Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 Fréttir Þorsteinn Simonarson varð fyrir voðaskoti og gekkst undir aðgerð: Segir gullúrið haf a horfið á spítalanum - getum ekki borið ábyrgð á munum sjúklinga, segir skrifstofustjóri „Ég fór í sjúkrabíl í bæinn og var mikið kvalinn. Mér var gefið deyfilyf á spítalanum og það varð uppi fótur og fit því þetta var mikið sár. Ég man að úrið var tekið af mér á Borgar- spítalanum því ég fékk nál í mig og blóðþrýstingur var mældur og buxur voru klipptar af mér. Síðan var ég sendur á bráðamóttöku Landspítal- ans og eigur mínar með, að þeirra sögn. Ég fór í aðgerð og daginn eftir fæ ég svartan ruslapoka þar sem föt- in voru en úrið fannst hvergi," sagði Þorsteinn Símonarson úr Grindavík sem telur slysadeild Borgarspítalans bera ábyrgð á því að gullúr, sem eig- inkona hans gaf honum í þrítugsaf- mælisgjöf, glataðist þegar hann kom þangað særður eftir voðaskot fyrr í vetur. Hann hefur nú fengið þau við- brögð hjá Borgarspítalanum að hon- um verði ekki bættur skaðinn. Þorsteinn segist hafa leitað allra leiða, bæði á Borgarspítalanum og Landspítalanum, til að hafa uppi á úrinu en án árangurs. Hann segir úrið vera verðmætt en það hafi þó mest tilfinningalegt gildi fyrir sig. Um er að ræða Seiko gullúr með keðju. Sigríður Guðjónsdóttir, skrifstofu- stjóri hjá Borgarspítalanum, sagði við DV í gær að spítalinn gæti ekki tekið ábyrgð á munum sjúklinga og vildi ekki ræða máhð frekar. -Ótt Ingibjörg Einarsdóttir meó verðlaunin - Mílanóferð fyrir tvo með Flugleiðum. DV-mynd BG Ríkisendurskoðim uin framkvæmd búvörulaganna: Lítil hagkvæmni þrátt fyrir samdrátt - búvömsamningurinn frá 1987 sópaöi 10 miUjörðum úr ríkissjóði á ári Pastasamkeppnin: Útbjósér- stakan rétt í keppnina - sagðivmningshafínn „Ég átti alls ekki von á þessu. Ég vissi að ég var komin í úrslit en þorði ekki að gera mér vonir um Mílanó- ferðina," sagði Ingibjörg Einarsdótt- ir, vinningshafinn í pastasamkeppni DV, Nýrra eftirlætisrétta, Barilla, Flugleiða og Bylgjunnar en verö- launaafliendingin fór fram í gær. Ingibjörg hlaut ferö fyrir tvo til Mílanó en Sif Jónsdóttir í Reykjavík og Arnhildur Pálmadóttir á Húsavík hlutu 2. og 3. verðlaun sem voru ferð- ir fyrir einn til Mílanó. Uppskriftin frá Sif er aö „Spaghetti með laxa- sósu“ og sína uppskrift kallar Am- hildur „Hollt, ferskt og gott pasta- salat.“ „Ég prófaði mig bara áfram með réttinn þar til mér fannst hann orð- inn góður,“ sagði Ingibjörg sem útbjó „Saðsaman og gleðiaukandi Barilla- spaghettirétt" sérstaklega fyrir sam- keppnina. Aðspurð sagðist hún ekk- ert sérhæfa sig í pasta en hafa gaman af því að prófa eitthvaö nýtt. Þau sem hlutu 4., 5. og 6. sætið fengu bæði matarkörfur og bóka- verðlaun. Það voru þau Ríkharður Gústavsson fyrir uppskriftina „Pasta með pönnusteiktum smokkfiski og tómatkryddsósu", María Jakobsdótt- ir fyrir uppskrift að grænmetis- lasagne og Ingileif Eyleifsdóttir fyrir jógúrt-pastasalat. Allar þessar upp- skriftir birtust í DV í síöustu viku. -ingo Vopnafjörður: Vatnstankur sprakk í loðnu- bræðslunni Lóni lií'. á Vopnafirði um miðjan dag í gær. Sprenging- in var öflug og sendi einar 10 jámplötur um 40 metra frá gafli hússins. Nokkrir menn vom aö störfum við tankinn, þar af einn mjög náiægt honum, en allir sluppu ómeiddír. Þykir mildi aö ekki fór verr. Veriö var að hita vatnið í tank- inum með gufu þegar sprenging- in ótti sér stað, Taliö er að yfir- fallsrör hafi stíflast og sprenging orðið viö þrýsting sem myndað- ist Að ööm leyti er þetta óljóst og mun Vinnueftirlit ríkisins kanna málið. -bjb „Með framleiðslustjómun hefur tekist að minnka framleiöslu sauð- fjárafurða en ekki að ná umtalsverð- um árangri við að tryggja hag- kvæmni framleiðslu. Þrátt fyrir verulegan samdrátt í greininni hefur framleiöslueiningum ekki fækkað að sama skapi heldur hefur meöalstærð sauðfiárhúa minnkað," segir í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd buvörulaga á ámnum 1988 til 1993. Þrátt fyrir það