinu. Með því móti mætti ná fram hagræðingu og spamaði og efla landsbyggðina í stað þess að fækka embættunum. DV hefur heimildir fyrir því aö Þorsteinn Pálsson og nokkrir þing- menn Sjálfstæðisflokksins taki þess- ari þingsályktunartihögu iha, enda gengur hún gegn hugmyndum dóms- málaráðherra um fækkun sýslu- mannsembætta. -S.dór Veðriðámorgun: Áfram- haldandi hlýindi Á morgun verður suðlæg átt, víða strekkingur og áfram sæmi- lega hlýtt á landinu. Rigning eða súld um landið sunnan- og vest- anvert en þurrt og nokkuð bjart norðan th. Vestanlands styttir upp að mestu síðdegis og kólnar þá jafnframt um 3-4 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 i ! i i i i : i OhM Reimar og reimskífur t\>UÍS€*ll Suður1and8braut 10. S. 686489.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.