Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Page 2
28
LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1994
Bílar
DV
Sköpunargleði
oghug-
mynda-
flug '
- réðu ríkjum á 18. Toyota Idea Olympics í Japan
Það mátti sjá mörg framúr-
stefnuleg og skemmtileg ökutæki,
sem nota jafnt láð, loft og lög til að
ferðast um, þegar starfsmenn
Toyota-verksmiðjanna í Japan geng-
ust í átjánda sinn fyrir samkeppni
sem gekk út á það hver gæti smíðað
frumlegasta ökutækið á liðnu
hausti.
„Toyota Engineering Society" eða
„Joyful Jetter" fékk sérstök heið-
ursverðlaun formanns dómnefndar
en þetta eru vélknúin „skíði" með
hjólum til að ferðast á á landi en í
vatni sér útblásturinn frá tveggja
strokka vél í hvoru skíði um að
þrýsta því áfram.
„Super Twist Car" kallaði einn
hópurinn þetta ökutæki og hlaut
bronsverðlaun fyrir hönnun þess.
Þetta sportlega ökutæki er búið
tveggja strokka véi og getur snúið
upp á miðjuna í beygjum, sem gef-
ur skemmtilega aksturstilfinningu.
,Starlet Marine" er byggður á
venjulegum Toyota Starlet, að vísu
fjórhjóladrifnum með dísilvél. Hér
er búið að tengja afturdrifið við
skrúfu á afturendanum. Útblást-
urinn frá dísilvélinni er leiddur í
flotholt eða loftpúða sem eru undir
framstuðaranum og í hurðunum en
þessir púðar sjá um að halda bíln-
um á floti í vatninu. Hópurinn sem
vann að hönnun Starlet Marine
hlaut silfurverðlaunin í keppninni
að þessu sinni.
TES er félag meira en 30.000 star
manna Toyota og koma félagsmei
jafnt úr verksmiðjudeildum, hön
unardeildum og skrifstofum. Allir
sem taka þátt í samkeppninni sam-
einast í þvi að efla félagsandann
innan hvers keppnishóps og allir
stefna að sama marki en það er að
skáka þeim næsta hvað varðar
frumleika. Það sem dregur menn
áfram í keppninni er ekki sú von að
koma fram með eitthvað sem síðan
yrði farið að framleiða í verk-
smiðjum Toyota, miklu frekar hrein
sköpunargleði, áhugi á hátækni og
síðast en ekki síst ánægjan.
Að þessu sinni komu fram 4.800
hugmyndir sem síðan voru lagðar
fyrir dómnefnd keppninnar en að-
eins nokkrar þeirra komu loks fyrir
cilmenningssjónir og má sjá hluta
þeirra hér. Verðlaun eru veitt fyrir
frumleika en ekki notagildi.
Meðal þeirra er hópurinn sem
hannaði fljúgandi reiðhjól sem hann
kallar „Sky Walker" sem fékk
þriðju verðlaunin í flokki ökutækja.
Hönnuðimir höfðu greinilega hriflst
af kvikmyndinni um E.T. þvf þeir
notuðu loftbelg fylltan helíum til að
lyfta því en skrúfa, sem tengd er
afturhjólinu, knýr það áfram þegar
stigið er á pedalana. -JR
Hönnuðir „Field Runner" hlutu bronsverðlaun fyrir ökutæki sem skríður
áfram með hjálp gúmmíbeltis sem er eins og talan átta í laginu og umlykur
ökutækið. Einn rafmótor í afturendanum knýr 10 metra langt gúmmíbeltið
sem myndar „X" ofan á ökutækinu.
„Móðir og barn" nefndist eitt farartækjanna, en þetta er fjögurra sæta ökutæki með fjórhjólastýri og knúið áfram af
rafmótor. Auðvelt er að stjórna því fram og aftur og einnig snúa því í hringi. Ef fjölskyldan er úti að aka og lendir í
umferðarteppu getur einn haldið áfram ferðinni því sambyggt „móðurfarartækinu" er lítið eins manns farartæki sem
getur haldið áfram ferðinni ef þörf er á. Á myndinni sést hvernig „barnið" getur sagt skiliö við „mömmuna". Þetta
ökutæki fékk sérstök verðlaun forseta TES.
Gullverðlaunin í keppninni að
þessu sinni fóru til hópsins sem
hannaði þetta sérstæða öku-
tæki sem hægt er að aka aftur-
ábak og áfram, snúa því í hringi
og láta það hreyfa sig eins og
krabba. Hér sitja tveir farþegar
hvor á sínu sætinu en öku-
tækinu er síðan stýrt með því
að snúa sætinu og halla því.