markmiö búvöru- laganna frá 1985 og búvörusamnings- ins frá 1987 að aðlaga kindakjöts- framleiðsluna inncuilandsmarkaði virðist svigrúmið ekki hafa verið nýtt sem skyldi. Sú stefna að leigja fullvirðisrétt af bændum virðist í mörgum tilfellum hafa orðið til þess að fresta nauðsynlegri skerðingu á fullvirðisrétti. í skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á að í búvörusamningnum frá 1991 hafi bændum verið boðið að selja fullvirðisrétt og koma þannig í veg fyrir skerðingu. Fáir nýttu sér hins vegar tilboðið og fyrir vikið kom til hlutfallslegrar skerðingar á fram- leiðslurétti allra hænda. Fram kem- ur að verðábyrgð ríkissjóðs vegna framleiðslu kindakjöts hafi veriö færð niður úr 12,2 þúsund tonnum í 7,7 þúsund tonn. Samkvæmt útreikningum Ríkis- endurskoðunar nam kostnaður rík- issjóðs vegna búvöruframleiðslunn- ar allt að 10 milljörðum króna á ári á gildistíma búvörusamningsins frá 1987. Er þá óbeinn kostnaður ótalinn. Aætlað hefur verið að bein útgjöld vegna núverandi búvörusamnings verði um 5,2 milljarðar á ári. Fram kemur í skýrslunni að við- bótarkostnaður ríkissjóðs vegna samdráttar í innanlandssölu um- fram forsendur búvörusamnings nam um 2,2 milljörðum króna. Þá nam kostnaður við uppkaup á full- virðisrétti, fórgun og vegna útflutn- ings á birgðum um 2,3 milljörðum. Ríkisendurskoðun segir óvíst hvort það markmið hafi náðst að tryggja jöfnuð milli búgreina og hagkvæmni í framleiðslu búvara eins og stefnt var að. Þá sé ekki hægt að staðhæfa að verðmyndunarkerfið og ábyrgð ríkisins á framleiðslunni hafi tryggt bændum áþekk kjör og tíðkast meðal viðmiðunarstétta. -kaa Sígurður Sverrissan, DV, Akranesá: Rekstur íslenslta járnblendifé- lagsins skilaði 146 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Hagnaður- inn er um 5% af veltu fyrirtækis- ins. Þetta eru mikil umskipti frá árinu 1992 þegar 567 milljóna tap varð af rekstri verksmiðjunnar á Grundartanga. Bætta afkomu má að jöfnu rekja tO lækkunar á hráefnis- kostnaði, orku og á launakostn- aði, svo og öðrum innri kostnaöi fyrirtækisins. Þá tókst að fram- leiða og selja mun meira en árið 1992 og lítils háttar verðhækkun í árslok bætti um betur. Rekstrarhorfur fyrirtækisins eru góðar í ár. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir verulega auknum hagnaði, eða um 12% af veltu fyr- irtækisins. í tilkynningu frá félaginu segir að hagstætt árferði stafi af verndaraðgerðum Bandaríkja- manna og Evrópusambandsins gegn ýmsum framleiðendum sem bitna ekki ó íslenskri framleiðslu heldur nýtur hún góðs af á meðan þaðástandvarír. -bjb Stuttar fréttir Ábending Stígamóta Að gefnu tfiefni vOja Stígamót taka fram að enginn karlmaður vinnur á Stígamótum eða á veg- um Stígamóta. Karlmaöur hefur áreitt ungar stúlkur og kynnt sig sem starfsmann Stígamóta. HagnaðurhjáVÍS Vátryggingafélag Islands skfi- aði nær 115 mOIjóna króna hagn- aði á síðasta ári. Iögjöld ársíns voru 4,5 mOljarðar króna en tjón 3,9 mfiljarðar króna. síðasta ári nam 32 milljónum króna þegar tekið hafði verið tO- lit tO vaxta og skatta. Árið áður var 6 nnlljóna króna hagnaöur. ESBmeðráðstefnu _ í samráði við Verðbréfatnarkað íslandsbanka efnir Evrópusam- bandiö til ráðstefnu nk. fimmtu- dag um áhrif EES-samningsins á íslenskan iðnað og viðskipti. A aðalfundi Húseigendafélags- ins var þess krafist við Alþingi að félagið fengi að tilnefna full- trúa í nýja stjórn Fasteignamats ríkisins. Sykursn'rff innkallað Að kröfu HeObrigöiseftirlits Hafnarfiarðar hefur sælgætisduft verið innkaOað úr verslunum þar sem unglingar voru farnir að sjúga það upp í nefiö. Ölvaður við Ólafsvík Bfll valt utan vegar skammt frá Olafsvík sL fimmtudag. Ökumað- ur, sem er grunaður um ölvun, slapp ómeiddur frá veltunni en bíUirrn er talsvert skemmdur. Ekiðádreng Sendiferðabfl var ekið á 9 ára dreng á Seljalandsvegi á Isafirði í gær. Drengurinn hljóp í veg fyr- ir bílinn og maröist í andliti við óhappiö. Hálka var á veginum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.